Morgunblaðið - 18.01.1990, Page 42

Morgunblaðið - 18.01.1990, Page 42
:*42.... MÓFÍátjNBLAÐlÐ' FfMMTUDÁ'áÚRÁS: JÁNUAK 1990 Minning: Guðmundur E. Bjamason Fæddur 1. maí 1896 Dáinn 4. janúar 1990 Guðmundur Elías Bjarnason fæddist í Túni í Hraungerðishreppi. Hann andaðist í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur eftir stutta legu. Guð- mundur var yngstur 11 barna þeirra hjóna Guðfínnu Guðmundsdóttur og Bjarna Eiríkssonar er bjuggu í Túni. Eiríkur var Bjamason bónda í Túni Stefánssonar bónda í Arbæ Bjarnasonar á Víkingslæk. Guð- finna var dóttir Guðmundar bónda í Hróarsholti Tómassonar prests Guðmundssonar í Villingaholti. Systkini Guðmundar Elíasar komust öll til fullorðinsára. Þau voru: Guðmundur eldri, 1875-1953, bóndi'i Túni. Elínborg, 1876-1964 húsfreyja á Arnarstöðum. Kristín, 1877-1963, húsfreyja í Hróarsholti. Eiríkur, 1881-1966, bóndi, Mikla- holtshelli. Einar, 1885-1942, járn- smiður í Reykjavík. Guðrún, 1886- 1967, húsfreyja, Laugum. Stefán tvíburabróðir Guðrúnar, sjóm. Drukknaði af kútter Ingvari á Við- eyjarsundi 1906. Halldór, 1888-» 1988, bóndi, Króki. Ingibjörg 1890-1970, húsfreyja, Reykjavík. Hólmfríður, 1891-1981, húsfreyja, Neðri-Svertingsstöðum, Miðfirði. Öll voru systkinin dugnaðar og mannkostafólk og náðu flest háum aldri. Bjarna og Guðfinnu búnaðist vel í Túni, en árið 1897 kom reiðarslag- ið yfir heimilið, þegar Bjami ásamt 9 skipsfélögum sínum drukknaði á Stokkseyrarsundi á heimleið úr róðri. Eftir fráfall Bjama hélt Guð- finna áfram búskap í Túni með börnum sínum, flestum innan ferm- ingar, þar til elsti sonurinn, Guð- mundur, tók við jörðinni árið 1906. Guðmundur Elías ólst upp með móður sinni og systkinum í Túni. Ekki var mikið um að börn gengju í skóla á þeim árum, mun hann þó hafa notið skólagöngu þrisvar sinn- um þrjár vikur fyrir fermingu. Var það eina skólaganga hans. Snemma varð hann ótrauður til ferðalaga og 15-16 ára fór hann margar ferðir með smjör frá ijómabúinu á Vola og annan flutning á hestvögnum til Reykjavíkur. Frá 17 ára aldri var hann í vinnumennsku á ýmsum nágrannabæjum. Á vertíðum reri hann á áraskipum frá Eyrarbakka, Þorlákshöfn og Herdísarvík. Minnt- ist hann oft á þá daga. Ekki var þá til siðs að hafa mat með sér á sjóinn og voru menn svangir er í land kom. Fékk hann sér þá gjam- an bolla af sjálfrunnu lýsi til að seðja hungrið meðan gengið var frá aflanum. Síðustu vertíðina reri Guð- mundur á mótorbát frá Vestmanna- eyjum, var þá konuefni hans Þórunn Guðjónsdóttir einnig í Eyjum. Höfðu þau kynnst sumarið áður í Hróarsholti. Guðjón faðir Þórunnar var frá Hamri í Gaulveijabæjarhr. Þorkelsson, Jónssonar bónda þar. Móðir Þómnnar var Valgerður Gestsdóttir Guðnasonar bónda í Forsæti, Villingaholtshr. Guðmundur og Þórunn giftu sig í Reykjavík 1. vetrardag 1925 og byijuðu búskap. Þá var hann búinn að fá vinnu í vélsmiðjunni Héðni, þar sem hann var næstu árin. Hann tók bílpróf 1927. Ári síðar hætti hann í Héðni og fór að aka hálf- kassabfl með fólk og vörur milli Gaulveijabæjar og Reykjavíkur um Stokkseyri, fyrii' Tómas Tómasson síðar bónda á Fljótshólum. Er mér í bamsminni hve góður Guðmundur var við okkur krakkana í Gaul- veijabæ og hve léttilega hann tók 100 kg sfldarmélspokana, sem flest- um reyndust þungir í skauti. 