Morgunblaðið - 18.01.1990, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANUAR 1990
37
Sigfás Sigvarðarson
frá Brú — Minning
Fæddur 3. nóvember 1912
Dáinn 11. janúar 1990
Fyrir um það bil áratug hittust
tveir ungir menn í Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti í Reykjavík og
með þeim tókust kynni og síðar
vinátta. Þegar nokkuð leið frá fóru
þeir að bera saman bækur sínar
um uppruna sinn. Kom þá í ljós
að þeir voru báðir afkomendur
bænda á Efra-Jökuldal. Var annar
sonarsonarsonur Sigvarðar Pét-
urssonar á Brú en hinn sonarsonur
nágranna hans, Aðalsteins Jóns-
sonar á Vaðbrekku. Þótti báðum
vænt um að geta rakið ættir í
þennan fjarlæga og ævintýralega
afdal.
Þegar sá sem þetta ritar varð
þessa vísari rifjuðust enn á ný upp
hin góðu kynni okkar á Vaðbrekku
við Brúarfólkið. Sigfús Sigvarðar-
son, afi piltsins í Fjölbraut, átti
sinn sérstaka þátt í þeim kynnum.
Sigfús fæddist í Giljum á Jökul-
dal en fluttist að Brú á Jökuldal
árið 1926 með foreldrum sínum,
Sigvarði Péturssyni og Önnu Sig-
fúsdóttur, og tveimur eldri systk-
inum, Björgu og Halldóri. Björg
giftist Gunnlaugi Vilhjálmssyni
Snædal á Eiríksstöðum og býr nú
í Reykjavík en Halldór kvæntist
Unni Stefánsdóttur frá Merki og
bjó á Brú þar til hann lést árið
1982.
Sigfús vann heima á Brú á
sumrum fram um tvítugt en fór
þá að hleypa heimdraganum.
Hann var til sjós á síld á Víði frá
Eskifirði eitt sumar. Það var á
þeim árum þegar menn lögðu nótt
við dag meðan síldin barst á land
og skemmtu sér eða börðust í land-
legum.
Sigfús tók snemma bílpróf og
vann um tíma sem bílstjóri, m.a.
hjá Kaupfélagi Héraðsbúa. Þá
voru vegir á Austurlandi tæpast
nema troðningar en bíllinn olli
byltingu í samgöngum á þessum
árum eins og mönnum er kunn-
ugt. Sigfús átti sinn þátt í að inn-
leiða bifreiðanotkun á Efra-Dal,
því að hann fór fyrstur ásamt
Kristjáni Tómassyni, bílstjóra á
Reyðarfirði, á bíl inn Jökuldals-
heiðina af Norðurlandsvegi austan
við Rangalón og niður undir dal-
brún fyrir ofan Brú. Þetta var
árið 1938. Þarna var síðar lagður
sumarvegur sem gjörbreytti
mannlífinu á Efra-Dal.
Árið 1941 kvæntist Sigfús
Maríu Þorgerði Beck frá Sóma-
stöðum í Reyðarfirði. Þau bjuggu
heima á Brú einn vetur en fluttust
síðan til Akureyrar. Þar vann Sigf-
ús ýmis störf, m.a. um tíma hjá
blaðinu Degi og síðar á bifreiða-
verkstæði.
Árið 1944 fluttust þau hjón til
Neskaupstaðar þar sem Sigfús
gerðist lögregluþjónn og varð síðar
hafnarvörður fram um 1956. Hann
vann síðan við múrverk í nokkur
ár en hóf síðan vinnu á bílaverk-
stæði Dráttarbrautarinnar í Nes-
kaupstað. Þar vann hann sem bif-
vélavirki og síðar bifreiðastjóri þar
til hann lét af störfum árið 1986.
María lést árið 1973.
Sigfús var lagtækur og var
mikið leitað til hans með úr og
klukkur til viðgerðar enda lék allt
í höndunum á honum.
Þeim Maríu og Sigfúsi varð
fjögurra bama auðið. Elstur er
Hans. Hann kvæntist Erlu Jóns-
dóttur frá Skálateigi í Norðfirði
og eignuðust þau fjögur börn. Hún
er látin. Næst er Anna Þrúður,
búsett í Færeyjum, gift Elíasi Þór
Ragnarssyni frá Neskaupstað.
Þau eiga fimm börn. Þá er Heiðr-
ún Þyri, búsett í Neskaupstað,
áður gift Ágústi Guðmundssyni
frá Reykjavík. Þau eiga tvö börn.
