Morgunblaðið - 14.02.1990, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1990
Nýr samningur á Vestfjörðum;
Hlutaskiptakerfí
í saltfískverkun
Alþýðusamband Vestfjarða og
vinnuveitendur skrifuðu undir
nýjan kjarasamning í gær með
nokkrum breytingum.
„Peningalega gerðum við ekkert
Kaupmáttur:
8% minnkun
frá hausti 1988
til hausts 1989
KAUPMÁTTUR greidds tíma-
kaups landverkafólks í Alþýðu-
sambandi íslands minnkaði um
8% frá 3. ársfjórðungi 1988 til 3.
ársfjórðungs 1989. A þessu tíma-
bili hækkuðu launin um 10%, en
framfærsluvísitalan hækkaði um
19%. Ef litið er á hækkun mánað-
artekna, það er hækkun heildar-
launa með yfirvinnu, er kaup-
máttarminnkunin aðeins minni
eða 7%.
í fréttatilkynningu frá Kjara-
rannsóknanefnd segir ennfremur að
á milli áranna 1987 og 1988 hafi
kannanir nefndarinnar sýnt fram á
verulega vinnutímastyttingu en á
árinu 1989 hafi vinnutími nánast
staðið í stað eða lengst um 0,2-0,8
stundir.
Kaupmáttur einstakra starfs-
stétta innan ASÍ breyttist þannig
að hjá verkamönnum rýmaði hann
um 8,6%, hjá verkakonum um 9,3%,
hjá iðnaðarmönnum um 7,4%, hjá
afgreiðslukörlum um 5,4%, hjá af-
greiðslukonum um 13%, hjá skrif-
stofukörlum um 2,7%, en jókst hins
vegar hjá skrifstofukonum um 5%.
Póstur og sími:
Hætt við hækk-
un á gjaldskrá
Póst- og símamálastofhunin hef-
ur ákveðið að fresta hækkunum á
gjaldskrám stofnunarinnar sem
gert var ráð fyrir í fjárlögum. í
forsendum fjárlaga var miðað við
að Póstur og sími hækkaði gjald-
skrá sína þrisvar sinnum á árinu
um 3%.
Í frétt frá Pósti og síma segir að
nýgerðir kjarasamningar muni vænt-
anlega leiða til minni útgjalda fyrir
stofnunina en fjárlög áætluðu. Því
sé talið rétt að bíða með gjaldskrár-
hækkun í trausti þess að forsendur
kjarasamninganna standist. Ef verð-
lagsbreytingar verði meiri en spáð
sé, muni þessi mál verða endurskoð-
uð síðar á árinu.
umfram það sem annars staðar hef-
ur verið samið um, en við tókum á
smáatriðum í sambandi við löndun
úr togurum,“ sagði Pétur Sigurðsson
formaður Alþýðusambands Vest-
fjarða. Hann sagði einnig að vinnu-
veitendur hefðu skrifað undir yfirlýs-
ingu um að aðilar komi á hluta-
skiptakerfí í saltfiskverkun á svæð-
inu. Pétur sagðist eiga von á að
samningamir yrðu bomir upp í fé-
lögunum um helgina.
Félagar í Verkalýðsfélagi Borgar-
ness samþykktu nýgerða kjarasamn-
inga í allsheijaratkvæðagreiðslu,
sem fram fór á mánudag og þriðju-
dag. Rúmlega 600 manns eru í
Verkalýðsfélagi Borgarness en 205
þeirra greiddu atkvæði um samning-
ana. Já sögðu 172, nei 24 en auðir
og ógildir atkvæðaseðlar voru 9.
Verkalýðsfélag Stykkishólms
samþykkti samningana með yfir-
gnæfandi meirihluta á mánudags-
kvöld.
Morgunblaðið/Þorkell
Beðið við útsölu
Á útsölum er oft handagangur í öskjunni, þegar allir keppast um að
gera sem best kaup. Á meðan mamma og pab'oi reyna að nýta aurana
á útsölunni verður ungviðið að bíða rólegt úti fyrir.
