Morgunblaðið - 18.01.1990, Síða 31

Morgunblaðið - 18.01.1990, Síða 31
MORGU.NBLftÐIi) FÍMMTUDAGUR 18j JANÚAR1990 > ; 310$ LIFÐU LÍFINU LIFANDI * efbirArna Helgason Um jólin og áramótin hefir þjóðin verið látin vita hversu mikið er af alls konar stofnunum til bjargar og hjálpar fólki sem illa er statt. Og mér skilst að oftast eigi þetta fólk, myndarlegt og dugandi, skaða sinn að rekja til áfengis og annarrar vímu sem ráðamenn þjóðarinnar veita inn í landið í stórum straumum. Jafnvel sjá menn nú að það er bjórinn sem kveikt hefir víða í gömlum glæðum, þ.e. þeim sem fyrir hjálp og trú á frelsarann eru að ná áttum og hafa fótað sig um hríð en síðan bjórinn (sem svo margir telja skaðlausan) kom til sögunnar hafa þeir alltof margir hrasað aftur, þ.e. bjórinn hefir kveikt í þeim. Og að ráðamenn þjóðarinnar vilji ganga á undan með góðu fordæmi kemur ekki til mála því það er ómögulegt að telja allt það af áfengi sem þeir hafa með alls konar hætti komist yfir til „embættismanna" og þurfa ekki að gera grein fyrir hvernig hafi verið notað. Þarna liggur hörmungin. Og því miður benda þeir frekar niður á við en upp og sárast af öllu er hversu virðingin fyrir alþingi og ráðamönnum dvín með hveijum Árni Helgason „Við sem viljum þjóðina allsg-áða og heiðarlega fáum ekki við gert vegna þess að þeir sem ráða vilja hafa ástandið svona.“ degi. Og að mega ekki treysta því sem þar er sagt. Enda má ef til vill segja að þar leiði blindur blind- an, því miður. Ég hitti fyrir gamlan vin minn á götu höfuðborgarinnar. Hann var iila fyrirkallaður og kom mér það á óvænt, því ég hélt að hann væri kominn upþ á bakkann. Svona fór það, sagði hann, valið milli frelsar- ans og flöskunnar. Það er eins og freistingarnar verði yfirsterkari, já alltaf. Og hann grét. Þetta er ein myndin. Við sem viljum þjóðina allsgáða og heiðarlega fáum ekki við gert vegna þess að þeir sem ráða vilja hafa ástandið svona. Þeir eiga ekki að gæta bróður síns, en eiga þeir þá að eyðileggja þá uppbyggingu sem góðir þegnar þjóðarinnar hafa staðið í undanfarið? Ég las fyrir nokkrum árum bæk- ur eftir Norman Vinc. Peale dr. í snilldarþýðingu Baldvins Þ. Krist- jánssonar og veit að þær eru til enn. M.a. Lifðu lífinu lifandi og Vörðuð leið til lífshamingju. Ósköp væri nú gaman ef ráðamenn þjóðar- innar og allir landsmenn vildu lesa þessar bækur og nota sér leiðina sem þar er vörðuð. Höfíwdur er fyrrverandi póst- og símstöðvarsljóri í Stykkishóimi. ■ FJÁRMÁLARÁÐHERRA hef- ur skipað í stjórn Innkaupastofnun- ar ríkisins og þijá fulltnía í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkis- ins. Stjórn Innkaupastofnunar ríkis- ins er skipuð þeim Hilmari Ingólfs- syni, skrifstofustjóra, Loga Kristj- ánssyni, verkfræðingi og Þórhalli Arasyni, skrifstofustjóra í fjármála- ráðuneytinu, sem er formaður stjórnarinnar. Þeir eru skipaðir til tveggja ára. Fulltrúar í stjórn Lífeyr- issjóðs starfsmanna ríkisins eru Adda Bára Sigfúsdóttir, veður- fræðingur, Snorri Olsen, skrifstofu- stjóri í fjármálaráðuneytinu og Þor- steinn Geirsson, ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins. Þau eru skipuð til þriggja ára. Aðrir i sjóð- stjórninni eru Einar Ólafsson og Ögmundur Jónasson frá BSRB og Þorsteinn Jónsson frá BHMR. Stjórnin skiptir