Morgunblaðið - 27.05.1990, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.05.1990, Blaðsíða 12
12 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MAÍ 1990 Grænu blókonurnar: Les Negresses Vertes: „Madonna kom með Warren Beatty á tónleika hjá okkur í Los Angeles og það getur verið að við spilum inná næstu plötu hennar.. ALLIR ERU GRÆNIR INNVIÐ BEINIÐ eftir Hallgrím Helgason / myndir: Bernharð Valsson / vafaatriði: Haraldur Jónsson Franska hljómsveitin „Grænu blá- konurnar", Negresses Vertes, kemur eins og kunnugt er hingað til lands til að leika á Hótel ís- landi á Listahátíð. Eins og nafnið gefur til kynna er sveitin sú hress- ilegasta og frumlegasta sem fram hefúr komið í poppinu í langa tíð. Hún var stofhuð í 19. hverfí í París í september árið 1987 af nokkrum góðum vinum og kunn- ingjum - sem áður höfðu einkum starfað í sirkusum og kabarettum en lítið fengist við tónlist. í fyrra kom siðan út fyrsta plata hljóm- sveitarinnar, Mlah, sem vakti strax mikla hrifningu meðal kaup- enda svo nú eru grænu blákon- urnar allvel þekktar í flestum popplöndum heims. ♦ Aregnvotum miðvikudags- morgni Parísarborgar náðum við tali af einni Blákonu á vinaleg- um hverfisbar á æskuslóðum hljóm- sveitarinnar í 19. hverfi, á homi Úrks- og Flandursgötu. Matthías heitir harmóníkuleikarinn sem smeygir sér inn undan regntjaldinu og pantar sér rautt sykurvatn áður en viðtalið hefst, myndarlegur ung- ur maður nývaknaður og lítt rakað- ur með rödd sem rúnuð er af löng- um tónleikum og partíum á eftir. ítalskur í aðra ættina. — Hvemig byijaði þetta allt saman hjá ykkur? „Við vorum nokkrir vinir sem höfðum verið að fást við ýmislegt tónlistartengt í gegnum árin, starf- að í sirkus og svona, og ákváðum að koma saman til að gera eitt- hvað, bara eitthvað. Við vissum ekkert nákvæmlega hvað það yrði. Það var engin skýr hugmynd tii í byrjurr. Við vorum alls ekkert með- «o c ra . bJD >- rí 'ctj n > k J° tfl cuO Morgunblaóiö ræóir vid tvo óven julega f ull-/ trúa tónlistarinn- ar á næstu Lista- hátíó í Reykjavik vitaðir um það að spila án raf- magnshljóðfæra eða semja nýja franska músík, þetta þróaðist allt bara einhvernveginn. Fyrsta æfíng- in var í september ’87 og nú erum við ellefu manns í grúppunni og allt gamlir vinir, sumir jafnvel bræður og einnig eru þarna tvenn hjón. Flest erum við frá París en þriðjungur þó frá Suður-Frakk- landi, La Camargue." — Og kunnið þið ekkert á hljóð- færin? „Nei flestir kunnu ekki neitt, ég byijaði t.d. ekki að spila á harm- óníkuna fyrr en þarna á fyrstu æfíngunni. Gítarleikarinn okkar og trompetarinn voru þó eitthvað bún- ir að vera í tónlist. En allir vorum við viðsvanir. Við ákváðum sem sagt bara að gera eitthvað saman, en vissum ekki alveg hvað það yrði.“ — Og þessi leikræni bakgrunnur ykkar, kemur hann fram í tónleika- haldinu? „Já, því fyrir okkur hefur fólk ekki bara eyru'heldur líka augu, nef og munn. Við eldum fyrir áhorf- endur! Við ætlum að kenna Islend- ingum að borða almennilegan mat! Nei, grínlaust, þá ganga tónleikar okkar ekki eingöngu út á tónlistina, hún nægir engan veginn ein sér. Músíkin er ekki allt. Ef maður ætl- ar að ná einhveijum tökum á fólki verður maður að ná á því heljartök- um, höfða til líkamans alls. Og að þessu Ieytinu erum við alveg ein- stakir í okkar röð.