3900 atvinnu-
lausir í janúar
ATVINNUÁSTAND var betra í
janúarmánuði en spár gerðu ráð
fyrir, en það var samt 3,2% af
áætluðum mannafla á vinnumark-
aði og meira en mælst hefur í
janúarmánuði á þessum áratug.
Það jafngildir því að 3.900 manns
hafí að meðaltali verið á atvinnu-
leysisskrá í mánuðinum. Atvinnu-
leysi meðal kvenna var 4,2%, en
2,5% hjá körlum.
Atvinnuleysisdagamir voru rúm-
lega 85 þúsund á landinu öllu, en
voru á síðasta ári í janúarmánuði
64 þúsund, en meðaltal síðustu fimm
ára er 49 þúsund atvinnuleysisdagar
í janúar. Aðeins einu sinni á áratugn-
um, 1984, fóru atvinnuleysisdag-
arnir yfir 80 þúsund en þá hófst
vertíð síðar en venja er.
Dreifmg atvinnuleysisins var mis-
jöfn eftir landshlutum. Á höfuð-
borgarsvæðinu var það 1,7%, á Vest-
urlandi 4,5%, á Vestfjörðum 0,6%, á
Norðurlandi vestra 5,5%, á Norður-
landi eystra 6,5%, á Austurlandi
7,7%, Suðurlandi 4,9% og á Suður-
nesjúm 3,8%.
Félag ráðgjafarverkfræðinga rífti samningunum:
Viljum ekki spilla tilramuim
til skynsamlegra samninga
— segir Pétur Stefánsson formaður Félags ráðgj afarverkfræðinga
„OKKAR félagsmenn vilja ekki verða til þess að spilla fyrir þeim til-
raunum, sem fram hafa farið að undanförnu til að ná skynsamlegum
kjarasamningum," sagði Pétur Stefánsson formaður Félags ráðgjafar-
verkfræðinga við Morgunblaðið í gær eftir að stjórn féiagsins hafði
riflt samningum við viðsemjendur sína með mánaðarfyrirvara. Stjórn
Stéttarfélags verkfræðinga sendi frá sér yfírlýsingu í kjölfarið, þar
sem uppsögnin er hörmuð, en jaftiframt lýst yfír skilningi á henni.
„Persónulega útiloka ég ekki
lagasetningu, til þess að koma í veg
fyrir að grundvöllur þeirra kjara-
samninga sem víðtæk samstaða hef-
ur tekist um, verði sprengdur, meðal
annars af verkfræðingum, en það
hefur ekkert verið ljallað um þann
möguleika í ríkisstjórninni enn,“
sagði Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Ríkisstjómin fjallaði
m.a. um kjarasamning þann sem
Stéttarfélag verkfræðinga, Stéttar-
félag tæknifræðinga og Stéttarfélag
tækniteiknara gerðu nýlega við Fé-
lag ráðgjafarverkfræðinga og fela í
sér mun meiri launahækkanir, en
samið var um í kjarasamningi Al-
þýðusambands íslands, Vinnumála-
sambandsins og Vinnuveitendasam-
Morgunblaðið:
Orðið við ósk ríkissjóðs
um kaup á 750 eintökum
MORGUNBLAÐIÐ hefitr ákveðið að verða við ósk fjármálaráðu-
neytisins um kaup á 750 eintökum af blaðinu fyrir stofnanir ríkis-
ins, eftír að ráðuneytíð hefur staðfest í svari til blaðsins að kaupin
færast í ríkisbókhaldi undir sérstakan lið samkvæmt heimild i 6.
grein fjárlaga um kaup á dagblöðum, en ekki sem „Styrkur til
blaðaútgáfu samkvæmt tillögum stjórnskipaðrar nefndar".
Heimildir 6. greinar eru tvær
varðandi dagblöðin. í fyrra lagi er
fjármálaráðherra heimilað að
kaupa allt að 250 eintök af hverju
dagblaði fyrir stofnanir ríkisins og
í síðara lagi er honum heimilað að
kaupa allt að 500 eintök fyrir
skóla, sjúkrahús og aðrar þjón-
ustustofnanir til viðbótar. Síðari
greinin er ný í fjárlögum ársins
1990.
