Morgunblaðið - 18.01.1990, Side 13
SKYNDIVERÐLÆKKUNARVEISLA
á frábœrum fótum frá merkjum sem gefa línuna
Góðan dagim!
MQRGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAqyR,18. JANÚAR 1990 ,
Láttu það
eftir þér
að líta inn!
MrtMRMðtl
meeýjcm & (HUtct'uz&oéönK
LAUGAVEGI 39 • SÍMI 11388
SVFR SVTR SVFR SVTH iSVFR SVXR SVIR SVFH SVFH SVTR SVFH
Dagskrá: Ávarp, Jón G. Baldvinsson formaður SVFR.
Verðlaunaafhending.
Ómladdi Ómladda, splunkunýr skemmtiþáttur Ómars
og Ladda.
Hátíðarfluga kvöldsins. Vísubotnakeppni. Glæsilegt
happdrætti.
Hljómsveitin Einsdæmi leikur fyrir dansi til kl. 3.
Matseðill: Laxavafningar með kryddjurtum og sítru-
sósu.
Kampavínsísmusl.
Heilsteiktur lambahryggur með gljáðum lauk.
Ferskt ávaxtasalat með ískremi
Veislustjóri: Ingvi Hrafn Jónsson.
Húsiðopnað kl. 19.
Miðasala ífélagsheimili SVFR, Háaleitisbraut 68, laugardaginn
20. janúar frá kl. 12-15.
Borðapantanir á sama stað. Sími 686050.
■ J
OPIÐ HUS
í félagsheimili SVFR föstudaginn 19. janúar.
Húsið opnað kl. 20.30.
Sigurður Guðjónsson, fiskifræðingur: Eldisfiskur í lax-
veiðiám.
Félagar, mætið vel og takið meðykkur gesti.
Fræðslu- og skemmtinefnd SVFR.
Básúna og bassi
_________Tónlist____________
JónÁsgeirsson
Við Tónskólann, sem Sigur-
sveinn Davíð Kristinsson, tón-
skáld, stofnaði, hafa margir þeir
sem nú hasla sér völl sem fulln-
uma tónlistarmenn fengið
grunnmenntun sína og meðal
þeirra eru Hávarður Tryggvason
kontrabassaleikari og Sigurður
Sveinn Þorbergsson básúnuleik-
ari, en þeir héldu tónleika um
síðustu helgi í Tónskólasalnum
nýja í Hraunbergi 2. Hávarður
stundaði framhaldsnám í Frakkl-
andi og starfar nú í Belgíu, en
Sigurður Sveinn sótti sína fram-
haldsmenntun til Englands og
leikur með Sinfóníuhljómsveit
íslands.
Báðir eru þeir góðir tónlistar-
menn, ráða yfir góðri tækni og
léku viðfangsefnin af öryggi.
Hávarður lék tvö „klassísk“ verk,
Konsertíno eftir Hoffmeister og
leikandi létta Tarantellu eftir
bassasnillinginn og hljómsveitar-
stjórann Giovanni Bottesini. í
báðum verkunum, svo og í ein-
leikskadensu eftir Teppa Hauta-
aho, sýndi Hávarður leikni sína
og sérlega fallega tónun í hæga
þættinum í verki Hoffmeisters.
Undirleikari á píanó var Brynja
Guttormsdóttir.
Sigurður Sveinn lék Rómönsu
eftir Weber, Sónötu eftir ein-
hvern Sclek (eins og stóð í efnis-
skrá), Ballöðu eftir Frank Martin
og sónötu eftir Sackman. Besta
tónsmíðin á þessum tónleikum
var Ballaðan eftir Frank Martin
og trúlega er ekki um mörg ein-
leiksverk að ræða fyrir básúnu
og fæst þeirra sem til eru eftir
meiriháttar tónsmiði. Sigurður
Sveinn lék verkin mjög vel allt
að því óaðfinnanlega og er Ijóst
að hér er á ferðinni mjög góður
básúnuleikari. Undirleikari hjá
Sigurði Sveini var Clare Toomer.
I heild voru þetta skemmtileg-
ir tónleikar, vel framfærðir, þó
flest verkin stæðu á fremur
grannvöxnum undirstöðum og
jafnvel lítt nothæf til annars en
að gefa einleikurum tækifæri til
að sýna leikni sína, sem og þeir
gerðu með ágætum.
Sigurður Sveinn Þorbergsson
Hávarður Tryggvason
Stangaveiðifélag Reykjavíkur heldur
árshátíð sína í Súlnasal Hótels Sögu
föstudaginn 2. febrúar