Morgunblaðið - 14.02.1990, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 14.02.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1990 27 Stjórnarfrumvarp til skipulags- og byggingarlaga: Nýtt ríkísbákn sem skerðir völd sveitarfélaga - segir Birgir Isleifiir Gunnarsson JOHANNA Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur lagt fram og mælt fyrir frumvarpi ríkissljórnarinnar til skipulags- og byggingar- laga. Með frumvarpinu verður sett á laggirnar ný ríkisstofhun, Skipu- lags- og byggingarstjórn ríkisins, sem lúta mun stjórn Skipulagsstjórn- ar ríkisins og félagsmálaráðherra. Frumvarpið hefur að geyma heild- stæða löggjöf um stjórn skipulags- og byggingarmála í landinu. Nokkur nýmæli og breytingar getur að finna í frumvarpinu. Sett er á laggirnar ný stofnun, Skipulags- og byggingarstofnun ríkisins. Hlutverk hennar verður að fara með gerð landsskipulags og stuðla að gerð skipulagsáætlana, jafnt svæðis-, aðal- og deiliskipulags og reglubundinni endurskoðun þeirra. Nýtt hugtak er sett fram í lögun- um; „landsskipulag". Er þar átt við skipulagsáætlun sem taki til ein- stakra þátta er varði landið allt eða landshluta, samgangna, fjarskipta, orkuveitna, þróunar atvinnuvega, landnotkunar, landnýtingar og byggðar í meginatriðum. Hlutverk landsskipulags er m.a. að vera grundvöllur fyrir gerð svæðisskipu- lags og fyrir aðgerðir stjórnvalda sem gerðar eru til að beina byggða- þróun í ákveðinn farveg. í samtali við Morgunblaðið sagði Birgir ísleifur Gunnarsson að sjálf- stæðismenn hefðu verulegar athuga- semdir fram að færa við frumvarpið. „Almennt má segja að frumvarpið hafi það annars vegar í for með sér að verið er að taka vald frá sveitarfé- lögunum í skipulags- og byggingar- málum og færa það til ríkisins og annars vegar er stuðlað að stóraukn- um ríkisumsvifum í skipulagsmál- um. Um landsskipulagið sagði Birgir að með því væri verið að stefna að að mjög umsvifamikilli starfsemi á vegum ríkisins. Óljóst væri hvað við væri átt með frumvarpinu, en það virtist snerta mjög marga þætti í starfi hins opinbera og skarast á við verkefni annarra. „Það hefur lítið háð okkur til þessa að hafa ekki slíkt skipulag." , Birgir gagnrýndi það að með frumvarpinu væru vegna gerðar aðalskipulags settar mjög smá- smugulegar reglur um málsmeðferð, þar sem gert væri ráð fyrir að aðal- skipulag þyrfti að fá staðfestingu ríkisins. „Má í tilefni af þessu benda á að á Norðurlöndum er það lagt í hendur sveitarfélaganna sjálfra að ákveða hvort aðalskipulag sé stað- fest af ríki eður ei.“ Birgir kvað einn- ig vera stefnt að því að taka veru- legt vald frá sveitarfélögunum varð- andi gerð deiliskipulags, þar sem gert væri ráð fyrir samþykki stjóm- valda, en svo væri ekki nú. Sérlega athygli vakti Birgir á nýbreytni í 17. gr. frumvarpsins, þar sem ráð væri gert fyrir því að unnt væri af Skipulagsstofnun að auð- kenna ákveðin svæði á áberandi stöðum innan deiliskipulags, svo sem aðalgötur og torg, þar sem leyfi til byggingar væri háð samþykki skipu- lagsstjórnar. „Ef slíkt ákvæði hefði verið í gildi á sínum tíma, hefði ríkis- valdið getað komið í veg fyrir bygg- ingu ráðhússins." Birgir taldi það og bera vott um sambandsleysi innan ríkisstjórnarinnar að samkvæmt þessu frumvarpi væri gert ráð fyrir að hin nýja Skipulags- og byggingar- stofnun heyrði undir félagsmála- ráðuneytið, á sama tíma og til um- ræðu væri stjórnarfrumvarp sem gerði ráð fyrir því að færa skipulags- mál undir hið nýja umhverfismála- ráðuneyti. ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON: „Hugmynd Alþýðuflokksins skattleggja orkufyrirtækin.