Morgunblaðið - 14.02.1990, Page 41
MORGUNBLAÖÍÐ MIÐVIKUDAGÚR lV. FéBRÚAR 1990
41
VELVAKANDI ■WmmH SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
ImMhr’P frá mánudegi
TIL FÖSTUDAGS
iMVfí,iimá*ivnir>/ivi
Þessir hringdu ..
„Heimahagar"
Sverrir Haraldsson hringdi:
„Sunnudaginn 4. febrúar var
fjallað um tvö Kjarvalsmálverk í
Morgunblaðinu. Sagt var um ann-
að málverkið: „Málverkið „Heima-
hagar“ er vafalítið, eins og nafnið
ber með sér, frá heimaslóðum
listamannsins í Meðallandssveit."
En myndin er úr Borgarfirði
eystra. Fjallið á myndinni er fjall-
ið fyrir ofan bæin í Geitavík þar
sem Kjarval ólst upp.“
Hanski
Svartur rúskinnshanski tapað-
ist við Austurströnd 27. janúar.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í Herdísi í síma 71221.
Þjóðarsálin
Lesandi hringdi:
„Við sem búum úti á landi miss-
um oft af Þjóðarsálinni á Rás 2
þar sem svæðisútvarp Norður-
lands og fleiri svæðisútvörp koma
inn á bylgjuna á sama tíma. Þann-
ig misstum við t.d. af umfjöllun-
inni um skattámál hér fyrir norð-
an. Væri ekki hægt að flytja
svæðisútvörpin á annan tíma?
Góðir tónleikar
D.G.
„Hér á landi hefur verið stödd
hin stórkostlega sveitasöngkona
Tommy Wynette ásamt hljómsveit
og aðstoðarfólki. Ég hef lengi
verið mikill aðdáandi þessarar
tónlistar og mig oft dreymt um
að komast á tónleika með þannig
listafólki. Þessi draumur minn
rættist fimmtudagskvöldið 6.
febrúar á Hótel íslandi. Þvílíkir
tónleikar, þvílíkt listafólk. Ég upp-
lifði þarna stórkostlega kvöld-
stund sem verður ógleymanleg.
Ég vil þakka Aðalstöðinni og öðr-
um sem stóðu að þessu frábæra
framtaki.“
Læða
Vill einhver góðhjartaður
kattavinur taka að sér tveggja ára
gamla læðu þar sem eigendur
hennar eru að flytja í fjölbýlishús.
Hún hefur verið tekin úr sam-
bandi, er svört og hvít, mjög gæf
og hreinleg. Upplýsingar í síma
41659 eftir kl. 19.
Ákeyrsla
Hér er áskorun til þess sem
bakkaði á hvítan Skóda, R-66576,
neðst á Snorrabraut sunnudaginn
4. febrúar og olli þar með miklu
tjóni og fjárhagslegum skaða.
Vinsamlegast hringdu í Önnu í
síma 36823.
„Slimm er gouda dagsins“
Til Velvakanda.
Máttur auglýsinga í nútíma þjóð-
félagi er mikill, því er þörf á að til
þeirra sé vandað, sérstaklega hvað
tungutakið varðar. Þáttur opin-
berra aðila er ekki hvað minnstur
á þessu sviði. Mjólkursamsalan er
einn þeirra aðila, sem mikið auglýsa
í sjónvarpi. Þessar auglýsingar hafa
oft verið býsna smellnar og höfða
mjög til þeirra yngri. í flestu hefur
MS virst vanda til málfars og vöru-
heita, en þó ekki alltaf. Nú fyrir
áramótin birtist ný auglýsing frá
MS, þar sem kynntar voru nýjar
umbúðir, „slimmumbúðir". í nýj-
ustu MS-fréttum segir; „Nýju um-
búðirnar eru háar og mjóar að lög-
un og framleiðandi þeirra, Tetra
Til Velvakanda.
Ég vil koma eftirfarandi tillögum
á framfæri. Á gottíma þorsksins
ætti að hafa menn um borð í hverj-
um togara sem tækju hrogn og
svil úr fiskinum og hrærðu í þessu
í stömpum eða keijum, til að fijóga
hrognin, og skiluðu þessu í hafið
aftur. Ef þessi aðferð er möguleg
og fijógun ykist yrði það fiskistofn-
inum til aukingar, kvótastækunar
og hagsældar allra. Munið eitt, stórt
hrogn er skipsfarmur.
Svo er það blessað kjötið. Við
íslendingar eigum að lifa á okkar
landbúnaði en framleiðendur verða
Pak í Svfþjóð, hefur gefið þeim
heitið slimmumbúðir.
