Morgunblaðið - 05.04.1990, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 1990
TOKUM
UPP
DÓSIR
Sgjls
- að sjálfsögðu!
. ,
ÞJÓDLEIKHUSID
Sýningar Þjóðleikhússins
hefjast á ný:
ENDURBYGGING
eftir Václav Havel
í Háskólabíói kl. 20.30
fóstudagskvöld, sunnudagskvöld
og annan í páskum.
eftir Barnes, Ghelderode, Mamet
og Ionesco í Iðnó kl. 20.30
í kvöld, laugardagskvöld
og miðvikudagskvöld.
Miðasala í Þjóðleikhúsinu alla daga
nema mánudaga frá kl. 13.00-18.00
og sýningardaga í Iðnó og Háskólabíói
frá kl. 19.00.
Miðasölusímar:
Þjóðleikhúsið: 11200, Iðnó: 13191,
Háskólabíó: 22140.
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Vísindin viðurkenna
NutraSweet
sem öruggt sætueftii
Bjarni Sigtryggsson
„Þar sem aspartam
kemur í stað sykurs
samræmist notkun þess
því markmiði heilbrigð-
isyfirvalda að draga úr
sykurneyslu.“
eftir Bjarna
Sigtryggsson
Umsjónarmaður neytendasíðu
Morgunblaðsins endursagði nýverið
grein eftir bandarískan háskóla-
nema, sem birst hafði í þarlendu
skólatímariti. Hún samanstóð af
bollaleggingum um hugsanlega
skaðsemi sætuefnisins aspartam,
sem framleitt er undir vörumerkinu
NutraSweet. Þar sem umræður um
sömu ásakanir stóðu yfir í neyt-
endaþætti Sjónvarpsins á dögunum
er rétt að eftirtalin atriði séu skýrð:
Rannsóknir hrekja
sögusagnir
Engar sannanir liggja fyrir um
skaðsemi aspartam. Það hefur nú
verið á markaði í rúman áratug og
verið ítarlegar prófað en nokkurt
aukefni á síðustu árum. Umkvart-
anir, sem hafa borist, eins og um
flest aukefni í mat, hafa verið rann-
sakaðar en ekki reynst eiga við rök
að styðjast. Þvert á móti staðfesta
nýjustu rannsóknir það sem fyrir
lá, að til þess að h'kur geti orðið á
aukaverkunum þurfi neysla að vera
svo óhóflega mikil um langt árabil,
að útilokað er að slíkt hendi nokk-
urn. Það þarf ekki að taka það fram,
að slíkt hið sama á við um neyslu
allrar fæðu, ekki síst sykurs.
GÓÐAR
FERMINGAR
GJAFIR
ULLARPEYSUR
Verð frá kr. 3.900,-
GESTABÆKUR
Verð frá kr. 2.495,-
VÆRÐARVOÐIR
Verð frá kr. 3.550,-
RAMMAGERÐIN
HAFNARSTRÆT119
OG KRINGLUNNI
í samantektinni getur að líta
ásakanir, sem heyrst hafa lengi, en
jafnan verið leiðréttar. Til dæmis
þær að minni kröfur séu gerðar til
aukefna en lyfja. Því er öfugt far-
ið. Þegar nýtt lyf er leyft eru kost-
ir þess vegnir á móti hugsanlegum
skaðlegum áhrifum. Aukefni í mat
mega engin skaðleg áhrif hafa.
Ásakanir þær sem þar er að finna
og sem einnig voru nefndar í sjón-
varpsþættinum, um að neysla
drykkja með NutraSweet hjálpi
fólki ekki í baráttu gegn aukakíló-
unum, eru líka á misskilningi
byggðar. Það léttist enginn á því
að borða „megrunarfæði“ ef slíkt
kemur ekki í stað annarrar fæðu.
Ef „diet-drykkir“ eru viðbót við
sætudrykki er ekki við árangri að
búast.
Samræmist
heilbrigðismarkmiðum
Sú fullyrðing að neysla aspartam
valdi hungri í sætan mat er sömu-
leiðis þjóðsaga, ein af mörgum sem
virðast lifa sjálfstæðu lífi í þýðing-
armiðstöðvum ýmissa fjöimiðla.
NutraSweet er unnið úr tveimur
próteinþáttum, sem er að finna í
daglegri fæðu okkar, svo sem
ávöxtum, grænmeti og kjöti og
líkaminn vinnur úr því á sama hátt.
Eins og Jón Gíslason, deildarsér-
fræðingur hjá Hollustuvernd sýndi
fram á í fyrrgreindum sjónvarps-
þætti, þá hafa allar vísindalegar
unnar, svonefndar tvíblindar ranr.-
sóknir, leitt það í ljós að engin____
hætta er á aukaverkunum vegna
venjulegrar neyslu NutraSweet-
sætuefnis í mat og drykk.
Gegn aukaþyngd
og tannskemmdum
Tilkoma NutraSweet hefur orðið
mörgum kærkomin. Sykursjúkir
hafa nú úr fjölbreyttara úrvali
fæðutegunda að velja og almenn-
ingur getur leyft sér að njóta gos-
drykkja án þess að hafa áhyggjur
af aukaþyngd eða tannskemmdum
af þeim sökum.
Þar sem aspartam kemur í stað
sykurs samræmist notkun þess því
markmiði heilbrigðisyfirvalda að
draga úr sykurneyslu, sem þegar
er talin allt of mikil hjá okkar þjóð.
Aspartam hefur hlotið viður-
kenningu heilbrigðisstofnana um \
allan heim. Það hefur ótvíræða kosti
fyrir neytendur og því er mikilvægt
að færustu sérfræðingar leiði alla |
umræðu um það, en hún ekki dreg-
in niður á stig kappræðna um hin
óljósu „vísindi" sem mörg hver eru |
í tísku um þessar mundir.
Höfundur ummst kynningarmál
fyrir NutraSweet AGí Sviss.