Morgunblaðið - 18.01.1990, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANUAR 1990
29
Greiðslufrestur á virðisaukaskatti í tolli:
Todmobile
á Hótel
Borg
HLJÓMSVEITIN Todmobile
heldur tónleika á Hótel Borg í
kvöld og opnar húsið kl. 22.00.
Þetta verða aðrir tónleikar
Todmobile, en sveitin, sem skipuð
er þeim Eyþóri Amalds, Andreu
Gylfadóttur og Þorvaldi Þorvalds-
syni, sendi frá sér sína fyrstu
breiðskífu stuttu fyrir jól, og seldist
allvel. Til aðstoðar hafa þau ýmsa
tónlistarmenn og svo verður einnig
í kvöld.
*
Astæðulaust að baukar taki nema
hverfandi gjald fyrir ábyrgðir
- efþeir hafa góða reynslu af fyrirtækjunum, segir fjár-
málaráðherra í bréfi til samtaka innflytjenda
FJÁRMÁLARÁÐHERRA, Ólafúr Ragnar Grímsson, hefúr svarað
fyrirspurn samtaka innflytjenda frá 4. janúar síðastliðnum úm þá
kröfú fjármálaráðuneytisins að bankaábyrgð þurfí til að fá greiðslu-
írest á virðisaukaskatti í tolli, en samtökin mótmæltu kröfúnni sem
óþarfri og kostnaðaraukandi. Ráðherrann segir að ekki sé talið skyn-
samlegt að falla frá almennu kröfúnni um ábyrgðir, eðlilegra sé að
fella niður kröfú um þær hjá tilteknum atvinnugreinum eða einstök-
um fyrirtækjum, ef reynslan sýni að ekki verði þörf fyrir þær. Varð-
andi kostnaðinn segir hann að óeðlilegt sé að bankar taki allt að
2% gjald fyrir ábyrgðirnar, af fyrirtækjum með áratuga viðskipta-
reynslu við bankana. „Ef reynsla banka er góð af viðskiptum við
fyrirtæki er ástæðulaust að taka nema hverfandi gjald vegna veittra
ábyrgða,“ segir i svarbréfí ráðherrans.
Þórshöfn:
Nokkuð gott
atvinnuástand
Þórshöfn.
SÍÐASTLIÐINN mánudag landaði
togarinn Stakfell 109 tonnum af
ísfíski. Skipið frystir nú einungis
helming aflans um borð, en frysti
hann áður allann. Þessi breyting
á rekstri skipsins þýðir aukna at-
vinnu fyrir heimamenn í landi, en
bátaafli undanfarið hefúr verið
mjög lítill.
Hraðfrystistöð Þórshafnar auglýs-
ir nú eftir fólki til fiskvinnslu og
mun þar verða áfram næg vinna, því
Stakfell hélt aftur á veiðar í gær,
miðvikudag.
Hjá atvinnuleysisskráningu feng-
ust þær upplýsingar að fyrir viku
hefðu átta menn verið á skrá, en
líklega mun sú tala lækka með þess-
ari auknu vinnu í Hraðfrystistöðinni.
Segja má að atvinnuástand á Þós-
höfn sé því nokkuð gott miðað við
árstíma.
L.S.
Morgunblaðið kannaði með
hvaða hætti umræddar ábyrgðir eru
veittar í Búnaðarbanka, Islands-
banka og Landsbanka. Allir bank-
arnir taka gjald íýrir ábyrgðirnar,
ákveðið hlutfall af upphæðinni sem
ábyrgð er veitt fyrir. Þeir líta á
ábyrgðirnar sem hveija aðra lána-
fyrirgreiðslu, hvað varðar áhættu,
og þess vegna er gjaldið tekið og
trygginga krafist.
Hjá Bunaðarbanka er ábyrgðar-
gjald fyrir fyrstu sex mánuði gild-
istíma ábyrgðarinnar 1,25% af upp-
hæðinni. Fyrir hveija byijaða þijá
mánuði til viðbótar er tekið 0,25%
gjald. Afgreiðslugjald vegna skjala-
kostnaðar er 750 krónur. Þar sem
gjaldfresturinn er veittur tímabund-
ið fram eftir árinu, mun Búnaðar-
bankinn segja upp ábyrgðunum
með þriggja mánaða fyrirvara,
þannig að þær falli úr gildi 31.