Haraldur Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Árvakurs, útgáfufé-
lags Morgunblaðsins, skrifaði fjár-
málaráðuneytinu bréf í fyrri viku,
þar sem óskað er nánari upplýs-
inga vegna þessa. Þar segir meðal
annars: „Morgunblaðið hefur
ávallt hafnað styrkjum til útgáfu
sinnar og mun ekki geta selt
áskrift að blaðinu, sem flokkast
gæti undir styrkjahugtakið."
í svari ráðuneytisins er vísað til
bréfs Morgunblaðsins, þar sem
óskað er eftir nánar greindum
upplýsingum varðandi blaðakaup
ríkissjóðs. Síðan segir: „Til svars
erindinu tekur ráðuneytið fram að
kostnaður vegna nefndra blaða-
kaupa verður færður á sérstakan
lið í ríkisbókhaldi, þ.e. 09-999-
12000 „Kaup á dagblöðum skv.
heimild í 6. gr. fjárlaga“.“
bands íslands 2. febrúar sl.
Samningur verkfræðinganna, sem
var rift í gær, átti að gilda til 31.
júlí nk. og fól í heild í sér um 10%
launahækkun. Samkvæmt samn-
ingnum áttu verkfræðingar að fá
3,5% launahækkun 1. mars nk., 1,5%
1. maí og einn launaflokk eða 3,4%
í júlí. í samningnum segir að leiði
aðgerðir stjómvalda eða launabreyt-
ingar til verulegrar röskunar á kjara-
samningnum geti hvor aðili um sig
sagt honum upp með mánaðarfyrir-
vara og þessa heimild nýtti stjórnin
sér.
„Ég átti fund með forystumönn-
um aðila vinnumarkaðarins og for-
manni Félags ráðgjafarverkfræð-
inga um þetta mál. Fundur minn
með Pétri Stefánssyni, formanni
Félags ráðgjafarverkfræðinga, var
mjög jákvæður og hann viðurkenndi
að vissar hættur gætu verið fólgnar
í þessu," sagði Steingrímur.
Forsætisráðherra sagði að á fundi
hans með aðilum vinnumarkaðarins
hefðu komið fram afar miklar
áhyggjur þeirra af þessum samning-
um og þeir hefðu talið að þeir gætu
kollvarpað meginmarkmiðum samn-
inganna. „Því mati þeirra er ég sam-
mála og því gerði ríkisstjómin
ákveðna samþykkt í málinu á fund-
inum í morgun," sagði forsætisráð-
herra. Þar segir m.a. að umsamin
hækkun verkfræðinga sé langt um-
fram þá hækkun sem samið hafi
verið ,um á almenna launamarkaðin-
um og hjá hinu opinbera. Stefni því
umræddir samningar í hættu þeim
árangri í efnahagsmálum sem að
hafi verið stefnt með hinum almennu
kjarasamningum. „Ríkisstjórnin tel-
ur óhjákvæmilegt að leita allra leiða
til þess að koma í veg fyrir að svo
verði," segir þar orðrétt.
Þá hefur ríkisstjórnin beint fyrir-
mælum til ráðuneyta og ríkisstofn-
ana, þess efnis að engar hækkanir
á þjónustu ráðgjafarverkfræðinga
verði greiddar.
Hámarksverð á þjónustu
ráðgjafarverkfræðinga
Verðlagsráð samþykkti á fundi
sínum í gær að setja hámarksverð
á þjónustu ráðgjafarverkfræðinga
frá og með deginum í gær. Slíkt nær
einnig til sjálfstætt starfandi sér-
fræðinga sem byggja á kjarasamn-
ingum Stéttarfélags verkfræðinga
eða gjaldskrám Félags ráðgjafar-
verkfræðinga. Er sömu aðilum gert
að nota gjaldskrár sínar frá 31. des-
ember sl. óbreyttar.
Þessi ákvörðun Verðlagsráðs er
tekin í kjölfar þess að ríkisstjórnin
leitaði álits ráðsins í gær á því hvort
beita mætti ákvæðum laga um verð-
lag, samkeppnishömlur og órétt-
mæta viðskiptahætti til þess að
koma í veg fyrir hækkanir á út-
seldri þjónustu ráðgjafarverkfræð-
inga og annarra hliðstæðra aðila.
