Morgunblaðið - 18.01.1990, Qupperneq 22
22^-
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1990-
STRIÐ OG FRIÐUR
Stórmynd gerð undir stjórn S. Bondartsjúks eftir skáld-
sögu Tolstojs verður sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10,
laugardaginn 20. janúar. Sýning myndarinnar hefst kl.
10.00 árdegis og lýkur um kvöldmatarleytið. Rússn-
eskir réttir, kaffi og te í hléum. Aðgangur aðeins gegn
framvísun aðgöngumiða. Fáeinir ósóttir miðar á
Vatnsstíg 10 kl. 17.00-18.30 í dag, fimmtudag.
MÍR.
LEADING EDGE
heimilis- og fjölskyldutölvan frá Banda-
ríkjunum, sem hlotið hefur frábæra dóma
fyrir öryggi og góða hönnun, er komin til
íslands. Leading Edge er nú boðin á sér-
stöku kynningarverði.
Tæknilegar upplýsingar:
Örgjörvi
Klukkutíðni
Uppbygging
Minni (RAM)
Diskettudrif 5,25“
Harður diskur
Meðalsóknartími
Skjár
Fjöldi stækkunarraufa
Hlið/raðtengi
Stýrikerfi mS-DOS
Verð m. virðisaukaskatti
D
8088
8MHZ
XT
512 kb
360 kb
30 Mb
65 ms
hrc. s/h
4
1/1
3.2
125.000,-
Umboðsmenn fyrir COMPAQ og ELCAD
Armúla 1, sími 8-25-55,
108 Reykjavík.
Fyrirhugaðar kosningar í Burma:
Leiðtoga stj órnarandstöð-
unnar meinuð þátttaka
DnnfvnAn Pmitnn
Rangoon. Reuter.
HERSTJÓRNIN í Burma hefur
ákveðið að einum helsta leið-
toga stjórnarandstöðunnar,
Aung San Suu Kyi, verði ekki
heimilað að bjóða sig fram í
kosningum sem boðað hefiir
verið til í maímánuði. Skýrt
var frá þessu í gær en ástæðan
var sögð sú að Aung San hefði
átt samvinnu við félaga í ólög-
legum stjórnmálasamtökum.
Aung San Suu Kyi er 44 ára
gömul en hún hefur verið í stofu-
fangelsi í Rangoon frá því í júlí
mánuði. Hún er leiðtogi Lýðræðis-
fylkingarinnar sem stóð fyrir
miklum mótmælum gegn her-
stjórninni í landinu árið 1988.
Þau mótmæli braut herafli lands-
ins á bak aftur í septembermánuði
það sama ár. Aung Sann Suu
Kyi er dóttir Aung San sem stjórn-
aði frelsisbaráttunni gegn Bretum
eftir síðari heimsstyrjöldina.
Talsmaður Lýðræðisfylkingar-
innar kvað andstæðing Aun Sang
Suu Kyi úr Sameiningarflokknum
hafa borið ákæru þessa upp á
hendur henni en samkvæmt kosn-
ingalögum sem herstjórnin setti
má enginn sá sem átt hefur sam-
skipti við félaga í ólöglegum
samtökum bjóða sig fram í kosn-
ingunum í maí, sem verða hinar
fyrstu í landinu í 29 ár. Stjórnvöld
hafa þráfaldlega sakað Aung San
Suu Kyi um samvinnu við öfl sem
hyggist steypa stjórn landsins.
Ekki er gert ráð fyrir að unnt sé
Cinhell
vandaóar vörur
Loftpressur
FYRIR LIGGJANDI
ALLTAF SAMA LÁGA
VERÐIÐ
Skeliungsbúðin
Siðumula 33
símar 681722 og 38125
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins i Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
á laugardögum ívetur frá kl. 10-12.
Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum.
Allir borgarbúar velkomnir.
Laugardaginn 20. janúar verða til viðtals Júlíus Hafstein, formaður íþrótta- og tómstunda
ráðs Reykjavíkur, umhverfismálaráðs, ferðamálanefndar og í stjórn Dagvistar barna,
Þórunn Gestsdóttir, formaður jafnréttisnefndar, varaformaður ferðamálanefndar og
umhverfismálaráðs, og Ingólfur Steinar Sveinsson, í stjórn heilbrigðisráðs og Sjúkrasam-
lags Reykjavíkur.
y y y y y y y y y y y y y
Reuter
Aung San Suu Kyi, leiðtogi Lýð-
ræðisfylkingarinnar í Burma.
að afrýja úrskurði sem þessum en
talsmaðurinn kvað f lokksstjórnina
hafa sent kosninganefnd stjórn-
valda bréf þar sem farið væri fram
á að bannið yrði afturkallað.
Öryggisgæsla var aukin á göt-
um Rangoon er stjórnarandstæð-
ingum barst þessi tilkynning en
fjölmiðlar, sem lúta ströngum rit-
skoðunarreglum, skýrðu ekki frá
þessu.
Búist er við að um 100 flokkar
taki þátt í kosningunum. Erlendir
stjórnarerindrekar í Burma segja
að herstjórnin hafi búið þannig
um hnútana að flokkar stjórnar-
andstæðinga muni eiga erfitt
uppdráttar í kosningabaráttunni.
Sú yfirlýsing stjórnvalda að kosn-
ingarnar verði öldungis fijálsar fái
því ekki staðist.
Atvinnuleysið vex
stöðugt í Noreg’i
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.
