Morgunblaðið - 14.02.1990, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1990
—r-----ríri-ri— ----:----!--!—rtn---:-----n----
21
Ráðstefiia um opnun lofthelgi:
Shevardnadze vill að eftirlit nái
einnig til hafsvæða og geimsins
Ottawa. Reuter.
EDÚARD Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, lagði til
í íyrrakvöld á ráðsteftiu um opnun lofthelgi, að áætlunin næði ekki
einvörðungu til eftirlits með hernaðarumsvifum á landi, heldur einn-
ig á höftmum og í geimnum. Lagði hann til að sett yrði á fót al-
þjóðastofnun er hefði því hlutverki að gegna að fylgjast með því
hverju væri skotið út í geiminn og koma í veg fyrir að þangað
yrðu send vopn. Voru hugmyndir hans taldar viss ögrun við geim-
varnaáætlun Bandaríkjastjórnar.
Shevardnadze sagði í ræðu sinni
að hernaðarumsvif á höfunum
væru leifar kalda stríðsins. Þeim
væru engin takmörk sett í afvopn-
unarsamningum. Auðveldasta leið-
in til skyndiárása á önnur ríki væri
frá höfunum. Sovétmenn hafa und-
anfarið ítrekað lagt til að hernaða-
rumsvif á höfúnum verði takmörk-
uð en Atlantshafsbandalagið
(NATO) hefur vísað tillögum þeirra
á bug. Einnig sagði Shevardnadze
að þar sem einkafyrirtæki gætu
nú skotið geimflaugum og sent
hluti á braut um jörðu væri engin
■ WELLINGTON - ítalski
fjallgöngumaðurinn Reinhold
Messner og vestur-þýski ævintýra-
maðurinn Arved Fuchs urðu í gær
fyrstir til að fara þvert yfir suður-
heimskautið án þess að nota hunda
eða vélarafl. Vegalengdin var um
2.500 km og tók ferðin 91 dag.
Þeir notfærðu sér vindorkuna á leið-
inni því þeir voru á sleðum með
seglum. Þeirri tækni beitti Norð-
maðurinn Roald Amundsen, sem
var fyrsti maðurinn er kom á suður-
heimskautið en það gerðist árið
1911.
trygging fyrir því að þau sendu
ekki „eitthvað á braut sem gerði
jarðarbúa gísla eigin drauma“.
Engin viðbrögð komu fram við
tillögum Shevardnadze um eftirlit
á höfunum en utanríkisráðherrar
23 aðildarríkja NATO og Varsjár-
bandalagsins lýstu á Ottawa-ráð-
stefnunni stuðningi við hugmynd-
ina um opnun lofthelginnar.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, mælti fyrir áætlun-
inni og sagði að eftirlitsfiug hvors
bandalagsins yfir landssvæðum
hins yrði öflugt tákn um vaxandi
samstarf ríkja Austurs og Vesturs.
Talið var hugsanlegt að ágrein-
ingur yrði einna helst um fjölda
flugferða. í tillögum NATO er gert
ráð fyrir að hann ákvarðist af stærð
þess ríkis sem flogið er yfir. Þann-
ig yrði heimilt að fljúga tvisvar til
þrisvar í viku yfír Sovétríkin en
aðeins einu sinni í viku yfir Banda-
ríkin. Shevardnadze gaf til kynna
að Varsjárbandalagsríkin myndu
krefjast þess að eftirlitsflugin yfír
ríkjum bandalaganna tveggja yrðu
jafn mörg og að skipst yrði á upp-
lýsingum, sem ekki er gert ráð
fyrir í tillögum NATO.
Aætlunin um opnun lofthelgi
kveður á um að ríkjum Varsjár-
bandalagsins og NATO verði heim-
ilt að halda uppi eftirlitsflugi yfír
landsvæðum aðildarríkjanna til að
fylgjast með hernaðarumsvifum og
til að tryggja að staðið sé við
ákvæði afvopnunarsamninga. Um
borð í eftirlitsflugvélum yrðu auk
áhafna fulltrúar þess ríkis sem
flogið væri yfir til þess að koma í
veg fyrir njósnir.
Hugmynd Eisenhowers
Upphaflega, setti Dwight Eisen-
hower, þáverandi Bandaríkjafor-
seti, hugmyndina um opnun loft-
helgi fram á sjötta áratugnum.