1930 fór Guðmundur að vinna í Landsmiðjunni og ávann sér þar járnsmíðaréttindi. En á stríðsárun- um breytti hann til og fór til þeirra bræðra Bergs og Helga Lárussona frá Kirkjubæjarklaustri, fýrst sem bflstjóri á stórum vörubíl og síðar verkstjóri á bflaverkstæði þeirra á Digraneshálsi í Kópavogi til 1954. Eftir það var hann í slökkviliðinu á Reykjavíkurflugvelli uns hann lét af störfum 77 ára. Síðustu árin vann hann eingöngu að viðhaldi bfla og áhalda slökkviliðsins. Erfitt var með leiguhúsnæði í Reykjavík á kreppu- og stríðsámn- um, fengu þau Guðmundur og Þór- unn að finna fyrir því. Þau bjuggu á ýmsum stöðum oft við mikil þrengsli þar til þau eignuðust sína eigin íbúð 1949 á Hraunteig 17. Keyptu þau íbúðina fokhelda af Páli Pálssyni trésmíðameistara frá Söndum í Meðallandi. Bjó Páll á hæðinni fyri ofan og var þeim góð- ur granni. Fjögur em böm þeirra hjóna: t Útför móður minnar, tengdamóður og ömmu, ÞORGERÐAR JÓNSDÓTTUR FJALLDAL, Hringbraut 51, Reykjavík, verður gerð fró Fossvogskirkju, mánudaginn 22. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu minn- ast hennar er bent á Styrktarsjóð Landakotsspítala. Ása K. Oddsdóttir, Þorkell Bjarnason, Oddur Þ. Þorkelsson, Berglind Guðmundsdóttir, Elísabet G. Þorkelsdóttir. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURBJÖRIM STEFÁNSSON, Túngötu 13c, Keflavik, verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 19. jan- úar kl. 14.00. Sigurborg S. Normann, Vilberg Normann, Elisabet J. Sigurbjörnsdóttir, Kristján A. Kristjánsson, Kolbeinn Sigurbjörnsson, Helga Jónsdóttir, Tómas Sigurbjörnsson, Kristfn Nanna Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför, SIGFÚSAR B. SIGMUNDSSONAR kennara frá Gunnhildargerði, Blönduhlíð 31, Reykjavfk, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 23. janúar kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Minningarsjóð SÍBS eða líknarstofnanir. Anna G. Frímannsdóttir, Baldur F. Sigfússon, Halldóra Þ. Halldórsdóttir, Sigmundur Sigfússon, Ingibjörg Benediktsdóttir, Rúnar I. Sigfússon, Björg Östrup Hauksdóttir og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BERNHARÐ ÓLAFSSON, sem lést að Hornbrekku, Ólafsfirði, laugardaginn 13. janúar, verð- ur jarðsunginn frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 20. janúar kl. 14.00. Soffía Sveinsdóttir, Freydfs Bernharðsdóttir, Óli Sveinn Bernharðsson, Margrét Pálsdóttir, Hreinn Bernharðsson, Rakel Kristbjörnsdóttir, Aðalsteinn Bernharðsson, Sjöfn Eggertsdóttir, Aðalheiður M. Pétursdóttir, Sveinn Hjörleifsson, Erla Bernharðsdóttir, Grímur Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, JÓHANNA SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Snorrabraut 56, Reykjavík, lést 8. janúar sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þórunn Jensdóttir, Sigrún Jensdóttir, Hulda Jensdóttir, Hörður Sumarliðason, Guðbjörg Sumarliðadóttir, Haraldur Sumarliðason. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG GUÐLAUGSDÓTTIR, Álftamýri 49, e.r lést 10. janúar sl., verður jarðsungin föstudaginn 19. janúar kl. 13.30 frá Fossvogskirkju. Guðmundur Eyjólfsson, Eyjólfur Guðmundsson, Eygló Ú. Ebenesersdóttir, Hörður Guðmundsson, Margrét Emilsdóttir, Sigrún B. Guðmundsdóttir, Vilhjálmur Sigurgeirsson, Þórunn Guðmundsdóttir, Ólafur Vilbertsson, Guðveig N. Guðmundsdóttir,Sigurður G. Geirsson, Guðlaugur B. Guðmundsson, Sigurjón Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR, Unhóli, Þykkvabæ. Einnig þökkum við starfsfólki þeirra deilda Landspítalans, sem hún dvaldist á og hjúkruðu henni í veikindum hennar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð vegna fráfalls föður okkar, stjúpföður og afa, ÞORVALDAR KRISTINS BJÖRGÓLFSSONAR. Eygerður