Morgunblaðið - 14.02.1990, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1990
Morgunblaðið/Bjami Eiríksson
Stund á milli æfinga. Hulda Bragadóttir situr við píanóið, en til
vinstri er Vigdís Klara Aradóttir og Arna Kristín Einarsdóttir til
hægri.
Rúmenar þiggja kindakjötið;
100-150 tonn fara með
skipi til Rúmeníu í kvöld
SENDIRÁÐI íslands í Moskvu
barst á mánudag þakkarbréf frá
yfirvöldum í Rúmeniu, þar sem
því er lýst yfir að Rúmenar taki
gjarnan við um 600 tonnum af
kindakjöti frá Islandi, en þar er
um að ræða um 450 tonn af kjöti
frá 1988 og 150 tonn frá 1989. í
gær var byijað að safna kjötinu
saman í gáma, og sagðist Arni
S. Jóhannsson, framkvæmda-
sljóri búvörudeildar Sambands-
ins, reikna með að 100-150 tonn
færu með skipi sem leggur af
-stað til Hamborgar í kvöld, en
þaðan verður kjötið flutt með
lest til Rúmeníu.
Alþjóða rauða krossinn, sem hefur
verið við hjálparstörf í Rúmeníu.
Alþjóða rauði krossinn vísaði á
Rauða kross Rúmeníu. Þá hafði
sendiráð íslands í Moskvu einnig
samband við rúmönsk yfirvöld. A
mánudag barst sendiráðinu svo
þakkarbréf, þar sem vísað er á
nefnd, sem gæti tekið að sér dreif-
ingu á kjötinu, en Rauði kross Rúm-
eníu er aðili að þeirri nefnd.
Að sögn Hannesar Haukssonar,
framkvæmdastjóra Rauða kross ís-
lands er ætlunin að kjötinu verði
dreift á heimili fyrir munaðarlaus
böm, elliheimili og aðrar stofnanir,
en fulltrúar frá íslandi munu vænt-
anlega hafa umsjón með dreifing-
unni í samvinnu við rúmenska
Rauða krossinn.
Forsætisráðherra um
ummæli ríkisskattstjóra:
Þegar sú hugmynd kom upp að
gefa kindakjöt til Rúmeníu hafði
Rauði kross íslands samband við
„Svona kjaftæði fyrir
neðan allar hellur“
Þrír ungir einleikarar með
Sinfóníuhlj ómsveitinni
STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra segir að í reglum
þeim sem settar voru í fyrra um ríkisbifreiðir sé einungis heimild
fyrir ráðherra til þess að hafa bifreið til ótakmarkaðra afnota, en
ekki sé þar með sagt að ráðherrar notfæri sér þessa heimild. „Ég
þekki engan ráðherra í þessari ríkisstjórn sem gerir það,“ sagði
forsætisráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær, þegar ummæli
Garðars Valdimarssonar ríkisskattstjóra, þess efnis að meta skuli
launamanni til tekna bifreið sem launagreiðandi lætur honum í té.
ÞRJÁR ungar stúlkur úr Tónlistarskólanum í Reykjavík verða ein-
leikarar á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit íslands í Háskólabíói
annað kvöld. Arna Kristín Einarsdóttir leikur á flautu, Hulda Braga-
dóttir á píanó og Vigdís Klara Aradóttir á saxófón.
Þetta er fyrri hluti einleikara-
prófs stúlknanna, en seinni hlutinn
verður eftir um tvo mánuði. Þær
stefna allar að áframhaldandi námi
erlendis, en ekkert hefur verið end-
anlega ákveðið í því efni.
Arna Kristín, sem er 21 árs,
byijaði að læra 10 ára, en hóf nám
í Tónlistarskólanum 16 ára og hefur
numið þar síðan undir stjórn Bern-
harðs Wilkinsons. Hún valdi sér
Konsert í d-moll fyrir flautu og
strengi eftir Bach. „Þetta var mjög
byltingarkennt verk á sínum tíma
og er mjög fallegur konsert," sagði
Ama Kristín.
Hulda er 25 ára ísfírðingur og
hóf nám hjá Ragnari H. Ragnar 9
ára gömul. Að loknu stúdentsprófí
fyrir vestan fór hún í Tónlistarskól-
ann, þar sem Halldór Haraldsson
hefur kennt henni síðan 1986. Hún
valdi Píanókonsert nr. 2 í f-moll op.