ágúst.
íslandsbanki veitir ábyrgð til allt
að sex mánaða og er gjaldið 1,25%,
að viðbættum 1.000 krónum vegna
skjalakostnaðar. Ábyrgðimar eru
uppsegjanlegar af hálfu bankans
með þriggja mánaða fyrirvara.
Landsbankinn tekur 1% ábyrgð-
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM
17. janúar.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 88,00 88,00 88,00 1,072 94.368
Þorskur(óst) 90,00 65,00 74,59 6,095 454.560
Þorskur(smár) 29,00 29,00 29,00 0,045 1.305
Ýsa 126,00 120,00 122,08 3,389 413.724
Ýsa(ósl.) 91,00 50,00 81,12 6,751 547.583
Ýsa(smá) 25,00 25,00 25,00 0,023 575
Ufsi 48,00 48,00 48,00 6,778 325.364
Lúða 310,00 265,00 289,94 0,208 60.163
Langa 53,00 49,00 52,05 1,217 63.343
Karfi 42,00 42,00 42,00 4,562 191.591
Keila (ósl.) 29,00 29,00 29,00 1,122 ' 32.538
Langa(ósL) 49,00 49,00 49,00 0,437 21.413
Steinbítur (ósl.) 51,00 51,00 51,00 0,069 3.495
Rauðmagi 70,00 70,00 70,00 0,008 525
Samtals 69,57 31,774 2.210.547
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur(sL) 79,00 72,00 76,69 16,280 1.248.605
Þorskur(ósL) 68,00 52,00 65,67 19,597’ 1.286.972
Ýsa (sl.) 117,00 94,00 100,17 10,214 1.023.125
Ýsa(ósL) 88,00 78,00 81,02 2,022 163.821
Ýsa(ósl.1 n.) 92,00 69,00 79,83 2,847 227.287
Langa 50,00 50,00 50,00 2,131 106.562
Keila 17,00 12,00 13,28 1,007 13.369
Karfi 41,00 41,00 41,00 0,182 7.462
Ufsi (ófl.) 46,00 42,00 43,27 83,297 3.604.332
Ufsi(ósL) 40,00 40,00 40,00 1,002 40.080
Lúða (smá) 295,00 270,00 277,65 0,939 260.715
Lúða (stór) 350,00 290,00 311,49 0,101 31,460
Lúða (milli) 400,00 330,00 389,90 0,799 311.530
Skarkoli 100,00 100,00 100,00 0,059 5.900
Steinbítur 59,00 40,00 57,43 4,412 253.392
Undirmál 20,00 15,00 ■ 15,67 0,625 9.795
Samtals 59,33 143,511 8.514.248
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 74,00 66,00 70,78 14,520 1.027.760
Þorskur 83,00 49,00 78,62 73,852 5.806.523
Ýsa 116,00 87,00 98,86 3,864 381.980
Ýsa 76,00 76,00 76,00 0,150 11.400
Hlýri/Steinb. 64,00 64,00 64,00 0,607 38.848
Langa 55,00 55,00 55,00 0,123 6.765
Lúða 385,00 300,00 339,42 0,090 30.378
Karfi 46,00 40,00 44,94 2,915 131.000
Keila 32,50 22,50 24,29 5,131 124.622
Steinbítur 75,00 59,00 70,71 1,110 78.490
Skarkoli 70,00 70,00 70,00 0,037 2.590
Skata 68,00 68,00 68,00 0,010 680
Samtals 74,61 102,408 7.641.036
argjald og veitir ábyrgðina til
tveggja mánaða í senn. Bankinn
krefst tryggingarvíxils með ábyrgð-
armanni og er tekið af honum 0,25%
stimpilgjald.
í Búnaðarbanka og íslandsbanka
er metið í hveiju tilviki hvaða trygg-
inga er krafist fyrir ábyrgðinni. Af
tryggingavíxli greiðast 0,25% í
stimpilgjald. Sé krafist fasteigna-
veðs þarf ennfremur að greiða þing-
lýsingarkostnað.