Björg Þorvaldsdóttir, Nikólfna Þorvaldsdóttir, Níels Sigurður Þorvaldsson, Ólöf María Þorvaldsdóttir, Bjarni Sveinsson, Laufey Þóra Sveinsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir og fjölskyldur. Valgerður gift undirrituðum, búsett á Selfossi, Guðfinna lyfjafræðingur gift Þorkeli Pálssyni bflasmið, hann lést 1978, búsett í Reykjavík, Guð- jón yfirlæknir kvæntur Guðrúnu Ellertsdóttur, búsett á Akranesi, og Unnur Margrét gift Erni Friðriks- syni skrifstofumanni, búsett í Kópa- vogi. Barnabömin eru 9 og barna- bamabörnin 2. Guðmundur var meira en meðal- maður á hæð og mjög þrekinn enda rammur að afli. Mikill smiður og Iék allt í höndum hans. Aldrei úr- ræðalaus. Tilfínningaríkur, sérlega bamgóður og hýr í viðmóti, hjálp- samur og bóngóður. Hann las mik- ið á seinni árum og hafði óbrigðult minni. Mest hélt hann uppá íslend- ingasögurnar, einkum Njálu og Egilssögu. Heilsuhraustur alla ævi. Hann var góður heimilisfaðir og voru þau hjónin samhent við að búa börnum sínum gott heimili. Mjög vom þau gestrisin og leituðu frænd- ur og vinir til þeirra, er þeir vom á ferð í Reykjavík. Ekki virtist koma að sök þótt húsakynni væru stund- um í minna lagi, alltaf var hægt að þrengja að sér. Hann hafði mikla ánægju af ferðalögum og leituðu margir til hans sem bflstjóra í erfiðar ferðir um landið. Eftir að hann eignaðist bfl, var hann viljugur að fara með fjölskylduna í lengri og skemmri ferðir með tilheyrandi útilegu. Þá hafði hann yndi af hestum þó ekki ætti hann hesta í Reykjavík. í nokk- ur ár auðnaðist honum að umgang- ast hesta og fara í útreiðártúra með fomvini sínum, Sveini Jónssyni vél- smið á Selfossi, sem átti góða hesta. Þómnn eiginkona Guðmundar lést árið 1975. Tók hann lát hennar mjög nærri sér. Eftir það bjó hann með aðstoð Guðfinnu dóttur sinnar, einn í íbúð sinni á Hraunteig 17 til ársins 1984, er hann flutti alfarið til hennar í Bólstaðarhlíð 68, þar sem hann naut elliáranna við frá- bæra umönnun hennar. Guð blessi minningu hans. Bjarni Dagsson Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem) Mig langar með örfáum orðum að minnast afa míns,. Guðmundar Elíasar Bjarnasonar, sem lést nú í byrjun ársins eftir nokkurra vikna sjúkrahúslegu. Minningar mínar um afa em mjög ánægjulegar. Þær fyrstu frá Hraunteig 17, þar sem heimili afa og ömmu, Þórunnar Guðjónsdóttur, var. Til þeirra var alltaf gott að koma, enda voru þau bæði mjög barngóð. Hlýjar minningar mínar um orlofsdagana sem ég, sem lítil stelpa, fékk að eyða-hjá þeim. Amma lést árið 1975 og var það mikill missir fyrir afa. Næstu ár á eftir bjó hann einn í íbúðinni á Hraunteig, en nú síðustu árin bjó hann hjá Ninnu, dóttur sinni. Þar leið honum vel, enda var einstak- lega gott og náið samband á milli þeirra og Ninna annaðist hann vel. Ég minnist sérstaklega margra notalegra stunda sem við afi áttum saman nú síðustu árin við spjall og rólegheit. Þá rifjaði hann oft upp sögur af sér og öðrum frá gömlum tímum, tímum sem mér voru ókunn- ir sökum æsku minnar. Afi var alla tíð heilsugóður og var þessi sjúkrahúsferð hans nú hans fyrsta og eina á ævinni, þótt hann væri kominn á tíræðisaldur. Hann var vel em þrátt fyrir háan aldur og las mikið. Og vel fylgdist hann með okkur barnabörnunum og barnabarnabömunum. Það er sárt að sjá á eftir afa, en minningarnar lifa í hugum okk- ar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Blessuð sé minning afa míns. Þórlaug Bjarnadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.