Nu er það svo að í íslensku eru
mörg orð, sem vel hefði mátt nota
yfir þessar umbúðir, t.d. hefði mátt
kalla hyrnuna langa eða mjónu svo
eitthvað sé nefnt. Hitt er ótækt að
láta erlend fyrirtæki ákvarða nýyrði
í íslensku, sem því miður er æði
oft raunin. Og svo eru það þau
ósköp að taka upp óbreytt erlend
heiti á vörum án þess að gera einu
sinni tilraun til að stafsetja þau að
íslenskum hætti. Taka má Osta- og
smjörsöluna sem dæmi, en hún hef-
ur flutt inn nokkur erlend orð, á
mismunandi ostategundum, sem
hægur vandi væri að nefna íslensk-
um nöfnum. Þá má nefna Coca-
að fara öðruvísi að og ef það yrði
gjört myndi megnið af kjötinu verða
selt innanlands. Það á að slátra
daglega. Þá fá neytendur nýtt
gómsætt og ilmandi kjöt. Það muna
flestir eftir ilmandi og góðri kjöt-
súpu af nýju kjöti. Það verður að
breyta þessu gamaldags fyrirkomu-
lagi. Húsmóðir á kost á nýju dilka-
kjöti daglega alls staðar nema hér
á landi. Það má segja að þetta hafi
kostnað í för með sér. Heygjöf yrði
meiri en frystigeymsla, þránun og
öskuhaugakeyrsla kostar sitt.
Mottóið er nýtt kindakjöt daglega.
Magnús Kristjánsson
Cola, sem eins og fleiri gosdrykkja-
fyrirtæki hafa tekið upp orðið
„diet“, sem MS hefur leyst með
orðinu létt, eins og t.d. léttmjólk.
Þannig væri til bóta að fá sér létt-
kók, en ekki „dæet-kók“.
Otal öðrum dæmum væri hægt
að vekja máls á, en ég læt þetta
nægja að sinni og vona, að fólk
þurfi ekki að fá sér dæetdrykk úr
slimmumbúðum með pepperoni-
Borgarness-pizzunni ásamt tilsitt-
er- eða goudaostinum til að fá nógu
fitt og slimm boddy. Alveg æði.
Hreggviður Jónsson
Texta á allt
íslenskt eftii
Til Velvakanda.
Mig langar til að þakka Helga
Seljan fýrrverandi alþingismanni
fyrir að vekja athygli á vandamál-
um okkar heymariausra og heym-
arskertra í DV fýrir nokkrum dög-
um. Eitt vandamálið er að við sem
emm heymarlaus og mikið heyrna-
skert höfum svo lítil not af sjón-
varpinu. Ég vil vekja athygli á því
að þeir sem kunna táknmál eru líka
læsir svo texti kæmi þeim að fullum
notum og við heymarskertir fengj-
-um notið góðs af. Ég hef áður skrif-
að í Velvakanda og vakið athygli á
þessu vandamáli. Ég fékk upplýs-
ingar um að það em um 5000
manns sem nota heymartæki fyrir
utan þá sem ekkert heyra. Ég veit
ekki hve stór hópur hefur gagn af
hjálpartækjum sem em á markaðin-
um. En þetta hlýtur að teljast stór
hópur í okkar fámenna þjóðfélagi.
Ég spyr sjónvarpsstjóra á Rfkis-
sjónvarpinu og Stöð 2 hvort það sé
dýrara að texta frétta- og náttúr-
ulífsþætti en að hafa þuli. Ég vona
að þið svarið mér - mér finnst kom-
inn tími til að þivð gerið eitthvað í
þessum málum svo þið getið með
góðri samvisku sagt að sjónvarpið
sé fyrir alla landsmenn. Klukkan
er oftast orðin hálf níu þegar kem-
ur eitthvað textað fyrir okkur.
Heyrnarskertir og heyrnarlausir,
látið heyra í ykkur.
Áróra Helgadóttir
Seljum í dag og næstu daga nokkur
lítiUega útlitsgölluð GRAM tæki 3ja
með góðum afslætti. araábyrgð
GOÐIR SKILMALAR
TRAUST ÞJÓNUSTA
/FOniX
HÁTÚNI 6A REYKJAVÍK SÍMI (91)-24420
Aðalfundur
Verslunarráðs
íslands 1990
Fundurinn verður á Hótel Loftleiðum mánu-
daginn 19. febrúar 1990.
Skráning fundarmanna og afhending gagna í Vík
(Víkingasal) kl. 11.15-11.30.
í Vík flytur Jóhann J. Ólafsson, formaður VÍ, ræðu og
afhentir verða námsstyrkir. Þar verður einnig hádegis-
verður.
Kl. 13 flyst fundurinn í Höfða (Kristalssal) og þar talar
fyrst Jean-Paul Schmit, aðstoðarframkvæmdastjóri
Verslunarráðs Luxembourgar, um reynslu þar í landi
af alþjóðlegri þjónustu.
Síðan verður fjallað um „Verslun og þjónustu sem út-
flutningsgreinar" og drög að stefnuskrá VÍ.
Frummælendur verða Bjarni Snæbjörn Jónsson, Gunn-
ar Maack, Einar Sveinsson, Þórður Sverrisson, Ólafur
Örn Ingólfsson, Gunnar Óskarsson, Júlíus S. Ólafsson
og Sverrir V. Bernhöft um fyrri liðinn, en Kristinn Björns-
son um stefnuskrána.
Að lokum fara fram hefðbundin aðalfundarstörf, en
fundinum verður slitið kl. 17.15.
Tímasett dagskrá hefur verið send öllum félögum.
Árfðandi er að þátttaka verði tilkynnt skrffstofu
VÍ hlð fyrsta, í síma 83088, vegna skipulagningar.
Minnt er á skriflega kosningu stjórnar samkvœmt
útsendum kjörgögnum. Atkvæði þurfa að berast
skrifstofu Verslunarráðsins fyrir kl. 17.00 föstu-
daglnn 16. febrúar 1990.