Morgunblaðið - 14.02.1990, Blaðsíða 1
48 SIÐUR B
37. tbl. 78. árg.
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sameining Þýskalands:
Ákveðnar viðræður Fjór-
veldanna og þýsku ríkjanna
Varsj árbandalagið samþykkir tillögnr Bandaiákj aforseta um fækkun hermanna í Evrópu
Helmut Kohl, kanslari Vest-
ur-Þýskalands (t.h.), ásamt
Hans Modrow, forsætisráð-
herra Austur-Þýskalands.
Myndin var tekin í Bonn í gær
er Modrow kom í fyrsta skipti
í opinbera heimsókn til Vest-
ur-Þýskalands. . Niðurstaða
viðræðna þeirra varð sú að
skipuð skyldi nefhd sérfræð-
inga tii að ræða hvernig
mynda beri myntbandalág
ríkjanna eftir kosningarnar í
Austur-Þýskalandi 18. mars.
Ottawa, Bonn. Reuter, dpa.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Fjórveldanna; Bandaríkjanna, Sovétríkj-
anna, Frakklands og Bretlands, og þýsku ríkjanna tveggja ákváðu í
gærkvöldi að hefja viðræður um sameiningu Þýskalands. I ályktun sem
birt var að loknum fundi ráðherranna í Ottawa í Kanada sagði að við-
ræður þessar myndu hefjast innan tíðar og að sjónum yrði einkum
bcint að ytri þáttum sameiningar þ.á m. yrðu öryggishagsmunir ná-
gi-annaríkja Þýskalands teknir til umræðu. Síðar um kvöldið var frá
því skýrt að Sovétmenn og ríki Varsjárbandalagsins hefðu fallist á til-
lögu Bush Bandaríkjaforseta um fækkun hermanna í Evrópu og mark-
aði sú yfirlýsing stefnubreytingu af hálfu Míkhaíls S. Gorbatsjovs, leið-
toga sovéska kommúnistaflokksins. Rikisstjórnir Austur- og Vestur-
Þýskalands hafa í grundvallaratriðum náð samkomulagi um að komið
verði á myntbandalagi ríkjanna tveggja og sameiginlegu efnahagskerfi.
Ráðstefna 23 ríkja Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) og Varsjár-
bandalagsins um opnun lofthelgi fer
fram þessa dagana í Ottawa í
Kanada. Hugsanieg sameining þýsku
ríkjanna tveggja hefur hins vegar
verið í brennidepli undanfarna tvo
daga og ráðherrarnir hafa átt marga
formlega og óformlega fundi um
málið. Fyrr um daginn hafði Kohl,
kanslari Vestur-Þýskalands, boðað
að efnt yrði til slíkrar ráðstefnu um
sameiningu Þýskalands.
Douglas Hurd, utanríkisráðherra
Bretlands, sagði að með viðræðum
ríkjanna sex væri stefnt að því að
tryggja að nýtt og sameinað Þýska-
land raskaði í engu stöðu öryggis-
mála í Evrópu. Bætti hann við að
tekið yrði fullt tillit til öryggishags-
muna Sovétmanna í álfunni. Ut-
anríkisráðherrar NATO-ríkjanna
hafa sagt það ófrávíkjanlegt skilyrði
að Þýskaland eigi aðild að bandalag-
inu en þessu hafa fulltrúar Sovét-
stjórnarinnar hafnað. Krafa Sovét-
manna er sú að Þýskaland verði hlut-
laust ríki og utan hemaðarbanda-
laga. Fréttir í gærdag hermdu að
Sovétmenn hefðu fallið frá þessari
kröfu sinni og litu nú svo á að Þjóð-
veijum sjálfum bæri að ákveða hvar
þeir skipuðu sér á bekk á vettvangi
öryggis- og varnarmála. Hins vegar
mun E. Shevardnadze, utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, hafa vísað því á
bug í gærkvöldi að Þjóðveijar yrðu
aðilar að NATO. Samkvæmt skoð-
anakönnun sem birt var í Bonn í gær
vilja níu af hveijum tíu Austur-
Þjóðveijum að sameinað Þýskaland
verði hlutlaust ríki og vestan Berlín-
armúrsins er rúmur helmingur þjóð-
arinnar sama sinnis.
Seint í gærkvöldi var skýrt frá því
að ríki NATO og Varsjárbandalags-
ins hefðu náð samkomulagi um að
leggja tillögur Bandaríkjaforseta um
fækkun hermanna í Evrópu til
grundvallar í CFE-viðræðunum um
niðurskurð mannafla og vígtóla í álf-
unni. Samkvæmt tillögu forsetans
munu Bandaríkjamenn háfa 225.000
hermenn í Evrópu en Sovétmenn
195.000. Bæði ríkin munu á hinn
bóginn hafa 195.000 hermenn á skil-
greindu svæði í Mið-Evrópu. Voru
tilslakanir Sovétstjórnarinnar túlk-
aðar sem mikill sigur fyrir Bush for-
seta því í síðustu viku sagði Gorbatsj-
ov Sovétleiðtogi að jöfnuður yrði að
ríkja á þessu sviði heraflans í álfunni.
