Morgunblaðið - 18.01.1990, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1990
17
Hagrænar ástæður
Nú hefur verið gerð nokkur
grein fyrir rökrænum og siðferði-
legum ástæðum fyrir því, að öld-
ungis fráleitt er að jafna saman
verðtryggingu fjármagns og launa.
En fyrir þessu eru líka hagrænar
ástæður, fullgildar einar sér, en
það yrði of langt mál að færa þær
fram hér. Aðeins skal bent á, að
verðtrygging hlýtur að örva sparn-
að, enda er hann marklaus ella í
óðaverðbólgu. Þessarar örvunar
þarf ekki með til að fólk sækist
eftir launum! Sparnaður er bæði
þjóðarnauðsyn (og einu rök próf.
Olafs Björnssonar fyrir verðtrygg-
ingu!) og nauðsyn hvers og eins
persónulega. Hvað gætu fyrir-
greiðslupólitíkusar gert, ef enginn
legði fé fyrir? Hvað gætu skjól-
stæðingar þeirra gert, skuldararn-
ir, ef ekkert fé fengist að láni? Það
er blöskrun að sjá og heyra svívirð-
ingar Stefáns Valgeirssonar og
annarra pólitikusa um fjármagn
og fjármagnseigendur, um ógöfug-
an „pappírs-auð“ og okur o.s.frv.,
svo ákaf le^ð: sem þeir sömu striga-
kjaftar sækjast eftir að fá til eigin
nota eða til að gefa skjólstæðing-
um sínum þá hina sömu peninga
sem þeir bölva í hinu orðinu. Enga
kröfu eiga þeir á hendur öðrum
um að spara né heldur um að lána.
Sparendúr þurfa ekki að bera kinn-
roða fyrir ráðdeild sína, né sitja
þegjandi undir brigzlum. Sparnað-
ur er þjóðarnauðsyn. — En nóg
um það hér.
Rökvísi verkfræðinga
- og foringja launþega
Að lokum skal bent á, að spa-
rifé er einatt afrakstur margra
ára, jafnvel heillar ævi, en laun
taka aðeins til eins árs í senn frá
samningsgerð.
Hér er ekki verið að halda því
fram, að rangt sé að verðtryggja
laun (né heldur vexti!). Það er hér
einfaldlega ekki til skoðunar. Ein-
ungis er hér leitazt við að skýra,
að verðtrygging fjármagns og
launa er ekki hið sama og það er
út í hött að halda því fram, að
ekki sé réttmætt að tryggja fé
nema laun séu líka tryggð.
Þeir sem skilja þetta ekki, sem
er fremur einfalt mál, geta ekki
vænzt þess að skynsamir kjósend-
ur treysti þeim til að skilja og
meta réttilega þau þjóðmál sem
flóknari eru. Engu fremur er þeim
treystandi, ef þeir að vísu skilja,
en látast ekki gera það í því skyni
að veita atkvæði -eða vinsældir
meðal undirmálsfólks.
Það er skelfilegt, að maður sem
fjallar um mál með þeim hætti sem
Júlíus Sólnes gerir í áðurnefndri
grein í Dv — en hún hefur einung-
is að litlu leyti verið gagnrýnd hér
— skuli eiga þess kost að verða
ráðherra, meira að segja ráðherra
vísitölumála — og senn umhverfis-
mála, þar sem ekki mun veita af
skarpari hugsun, framsýni — og
rökvísi. Það er skelfilegt, að fleiri
alþingismenn og ráðherrar og for-
ystumenn stærstu launþegahópa
(nú síðast Ögmundur Jónasson
foringi og trúnaðarmaður þeirra
gáfumanna sem þjóna ríki og sveit-
arfélögum) skuli vera undir sömu
sök seldir um skilning — ellegar
sannsögli — svo sem þeir gerast
berir að. A.m.k. þrír verkfræðingar
hafa gengið fram fyrir skjöldu í
því að ófrægja verðtryggingu fjár-
magns — enginn slíkur hefur opin-
berlega varið hana, það ég bezt
veit. Væntanlega er þetta tilviljun,
en ekki vísbending um að verk-
fræðingar séu órökvísir eða fræði
þeirra bág. En vel mætti stétt
þeirra eiga hér betri hlut. Reyndar
háskólamenntaðir menn yfiríeitt,
ef menntun þeirra er einhvers virði.
Höfundur er bankamaður.
FACIT
SILVER REED EZ-45
1. 500 stafa leiðréttingarminni
2. Hraðvirk og hljóðlát
3. Lágt lyklaborð
4. Uppsetningarminni
5. Mismunandi leturgerðir
6. O. fl. o. fl.
Góð ritvél er
besti vinur ritarans
SKRIFSTOFUVÉLAR GÍSLI J. JOHNSEN HF.
Skrifstofuvélar Gísli J. Johnsen hf. bjóða
fjölbreyttasta úrval ritvéla á
markaðnum.
Lítið inn, við eigum öruggiega ritvélina
sem hentar best og hjá okkur fást allir
fylgililutir og við leggjum metnað okkar
í góða pjónustu.
MESSAGE C-20
VERSLUN HVERFISGÖTU 33 SÍMI: 623737
VERSLUN NÝBÝLAVEGI 16 SÍMI: 641222