Morgunblaðið - 18.01.1990, Page 15
■ HREPPSNEFND Reyðar-
fjarðarhrepps vill koma fram eftir-
farandi ályktun um orkufrekan iðn-
að: Nýtt álver kallar á virkjun í
Fljótsdal. Hreppsnefnd telur að
nýta beri meginhluta orku fjórð-
ungsins innan hans enda ástæðu-
laust að flytja orkuna lengra en
þörf er. Hreppsnefnd óttast, að
verði meginhluti orkunnar fluttur
burtu, nú í þessum áfanga verði
haldið áfram á þeirri braut. Reyðar-
fjörður uppfýllir vel þau skilyrði
sem þurfa að vera til staðar fyrir
stóriðnað. Flutningslínur frá virkj-
unum geta vart verið styttri, sam-
göngur á landi allgóðar, stutt á
væntanlegan alþjóðaflugvöll. Land-
rými til iðnaðar nægilegt og einnig
fyrir íbúðabyggð. Hafnarskilyrði
ein hin bestu á landinu og líklega
hvergi ódýrara að byggja höfn.
Sigling til Evrópu er u.þ.b. sólar-
hring skemmri hvora leið en frá.
Faxaflóa. Hafíshætta hverfandi.
Hreppsnefnd Reyðarfjarðarhrepps
mótmælir þeirri skoðun, sem oft er
haldið fram, að fámenni Reyðar-
fjarðar og næstu nágrannabyggða
útiloki nánast að reisa fyrirtæki á
borð við álver þar. Hreppsnefnd
hefur mun meiri áhyggjur af áhrif-
um stöðnunar á svæðinu en af tíma-
bundnum þensluáhrifum, __ sem
vissulega mundu leiða af byggingu
stórfyrirtækis, og lýsir sig reiðu-
búna til að leysa þau vandamál í
samvinnu við nágrannabyggðir.
___________Brids______________
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Suðurnesja
Meistaramót félagsins í tvímenningi
hófst sl. mánudag með þátttöku 18
para. Spilaður er barometer, fimm spil
milli para.
Efstu pör eftir 5 umferðir af 17:
Eysteinn Eyjólfsson —
Pétur Júlíussön 43
Jóhannes Sigurðsson —
Birkir Jónsson 42
Grethe íversen —
Sigríður Eyjólfsdóttir 32
Haraldur Brynjólfsson —
Gunnar Siguijónsson 27
Gísli Torfason —
Magnús Torfason 23
Næstu 6 umferðir verða spilaðar nk.
mánudagskvöld kl. 20. Keppnisstjóri
er Hafsteinn Ögmundsson.
Reykjanesmót í sveitakeppni
Laugardaginn 27. janúar nk. hefst
Reykjanesmótið í sveitakeppni. Spilað
verður í Flensborgarskólanum og hefst
keppnin kl. 10 að morgni.
Þátttökugjald verður 6000 kr. fyrir
sveitina, en mótið mun gefa 3-4 sveit-
um þátttökurétt í undankeppni íslands-
mótsins. Þá kemur fram í tilkynningu
BRU að meirihluti keppenda í hverri
sveit verði að vera af Reykjanessvæð-
inu.
Þátttökutilkynningar berist til Gísla
ísleifssonar (Bridsf. Suðumesja), Karls
Einarssonar (Muninn Sandg.), Þor-
steins Berg (Bridsf. Kópavogs) eða
Friðþjófs Einarssonar (Bridsf. Hafnar-
fjarðar) fyrir 25. janúar nk.
Áskriflarsimim er 83033
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANUAR 1990
15
HAGSTÆDUSTU BILAKAUP ARSINS
AÐEINS KR. 795.000
3'/2 ÁRS LÁNSTI MI
•A,
stgr.
Nú eigum við aðeins örfáa bfla eftir af árgerð
1988 á þessu ótrúlega verði.
Auk hagstæðs verðs, auðveldum við kaupin
með því að lána hluta eða jafnvel allt kaupverð
bílsins í 31/2 ár á hagstæðum bankalánum.**
Komdu í reynsluakstur strax og kynntu þér
frábæra aksturseiginleika Chevrolet Monza.
*Fasteignaveð er nauðsynlegt, ef allt kaupverðið er lánað.
**Verð miðast við staðgreiðslu og án afhendingarkostnaðar.
BíLVANGURsf
Höfðabakka 9, símar 687300 - 674300 (bein lína)
ADAm#
JAKKAFOT FRÁ KR. 9.900,- STAKIR JAKKAR FRÁ KR. 6.900.-
ADHffl#
STAKAR BUXUR FRÁKR. 1 .900.-SKYRTUR FRÁ KR. 1.500.-
HERRAHÚSIÐ, LAUGAVEGI 47, S. 291 22 - 1 7575 - OPIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 10-14.