I bönkunum fengust þær upplýs-
ingar að algengast væri að ábyrgð-
irnar séu veittar fyrir upphæðum,
sem hlaupa á einni milljón króna
til þriggja milljóna. Dæmi em um
að í einstökum tilvikum sé um allt
að átta milljónir króna að ræða.
Þessar upphæðir jafngilda nokkum
veginn þeim virðisaukaskatti sem
innheimtur er af innflutningnum,
sé virðisaukaskatturinn hærri, þarf
að staðgreiða það sem er umfram
ábyrgðirnar, eða fá viðbótar ábyrgð
fyrir upphæðinni.
Svarbréf fjármálaráðherra um
ábyrgðarkröfuna er sent til Félags
íslenskra iðnrekenda, Kaupmanna-
samtaka íslands, Sambands
íslenskra samvinnufélaga, Félags
íslenskra stórkaupmanna, Lands-
sambands iðnaðarmanna og Versl-
unarráðs íslands.
í bréfi ráðherra segir meðal ann-
ars: „Rétt er að minna á að hér er
um að ræða gjaldfrest á skatti en
á undanförnum ámm hefur verið
lögð síaukinn áhersla á aukið ör-
yggi við innheimtu á opinberum
gjöldum. Ráðuneytið telur því nauð-
synlegt að þegar veittur er almenn-
ur gjaldfrestur á sköttum sé sé far-
ið af stað með gát og að sama regla
gildi fyrir alla því að ekki er hægt
að meta það fyrirfram hveijir iriuni
koma til með að standa í skilum
og hveijir ekki. Ráðuneytið telur
því ekki skynsamlegt að hverfa frá
þeirri ákvörðun að krefjast trygg-
inga fyrir þeim lánum sem eru veitt
með þessum hætti. Benda má á að
ef í ljós kemur að ríkissjóður tapaði
verulegum fjárhæðum vegna gjald-
frests í tolli gæti það haft áhrif á
ákvörðun um hvernig gjaldfrestur
muni verða á næstu árum. Ráðu-
neytið telur eðlilegra að fella niður
kröfu um tryggingar ef reynslan
af skilum sýnir að ekki sé þörf á
þeim í tilteknum atvinnugreinum
eða hjá einstökum fyrirtækjum.“
Þá segir í bréfinu að skoðun
ráðuneytisins sé að bankar þurfi
ekki að taka jafn hátt gjald fyrir
ábyrgðimar og fram kemur í bréfi
samtakanna til ráðherra, eða 1,5%
til 2%. „Hafi fyrirtæki verið í við-
skiptum við banka um ára eða ára-
tuga skeið er óeðlilegt að tekið sé
jafn hátt gjald og kemur fram í
bréfi yðar. Ef reynsla banka er góð
af viðskiptum við fyrirtæki er
ástæðulaust að taka nema hverf-
andi gjald vegna veittra ábyrgða,"
segir þar. Ennfremur: „Ef lána-
stofnanir krefjast gjalds vegna
veittra ábyrgða er það vegna þess
að viðkomandi lánastofnun telur að
viss áhætta felist í því að veita
ábyrgð, en ljóst má vera að ekki
er ástæða til þess að ríkissjóður
taki á sig þessa ábyrgð án nokk-
urra trygginga."
Fjármálaráðherra:
Hef engin afskipti haft af
skattamálum „Þýsk-íslenzka“
MORGUNBLAÐINU barst í ^ær
eftirfarandi yfirlýsing frá Olafí
Ragnari Grímssyni Qármálaráð-
herra:
„Vegna ummæla Ómars Krist-
jánssonar framkvæmdastjóra í fjöl-
miðlum að undanfömu og vegna
yfirlýsinga frá hlutafélaginu „Þýzk-
íslenzka" í Morgunblaðinu í dag tel
ég rétt að taka fram að ég hef
hvorki fyrr né síðar haft afskipti af
meðferð embætta ríkisskattstjóra og
ríkissaksóknara á skattamálum
„Þýzk-íslenzka“. Frétt af ákæm á
hendur fyrirtækinu barst mér í fjöl-
iniðlum, enda em úrslit þessa máls
á engan hátt á valdi ráðherra.
