Morgunblaðið - 27.05.1990, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.05.1990, Blaðsíða 14
14 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MAI 1990 HUGVITSMADURINN Risabyssa íraka: draumurinn um stærstu byssu heims. Tilraunastarf (á Barbados laust eftir 1960): Harp-byssan var fyrir- myndin. við geim- og háloftarannsóknir átti fyrirtækið að framleiða margra þrepa flugskeyti og gervihnetti, sem skjóta átti með öflugri fallbyssu, og fallbyssuskot. Starfsemin fór fram á afskekktum búgarði á landamær- um Vermont og Kanada. Á næstu 10 árum fékk SRC níu milljónir dollara fyrir margvísleg verkefni, sem fyrirtækið vann að fyrir Pentagon. Árið 1972 fékk dr. Bull einkaleyfi á skoti í langdræga fallbyssu og hóf fjöldaframleiðslu. Markaðsdeild var komið á fót í Brussel til að ná samningum við NATO í samvinnu við stórt, belgískt skotfærafyrirtæki, Pouderies Reuni-. es de Belgique (PRB). Með tíð og tíma varð nákvæm og langdræg sprengjuvarpa Bulls, sem hann end- urbætti stöðugt, eitt helzta vopnið í heijum írana, íraka, ísraelsmanna, Suður-Afríkumanna og andstæðra fylkinga kristinna manna og múha- meðstrúarmanna í Beirút. Svo mikilvægur var dr. Bull talinn þjóðaröryggi Bandaríkjanna að bandaríska þingið samþykkti 1972 frumvarp frá Barry Goldwater, þar sem honum var veittur borgararétt- ur 10 ár aftur í tímann. Þar með gat hann fengið aðgang að fleiri leyndarmálum en áður, staða hans batnaði og hann gat einbeitt sér að æ flóknari tilraunum. Sala til Suður-Afríku Árið 1974 tilkynnti SRC að fyrir- tækið hefði gert samning um fram- leiðslu á 50.000 155 mm skotum og það ár voru ísraelsmenn meðal viðskiptavina SRC. Fyrirtækinu virtist ganga vel, en raunar átti það við fjárhagserfiðleika að etja og skuldaði bandarískum banka. Erfið- leikana mátti sumpart rekja til þess að Bandaríkjaher hóf eigin rann- sóknir á langdrægum fallbyssum og hætti að fjármagna tilraunir Bulls. Suður-Afríkumenn komu Bull til bjargar. Á árunum 1976-1979 seldi hann þeim mikið af skotum og sprengjuvörpum, þótt bandarísk lög bönnuðu það, og naut aðstoðar ísra- elsmanna og hernaðarráðgjafa, sem starfaði fyrir CIA og kom við sögu stríðsins í Angola. Suður-afrískt ríkisfyrirtæki, Armscor, sem annast hergagnaöflun, keypti 20% hlut í SRC 1977. Auk þess tryggðu Suður-Afríkumenn sér einkaleyfi Bulls og önnur leyfi. Árið 1979 tilkynntu Suður- Afríkumenn að þeir hefðu sjálfir smíðað langdræga fallbyssu, sem þeir nefndu G-5. Starfsmenn SRC kölluðu hana hins vegar „fallbyssu Einkarekstur Árið 1968 fór Bull út í einkarekst- ur. Hann stofnaði fyrirtækið Space Research Corporation (SRC) með stuðningi rafeinda- og ráðgjafafyr- irtækis Arthurs D. Littles, Bronf- man-fjölskyldunnar og fleiri fjár- sterkra aðila og skráði það í Delaw- are í Bandaríkjunum, en bækistöðv- ar þess voru í Quebec. Fyrirtækið hlaut fjárhagsstuðning frá Banda- ríkjaher og í stjórn þess sátu meðal annarra Arthur Trudeau hershöfð- ingi, sem áður hafði stjórnað vísindarannsóknum bandaríska hersins, og Richard Bissel, sem hafði verið annar æðsti maður CIA. Auk þess sem SRC átti að fást RISABYSSUNA Ágimd varð dr. Gerald Bull, hjálparmanni íraka, að bana Eitt síðasta verk dr. Bulls áður en hann lézt var að halda fyrirlestra um „Parísar-fallbyssurnar" og þá hafði hann fundið stuðningsmann, sem ætlaði að gera honum kleift að fullkomna Harp-byssuna, sem hann hafði boðið til sölu í þijá ára- tugi. í bók hans er nákvæm lýsing á Harp-byssunni og hugmyndum um breytingar á henni ásamt upp- dráttum og teikningum. Þessar hug- myndir koma heim við lýsingar á risabyssu þeirri, sem írakar eru nú langt kömnir með. Bull hafði takmarkalausan áhuga á starfi sínu og honum hefur verið þannig lýst að hann hafi verið ákafamaður og átt auðvelt með að hrífa aðra með sér. Gamall