21 eftir Chopin. „Þetta var fyrsti
píanókonsertinn, sem ég eignaðist
á plötu. Ég þekkti hann mjög vel
og átti mér snemma þann draum
að spila hann á tónleikum. Auk
þess er langt síðan hann hefur ver-
ið fluttur hér á landi." Hulda sagð-
ist hafa æft verkið í tæplega níu
mánuði, en þetta nám væri þess
eðlis að annað kæmist ekki að.
Vigdís Klara er 21 árs. Hún byij-
aði 10 ára að Iæra á klarinett í
Við rannsóknir í Bandaríkjunum
kom í ljós að Perrier vatn innihélt
þrisvar sinnum meira af aukaefninu
benzene en leyfilegt er þar í landi.
Perrier fyrirtækið ákvað á föstu-
daginn að stöðva sölu á ölkeldu-
vatninu þar í landi þar til komið
hefði í Ijós af hveiju þessi mengun
stafaði.
í frétt frá Perrier í gær, segir
að allt bendi til þess að um fram-
leiðslugalla hafí verið að ræðá í
sendingu sem fór til Bandaríkjanna
eftir áramótin. Engin merki hafi
Tónskóla Sigursveins, en 14 ára
sneri hún sér að saxófón. Sigurður
Flosason kenndi henni fyrst, en
síðan tók Hafsteinn Guðmundsson
við þar til sl. haust að Sigurður
varð aftur kennari hennar. Hún
leikur einleik á saxófón í Fantasíu
Birgir ísleifur Gunnarsson,
menntamálaráðherra, skipaði
Hannes lektor, en dómnefnd skipuð
af félagsvísindadeild hafði komist
að þeirri niðurstöðu, að hann væri
hæfur til kennslu og rannsókna á
sviði stjómmála, en ekki að hann
væri hæfur til kennslu í undirstöðu-
greinum stjórnmálafræði. Fimm
fundist um mengun í uppsprettu-
lindinni sem vatnið kemur úr þrátt
fyrir ítrekaðar mælingar.
Halldór Runólfsson hjá Hollustu-
vemd ríkisins sagði við Morgun-
blaðið að þess yrði væntanlega far-
ið á leit að verslanir hættu sölu á
Perrier í bili meðan rannsakað væri
hvort vatnið væri mengað. Þó bentu
upplýsingar raunar til að allt meng-
aða vatnið hefði farið til Banda-
ríkjanna.
Halldór sagði að engar reglur
væru um hámark benzeneinnihalds
fyrir sópran-saxófón og kammer-
sveit eftir Lobos. „Ég á sópransaxó-
fón og mér fínnst þetta litla hljóð-
færi svo skemmtilegt. Þetta var
eina stykkið, sem ég vissi um og
Lobos er í miklu uppáhaldi hjá mér.“
Stúlkurnar sögðust finna fyrir
mjög miklum áhuga á klassískri
tónlist hér á landi, en vildu fá að
heyra meira efni flutt í útvarpi, þó
Ríkisútvarpið stæði sig ágætlega
að því leyti.
umsóknir bárust um stöðuna. Dóm-
nefndin taldi einn umsækjanda
hæfan og annan vel hæfan til að
gegna stöðunni, en hina ekki.
Umsækjendurnir tveir, sem dóm-
nefnd taldi hæfa, kvörtuðu skrif-
lega til umboðsmanns Alþingis
vegna stöðuveitingarinnar. Þeir
töldu ákvörðun ráðherra ólögmæta
í vatni hér á landi, en stuðst væri
við viðmiðunarreglur Alþjóða heil-
brigðsmálastofnunarinnar. Sam-
kvæmt henni mega vera 10
míkrógrömm í lítra af drykkjar-
vatni, en Bandaríkjamenn miðuðu
við 5 míkrógrömm. Fundist hefðu
12-19 míkrógrömm í Perrier vatn-
inu sem væri þó varla skaðlegt
nema mikið væri drukkið af því.
Björn Jóhannsson hjá Innflutn-
ingsmiðstöðinni, sem flytur inn
Perrier ölkelduvatn, sagði við Morg-
unblaðið, að síðasta sending hingað
til lands hefði verið framleidd í sept-
ember á síðásta ári. Björn hafði það
eftir Perrier fyrirtækinu, að um-
rædd sending til Bandaríkjanna
„Ef ráðherrar sem hafa aðra bif-
reið heima hjá sér, og nýta til einka-
nota, eru skattlagðir fyrir 40 til 50
þúsund krónur á mánuði, vegna
ráðherrabifreiðar sem þeir hafa til
afnota, þá er það svo fáránlegt að
það tekur engu tali,“ sagði
Steingrímur.
