Morgunblaðið - 18.01.1990, Qupperneq 44
//////////////////////////////
MÓRG'UNBLAÐIÐ FIMMTÓDAGUR 18. ÍÁNÚAR 1990
44
Gólfbvottavélar
með vinnubreidd frá 43 ti! 130 cm.
Gólfþvottavélar drifnar með rafgeymum. i
hako
Gólfþvottavélar með sæti
véiará ísSandi
Nýbýlavegi 18,
simi 64-1988.
IBESTA
BLIIES
á fimmtudagskvöldi
BLÁMAKVARTETTiNN
HARALDUR ÞORSTEINSSON, PÉTUR HJALTESTED,
BJÖRGVIN GÍSLASON OG ÁSGEIR ÓSKARSSON
leika frábæran blues frá kl. 22 ti! 01.
MIÐAVERÐ KR. 600
Sérstakur stefár Hilmarsson
veröur
KJALLARI
KEISARANS
BREYTTUR OG BETRI STAÐUR
Laugavegi 116 - S. 10312
VESTURGOTU 6
SIMI 177 59
b. .
JjLorti hef st í
veitingahúsinu
Nausti
19. janúar
Lifondi tónlist sunnudogskvöld.
Donsoðtilkl. I
félk f
fréttum
SJÁLFSBJARGARVIÐLEITNI
Pólverjar helstu brask-
arar Austur-Evrópu
Þrír Albanir frá Júgóslavíu sem eru búsettir í Vestur-Berlín voru
mættir á pólska markaðinn þegar tékkneskur hagfræðingur seldi
gamla saxófóninn sinn þar.
Morgunblaðið/Anna Bjamadóttir
Pólski markaðurinn í vesturhluta Berlínar er á óvistlegu svæði
skammt frá Berlínarmúrnum.
Ztirich. Frá Önnu Bjarnadóttur fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
Rúmlega tvítugur Tékki stóð
með gamlan, gljáandi saxófón
við fætur sér á opnu, óvistlegu
svæði í vesturhluta Berlínar. Allt í
kringum hann stóðu Pólverjar í röð-
um með ýmislegt smádót til sölu.
Nokkrir Perúbúar höfðu sagt hon-
um af’pólska markaðnum sem hald-
inn er á moldarflagi ekki alllangt
frá Berlínarmúrnum. Tékkinn, sem
er hagfræðingur að mennt, var
kominn í dagsferð til borgarinnar
og vantaði peninga. Hann vildi fá
300 v-þýsk mörk (10.800 ísl. kr.)
fyrir saxófóninn. Þýskur maður á
besta aldri spurði hvað væri lægsta
verð sem hann myndi samþykkja.
„200,“ sagði Tékkinn. Maðurinn
fékk saxófóninn á 180 mörk (6.480
kr.).
Tékkinn virtist vera sá eini sem
bauð eitthvað verðmætt til sölu.
Pólvetjarnir voru flestir með nokkra
bolla, kannski kristalvasa, barna-
og sokkaplögg, sígarettur og vod-
kaflöskur sem lágu á spjöldum eða
dúkum við fætur þeirra. Nokkrir
höfðu bjúgu á boðstólum og einn
seldi pólskar gyðingamat-
reiðslubækur. Þær kostuðu 3 mörk
stykkið (tæpar 110 krónur) en
vodkaflaskan 9 mörk (325 kr.) og
Marlboro-lengjan 22 (790). Pólverj-
arnir sögðust ekki kunna neitt nema
verðið á vörunum í þýsku. Þeir vildu
ekki gefa neinar upplýsingar um
viðskipti sín.
Pólska þjóðin hefur áunnið sér
orð fyrir að vera svartamarkaðs-
braskari Austur-Evrópu. Pólveijar
kaupa vörur sem eru ódýrar og oft
niðurgreiddar í einu landi og selja
þær í öðru þar sem þær eru dýrari
eða sjaldséðar. Þeir fara til Tyrk-
lands, inn í Sovétríkin og um Aust-
ur-Evrópuríkin í ólöglegum við-
skiptaerindum.
Dagblaðið International Herald
Tribune sagði nýlega frá Pólverja
sem fékk ferðamenn á leið til Ung-
verjalands til að taka plastdúkkur
fyrir sig þangað og smyglaði sjálfur
þó nokkrum fjölda. Hann seldi
dúkkurnar á þrisvar sinnum hærra
verði í Búdapest en hann keypti þær
fyrir í Varsjá. Peningana notaði
hann til að kaupa niðurgreidd föt
og matvæli í Ungverjalandi til að
selja með ágóða heima í Póllandi.
Ungverski gjaldmiðillinn forint
hefur verið einn hinn öruggasti í
Austur-Evrópu og því eftirsóknar-
verður. Pólska zloty er lítils virði
og pólskir ferðamenn á leið til
Svartahafsins leggja gjarnan lykkju
á leið sína í gegnum ungveijaland
til að selja nokkra hluti á pólskum
markaði þar til að fá gjaldeyri með
sér í ferðina.
Pólski markaðurinn í Vestur-
Berlín er sérstaklega vinsæll sölu-
staður því þar fæst besti gjajdmiðill-
inn, vestur-þýska markið. Utlendur
vinnukraftur og þeir sem hafa ekki
úr miklu að moða eru helstu við-
skiptavinirnir. Og einstaka sinnum
er hægt að gera góð kaup eins og
dæmið um saxófóninn sýnir.
Viðskipti Pólveija eru litin horn-
auga. Þeir hafa ekki fullt ferða-
frelsi til Tékkóslóvakíu vegna þeirra
og mega ekki versla í austur-þýsk-
um búðum af ótta við að þeir hreinsi
niðurgreiddar vörur úr hillunum á
leið á markaðinn í Vestur-Berlín.
Markaðsviðskipti þeirra þar hafa
verið látin óáreitt. Fréttir af síaukn-
um bílaþjófnaði Pólveija í borginnij
valda hins vegar óánægju. Þeir
stela helst Volkswagen og Audi og
talið er að önnur hver bifreið af
þeirri gerð í Póllandi sé stolin.
Berlín er 80 km frá pólsku landa-
mærunum. Þjófamir nota bensínlok
bílanna til að steypa lykil eftir og
útbúa falsaða pappíra fyrir bifreið-
arnar. Um 10.000 v. þýsk mörk
(360.000 ísl. kr.) fást fyrir gamlan
Volkswagen-Golf í Póllandi.
COSPER
--Maðurinn minn segist heyra betur þannig.