Rétt er að benda forsvarsmönnum
„Þýzk-íslenzka“ á að skattamál fyr-
irtækisins em nú fyrir dómst'ólum,
og er því eðlilegt að vörn í málinu
fari fram á þeim vettvangi.
Lokun fyrirtækisins í júní sl.
vegna vanskila á söluskatti er þessu
máli óviðkomandi. Hinn 8. júní voru
gefin út almenn fyrirmæli til inn-
heimtumanna ríkissjóðs um hertar
aðgerðir vegna vanskila á sölu-
skatti, og var „Þýzk-íslenzka“ i hópi
þeirra fyrirtækja sem ekki höfðu
gert skil. Fyrirtækið hafði kært
álagningu til ríkisskattanefndar, en
hún hafði vísað kæmnni frá án þess
að fella niður álagningu söluskatts
á fyrirtækið. Þegar fyrirtækið
greiddi umrædda söluskattsskuld
vom innsiglin rofin.
Fullyrðingar um sérstakar póli-
tískar ofsóknir í garð fyrirtækisins
em úr lausu lofti gripnar. Ég hef
fylgt þeirri stefnu sem fjármálaráð-
herra að móta almennar reglur um
skattamál og innheimtu, en hef forð-
ast afskipti af málefnum einstakra
aðila, og aldrei blandað mér inn í
meðferð rannsóknarembætta eða
embætta dómskerfisins á einstökum
málum. Slíkt er ekki á verksviði fjár-
málaráðherra.
Ég hlýt því að vísa á bug dylgjum
Ómars Kristjánssonar í fjölmiðlum
síðustu daga, bæði í minn garð og
einnig gagnvart fjármálaráðuneyt-
inu og þeim embættismönnum sem
undir það heyra.“
Ólafúr Ragnar Grímsson
Bókaútgefendur:
Allar bækurnar
koma til greina
MORGUNBLAÐINU hefúr borist eftirfarandi yfírlýsing um íslensku
bókmenntaverðlaunin frá Jóni Karlssyni, formanni Félags íslenskra
bókaútgefenda.
Símsvari Loðnu-
neftidar
SKRIFSTOFA Loðnunefndar er
opin alla virka daga milli 8.00 og
17.00. Þess á milli eru þar gefnar
upplýsingar í símsvara.
Loðnunefnd býr yfir upplýsingum
um gang loðnuveiðanna, afla ein-
stakra skipa, laust löndunarrými og
þá löndunarstaði, sem ákveðnir eru
hveiju sinni. Þessar upplýsingar
liggja venjulega fyrir upp úr hádegi
og eru þá lesnar inn á símsvarann,
en númer hans er 91-22204.
„Að gefnu tilefni vill Félag
íslenskra bókaútgefenda lýsa því
yfir, að allar bækur, sem tilnefndar
voru sem athyglisverðustu bækur
ársins 1989, komi að sjálfsögðu til
greina við úthlutun íslensku bók-
menntaverðlaunanna. í reglum
verðlaunanna er aðeins talað um
athyglisverðustu bækurnar og síðan
val bestu bókarinnar, en hvergi
kemur fram að orðið bókmenntir
beri að skilja í þrengsta skilningi
sem skáldverk, enda var það ekki
gert við tilnefningar í fyrri umferð.
Dómnefnd valdi eftirtaldar tíu
bækur sem athyglisverðustu bækur
ársins 1989 og skal síðari dómnefnd
velja verðlaunabókina úr þeim hópi.
Ég heiti ísbjörg ég er ljón. Höf-
undur Vigdís Grímsdóttir. Fransí
biskví. Höfundur Elín Pálmadóttir.
Fyrirheitna landið. Höfundur Einar
Kárason. Götuvísa gyðingsins. Höf-
undur Einar Heimisson. Islensk orð-
sifjabók. Höfundur Ásgeir Bl.
Magnússon. Náttvíg. Höfundur
Thor Vilhjálmsson. Nú eru aðrir
tímar. Höfundur Ingibjörg Haralds-
dóttir. Snorri á Húsafelli. Höfundur
Þórunn Valdimarsdóttir. Undir eld-
fjalli. Höfundur Svava Jakobsdóttir.
Yfir heiðan morgun. Höfundur
Stefán Hörður Grímsson."