Morgunblaðið - 18.01.1990, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1990
Bankaráð Landsbanka íslands:
Kristín hættir
hjá Kaupþingi
Fyrsti fundur nýkjörins bankaráðs í dag
KRISTÍN Sigurðardóttir, sem kosin var fulltrúi Samtaka um kvenna-
lista í bankaráð Landsbankans í desember sl., sagði í fyrradag upp
starfi sínu sem deildarstjóri hjá Kaupþingi hf. vegna gagnrýni sem
fram hefur komið á kosningu hennar í ráðið. Samtök um kvenna-
lista héldu í gær félagsfund um málið. Þar voru lögð fram lögfræði-
álit þriggja aðila þar sem Kristín var ýmist talin hæf eða vanhæf
til setu í bankaráðinu eða að seta hennar væri óeðiileg vegna starfs
hennar hjá samkeppnisfyrirtæki. Niðurstaða fundarins var sú að
ekki væri rétt að Kristín sæti samtimis í bankaráðinu og starfi sínu
þjá Kaupþingi. Fyrsti fimdur nýkjörins bankaráðs Landsbanka ís-
lands verður haldinn í dag.
Morgunblaðið/Þorkell
Frá fundi Samtaka um kvennalista í gær um mál fulltrúa þeirra
í bankaráði Landsbanka íslands.
„Ég tók að mér þetta verkefni,
án þess að ég sæi það fyrir að
svona myndi fara, og verð bara að
standa og falla með því,“ sagði
Kristín Sigurðardóttir í gærkvöldi.
„Ég átti að vísu von á því að svona
spurningar kæmu upp en taldi að
hægt yrði að útskýra málið og ljúka
því þannig. Þegar það var ekki
hægt taldi ég mig að vissu leyti
bera ábyrgð á því hvemig komið
var og yrði að leysa það sjálf,“
sagði Kristín.
Kristín sagði að starfslokum
sínum hjá Kaupþingi yrði hraðað
eins og kostur væri, en hún yrði
að ljúka verkefnum sínum og vænt-
anlega setja nýja manneskju inn í
starfið. Hún sagðist ætla að sitja
fyrsta fund bankaráðsins í dag og
vonaðist til að ekki sköpuðust
vandamál í þessu millibilsástandi
sem yrði á meðan hún væri að
skila af sér starfinu enda myndi
hún sýna fullan trúnað.
Lögfræðiálitin þrjú sem lögð
voru fyrir fund Kvennalistakvenna
í gær voru frá Bankaeftirliti Seðla-
banka Islands, Sigurði Líndal laga-
prófessor og Friðrik Olafssyni
skrifstofustjóra Alþingis. Banka-
eftirlitið telur að Kristín teljist ekki
vanhæf til setu í ráðinu. Niðurstaða
Sigurðar Líndal er sú að Kristín
teljist vanhæf til að sitja í banka-
ráðinu samkvæmt grundvallarregl-
um íslensks stjómarfarsréttar.
Friðrik Ólafsson telur að seta henn-
ar í ráðinu geti ekki talist andstæð
lögum en hún sé óeðlileg.