sjálf með sér verk- um. ■ AÐALFUNDUR Sjálfstæðis- félagsins Skjaldar í Stykkishólmi var haldinn í Félagsheimilinu 14. janúar síðastliðinn og var hann vel sóttur. Á fundinum var kjörin ný stjórn og fráfarandi stjórn þökkuð störf. Í stjórn voru kjörin: Sigurður Skúli Bárðarson, formaður, Ríkarð- ur Hrafnkelsson, gjaldkeri og Unn- ur Valdemarsdóttir, ritari. Vara- stjórn: Auður Stefnisdóttir og Njáll Þorgeirsson. í kjördæmisráð: Ellert Kristinsson, Árni Helgason, Ólafur Sigurðsson og Hinrik Finnsson. Einnig voru 10 manns kjörnir í full- trúaráð. ■ UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ heldur upplýsingafund um viðræður Fríverslunarsamtaka Evrópu, EFTA og Evrópubandalagsins, EB, um myndun Evrópska efnahagssvæðis- ins, EES, í félagsheimilinu í Ól- afsvík föstudaginn 19. janúar næst- komandi kl. 21. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, hefur framsögu. Ennfremur mun hann svara fyrirspurnum ásamt embættismönnum utanríkisráðu- neytisins, segir í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. SV/HV ER KOMŒt AFTUR TILAÐVERA Kynningarverð írá kr. 3.000 til 25. febrúar Einhell vandaöar vörur ARGON- SUÐUVÉLAR A GOÐU VERÐI Skeljungsbúðin Síðumúla 33 símar 681722 og 38125 Vió kynnum þennan glæsilega bíl um helgina 20.-21. janúar. Fylgstu vel méð, því hér er á ferðinni einn athyglisverðasti bíllinn á markaðnum í dag og á verði, sem kemur á óvart. Hann er einn vinsælasti bfllinn í dag, en hef ur aldrei komið til íslands áður Ljósmyndarar: Guðmundur Jóhannesson Ingibjörg Kaldal Smávegis um hrossanúmerin eftirPétur Hjálmsson Á undanförnum mánuðum hafa orðið miklar og hatrammar deilur um ný hrossanúmer sem Búnaðar- félag íslands hefur tekið í notkun. Menn geysast fram á ritvöllinn og í ræðupúltið og eira helst engu. Talað er um nýju númerin eins og þau verði hluti af hrossinu sem hlýt- ur það og ræða af miklum fjálgleik um ágæti gömlu númeranna eins og þar væri um heilagan sannleika að ræða. Mér eru alveg óskiljanleg þessi læti út af slíkum smámunum sem þarna erir á ferðinni. Kannski er þetta af því að þegar hross eru annarsvegar, veitist mörgum erfitt að halda stillingu sinni. Ekki dettur mér í hug að reyna að læra og að muna númer á hross- um frekar en ég færi að reyna að læra kennitölur manna. Ég hef allt- af litið svo á, að með því að gefa hrossi nafn og kenna það við fæð- ingarstaðinn sé búið að auðkenna það á þann veg sem okkur er auð- veldast að muna. Þegar þarf að finna hross í skrám er venja að þeim sé raðað eftir staf- rófsröð, og því er auðvejdast að finna tiltekin hross samkvæmt því kerfi. Auðvitað á alltaf að skrá númer hrossanna samkvæmt nýja númerakerfinu samhliða nafninu. í nokkrum nýútkomnum bókum um hross hafa höfundar gripið til þess ráðs að gefa hrossum einhver tilbúin númer eftir eigin geðþótta, samkvæmt „gamla kerfinu". Auð- vitað er hverjum höfundi bókar frjálst að skrifa það sem er undir eigin nafni. Skelfing finnast mér samt skrifin setja niður við slíka ritmennsku og tæplega verða hrossaræktinni til framdráttar. ' Höfundur er ráðunautur hjá Búnaðarfélagi íslands. Leitið upplýsinga Laugavegi178 sími: 689220 iiiliililll llillll úvú'ix Lwtiislafilæ íSktoSwSSkwSwí ..■.wk.i'íX.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.