“ — En hvernig varð þessi stíll ykkar til? „I byijun vildum við geta spilað hvar og hvenær sem var og þess vegna keyptum við okkur akústísk hljóðfæri, til að vera lausir við allar þessar innstungur og allan þennan tækjaburð. En síðan þróaðist stíllinn okkar bara útfrá þessu, hægt og rólega, það var aldrei nein ákveðin föst hugmynd fyrir hendi. Á þessum tíma vorum við líka búin að fá nóg af þessu endalausa rokki og róli, þessum endalausa trommuslætti. Okkur langaði til að vera rokkarar án þess að spila rokktónlist. Og þá vorum við líka búnir að vera að hlusta mikið á klassíska tónlist, sígaunamúsík og arabíska. Áður höfðu sumir okkar verið í pönkhljómsveitum hér í París, svona uppúr 1980, en það dæmi kláraðist um ’84 og við fórum í sirkusinn og gítarleikarinn fór heim til sín í sveitina og á þess- um stöðum urðum við fyrir nýjum og ferskum áhrifum. Við vildum sem sagt spila lif- andi músík, útá götum og inná litlum börum eins og þessum hér og strax og við vorum til- búnir með þijú lög var haldið af stað. Við spiluðum þá gjarnan þessi þijú lög'trekk í trekk þvf annað kunnum við ekki. En það var mikill munur að vera laus við allan tækja- burðinn og flórmoksturinn í sirkusnum, allt þetta puð sem fylgir nútíma tónleikahaldi. Þarna vorum við mættir og hver maður bara með sína léttu tösku, einn léttan gítar og litla sneriltrommu, í mesta lagi harmóníka. Engir bakverkir meir. Ekkert af þessu rafmagnsdóti." — En hvernig er þetta núna þegar þið spilið fyrir 10.000 manns? „Jú, jú, þá notum við auðvitað sánd-sístem og í fyrstu olli það það okkur nokkrum erfið- leikum, en nú er allt í lagi.“ — Gekk það auðveldlega fyrir ykkur að fá plötusamning? „Já, þeir voru strax allir að kvabba í okkur um að gefa út plötu en við vildum ekki gera það strax, ekki fyrr en við værum komnir með virkilega gott efni. Við viljum ekki flana að neinu í því sambandi og t.d. gerum við allt núna sem við getum til að draga gerð næstu plötu. Það eru allir að pressa á mann, útgefendur, blaðamenn, mamma og amma, alltaf að spyija „Hvenær kemur platan, hvenær kemur platan?“ Maður verður dálít- ið nervös þegar maður hugsar um hana, því ekki viljum við valda fólki vonbrigðum.“ — Slóguð þið strax í gegn hér í Frakklandi? „Nei, ekki fyrr en Bretarnir voru búnir að fatta okkur, þá fyrst tóku Frakkar við sér. Fyrsta hljómleika- ferðin var um England og gekk mjög vel og platan einnig, fékk góða dóma. Hér í Frakklandi fékkst hinsvegar og fæst enn lítið spilað af okkur í útvarpi vegna þess hve textarnir eru svæsnir og opin- mynntir. Við tölum um götulífið, barina og alla karakterana í kring- um okkur, eins og t.d. þenna afa gamla sem situr þarna (Matthías bendir á næsta borð þar sem situr gamall refur yfír sínum kaffibolla), hann hefur aldrei farið út fyrir þetta hverfí, aldrei niður í bæ, aldr- ei séð Notre Dame eða Louvre. Hann var slátrari hér ofar í götunni í ein 50 ár en situr nú bara hérna á barnum allan daginn. (Sá gamli stendur upp og staulast fram- hjá borðinu okkar inn í matsalinn þar sem hann hlammar sér niður og pantar sér rétt dagsins.) Textar okkar eru sem sagt allir sannir, segja sannar sögur. Öll tónlist þarf að vera sönn, fyrst og fremst sönn, við viljum ekkert blöff. En samt er auðvitað mikið af þessu hreint rugl, því sjálfir erum við allir svo ruglaðir, í raun erum við allir algjör- ir hálfvitar.” — Hvenær kemur næsta plata út, svo maður spyiji eins og mamma þín? „Ég veit það ekki, við förum kannski inn í stúdíó í ágúst og þá kemur hún kannski út í október en maður veit aldrei. Málið er að við viljum ekki gera slæma hluti, við viljum vanda okkur, fólkið á það skilið." — Munuð þið einhverntíma syngja á ensku?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.