“ að JÓN SIGURÐSSON: „Rangfærslur að Alþýðuflokkurinn hafi átt hugmyndina að orkuskatt- Orkuskattinum frestað í efri deild: Málið enn óútkljáð í ríkissljórn UMRÆÐU um frumvarp ríkis- stjórnarinnar um skattskyldu orkufyrirtækja var í gær frestað í efri deild Alþingis að beiðni stjórnarandstöðunnar, þar sem fram kom í máli forsætisráð- herra að málið væri enn til umfjöllunar í ríkisstjórn og óútrætt þar. Frumvarpið um skattskyldu orkufyrirtækja var til áframhald- andi fyrstu umræðu í efri deild Al- þingis í gær. Áður en til dagskrár var gengið, lét Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra þau ummæli falla í þingskaparumræðu að frumvarpið væri til umfjöllunar hjá ríkisstjóm og væri þar ekki útrætt. Þegar málið átti síðan að koma á dagskrá kvaddi Þorvaldur Garð- ar Kristjánsson (S/Vf) sér hljóðs um þingsköp og vakti athygli þing- forseta á ummælum forsætisráð- herra fyrr um daginn. Fór hann fram á það að umræðu um frum- varpið yrði af þessum sökum frest- að. Forseti varð við þessari beiðni, en leyfði þó Jóni Sigurðssyni iðn- aðarráðherra að taka til máls um dagskrárefnið. I ræðu sinni tók Jón það fram að fullyrðingar um það að Alþýðu- flokkurinn hefði átt hugmyndina að orkuskattinum væru alrangar. Halldór Blöndal (S/Ne) sté þá upp í pontu til að ræða um þingsköp og vakti athygli á því að ummæli þessa efnis væru ekki frá sér komn- ar; þau hefði hann eftir fjármála- ráðherra í sjónvarpsþætti daginn áður. Taldi hann athyglisvert að Jón kallaði fjármálaráðherra ranginda- mann. Ummæli fjármálaráðherra í um- ræddum sjónvarpsþætti voru þessi: „En vegna orða Halldórs er bara óhjákvæmilegt að segja það að Al- þýðuflokkurinn meira en stóð að því (innskot: frumvarpinu), hann átti hugmyndina að því að í efna- hagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar í desember væru orkufyrirtækin látin greiða tekjuskatt. Það var hugmynd Alþýðuflokksins að gera það núna í þessari lotu.“ Frumvarp um bann við atvinnurekstri vegna afbrota: Farið á mjög varasamar brautir - segir Geir H. Haarde í athugasemdum sínum GEIR H. Haarde (S/Rvk) hefúr sett fram í athugasemdum harða gagnrýni á frumvarp nokkurra þingmanna um tímabundið bann við atvinnurekstri einstaklings vegna afbrota. Telur hann um of þungar refsingar að ræða sem aukinheldur myndu ekki ná tilgangi sínum. í athugasemdum Geirs kemur fram að hann telur að með frum- varpi þessu sé farið inn á mjög varasamar brautir. „Hér á að fara nýja leið í refsingum og taka upp áður óþekkt viðurlög sem felast í því að svipta menn rétti til að stunda starfsemi sem öllum öðrum er heim- ilt að stunda án leyfa.“ Síðan segir: „Að gildandi lögum þarf almennt ekki sérstök leyfí til að stofna til atvinnurekstrar enda getur verið erfitt að skilgreina af nákvæmni hvað í „atvinnurekstri“ felst. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að dæma megi menn í „at- vinnurekstrarbann" í 3-5 ár hafi þeir brugðist „gróflega skyldum sínum í eigin atvinnurekstri eða í atvinnurekstri lögaðila sem þeir eru í forsvari fyrir“, eins og segir í frumvarpinu. í slíku banni felst meðal annars að viðkomandi yrði óheimilt að stunda sjálfstæðan at- vinnurekstur eða vera í stjórn eða varastjórn félags með fjárhagsleg markmið. Ég tel mjög varhugavert að ætla að banna einstökum mönnum að hefja rekstur jafnvel þótt þeir hafi misstigið sig í atvinnurekstri fyrr á lífsleiðinni. Öðru máli gegnir um sérstök leyfi eða starfsréttindi sem hið opinbera veitir mönnum, svo sem verslunarleyfi, lækningaleyfi eða lögmannsréttindi. Það getur verið eðlilegt og óhjákvæmilegt að svipta menn slíkum leyfum hafí þeir brugðist þeim skyldum eða kröfum sem að baki slíkum leyfís- veitingum liggja enda ráð fyrir því gert í gildandi lögum. Til viðbótar þessum athugasemd- um má benda á hversu gríðarlega þung refsing „atvinnurekstrar- bann“ gæti orðið. Með slíku banni væri eflaust í mörgum tilfellum verið að skerða möguleika manna, sem lent hafa í erfíðleikum, til að koma undir sig fótunum að nýju og