Morgunblaðið - 14.02.1990, Side 19

Morgunblaðið - 14.02.1990, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRUAR 1990 19 Rimahverfí: Jarðvegsdýpið yfir 6 metr- um á 1% byggingarlands Tveir höfðu fengið úthlutun LÖGÐ hefur verið fram í borg- arráði greinargerð frá borgar- skipulagi Reykjavíkur vegna vinnu við deiliskipulag í Rima- hverfi í Grafarvogi. Þar kemur fram að á um 9% byggingar- svæðisins er jarðvegsdýpi meira en 5 metrar og tæp 1% er með meira en 6 metra. Búið var að úthluta tveimur einbýlishúsalóð- Morgunblaðið/Júlíus Hannes Guðmundsson framkvæmdastjóri Securitas við grunneiningu öryggiskerfís sem Securitas býður ókeypis afnot af. ______ Securitas: Býður íbúðareigend- um öryggiskerfi að láni SECURITAS býður húsráðendum ókeypis afnot af öryggiskerfi fyrir íbúðir, sem tengt er stjórnstöð fyrirtækisins og vaktað allan sól- arhringinn. Að sögn Hannesar Guðmundssonar, framkvæmda- Ríkisstjórnin: Frelsi Mand- ela fagnað RÍKISSTJÓRN íslands fagnar því að Nelson Mandela hefúr ver- ið gefíð freisi. í frétt frá forsætisráðuneytinu segir, að ríkisstjórnin lýsi þeirri von sinni að þetta verði til þess að að- skilnaðarstefnu þeirri, sem fram- fylgt hefur verið í Suður-Afríku, Ijúki og- öllum íbúum landsins verði veitt full mannréttindi í fijálsu lýð- ræðisþjóðfélagi. sfjóra Securitas, er kerfí af þessu tagi þegar komið í nokkra tugi einbýlishúsa hér á landi. Securitas lánar grunnuppistöðu öryggi- skerfísins, en fyrir tengingu við stjórnstöð og vakt með kerfínu þarf að greiða 3.500 kr. á mán- uði. Kostnaður við uppsetningu kerfísins fer eftir aðstæðum á hvetjum stað. Öryggiskerfið er bæði innbrota- og brunavamarkerfi. Um er að ræða ákveðið grunnkerfi, sem samanst- endur af innbrotastöð, boðyfír- færslubúnaði, hreyfiskynjara, reyk- skynjara og segulnema. Brunavöm- in er alltaf tengd, jafnt á nóttu sem degi, en innbrotavörnin er sett á þegar húsráðendur óska. Hægt er að stækka grunnkerfið sé þess ósk- að, til dæmis með því að fjölga skynj- urum og bæta við búnaði til þess að fylgjast með vatnsleka með sér- stökum vatnsskynjurum, eða að fylgjast með því að rétt hitastig sé á frystikistunni, en greiða þarf sér- staklega fyrir slíkan aukabúnað. Öll kerfí á Reykjavíkursvæðinu tengjast stjórnstöð Securitas með vaktaðri símalínu, og eru því öruggari en venjuleg símalínuboð. Til að tryggja að öryggiskerfið sé virkt kemur tæknimaður frá Securitas í heim- sókn einu sinni á ári og yfirfer bún- aðinn að kostnaðarlausu. um á meðan skipulagið var í vinnslu og hafði annar lóðar- hafínn ekki fest lóðina en samið var við hinn um að hann fengi að velja sér lóð þegar endanlegt skipulag Iægi fyrir. í greinargerð borgarskipulags er rakinn ferill skipulagsvinnunnar og bent á að engar sérstakar vinnureglur hafi verið mótaðar fyr- ir könnun á jarðvegsdýpi vegna vinnu við deiliskipulag fyrr en kem- ur að hönnun gatna. Þá segir að deiliskipulag nýrra hverfa sé unnið í áföngum og breytingar eigi sér iðulega stað, jafnvel á lokastigum skipulagsvinnunnar. Vegna ýmissa orsaka, t.d. vegna mikillar eftir- spurnar eftir íbúðum I fjölbýli, æskilegrar stærðar íbúðarhverfís, sem er um 3.000 íbúar í stað 2.000 íbúa í öllu Rimahverfi, og jarðvegs- dýpis í hluta hverfísins var deili- skipulaginu breytt á fundi skipu- lagsnefndar. Auk þess var álitið að land í norðurhluta hverfísins væri betur fallið fyrir einbýlishús vegna útsýnis og jarðvegsdýpis. Með