Niðurstaða fundar Kvennalist-
ans var eftirfarandi: „Það er aug-
ljóslega álitamál og umdeilanlegt
hvort starf Kristínar Sigurðardótt-
ur sem deildarstjóra innheimtu-
deildar Kaupþings hf., samrýmist
setu í bankaráði Landsbanka ís-
lands. Fæstir telja það þó andstætt
lögum og sú staðreynd að þeir þrír
aðilar sem leitað var álits hjá kom-
ast að mismunandi niðurstöðu, sýn-
ir nauðsyn þess að setja skýrari
reglur um almennt hæfi til setu í
stjómum og ráðum á vegum ríkis-
ins. Grundvöllur tortryggni virðist
fyrir hendi og hugsanlegt að
Kristínu verði gert erfitt fyrir í
störfum sínum í bankaráðinu. Þar
. vegur þungt sú staðreynt að tengsl
stjómar Landsbréfa hf. og stjómar
Landsbanka íslands virðast miklu
meiri en talið var þegar tilnefning
Kristínar var ákveðin. Sú tor-
tryggni og þær efasemdir sem sáð
hefur verið til hafa sétt Kvennalist-
ann og Kristínu í erfiða stöðu. Við
viljum ekki að um álitamál sé að
ræða í þessu efni. Niðurstaðan er
sú að þrátt fyrir lagalega stöðu sé
það ekki rétt að Kristín gegni
samtímis starfi deildarstjóra hjá
Kaupþingi hf. og sitji í bankaráði
Landsbanka íslands. Það hlýtur
hins vegar að vera endanlegt mat
Kristínar hvemig hún bregst við
þessari niðurstöðu og eftir sem
áður nýtur hún- fyllsta trausts
kvennalistakvenna.“
Nýr meirihlutí myndaður
innan stj órnar Stöðvar 2
Grundvöllur hlutafjárloforðs brostinn, segja fyrri aðaleigendur
Eignarhaldsfélag Verslunarbankans seldi í gær 100 milljóna króna
hlutafé í Stöð 2 sömu aðilum og keyptu 150 milljóna hlutafé í stöðinni
í síðustu viku. Þeir ráða því 250 milljóna hlutafé af 505,5 milljóna
hlutafé og fá jafnframt 3 menn í 5 manna stjórn hlutafélagsins sam-
kvæmt samningi við Eignarhaldsfélagið. Jón Ottar Ragnarsson og
Hans Kristján Arnason segja að með þessu hafi Eignarhaldsfélagið
brotið samkomulag sem gert var um áramótin og þar með séu forsend-
ur fyrir hlutafjárloforði þeirra gerbreyttar.
Þeir sem keyptu 150 milljóna
hlutafé í síðustu viku stofnuðu sam-
eignarfélag, Fjölmiðlun sf., um þann
hlut. í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi
sagði, að hann skiptist þannig: Har-
aldur Haraldsson forstjóri Andra hf.
með 50 milljónir, Jóhann J. Ólafsson
stórkaupmaður og formaður Verslun-
arráðs með 10 milljónir, Guðjón
Oddsson kaupmaður og formaður
Kaupmannasamtakanna með 5 millj-
ónir, Víðir Finnbogason kaupmaður
með 10 milljónir, Oddur Pétursson
kaupmaður með 5 milljónir, íslenska
útvaipsfélagið hf. með 6 milljónir,
Ólafur Njáll Sigurðsson forstjóri með
3 milljónir, Bolli Kristjánsson kaup-
maður með 17 milljónir, Jón Ólafsson
forstjóri með 17 milljónir, Skúli Jó-
hannesson kaupmaður með 17 millj-
ónir og Garðar Siggeirsson kaup-
maður með 10 milljónir. Fjölmiðlun
sf. hefur nú ábyrgst 100 milljóna
hlut til viðbótar.
*
Atakafundur
innan Alþýðu-
bandlagsins
MIKLAR umræður og harðar voru
í gærkvöldi á félagsfúndi Alþýðu-
bandalagsins, þar sem tekist var
á um það, hvort Alþýðubandalagið
stæði eitt að framboði í næstu
borgarstjórnarkosningum eða fari
í sameiginlegt framboð með öðr-
um minnihlutaflokkum, eins og
Birting hefúr lagt til.
Umræður stóðu enn á miðnætti
og fyrirsjáanlegt að fundurinn stæði
langt fram á nótt.
Jón Ottar Ragnarsson forstjóri
Stöðvar 2, Ólafur H. Jónsson aðstoð-
arforstjóri og Hans Kristján Árnason
ritari stjórnar Stöðvar 2 höfðu skrif-
að sig fyrir 150 milljóna hlutafé.