I framhaldi af fundi með forsætis-
ráðherra í gærmorgun kallaði stjóm
Félags ráðgjafarverkfræðinga við-
sémjendur sína á fund og kom til-
mælum forsætisráðherra á fram-
færi. Að sögn Péturs Stefánssonar,
formanns Félags ráðgjafarverk-
fræðinga, töldu viðsemjendur sig
ekki hafa heimild til að verða við
tilmælunum. „Þegar sú niðurstaða
lá fyrir ákvað Félag ráðgjafarverk-
fræðinga að nota heimild, sem var
í þessum samningi, til að segja upp
launaliðnum með mánaðarfyrirvara.
Þau bréf voru undirskrifuð og af-
hent þannig að þetta er afgreitt mál
af okkar hálfu."
í framhaldi af þessari niðurstöðu
hélt stjóm Stéttarfélags verkfræð-
inga fund þar sem bréfið var borið
upp og síðan samþykkt eftirfarandi
yfirlýsing:
„Stjórn Stéttarfélags verkfræð-
inga harmar uppsögn nýgerðra
samninga af hálfu Félags ráðgjafar-
verkfræðinga. Stjóm Stéttarfélags
verkfræðinga lýsir yfir vissum skiln-
ingi á þessari uppsögn, sem kemur
til vegna sérstakra tilmæla forsætis-
ráðherra. í framhaldi af þessari upp-
sögn samninga mun stjóm Stéttarfé-
Iags verkfræðinga fara þess á leit
við stjóm Félags ráðgjafarverk-
fræðinga að samningaviðræður verði
teknar upp að nýju. í þeim samn-
ingaviðræðum verði höfð til hliðsjón-
ar sú launaþróun og aðstæður sem
em að myndast í kjaramálum í þjóð-
félaginu, en jafnframt verður ekki
horft framhjá þeirri kaupmáttar-
rýrnun, sem verkfræðingar. hafa
mátt þola umfram aðra“.
Steinar Jónsson, formaður Stétt-
arfélags verkfræðinga, sagði við
Morgunblaðið í gærkvöldi að það
væru ákvæði í samningum verk-
fræðinga sem væru lakari en hjá
öðrum launþegum, en framhjá því
væri gjaman horft. Hann nefndi að
fæðingarorlof væri aðeins þrír mán-
uðir og verkfræðingar fengju hvorki
desember- eða orlofsuppbót. Þá
sagði hann að félagar ættu ekki
rétt á atvinnuleysisbótum sam-
kvæmt landslögum þó þeir yrðu at-
vinnulausir.
Að sögn Steinars gerir Stéttarfé-
lagið samninga á þremur stöðum.
„Við semjum við Reykjavíkurborg
fyrir okkar félaga, sem þar starfa,
og er eðlilegur gangur í þeim samn-
ingum. Við semjum við ríkið fyrir
þá sem þar vinna, en þeir samningar
hafa verið lausir í rúmlega þijú ár.
Og svo semjum við við Félag ráðgjaf-
arverkfræði nga. “
Morgunblaðið/Sigurgeir
Loðnan kom-
in að Eyjum
Vestmannaeyjum.
LOÐNAN virðist ganga hratt
vestur með suðurströndinni. í gær
voru bátar farnir að kasta rétt
austan við Eyjar og fékk Dagfari
einhvem afla rétt austan við
hraunkantinn á Heimaey.
Fleiri bátar voru að leita á svæð-
inu en fengu enga loðnu og héldu
því austar. I gærkvöldi voru bátarn-
ir komnir í loðnutorfu 20 mílur aust-
an við Eyjar og voru að kasta þar.
Gígja landaði í gærmorgun loðnu
til frystingar í Eyjum og var unnið
við frystingu í öllum húsunum í
gær. Gígja og Kap munu sjá um að
veiða loðnu til frystingar fyrir frysti-
húsin í Eyjum. Bátarnir fara út til
skiptis, hvor sinn daginn, og eru
komnir með nýtt hráefni til vinnslu
áður en vinnsla hefst á hveijum
morgni. Grímur