breytingunni fjölgar tvíbýl- ishúsum og jafnframt skapaðist grundvöllur til að uppfylla ósk um tvo leikskóla í hverfinu, vegna fjölgunar íbúða. í þeim hluta hverf- isins, þar sem gert er ráð fyrir fjöl- býlishúsum er nú gert ráð fyrir bílastæðakjöllurum sem fyrra skipulag gerði ekki ráð fyrir. Flateyri: Ibúarnir fengu að fara heim að nýju Flateyri. HÆTTUÁSTANDI var aflýst á hádegi í gær á Flateyri. Ibúar við Olafstún fengu því enn á ný að snúa heim til sín eftir stutta fjarveru að heiman að þessu sinni. í gærmorgun skartaði Önundar- fjörður sínu fegursta í vetrarbún- ingi, blankandi logn og sólskin, en það hefur verið sjaldgæf sjón nú uppá síðkastið. Vegurinn inn á flug- völl í Holti var ruddur og hægt var að fljúga, en ekki hefur verið flogið síðan á laugardag. - Magnea Heimsókn forseta Tékkóslóvakíu: Skipulögð dagskrá fyrir Havel FORSETI Tékkóslóvakíu, hr. Václav Havel, kemur til íslands á laugardag ásamt fjölmennu fylgd- arliði. Dagskrá er skipulögð allan laugardaginn, en brottför frá Keflavíkurflugvelli er kl. níu á sunnudagsmorgun. Forseti íslands, forsætisráðherra og utanríkisráðherra taka á móti forseta Tékkóslóvakíu á Keflavíkur- flugvelli kl. 12.30. Þaðan er farið til Hótel Sögu, en hádegisverður verður í Ráðherrabústaðnum. Að honum loknum fara forsetarnir í skoðunarferð um Reykjavík með við- komu á Höfða, þar sem borgarstjóri tekur á móti þeim. Eftir frétta- mannafund verður hátíðarsýning í Þjóðleikhúsinu á Endurbyggingu eftir Václav Havel. Þar verða fyrst og fremst boðsgestir, en miðar á efri svalir voru settir í almenna sölu í gær og á morgun verða aðrir mið- ar, sem Iosna, seldir. Um kvöldið tekur forseti íslands á móti forseta Tékkóslóvakíu á Hótel Sögu. Hópurinn frá Tékkóslóvakíu telur 81 mann. Með í för eru m.a. Olga Havlová forsetafrú, Marián Calfa forsætisráðherra, Václav Klaus fjár- málaráðherra, Andrej Barðák ut- anríkisviðskiptaráðherra auk ann- arra háttsettra aðila. 12 öryggis- verðir eru í hópnum og 29 frétta- menn. Mercedes Benz 230E '89 AMC Cherokee '87 Grár. Topplúga. Ekinn 16 þús. Silfursans. Sportfelgur. Skipti og Verð kr. 3.100 þús. skuldabréf. Ekinn 35 þús. Verð kr. 1.750 þús. BILATORG BETRIBÍLASALA NÓATÚN 2 - SÍMI621033 Volvo 740 GL '87 Gullsans. Fallegur bíll. Ekinn 30 þús. Verð kr. 1.250 þús. Audi 80 18s '88 Vínrauður. Fallegur og vel útbúinn bíll. Skipti og skuldabréf. Ekinn 45 þús. Verð kr. 1.420 þús. Saab 900i '88 Rauður. Ekinn 6 þús Verð kr. 1.170 þús. J bilatorg Toyota Carina SS '88 Hvítur. Ekinn 27 þús. Verð kr. 800 þús. mw\ Toyota Landcruiser '88 Blágrár. Skipti og skuldabréf. Ekinn 44 þús. Verð kr. 2.600 þús. MMC Pajero '87 Grár og blár. Skipti og skuldabréf. Ekinn 78 þús. Verð kr. 1.700 þús. Daihatsu Rocky EL '87 Grár og rauður. Skipti og skulda- bréf. Ekinn 78 þús. Verð kr. 1.250 þús. w BMW 520 i SE '88 Grænsans. Einn með öllu. Skipti og skuldabréf. Ekinn 49 þús. Verð kr. 1.580 þús. Saab 9000 Turbo '88 Brúnsans. Skipti og skuldabréf. Ekinn 35 þús. Verð kr. 1.880 þús. BMW 316 '87 Rauður. Skipti og skuldabréf. Ekinn 50 þús. Verð kr. 850 þús. Isuzu Troper '86 Drapp. Diesel. Skipti og skuldabréf. Ekinn 76 þús. Verð kr. 1.400 þús. Range Rover'88 Grænsans. Skipti og skuldabréf. Ekinn 75 þús. Verð kr. 2.800 þús. Ný sölskrá BILATORG BETRIBÍLASALA NÓATÚN 2-SÍMI621033 Höfum kaupenduraó nýlegum SAAB- Citroen- og Subaru-bílum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.