Þau skildu. Yngst er María Pála,
sem lést árið 1981, gift Þorsteini
Guðjónssyni frá Akureyri. Þeirra
börn eru tvö.
Sigfús stendur mér lifandi fyrir
hugskotssjónum frá þeim tíma
sem hann var enn í foreldrahúsum
heima á Brú. Eg minnist hans
þannig að hann hafi verið svip-
mikill og sviphýr, glaðvær og
glettinn, kjarkmikill og áræðinn,
hugulsamur og hjálpfús, snöggur
upp á iagið og skjótur í tilsvörum,
ófeiminn og orðheppinn þegar þess
þurfti, bóngóður og barngóður.
Sigfús var vel liðtækur til verka
við búskapinn heimafyrir enda
veitti ekki af. Brú er landmikil
hálendisjörð, snögglend og erfitt
um slægjulönd en kjarnmikil beit
á afar víðlendum afrétti sem heit-
ir einu nafni Brúardalir. Þangað
fóru þeir bræður Halldór og Sigfús
margar ferðir til fjárleitar fram
eftir haustum, oft í misjöfnum
veðrum og við mikið erfiði. En
þeir mikluðu ekki erfiðleikana fyr-
ir sér. Það var ekki nema fyrir
kjarkmenn að búa við fjöllin.
Allt Brúarfólkið var okkur á
Vaðbrekku kært og nákomið og
Sigfús ekki síst, enda var hann
yngstur þar á bæ og næstur okkur
í aldri. Það var alltaf eins og boð-
ið væri til veislu þegar Fúsi á Brú
kom í heimsókn. Hann var svo
uppfullur af fjöri og fréttum, tilbú-
inn að tala við alla, blanda við
okkur geði og gleðjast með okkur.
Sigfús hafði farið víða um
landið og gat sagt okkur sem
heima sátum margt úr fjarlægð-
inni sem við sáum aðeins í þoku-
kenndum draumi. Við hlustuðum
til dæmis með opinn munn og
uppglennt augu þegar hann var
að segja frá blóðugum bardögum
sjóara á Siglufirði.
Sigfús kom eitt haustið með
grammófón heim í Brú. Það var
þá sjaldséð tæki þar í sveit og
áður en útvarp kom þar. Þá gerði
hann sér lítið fyrir eitt kvöldið að
loknum gegningum, lét grammó-
fóninn og einhveijar plötur í poka,
lagði pokann á bakið og gekk með
þetta dýrmæta tæki yfir í Vað-
brekku til þess að spila fyrir okkur
systkinin.
Það er eftirminnileg myndin
sem geymist með mér frá því
kvöldi, kannske vegna þess að
veruleikinn vék fyrir ævintýrinu
dálítinn dagpart.
Þarna var ungur maður sem
hafði farið að heiman til að afla
sér fjár og kynna sér heiminn
kominn í heimsókn í lágreistan
torfbæ lengst inni í afdal með
grammófón, söng og hljóðfæraleik
i poka á bakinu. Heimsmaðurinn
frá næsta bæ veitti okkur systkin-
unum ógleymanlega hlutdeild í
munaði menningarlífsins þetta
kvöld.
Það er margs að minnast fyrir
þá sem mörgum hafa kynnst. Góð-
ir vinir gleymast ekki þó að leiðir
skilji um langan tíma.
Stefán Aðalsteinsson
LAUSBIAÐA-
MÖPPUR
frá Múlalundi...
... þær duga sem besta bók.
^ Múlalundur
SOLUTÆKNI
LISTINAÐ SELJA
Sölutæknín fjallar um það hvernig á að
gera sölustarfið markvíssara, árangursríkara
og skílvirkara, með því að þekkja betur mark-
aðínn, viðskiptavinínn og ýmsar söluörvandí
aðgerðír. 36 tímar.
Skráning hafin í síma 626655.
Viðskiptaskólinn
HAGNÝTT NÁM - ÞEKKING SEM NÝTIST!
KHAIA MAHOGNI
HVITUR ASKU.R
wSm' mm
.
INNANHUSSHÖNNUÐUR
H ..
: *
í ví
ÁÐST0ÐAR VIÐ VALIÐ
' ' ...
u/tre
ARMÚLA 38 -108 REYKJAVÍK • SÍMI681818
ÚTSALAN
HEFST í DAG
Meiri háttar verðlækkun
SNORRABRAUT 56 SÍMI 13505 «14303
l