Morgunblaðið - 14.02.1990, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 14.02.1990, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1990 43 HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ Endaspretturinn kom of seint Eins markstap í síðasta leiknum gegn Rúmenum EFTIR að hafa verið sex mörk- um undir náðu íslendingarfrá- bærum endaspretti á lokamín- útunum í þriðja og síðasta leiknum gegn Rúmenum, í gær- kvöldi. Á fjórum mínútum náðu þeir að minnka muninn úr fjór- um mörkum í eitt en þar við sat og Rúmenarfögnuðu sigri, 24:23. Þegar fjórar mínútur voru til leiksloka höfðu Rúmenar fjög- urra marka forskot, 24:20 og stefndi í öruggan sigur þeirra. Þorgils Ottar Mathi- LogiBergmann esen, Guðmundur Eiðsson Guðmundsson og skrifar Héðinn Gilsson náðu að minnka muninn í eitt mark og íslendingar fengu bolt- ann þegar rúm mínúta var til leiks- loka. Þrátt fyrir ákafar tilraunir tókst þeim ekki að skora, tvö þrumuskot Héðins hrukku af rúm- enska vamarveggnum og leiktím- inn rann út. Ágæt útkoma „Þetta var alls ekki nógu gott í fyrri hálfleik og vömin var léleg. Auk þess gerðum við mikið af mis- tökum sem er kannski eðlilegt í svona leik. Síðari hálfleikurinn var hinsvegar _góður,“ sagði Héðinn Gilsson. „Eg er annars ánægður með heildina og held að tveir sigrar og eitt tap sé ágæt útkoma í leikjum gegn Rúmenum,“ sagði Héðinn. Fyrri hálfleikurinn var slakur og vömin, sem hefur verið sterkasta hlið íslendinga í þessum leikjum, var opin og lítt hreyfanleg. Sóknar- leikurinn gekk þó þokkalega og URSUT Körfuknattlelkur Fyrri leikur í 8-liða úrslitum f bikarkeppn- inni f körfuknattleik: Keflavík - Þór...............133:103 ÍBK: Guðjón Skúlason 36, Sandy Anderson 27, Magnús Guðfinnsson 19, Sigurður Ingi- mundarson 19, Falur Harðarson 16, Albert Óskarsson 7, Einar Einarsson 5, Kristinn Ingólfsson 2, Nökkvi M. Jónsson 2. Þór: Dan Kennard 39, Konráð Óskarsson 23, Guðmundur Björnsson 12, Eiríkur Sig- urðsson 8, Jón Ö. Guðmundsson 8, Jóhann Sigurðsson 8, Bjöm Sveinsson 2, Stefán Friðleifsson 2, Ágúst Guðmundsson 1. Knattspyrna Nokkrir leikir fór fram f Englandi í gær- kvöld: 3. DEILD: Crewe - Chester..................0:0 Mansfield - Fulham...............3:0 Preston - Leyton Orient..........0:3 Shrewsbury - Blackpool...........1:1 Swansea - Birmingham.............1:1 Wigan - Bury.....................0:0 4. DEILD: Carlisle - Exeter................1:0 Doncaster- Lincoln...............0:1 Hartlepool - Southend............1:1 Scunthorpe - Gillingham..........0:0 Wrexham - Rochdale...............1:1 York - Stockport.................0:3 FELAGSLIF Herrakvöld Víkings Hið árlega herrakvöld Víkings verður haldið í Síðumúla 25 föstudaginn 16. febrúar n.k. klukkan 19,30. Dagskrá verður hefðbundin og ræðumaður kvöldsins verður sr. Pálmi Matthíasson. Þeir sem hyggj- ast mæta eru beðnir að tilkynna þátt- töku í síma 83245. . . , ., má það þakka vaskri framgöngu Héðins sem gerði þrjú síðustu mörk liðsins í fyrri hálfleik. Island-Rúmenía 23 : 24 Laugardalshöllin, vináttulandsleikur C handknattleik (3), þriöjudaginn 13. febrúar 1990. Gangur leiksins: 0:1, 1:1, 1:3, 4:4, 6:7:, 8:7, 8:9, 11:11, 11:13, 12:13, 12:16, 12:17, 14:17, 14:20, 16:21, 17:22, 20:22, 20:24, 23:24. ísland: Héðinn Gilsson 7, Júlíus Jónas- son 4/3, Kristján Arason 3, Guðmund- ur Guðmundsson 2, Þorgils Óttar Mathiesen 2, Sigurður Gunnarsson 1, Gunnar Beinteinsson 1, Valdimar Grímsson 1, Jakob Sigurðsson Í og Óskar Ármannsson 1. Bjarki Sigurðs- son, Geir Sveinsson. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 18 (þar af 5 aftur til mótherja), Leifur Dagfínnsson. Utan vallar: 2 mínútur. Rúmenía: Robert Lice 6, Vasile Stinga 4, Maricel Voinea 3, Cristian Zaharia 3/3, Dumitru Berbece 3/3, Ion Mocanu 2, Comel Durau 1, Marian Dumitru 1, Adrian Ghimes 1. Varin skot: Vasile Cocuz 14 (þar af 5 afturtil mótheija), Liviu Ianos 1/1. Utan vallar: 4 mínútur. Dómarar: Jan Rudinsky og Anton Mosa frá Tékkóslóvakíu. Höfðu ekki nógu góð tök á leiknum. Áhorfendur: 1.800. Síðari hálfleikur byrjaði afar illa og Rúmenar náðu snemma sex marka forskoti. En þá tóku íslend- ingar við sér og síðustu 22 mínút- urnar gerðu Rúmenar aðeins fjögur mörk. íslendingar náðu hinsvegar ekki að nýta sóknir sínar og það setti þá greinilega útaf laginu er Héðinn var tekinn úr umferð. Héðinn var besti maður íslenska liðsins og hélt liðinu á floti lengi vel. Geir Sveinsson og Júlíus Jónas- son voru sterkir í vörninni, auk Kristjáns Arasonar og Guðmundur Guðmundsson og Þorgils Óttar Mathiesen stóðu einnig fyrir sínu. Guðmundur Hrafnkelsson er þó líklega sá leikmaður sem á mest hrós skilið. Hann hefur tekið við stöðu Einars Þorvarðarsonar, sem aðalmarkvarðar liðsins, og átt þijá mjög góða leiki. Að þessu sinni varði hann 18 skot og hefur fylli- lega fyllt skarð Einars. „Ég hef ekki fundið fyrir neinni pressu en ég var orðinn nokkuð þreyttur," sagði Guðmundur eftir leikinn. „Þetta var ekki nógu gott og það var of mikið kæruleysi í fyrri hálfleik. Ég var hinsvegar ánægður með síðari hálfleikinn og ég held að liðið sé á réttri leið. Við megum þó ekki gleyma því að við verðum að hafa fyrir hlutunum," sagði Guðmundur. Bogdan Kowalzcyk landsliðsþjálfari: „IVIjög gott að vinna tvo af þremur“ Bogdan landsliðsþjálfari var ánægður með ieikina þijá gegn Rúmenum þegar á heildina er litið. „Það er mjög gott að vinna tvo leiki af þremur. Ég er rpjög ánægður með úrslitin," sagði hann eftir síðasta leikinn í gær- kvöldi. „Þessir leikir hafa verið sérlega góð æfing fyrir okkur, mikilvægir í undirbúningi fyrir heimsmeistarakeppnina. “ Bogdan sagðist hafa verið sér- staklega ánægður með vörnina; hún hafí verið best í miðleiknum og einnig n\jög góð í seinni hálf- leiknum í gærkvöldi. „Miðleikur- inn var mjög góður hjá báðum liðum, en enn betri í kvöld,“ sagði hann eftir þriðja og síðasta leik- 'inn. „Ég var líka mjög ánægður með að Héðinn lék af aðlilegri getu i dag,“ sagði þjálfarinn — en Héðinn gerði sjö mörk. Bogdan sagði líkamlegu hliðina vera komna í gott lag hjá íslenska liðinu; hún væri orðin nægilega góð fyrir HM, og vömin væri einn- ig góð sem fyrr segir. „ Við þurfum hins vegar að laga sóknina, strák- amir náðu ekki að halda uppi nógu miklum hraða í sókninni. Skotin vom heldur ekki nógu góð, menn einbeittu sér ekki nógu vel. Hugarfarið var líklega ekki alveg rétt eftir tvo sigurleiki." MorgunblaðiS/Einar Falur HéAinn Gilsson einbeittur á svip í leiknum í gær. Hann stóð sig mjög vel og gerði sjö mörk. Ríkistáknið skoríð úr fánanum Nýr rúmenskur fáni hékk uppi f Laugardalshöllinni meðan þriðji og síðasti leikur íslands og Rúmeníu fór fram í gær. Á fyrri tveimur leikjunum var ríkistáknið, sem prýddi fánann á valdatíma Ceausescus, enn á sínum stað en það var á bak og burt í gær. Að sögn Gunnars Guðmannssonar, forstöðu- manns Laugardalshallar, var merkið skorið úr og gul pjatla saumið í í staðinn. „Þetta er líklega táknrænt — sama aðferð og þeir nota andkommúnistamir í Rúmeníu," sagði Gunnar. Gunnar sagði að áður en Rúmenamir komu til landsins hefði hann haft sam- band