Steingrímur sagðist telja að ráð-
herrar ættu að tilkynna sínum ráðu-
neytum hvort þeir ætluðu að not-
eða a.m.k. andstæða góðum stjórn-
sýsluháttum vegna þess að Hannes
hefði ekki fullnægt þeim hæfískröf-
um, sem gerðar hafí verið til skipun-
ar í lektorsstöðu og að af hálfu
menntamálaráðuneytisins hafí ein-
ungis farið fram könnun á hæfi
Hannesar sem eins af umsækjend-
um um stöðuna, án þess að fylgt
væri þeim reglum, sem sé að finna
í lögum um það efni.
'Gaukur Jörundsson ákvað að
víkja sæti í málinu og var Friðgeir
hefði verið átöppuð í janúar, og
nánast væri útilokað að neitt hefði
farið af menguðu vatni til Evrópu.
Perrier ölkelduvatn kemur úr
uppsprettu í Vergeze í Frakklandi.
Fyrir nokkrum árum komst Perrier
vatn í tísku og neysla þess jókst
verulega. Björn Jóhannsson sagði
að um 5 ár væru síðan hann hóf
innflutning á Perrier vatni en salan
hefði aukist síðustu 8-12 mánuði.
Sala á vatninu var stöðvuð í Jap-
an í gær og 10.000 kassar voru
innkallaðir af ótta við að það inni-
héldi of mikið magn af benzene. í
kjölfarið hríðféllu hlutabréf í Perrier
fyrirtækinu á verðbréfamörkuðum
í París.
færa sér þá heimild sem að ofan
er getið um, en eftir slíku hefði
aldrei verið gengið. „Ég tel að það
eigi að ganga eftir því að ráðherrar
tilkynni um slíkt. Hins vegar finnst
mér að svona kjaftæði hjá ríkis-
skattstjóra í fjölmiðlum og starfs-
manni fjármálaráðuneytis eins og
núna er fyrir neðan allar hellur.
Af hverju snúa þeir sér ekki til við-
komandi, eins og venja er í skatta-
málum?“ spurði forsætisráðherra.
Bjömsson, yfirborgardómari, skip-
aður umboðsmaður í hans stað. í
niðurstöðum hans segir, að mennta-
málaráðherra hafi ekki verið bund-
inn af áliti dómnefndarinnar, eins
og ef um skipun í prófessorsem-
bætti eða dósentsstarf hefði verið
að ræða. Líta yrði svo á, að mennta-
málaráðherra hafi ekki, með því að
meta sjálfstætt hæfí Hannesar til
að gegna stöðunni, leita um það
álits aðila utan háskólans og skipa
hann síðan í stöðuna, farið út fyrir
valdsvið sitt eins og það var af-
markað af settum rétti á þessu
sviði.
/
Þá segir, að sú niðurstaða ein
sér, að Hannes var talinn hæfur
að hluta, hafi gefið ráðherra rétt-
mæta ástæðu til að kanna frekar
og sérstaklega hæfí hans. Telja
verði að þetta hafi ráðherra verið
fyllilega heimilt eins og á stóð, án
þess að leita jafnframt álits sömu
manna á hæfí hinna umsækjend-
anna tveggja, sem voru taldir hæf-
ir af dómnefnd. Ráðherra hlyti í
tilvikum sem þessum að geta leitað
álits þeirra sem hann sjálfur telur
að geti gefið álit sem honum komi
að gagni. Þannig verði ekki talið
að menntamálaráðherra hafi sýnt
umsækjendunum tveimur, sem
kvörtuðu við umboðsmann, neina
mismunum sem talist geti brot á
jafnræðisreglunni. Umboðsmaður
Alþingis telur því ekki efni til at-
hugasemda vegna kvartananna.
Hollustuvernd ríkisins:
• • . _______________________
Olkelduvatn frá Perrier rannsakað
Hoilustuvernd ríkisins mun væntanlega fara fram á það að sala á
Perrier ölkelduvatni verði stöðvuð hér á landi, meðan rannsakað
verður hvort það það innihaldi of mikið magn af efninu benzene.
Umboðsmaður Alþingis:
Ekki athugasemdir vegna skip-
unar lektors í stjórnmálafræði
SKIPAÐUR umboðsmaður Alþingis hefúr komist að þeirri niður-
stöðu, að ekki séu efni til athugasemda vegna þeirrar ákvörðunar
menntamálaráðherra að veita Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni stöðu
lektors í stjórnmálafræði við Háskóla íslands í júní 1988.
í