Sovétmenn höfnuðu henni þar sem
þeir héldu að um njósnabrellu að
ræða. George Bush Bandaríkjafor-
seti dustaði síðan rykið af hug-
myndinni í maí í fyrra. Er álitið
að með því að hrinda áætluninni í
framkvæmd gæti það flýtt fyrir
samningum um fækkun hefðbund-
ins herafla í Evrópu.
Jón Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, flutti í gær ræðu
á Ottawa-ráðstefnunni þar sem
hann sagði, að á næstu árum hefði
NATO mikilvægu hlutverki að
gegna við að tryggja afvopnun og
skapa stöðugleika. Jafnframt vék
Jón Baldvin að afvopnun á höfun-
um og sagði: „Það er ekki síst til
að stuðla að friðsamlegri þróun í
Evrópu sem íslenska ríkisstjórnin
hefur hvað eftir annað sagt að
ræða verði tafarlaust um traust-
vekjandi aðgerðir á höfunum og
takmörkun vígbúnaðar til þess að
undirbúa næsta skref til að tak-
marka hefðbundin vopn í Evrópu.
Þetta er vissulega ísjakinn okkar
-leifar kaldastríðsins- sem þarf
að bræða,“ en þar vitnaði ráðherra
til orða Shevardnadze.
Toshiki Kaifú forsætisráðherra
biður fyrir sigri stjórnarflokks-
Kosið í Japan á sunnudag:
Spá öðrum kosn-
ingum innan tíðar
Tókýó. Reuter.
ALMENNAR kosningar til neðri deildar japansks þingsins verða á
sunnudag og er búist við, að þær verði stjórnarflokknum, Frjáls-
lynda lýðræðisflokknum, fremur erfiðar. Spá því sumir, að enginn
starfhæfúr meirihluti verði á þingi að kosningunum loknum og því
óhjákvæmilegt að boða fljótlega til nýrra.
Flestir fréttaskýrendur telja, að
stjórnarflokkurinn haldi meirihlut-
anum en þeir efast hins vegar um,
að hann verði nógu mikill til að
stjórnarandstaðan, sem hefur meiri-
hluta í efri deild, hætti að krefjast
þess, að óvinsæll söluskattur verði
afnuminn. Verði niðurstaðán sú er
ekki um annað að ræða en boða til
nýrra kosninga.
Söluskatturinn og hneykslismál
ýmiss konar hafa reynst stjórnar-
flokknum þung í skauti en talsmenn
hann segjast vissir um að fá 235
af 512 þingmönnum í neðri deild
og hafa von um aðra 30. Á síðasta
þingi voru stjórnarþingmennimir
294 að tölu. Helstu stjórnarand-
stöðuflokkarnir eru Sósíalistaflokk-
urinn, sem er þeirra stærstur; Lýð-
ræðislegi sósíalistaflokkurinn og
Komeito-fiokkurinn, sem sækir
fylgið meðal annars til búddatrúar-
manna. Eru tveir síðastnefndu
flokkarnir hægramegin við miðju
og vilja ekki starfa með Sósíalista-
flokknum þótt þeir fengju meiri-
hluta allir þrír.
ltÓli \mRli \MK VÖIÍU-HELGAFELLS
OTRÍILEG „„
MMHEhltlX
Dæmi um nohkur sértilboð
á hókíiniíiihíiðniini:
lAinlýraniaðui'- Jón Ólafsson,
Lífsháski í Ljónadal - spennusaga eftir Kcn FolletL .
L>steinnícldlínunni-VilhjátmurHjálmarsson:....
kver með útlendum kvæðum - Jón Helgason þýddi
Venjulegt Tilboðs- Af-
verð verð sláttur
1.890,- 95,- 95%
1.990,- 295,- 88%
1.978,- 295,- 85%
2.286,- 495,- 78%
1.673,- 295,- 82%
. 1.679,- 295,- 82%
983,- 95,- 90%
Mörg hundruð bókatitlar á einstöku verði bjóðast nú á
bókamarkaði VÖku-HelgafelIs í forlagsversluninni að
Síðumúla 29 í Reykjavík.
Hér gefst einstakt tækifæri til jiess að bæta eigulegum
verkum í bókasafn heimilisins - bókum af öllum gerðum við
allra hæfi.
Bókamarkaður Vöku-Helgafells stendur til 20. febrúar
næstkomandi. Margar bókanna eru til í takmörkuðu
upplagi og því best að drífa sig sem fyrst!
Ve
t^iso*0
rð‘lið,,‘
HELGAFELL
Síðumúla 29 • Síml 688 300.