Morgunblaðið - 18.01.1990, Síða 25

Morgunblaðið - 18.01.1990, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JAJWAR 1990 25 Byltingin í Rúmeníu: „Þú ættir að skjóta þá og geyma líkin í kjöllurunum“ - sagði Elena Ceausescu á íúndi í stjórnmálaráði rúm- enska kommúnistaflokksins 17. des. sl. HANZ ■z. Á mikilvægum fundi í stjórnmálaráði rúmenska kommúnistaflokksins 17. desember sl. hótaði Nicolae Ceausescu að láta skjóta nokkra ráðherra fyrir að hafa ekki hlýtt fyrirskipunum um, að skotið skyldi á mótmælendur, og Elena, kona hans, krafðist þess, að mótmælend- umir fengju „aldrei framar að líta dagsins ljós“. Var skýrt frá þessu í rúmenska blaðinu Romania Libera og frásögnin endurprentuð í breska blaðinu The Guardian. í afriti af umræðunum í stjórn- málaráðinu kemur fram, að Vasile Milea, fyrrum varnarmálaráðherra, Tudor Postelnicu, fyrrum innanrík- isráðherra, og Iulian Vlad, fyrrum yfirmaður öryggissveitanna, Secu- ritate, hafi áður verið búnir að heita því að framfylgja skipunum Ceausescus en hér fer á eftir úr- dráttur úr orðaskiptunum: Ceausescu: „Ég þykist vita, að útlendingahóparnir og útlendu njósnaf lokkarnir taki þátt í samtök- unum [til varnar prestinum Laszlo Tökes í Timisoara]. Við vitum, að jafnt í austri sem vestri hafa menn verið að tala nauðsyn á breytingum í Rúmeníu og nú hafa þessi öfl tekið höndum saman og komið af stað uppþotum. [Lögreglan og her- inn] hafa staðið sig frámunalega illa. Ég ræddi við flokksfélaga í Timisoara og sagði þeim að sýna valdið með því að fylkja skriðdrek- um í miðborginni. Ég gaf þessa .skipun og þið hlýdduð henni ekki. Ég held helst, að sveitir innanríkis- ráðuneytisins [lögreglan og örygg- issveitirnar] hafi verið óvopnaðar.“ Postelnicu: „Já, þær voru óvopn- aðar að undanskildum landamæra- vörðunum." Ceausescu: „Hvers vegna? Ég hef sagt, að þær verði allar að vera vopnaðar. Hvers vegna senduð þið óvopnaðar sveitir, hver gaf þá skip- un? Ég hef alltaf talið það deginum ljósara, að öryggissveitirnar séu vopnaðar þegar verið er að senda þær eitthvað en þið senduð þær til að berjast með hnefunum einum. Hvers konar öryggissveitir eru þetta? Og lögreglan á að vera vopnað lögum samkvæmt.“ Postelnicu: „Félagi aðalritari, lögreglan er vopnuð." Ceausescu: „Éf hún er vopnuð á hún að skjóta og sitja ekki undir árásum manna. Hvernig getur svona nokkuð gerst [innrás mót- mælenda í Timisoara inn í aðal- stöðvar kommúnistaflokksins]? Hvað voru foringjarnir þínir að gera, Milea? Hvers vegna skárust þeir ekki í leikinn? Hvers vegna skutu þeir ekki? Milea: „Ég lét þá ekki hafa skot- færi.“ Ceausescu: „Hvers vegna léstu þá ekki hafa skotfæri? Skotfæra- lausir geta þeir bara verið heima hjá sér. Hvers konar varnarmála- ráðherra ertu? Hvers konar inn- anríkisráðherra ertu, Postelnicu?" Elena: „Ástandið er mjög alvar- legt.“ Ceausescu: „Það er mjög alvar- legt og þið eruð allir sekir.“ Elena: „Varnarmálaráðherrann og innanríkisráðherrann sinntu ekki starfi sínu.“ Ceausescu: „Fámennur ruslara- lýður vill tortíma sósíalismanum og þið hagið ykkur eins og börn. Fidel Castro hafði rétt fyrir sér. Það er ekki hægt að þagga niður í óvinin- um með því að tala við hann eins og sálusorgara, heldur með því að brenna hann.“ Elena: „Þeir eru huglausir." Ceausescu: „Þeir eru ekki aðeins huglausir og sem yfirmaður hersins lít ég svo á, að þið hafið gerst sekir um landráð og svik við hags- muni lands og þjóðar og sósíalis- mans.“ Vlad: „Þú hefur rétt fyrir þér, félagi aðalritari, þannig er það.“ Vlad skýrir Ceausescu frá því, að öryggissveitirnar hafi haft kylfur og táragas. Ceausescu: „Hvers vegna voru þær óvopnaðar?" Vlad: „Við vissum ekki, að svo væri.“ Ceausescu: „Á þessari stundu, ef framkvæmdastjórnin samþykkir, er varnarmálaráðherranum, inn- anríkisráðherranum og yfirmanni öryggissveitanna vikið frá. Héðan í frá mun ég sjálfur stjórna hernum. Undirbúið tilkynningu þess efnis nú strax. Það verður að drepa þennan óþjóðalýð, ekki berja á honum. [Nú sneri hann sér að mönnunum, sem hann var að reka] Vitið þið hvað ég ætla að gera við ykkur? Láta skjóta ykkur. Það er ekki hægt að koma á lögum og reglu með kylfum. Ég mun strax skipa svo fyrir, að allir verði vopn- aðir.“ Elena: „Þú ættir að skjóta þá [mótmælendur] og geyma líkin í kjöllurunum [öryggissveitanna]. Enginn þeirra ætti framar að líta dagsins ljós. Við verðum að grípa til róttækra ráðstafana, við getum ekki sýnt neina miskunn.“ Ceausescu: „Við munum beijast þar til yfir lýkur.“ Vlad: „Við héldum, að um væri að ræða einangraðan vanda, sem unnt væri að leysa án skotfæra.“ Ceausescu: „Aldrei hélt ég, að þið mynduð skjóta púðurskotum. Þeir, sem fóru inn í aðalstöðvar flokksins [í Timisoara), hefðu ekki átt að komast þaðan út lifandi." Elena og Nicolae Ceausescu TILBOÐSDAGAR 15-20% afsláttur af öllum vörum KDSTABODA KRINGLUNNI, SÍMI 689122.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.