Þeir Jón Óttar og Hans Kristján
sendu frá sér yfirlýsingu í gær-
kvöldi, þar sem þeir segja að forsend-
ur fyrir hlutafjárloforði þeirra séu
nú gerbreyttar. Samningur Eignar-
haldsfélags Verslunarbankans við
nýja hluthafa hafi rýrt möguleika
þeirra til að hafa virk áhrif á stjóm
fyrirtækisins, og einnig minnkað
möguleika Eignarhaldsfélagsins til
þess sama.
Þeir Jón Óttar og Hans Kristján
segja að samningur Eignarhalds-
félagsins við nýju eigenduma hafi
verið gerður án samráðs við fyrri
eigendur, þrátt fyrir að þeir hafi til-
kynnt bankanum að þeir myndu efna
hlutafjárloforð sitt strax í þessari
viku. Þeir segja að samið hafi verið
um stjórn og framkvæmdastjórn til
nokkurra ára, og einnig um gagn-
kvæman forkaupsrétt á hlutabréfum
innbyrðis.
Jón Óttar og Hans Kristján segja
að þessi ákvörðun Eignarhaldsfé-
lagsins sé í ósamræmi við þá samn-
inga sem þeir haf i gert við Verslunar-
bankann um hlutafjáraukninguna,
þar sem ekki hafi verið stefnt að því
að afhenda meirihluta félagsins ein-
um tilteknum hópi aðila. Rökrétt nið-
urstaða sé sú að hinn nýi meirihluti
hljóti í framhaldi af þessu að taka
við stjórnartaumunum á Stöð 2.
Hluthafafundur íslenska sjón-
varpsfélagsins hf. verður haldinn á
laugardag. Þá mun bráðabirgða-
stjóm félagsins, sem kosin var um
síðustu áramót, láta af störfum en
ný stjórn taka við.
Stöðug fundahöld vom vegna
þessa máls í gærkvöldi og tókst
Morgunblaðinu ekki að ná tali af
mönnum þess vegna.
Reglugerðardrög um
læknaþj ónustu:
Læknar neita
að mæta á
samráðsfimd
GUÐMUNDUR Ingi Eyjólfsson
formaður samninganefiidar
Læknafélags Reykjavíkur kvaðst
í gærkvöldi ekki ætla að fara á
samráðsfúnd í heilbrigðisráðu-
neytinu í dag um drög að reglu-
gerð heilbrigðisráðherra um fyrir-
komulag læknisþjónustu, þar sem
hann teldi að málið eigi heima á
samningafúndi milli Trygginga-
stofnunar og Læknafélagsins.
Finnur Ingólfsson aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra segir að með
slíkum hótunum sé komið aftan
að heilbrigðisyfirvöldum, þar sem
samráð hafi verið haflt um þær
breytingar sem drögin boða.
„Eftir bréfi sem ég var að fá núna,
þá neitar Guðmundur Bjarnason heil-
brigðisráðherra að ræða við okkur á
vettvangi samninganefndar, hvað
sem það svo þýðir," sagði Guðmund-
ur. Hann sagði að hins vegar færu
formenn læknafélaganna á fundinn.
„Ég tel að með þessari reglugerð
sé verið að koma á tilvísunarskyldu,
sem er að vísu óbein skylda þar sem
sjúklingi er refsað með gjaldtöku ef
hann fer til sérfræðings án tilvísun-
ar,“ segir Guðmundur.
Hann segir skipulag sérfræði-
læknisþjónustunnar gera hana hag-
kvæma, þar sem stofur og öll að-
staða sé samnýtt af mörgum lækn-
um. „Við kærum okkur ekki um að
láta einhveija stjómmálamenn leggja
þetta í rúst.“
Finnur Ingólfsson segir reglugerð-
ina byggja fyrst og fremst á skipu-
lagsbreytingum og því áliti sam-
starfsnefndar heimilislækna og sér-
fræðinga að tryggja þurfi betur
nauðsynlegt upplýsingaflæði milli
heimilislækna og sérfræðinga og
milli sérfræðinga innbyrðis til að
auka gæði heilbrigðisþjónustunnar.
