Morgunblaðið - 27.05.1990, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 27.05.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MAI 1990 C 15 TeheranQ IRAK SAUDl ARABÍA KUWAI Hormuz- ^Ksund RiadhQ SKOTM í sjónmáli Gerry Bulls“ sín í milli. Leyndarmál- ið um samvinnu Bulls og Suður- Afríkumanna spurðist fljótt og hann var dæmdur í hálfs árs fangelsi 1980 fyrir ólöglega hergagnasölu til Suður-Afríku. Sama ár urðu fyrirtæki SRC bæði í Bandaríkjunum og Kanada gjaldþrota, en skrifstofan í Briissel hélt velli. Þegar Bull kom úr fang- elsinu var hann fullur beiskju, en á næstu árum endurreisti hann fyrir- tæki sitt og fluttist til Brússel, þar sem hann tók upp samvinnu við Pouderies Reunies de Belgique. Þrátt fyrir fangavistina virðist Bull hafa átt auðvelt með það á næstu árum að fá leyfi émbættis- manna í Bandaríkjunum, Evrópu og Afríku til þess að miðla tækniþekk- ingu sinni frá bækistöð hins nýja fyrirtækis síns í Belgíu til landa í Þriðja heiminum. Hann varð vell- auðugur og eftirsóttur í Þriðja heim- inum., en var þó gramur vegna þess að hann taldi sig ekki fá nógu mik- inn stuðning við hugmyndir sínar á Vesturlöndum. Viðskipti um allan heim Dr. Bull og Suður-Afríkumenn stórgræddu á sölu endurbættra fall- byssna til Austurríkis, Kína, Taiw- ans og fleiri landa. Sum þessi við- skipti önnuðust fyrrverandi starfs- menn ísraelsku leyniþjónustunnar og hergagnasalar, sem fengu um- boðslaun. Síðan Bull samdi við kínverskt fyrirtæki hefur kínverski herinn verið búinn 155 mm sprengjuvörp- um, WA 821, sem eru nákvæm eft- irlíking af sprengjuvörpum, sem Bull hannaði fyrir austurríska fyrir- tækið Noricum. Nokkrir starfsmenn Noricum hafa verið leiddir fyrir rétt, gefið að sök að hafa selt írönum fallbyssur og kúlur í Persaflóastríð- inu, og yfir stendur rannsókn í málum annarra starfsmanna, sem eru grunaðir að hafa útvegað írök- um vopn. Fyrirtækið mun hafa sa- mið um að selja Bull-sprengjuvörpur um allan heim, þar á meðal 72 til Saudi-Arabíu, 100 til Nígeríu, 200 til íraks og 140 til írans. Her Júgóslavíu samdi við fyrir- tæki dr. Búlls um að endurbæta sovézka 130 mm byssu, M-46, sam- kvæmt tillögum þess til að gera hana langdrægari. Sams konar breytingar voru gerðar á miklum birgðum íraka af M-46. Einkaleyfi Bulls virðast enn vera í eigu Suður- Afríkumanna, því að í fyrra var til- kynnt að Chilemenn hefðu samið við Suður-Afríkumenn um leyfi til að framleiða G-5-fallbyssur og nýja • tegund, G-6. Irakar hafa keypt sprengjuvörpur og eldflaugaþjónustu frá SCR. Eld- flaugaáhugi Iraka vaknaði fyrir al- vöru um 1985, þegar Persaflóastríð- ið varð að blóðugum skotgrafahern- aði og þeir ákváðu að nota gífurleg- ar olíutekjur sínar til að komast yfir fyrsta flokks hergögn, fá hæfa vísindamenn til starfa til að miðla af sérfræðiþekkingu sinni og taka fullkomnustu tækni í sína þjónustu. írakar hófust þegar í stað handa um endurbætur á sovézkum Scud- flaugum, sem þeir áttu, til þess að geta hæft Teheran og Bull dróst inn í æ nánara samstarf við þá. Böndin munu hafa verið treyst þegar írakar fóru til Suður-Afríku 1987 til að skoða sprengjuvörpur Bulls. í Evrópu komu Irakar á fót sam- tökunum Consen Group, sem höfðu bækistöðvar í Zug í Sviss og Monte Carlo, til að kaupa stjórnkerfi, flug- skeytahreyfla og eldflaugaeldsneyti í Evrópu. Rannsóknir á þessum við- skiptum standa yfir í Svíþjóð, Ítalíu og Vestur-Þýzkalandi. PRB, samstarfsaðili Bulls í Belgíu, útvegaði eldsneyti. í Bret- landi keyptu