verið borgunarmenn fyrir því tjóni sem þeir kunna að hafa valdið öðrum. Komist ákvæði þessi í lög er að mínum dómi verið að veita fólki falska vernd gegn þeim sem bijóta af sér í atvinnurekstri. Enginn er skyldugur til þess að stunda láns- viðskipti við aðila sem hann ekki treystir og það verður aldrei unnt að afnema þá staðreynd með lögum að því fylgir ævinlega einhver áhætta að lána öðrum fjármuni eða veita til dæmis gjaldfresti. Geir H. Haarde í lögum eins og t.d. hegningar- lögum og skatta- og bókhaldslögum er að fínna margs konar refsi- ákvæði sem eiga við um brot á þeim og refsivert athæfi ýmiss kon- ar. Ég tel eðlilegra að fylgja þeim ákvæðum fastar eftir en að taka upp það atvinnurekstrarbann, sem lagt er til í frumvarpinu. Með slíku banni yrði að mínum dómi farið inn á brautir sem ekki sér fyrir endann á. K. < ... JÖNUSTA Byggingameistari getur bætt við sig verkefnum. Upplýsingar í síma 82304 eftir kl. 17.00. 'JNNSLA Vélritunarkennsla IMý námskeið eru að hefjast. Vélritunarskólinn, s. 28040. I.O.O.F. 7 = 1712148V2 = 9.0 I.O.O.F. 9 = 1712148 'h = □ GLITNIR 599002147 = 8 ^ ' v ' 'SS , A ' t j □ HELGAFELL 59902147 VI 2 Frl Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma f kvöld kl. 20.00. Krossinn Auðbrekku 2,200 Kópavogur Samkoma í kvöld kl. 20.30 með Paul Hansen. SAMBAND ÍSLENZKRA KRISTNIBOÐSFÉLAGA; Samkoma I kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58 i kvöld kl. 20.30. Kristniboðsþáttur í umsjón Glsla Arnkelssonar, ræðumaður er Katrín Guðlaugsdóttir. Allir velkomnir. Svigmót Ármanns haldið f Bláfjöllum 17. og 18. febrúar 1990 Svigmót Ármanns verður haldið f Bláfjöllum 17. og 18. febrúar. Keppt verður f öllum flokkum. Pátttökutilkynningar skulu ber- ast fyrir fimmtudagskvöld 15. febrúar í síma 77101. Laugardagur 17. febrúar kl.: 10.00 Brautarskoðun karla, kvenna og 15-16 ára. 10.40 Keppni hefst, fyrri ferð. 12.00 Seinni ferð lokið. 12.20 Brautarskoðun 13-14 ára. 13.00 Keppni hefst, fyrri ferð. 15.00 Seinni ferð lokið. Sunnudagur 18. febrúar kl.: 10.00 Brautarskoðun 11-12 ára. 10.00 Keppnihefst, fyrriferð. 11.30 Seinni ferð lokið. 11.45 Brautarskoðun 9-10 ára. 12.15 Keppni hefst. 13.45 Seinni ferð lokið. Verðlaunaafhending verður að lokinni keppni i hverjum flokki. Fararstjórafundur verður hald- inn föstudaginn 16. febrúar kl. 19.30 í fundarsal SKRR í Laug- ardal. Mótsstjórn áskilur sér rétt til að breyta dagskrá, þar sem fjöldi keppenda í hverjum flokki er ókunnur. Stjórnin. Stúkan Einingin nr. 14 Fundur í kvöld f Templarahöllinni kl. 20.30. Kynning á Krabba- meinsfélagi islands f umsjón Þorvarðar Örnólfssonar. Fjöl- mennum á fróðlegan fund. Æt. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía Safnaðarf undur í kvöld kl. 20.00. Mætum öll. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SWAR11796 og 19533. Myndakvöld Næsta myndakvöld Ferðafé- lagsins verður miðvikudaginn 14. febrúar í Sóknarsalnum, Skipholti 50a og hefst stundvís- lega kl. 20.30. Efni: 1) Fyrir hlé verður mynda- sýning i umsjá Grétars Eirfks- sonar, og hefst með sýningu á myndum frá fjalllendinu út með Eyjafirði og norðan Öxnadals- heiðar. Stefnt verður að því að Bjarni Guðleifsson á Möðruvöll- um skýri myndirnar. Þar á eftir fer Grétar þjóðleiðina frá Siglu- firði til Reykjavíkur og vekur athygli á nokkrum merktum stöðum í máli og myndum. 2) Eftir kaffihlé verða sýndar myndir teknar f dagsferðum það sem af er þessu ári. Fjölmenni hefur verið i ferðunum og veður hagstætt. Góðar kaffiveitingar í hléi. Aðgangur kr. 200.- Ath.: Myndir Grétars tengjast efni árbókar F.f. 1990. Myndakvöld Ferðafélagsins eru til fróðleiks og skemmtunar. All- ir velkomnir, félagar og aðrir. Munið skfðagöngunámskelðin næstu sunnudaga. Ferðafélag tslands. !

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.