„Auk þess að ferli sjúklings eigi að
vera þannig, að samskiptin hefjist
hjá heimilislækni."
Finnur segir að menn ættu að bíða
með tölur um hækkanir þar til reglu-
gerðin hefur litið dagsins ljós, ábend-
ingar hafi komið fram um hvað
mætti betur fara og verið sé að skoða
þá hluti. „Ég á von á því að þær
tölur sem nefndar hafa verið eigi
talsvert eftir að breytast."
Hann kveðst ekkert vilja segja um
efni reglugerðarinnar annað en að
ekki sé um tilvísanaskyldu að ræða.
„Tilvísanaskyldan var felld úr al-
mannatryggingalögunum á Alþingi
síðustu dagana fyrir jól. Það var
gert vegna þess að tekist hafði sam-
komulag milli heilbrigðisráðuneytis-
ins, heimilislækna og sérfræðinga
um nýtt fyrirkomulag í samskiptum
þessara aðila. Þessi reglugerð byggir
í öllum meginatriðum -á því sam-
komulagi."
„Aðgerðaleys-
ið þrúgandi“
Skipverjar á Andra I spila brids á
ytri höfninni í Dutch Harbour
„VIÐ tökum þessu af stakri ró, enda ekkert annað að gera. Við
liggjum við festar hérna úti á höfninni við Dutch Harbour og ger-
um lítið annað en fara milli bryggju og króks því við þurfúm að
sækja vatn í land. Við erum í stað þess að vera þátttakendur að-
eins áhorfendur. Horfúm á báta og skip koma inn til löndunar, en
nú er mikil ufsa- og kolaveiði hér,“ sagði Ásmundur Jónatansson,
skipstjóri á verksmiðjuskipinu Andra I, í samtali við Morgunblaðið.
Andri I tók á móti af la til vinnslu
þijá síðustu daga ársins, en síðan
hefur aðgerðaleysið ráðið ríkjum.
„Útlitið er auðvitað ekki bjart.
Segja má að við höfum siglt í 60
daga til lítils, að minnsta kosti enn
sem komið er. Þetta skýrist þó
vonandi allt næstu daga og við
getum farið að taka þátt í slagn-
um. Við styttum okkur mikið
stundir með því að spila brids
meðan við bíðum frétta. Reyndar
er þorskveiðin ekki byijuð enn að
neinu ráði. Hin eiginlega vertíð
hefst ekki fyrr en síðar í mánuðin-
um. Mikil veiði er hins vegar af
ufsa og kola. Hér liggja þó margir
bátar vegna þess, að það vantar
verksmiðjuskip til að frysta kolann
og því geta þeir ekki veitt eins og
Morgunblaðið/HG
Ásmundur Jónatansson, skipstjóri í brúnni á Andra I.
þeir vildu. Við erum ekki búnir til
kolavinnslu, en auk þess er tak-
markaður áhugi meðal verksmiðju-
skipa á honum vegna þess hve lítið
fæst fyrir hann,“ sagði Ásmundur
Jónatansson, skipstjóri.
Nafni hans, Ásmundur Þórir
Ólafsson, stýrimaður, tók í sama
streng. „Við bjuggumst við því að
mala gull hér um þessar mundir,
en það er á annan veg. Við unnum
aðeins þijá síðustu daga ársins,
rétt til að prufukeyra græjurnar.
Síðan hefur ekkert verið, en við
berum okkur vel. Aðgerðarleysið
er reyndar heldur þrúgandi og lítið
er að sækja í land. Þetta líkist
varla nokkurri mannabyggð, er
eins og maður gæti ímyndað sér
afskekktasta fjallaþorp frá síðustu
öld,“ sagði Ásmundur Þórir.
I
I
I
I
1
I
I
I
!
i
I
I
r
I
i