FRA áramótum hefúr atvinnulausu fólki í Noregi fjölgað um 1.000
á dag og heildartalan er nú komin yfir 100.000 í fyrsta sinn frá því
í kreppunni á fjórða áratug aldarinnar.
Síðastliðinn mánudag 15. janúar
voru 105.000 manns án atvinnu í
Noregi en það svarar til 4,8% af
vinnufæru fólki. Er atvinnuleysið
mest í Finnmörku eða 9% en á það
er bent, að ríkið hefur í raun tekið
upp á sína arma um 60.000 manns
og því óttast margir, að þegar líði
á veturinn verði í raun hægt að
tala um 200.000 atvinnuleysingja í
landinu.
Þessar tölur hafa að sjálfsögðu
ekki farið framhjá stjórnmálamönn-
unum og í umræðum á þingi sagði
Jan P. Syse forsætisráðherra, að
þær væru „skelfilegar". Hann
greindi hins vegar frá því, að í
sambandi við kjarasamningana á
vori komanda ætlaði ríkisstjórnin
að leggja fram víðtæka áætlun um
úrbætur í atvinnuleysismálum.
Stéttarfélögin hafa að undan-
förnu verið að kynna hugmýndir
sínar um nýja kjarasamninga og
ætla almennt að fara fram á veru-
lega kauphækkun. Segja þau kaup-
máttinn -hafa minnkað mikið og
benda á, að 1988 hafi þau enga
hækkun fengið og 1989 ekki nema
sem svarar til 16.800 ísl. kr. Þá
krefjast þau þess einnig, að vegna
ástandsins í atvinnumálum komi
ríkisstjórnin inn í viðræðurnar í
vor en Syse hefur vísað því á bug.
■ KA UPMANNAHOFN - Út-
gáfu f lokksblaðs danskra kommún- -
ista, Land og folk, verður hætt og
80 starfsmönnum þess sagt upp
frá 1. febrúar nk., að sögn danska
blaðsins Ekstrabladet. Mun ætlunin
að hefja útgáfu síðar og verður
blaðið þá mun smærra og starfs-
menn örfáir. Danski kommúnista-
flokkurinn hefur lengi átt við mik-
inn fjárhagsvanda að stríða og
hefur m.a. neyðst til að selja hús-
eignir sínar í miðborg Kaupmanna-
hafnar.
■ KAUPMANNAHÖFN - Um
síðustu helgi var 33 ára Brasilíu-
maður handtekinn á Kastrup-flug-
velli en í farangri hans fundust 13
kíló af heróíni. Lætur nærri að
söluverð þess sé 26 milljónir dan-
skra króna eða 242 milljónir ísl.
króna. Maðurinn, sem kom með
flugi frá Ríó de Janeiró í Brasilíu,
var dæmdur í 26 daga varðhald.
■ KAUPMANNAHÖFN - Um-
hverfisverndarsamtökin Green-
peace hófu á mánudag baráttu gegn
mengun Norðursjávar. Skip sam-
takanna, Síríus, sigldi fyrst á svæði
þar sem Bretar kasta iðnaðarúr-
gangi í sjó undan ósum árinnar
Tyne í Norður-Englandi en baráttu-
herferðinni lýkur í höfninni í Haag
við upphaf ráðstefnu um mengun
Norðursjávarins þar í borg 8.-9.
mars nk.
■ ESBJERG - Hollenskur drátt-
arbátur kom með þijá sovéska
kafbáta af Whisky-gerð til Esbjerg
á mánudag. Þar verða þeir rifnir í
brotajárn. Danskur brotajárnskaup-
maður keypti bátana í Tallinn í
Eistlandi, en sovéski flotinn hafði
lagt þeim. Kafbátur af þessari gerð
strandaði á sínum tíma í sænska
skeijagarðinum.
■ NUUK - NÍUNDA morðið það
sem af er þessu ári á Grænlandi
var framið sl. laugardag er 29 ára
maður myrti 49 ára móður sína í
bænum Ilulissat, senr áður hét
Jakobshavn og er með stærri bæj-
um í landinu, með um 4.000 íbúa.
Við yfirheyrslur gaf maðurinn þá
skýringu að hann hefði verið ofur-
ölvi og lent í deilum við móður
sína. Hefði hann fyrst tekið hana
hálstaki og síðan stungið hana
mörgum sinnum með hnífi. Áfengi
hefur komið við sögu í öllum morð-
málunum. Auk þess hefur ofneysla
áfengis leitt til dauða tveggja
kvenna á Austur-Grænlandi frá
áramótum. Báðar ætluðu á milli
húsa en duttu á götu og gátu ekki
staðið upp. Þær urðu úti.
■ KA UPMANNAHÖFN - Eig-
endur Sheraton-hótelanna hafa
ákveðið að fjölga hótelum sínum í
Evrópu á næstu fimm árum þannig
að gistirými verði tvöfait meira að
þeim tíma liðnum en nú er. Shera-
ton-hótelin eru nú 28 talsins en
ákveðið er að reisa ný hótel í
Newcastle á Engla'ndi og Flórens á
Ítalíu á næsta ári: Síðan verða
byggð hótel í Antalyu í Tyrklandi,
Algarve í Portúgal, Marbella á
Spáni, Genúa á Ítalíu og við Manc-
hester-f lugvöll í Englandi. Auk þess
er verið að athuga með möguleika
á hótelbyggingu á Islandi og ann-
ars staðar á Norðurlöndum, m.a. í
Árósum í Danmörku.