sam- starfsmaður hans segir að hann hafi verið „höstugur, harðfylginn og mjög hægrisinnaður". Aðrir sögðu seinna að hann hefði kært sig kollóttan um til hvers vopn hans væru notuð og verið tilbúinn að starfa fyrir hvern sem væri, svo framarlega sem hann fengi vel borg- að. Þó hlaut hann að vita að írakar beittu efnavopnum og kepptu að því að koma sér upp kjarnorkuvopnum þegar hann gekk í þjónustu þeirra. Dr. Gerald Bull: myrtur í Brussel. A BAK VID GERALD W. BULL var snillingur í gerð hergagna. Hann var orðinn doktor í Iofteðlisfræði aðeins 22 ára. Þegar hann var 32 ára var hann orðinn einn helzti skotfræðingur bandaríska landvarnaráðuneyt- isins, Pentagons. Þegar hann gat ekki lengur lifað aftekjum sinum af framleiðslu hergagna fyrir Bandaríkjamenn sneri hann sér að ólög- legum viðskiptum og 52 ára að aldri var hann hnepptur í fangelsi fyrir ólöglega sölu hergagna til Suður-Afríku. Imarz var dr. Bull myrtur á hóteli í Brússel, 62 ára að aldri. Ættingjar hans lýstu sök á hendur ísraelsku leyniþjón- ustunni, Mossad. Þremur vik- um síðar lögðu brezkir tollverðir hald á hluta í átta stálrör, sem írak- ar virtust ætla að nota sem hlaup í gríðarstórar fallbyssur til að ógna erkióvinum sínum, ísraelsmönnum og írönum. Flestir voru sammála um að dr. Bull væri eini maðurinn sem hefði getað hannað slíka risa- byssu, sem var ætluð til að skjóta fiugskeytum. Hann varð illræmdur eftir dauða sinn, en hlaut þá loks þá viðurkenningo fyrir störf sín og rannsóknir, sem hann hafði lengi sótzt eftir. Hugvitsmaðurinn á bak við írösku risabyssuna var Kanadamaður, fæddur í Ontario 1928. Móðir hans var af frönskum ættum og lézt þegar hann var þriggja ára, yngstur níu barna. Faðir hans, sem var lögfræðingur, fór frá fjölskyldunni og Bull ólst upp hjá frænda sínum og frænku. Bull fylltist brennandi löngun til að skara fram úr og það kann að hafa verið skýringin á því að hann varð yngsti doktorinn, sem brautskráðst hafði frá háskólanum í Toronto að sögn Davids Pallisters í The Guardian, sem hér er einkum stuðzt við. Næstu 10 ár vann Bull að áætlun um stýriflaugar við kanadíska stofn- un, sem fékkst við hergagnarann- sóknir, Carde, í Valcartier í Quebec. Þar hlaut hann mikið lof fyrirtækni- legan undirbúning að smíði fall- byssu til að skjóta mannlausum loft- förum og var kallaður „ungi flug- skeytasnillingurinn". Pentagon fékk augastað á honum og laðaði hann til samstarfs 1955, þegar hann var 27 ára gamall. Harp-byssan Þegar Kanadastjórn takmarkaði herútgjöld 1961 hætti Bull störfum hjá Carde og gerðist forstöðumaður rannsóknarstofnunar McGill- háskóla í Montreal í geimvísindum. Kanadíska landvarnaráðuneytið og Bandaríkjaher stóðu straum af kostnaði við rekstur stofnunarinnar. Undir stjóm Bulls var hafizt handa um áætlun, sem gekk undir nafninu Harp, en með þeirri skamm- stöfun var átt við háloftarannsókn- ir. Eitt markmið þessarar áætlunar var að smíða margra þrepa flug- skeyti og skjóta því með stórri og öflugri fallbyssu. Tilraunir með slíkar fallbyssur fóru fram á eynni Barbados á Karíbahafi, í Quebec í Kanada og í Yuma, Ariz- ona, í Banda- ríkjunum. Áætlunin var lögð á hill- una 1967 og þá hafði Bull sett heimsmet með því að skjóta Mart- let-flugskeyti í 112 mílna hæð frá Barbados. Harp-fallbyssur Bulls urðu úreit- ar þegar öld raunverulegra stýri- flauga gekk í garð. En risafallbyss- ur áttu hug hans allan og hann dáðist að þýzka vopnaframleiðand- anum Alfred Krupp, sem tryggði Prússum sigurinn í stríðinu við Frakka 1870-1871 með fallbyssum sínum. Bull heillaðist af byssum Krupps og afkomenda hans og lýsti þeim ásamt öðrum höfundi í lítt kunnri bók, The Paris Guns, sem kom út fyrir tveimur árum. ■ ERLENDh HRINCSIÁ eftir Guðm. Halldórsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.