Sjá „Samstaða vex ...“ á bls. 20.
Reuter
Tæplega 40 fallnir í Sovét-
lýðveldinu Tadzhíkístan
KRTN
Moskvu. Reuter, dpa, The Daily Tclcgraph.
VOPNUÐUM sveitum lögreglu og hermönnum innanríkisráðuneytisins
sovéska hefur enn ekki tekist að brjóta á bak aftur mótmæli í Dushan-
be, höfuðborg Sovétlýðveldisins Tadzhíkístan. Útvarpið í Moskvu
greindi frá þessu í gær og fylgdi fréttinni að 37 hefðu fallið frá því
óeirðir brutust út á sunndag.
í fréttum útvarpsins sagði að
öryggissveitir og íbúar Dushanbe
Svíþjóð:
Stjómin hættir við verkfallsbann
Stokkhólmi. FVá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
SÆNSKA stjórnin ákvað seint í fyrrakvöld að hætta við timabund-
ið bann við verklöllum en samt getur svo farið, að hún bíði ósigur
á þingi á morgun, fímmtudag, þegar greidd verða atkvæði um úr-
ræði hennar í efnahagsmálunum. Hinir fimm þingfiokkarnir eru
nefnilcga allir andvígir því að banna launahækkanir. Það er því enn
ekki útilokað, að efnt verði til nýrra kosninga.
í stað verkfallsbannsins var
ákveðið að skylda aðila vinnumark-
aðarins til að vísa kjaradeilum beint
til sáttasemjara og verði gerðar-
dómur látinn skera úr náist ekki
samkomulag um annað. Kommún-
istar, sem löngum hafa stutt jafn-
aðarmenn á þingi, segjast geta
sætt sig við þetta atriði en Lars
Werner, formaður flokksins, þver-
tekur hins vegar fyrir að meina
láglaunafólki um kauphækkun í tvö
ár. Þá hafa formenn hinna flokk-
anna fjögurra lýst yfir, að þeir
muni greiða atkvæði á móti tillög-
um stjórnarinnar.
Ingvar Carlsson forsætisráð-
herra sagði í gær, að stjórnin ætl-
aði ekki að hvika frá launastöðvun-
inni og því er ekki útilokað, að hún
segi af sér og boði til nýrra kosn-
inga að lokinni atkvæðagreiðslu í
þinginu á morgun. Flestum finnst
•sem Ingvar Carlsson forsætisráð-
herra hafi sett ofan með því að
reyna ekki að standa eða falla með
upphaflegu efnahagsmálatillögun-
hefðu í fyrstu barist í miðborginni
en nú hefðu átök einnig blossað upp
í úthverfunum. „Morðingjar og
ræningjar vaða uppi og liðsaflinn
fær ekki ráðið við vandann," sagði
í fréttinni. 80 manns voru sagðir
hafa slasast en svo virðist sem til-
efni mótmælanna hafi verið koma
flóttafólks frá Armeníu til höfuð-
borgarinnar. Er því haldið fram að
Armenarnir, sem komu frá Bakú í
Azerbajdzhan, hafi notið sérstakrar
fyrirgreiðslu og að þeim hafi m.a.
verið útvegað betra húsnæði en al-
þýðu manna í borginni gefst kostur
á. Sunni-múslimar eru í meirihluta
í Tadzhíkístan en Armenar játa hins
vegar kristna trú.
Fréttir í gær hermdu að alls-
heijar upplausnarástand ríkti í
Dunshanbe og að óður Iýður færi
hamförum á götum borgarinnar.
Kveikt hefði verið í opinberum
byggingum, verslanir rændar og
eldur lagður að áætlunarbirfreiðum
og sporvögnum. Almenningur var
sagður hundsa með öllu ákvæði
neyðarlaga, sem sett voru á mánu-
dag og kveða m.a. á um útgöngu-
bann að kvöldlagi.
Kína:
Herinn horn-
steinn ríkisins
Peking. Reuter.
OVINIR ríkis og sósíalisma leitast
við að ná stjórn á herafla
Kínverska alþýðulýðveldisins og
hollusta hermanna mun skipta
sköpum í baráttu stjórnvalda
gegn borgaralegum frjálslyndis-
hugmyndum.
Þessi sjónarmið koma fram í grein
í málgagni kínverska alþýðuhersins
í gær. „Herinn er verkfæri flokksins
og hornsteinn ríkisins," sagði m.a.
í greininni. Vestrænn embættismað-
ur sagði að ýmislegt benti til þess
að kínverskir ráðamenn hefðu vax-
andi áhyggjur af því að þeir gætu
ekki reitt sig á stuðning heraflans.