bæði við rúmenska sendiráðið í Kaupmannahöfn og íslenska sendiráðið og fengið þær upplýsingar að ekki væri búið að breyta fánanum opinberlega. „Við tókum ekki eftir þessu i fyrstu leikjunum. En þegar okkur var bent á þetta, vildum við að merkið yrði fjarlægt af fánanum," sagði rúmenski leikmað- urinn Stinga. Þjálfari Rúmena bjartsýnn fyrir Islands hönd Comel Otela, yflrþjálfari Rúm- ena, sagðist nokkuð ánægður með leikinn í gærkvöldi. „Vömin var góð en sóknarleikurinn hins vegar ekki nægilega góður," sagði hann við Morgunblaðið. Þrátt fyrir tap í hinum leikjunum tveimur var hann ánægður með íslandsferðina. ísland væri með mjög sterkt lið, og viðureignimar hér á landi hefðu verið mjög góður liður í undirbúningnum fyrir HM. „íslendingar verða þó að gæta sín í vörninni og þeir leika alltof fast. í heimsmeistarakeppni er tek- ið mun harðar á brotum í vöm og ef liðið dregur ekki úr hörkunni er líklegt að það missi marga leikmenn útaf,“ sagði Otela. Otela er greinilega hrifinn af liði íslands, sagði að ef ekki væri fyrir Sovétmenn í D-riðli, væri vel hugs- anlegt að „strákamir okkar" hefðu átt möguleika á að leika til úrslita í HM, en þeir mæta Sovétmönnum í milliriðli ef allt gengur að óskum. Færi allt eftir bókinni myndu Sovét- menn verða heimsmeistarar en Ot- ela sagðist telja íslendinga eiga ágæta möguleika á því að leika um 3.-4. sætið. Þá sagðist hann reikna með Austur-Þjóðveijum mjög sterkum, en Júgóslvar yrðu ekki eins góðir og oft áður. Júgóslavar em sem kunnugt er með lslandi í C-riðli ásamt Spánveijum og Kúbú- mönnum. í D riðli em Sovétmenn, Austur-Þjóðveijar, Júgóslavar og Japanir. Þrjú lið úr hvoram riðli mætast í milliriðli. Hvað hans eigið lið áhrærir taldi Otela eðlilegt að það yrði í 3. sæti í milliriðli og léki þar af leiðandi um 5.-6. sæti í keppninni. KORFUKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNIN Þórsarar voru rút- burstaðir í Keflavík „ÉG er hræddur um að þetta sé of mikill munur fyrir okkur til að brúa, en þó get ég lofað Keflvíkingum því að þeir verða að hafa fyrir hlutunum fyrir norðan í síðari leiknum," sagði Gylfi Kristjánsson liðsstjóri Þórsara frá Akureyri eftir að þeir höfðu verið rótburstaðir, 133:103 í fyrri leik liðanna í bikarkeppni KKÍ í Keflavík í gærkvöldi. Jafnræði var með liðunum fyrstu mínútumar, en þá datt allur botn úr leik norðanmanna sem á köflum vom aumkunarverðir. Þetta ■■■■■■ nýttu heimamenn Bjöm sér til hins ýtrasta Blöndal og í hálfleik höfðu skrifar þeir n£g 23 stiga forskoti 59:36. Þórsarar voru mun skárri í síðari hálfleik og náðu stundum að saxa talsvert á forskot Keflvíkinga, en .itHííÍÍsJ ij'jv'j þeir spmngu á limminu undir lokin og ömggur sigur heimamanna var í höfn. Guðjón Skúlason, Sandy Anderson, Sigurður Ingimundar- son, Falur Harðarson og Magnús Guðfinnsson vom bestu menn ÍBK og samtals skomðu þeir félagar 117 stig í leiknum. Hjá Þór var Dan Kennard yfirburðamaður og einnig má nefna Konráð Óskarsson sem stóð sig vel í síðari hálfleik. HNEFALEIKAR James Douglas heimsmeistari James Douglas mun halda heimsmeistaratitlinum í handknattleik, eftir að hann rot- aði Mike Tyson í tíundu lotu í viðureign þeirra í Tokíó. Tvö heimssambönd af þremur (IBF og WBA) hafa staðfest það. Miklar deilur urðu eftir keppn- ina, en eins og hefur komið fram þá rotaði Tyson Douglas ( átt- undu lotu, en dómarinn gerðu þau mistök að vera tólf sekúntur að telja, í stað tíu. Hægagangur dómarans hefur því kostað Ty- son heismeistaratitilinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.