Irakar vélsmiðjur. Stór hluti fjármagnsins til þessara kaupa var tryggður með ólöglegum lánum í útibúi ítalska bankans BNL í Atl- anta, Georgíu. í fyrra leiddu þessar lántökur til enn eins bankahneykslis á Ítalíu. íraskur vígbúnaður Brezk yfirvöld vissu vel um starf- semi Bulls. Þegar hann gekk í félag með írökum í fyn-a til að kaupa ónotaða hergagnaverksmiðju í Belf- ast var umsókn þeirra um lán hafn- að. Grunur lék á að verksmiðjan yrði notuð til að smíða hluta í eld- flaugar og upplýsingar á því sviði eru leynilegar. Vesturveldin hafa reynt að koma í veg fyrir að írakar komi sér upp eldflaugum til að skjóta kjarnaoddum — ef til vill á ísrael — og afskiptin af verksmiðj- unni í Belfast mörkuðu upphafið að endalokum Bulls og fyrirtækis hans. írakar hafa gert mikið átak til að efla herafla sinn síðan samið var hnakkpnn. Mórðinginn snerti ekki 20.000 dollara, sém Buil hafði á sér í reiðufé. SKÓmmu áður hafði Bull verið varaður við því að Mossad sæti um líf hans vegna starfs hans í þágu íraka og mörg rök virðast hníga að því að það sé rétt, þótt ísraelsmenn neiti öllum ásökunum. Til þess að tryggja öryggi sitt hafa ísraelsmenn lagt á það mikið kapp í um 10 ár að afstýra því að Arabar komi sér upp kjamorku- vopnum eða fullkomnum eldflaug- um. Fyrir níu árum eyðilögðu þeir kjarnaofn, sem írakar höfðu keypt af Frökkum. Einu ári áður hafði einn helzti kjarnorkuvísindamaður íraka, Egyptinn Yahia e) Meshad, • verið myrtur í íbúð sinni í' París. Hann hafði séð um kaupin á kjarna- ofninum af Frökkum. í maí 1988 var bifreið í eigu þýzks framkvæmdastjóra Consen-hópsins, Ekkehardt Schrotz, sprengd í loft upp í Monte Carlo. Böndin bárust að Mossad, sem hefur einhveija reyndustu tilræðismenn heimsins á sínum snærum. ísraelska leyniþjónustan bendir á að fleiri en hún kunni að hafa haft ástæðu til að myrða dr. Bull. írakar kunni til dæmis að hafa komizt að sambandi hans við CIA og óttazt að hann hafí átt að afla vitneskju um kjamorku- og efnavopnaáætlan- ir þeirra fyrir Bandaríkjamenn. Auk þess hafi Bull stutt báða aðila í átök- um á mörgum stöðum í Þriðja heim- inum og skrá um hugsanlega tilræð- ismenn hans mundi fylla heila bók. Langlíklegast þykir þó að Mossad hafi komið Bull fyrir kattarnef. írakar virðast geta lokið við smíðina á risabyssunum, þótt þeir hafi misst hæfasta manninn til að fullgera hana. Fyrirtæki Bulls í Briissel, sem samdi um kaupin á stálrörunum í Bretlandi og lék þar með á brezk stjómvöld, hefur verið lýst gjaldþrota ásamt útibúum þess í nokkmm löndum. Sonur Bulls, Michel, fer huldu höfði og óttazt hefur verið um öryggi starfsmanna SRC. Michel Bull sagði nýlega að fyrirtækið hefði fengið svo slæmt orð á sig að hann „gæti'ekki fengið 10 dollara lán, þótt ég reyndi." Harp-geimbyssa: Dr. Bull (til vinstri) ásamt Jean Lesage, forsætisráðherra Quebec, (1965). Vopnast af kappi: Saddam Hussein. um vopnahlé I Persaflóastríðinu 1988. Saddam Hussein íraksforseti hefur virzt haldinn þeim metnaði að ráða lögum og lofum í Araba- heiminum. írakar beittu efnavopn- um óspart í ófriðnum og síðan hon- um lauk hafa þeir lagt mikla áherzlu á að koma sér upp kjarnorkuvopnum og líffræðilegum vopnum sam- kvæmt hergagnaáætlun sinni. Yfir- maður áætlunarinnar er Hussein Kamel, iðnaðar- og hergagnaráð- herra og tengdasonur Saddams Husseins. I desember tilkynnti Kamel að írakar hefði skotið 48 lesta, þriggja þrepa eldflaug, AJ Abed, frá al- Anbar-geimrannsóknarstöðinni. Vestrænir hermálasérfræðingar fylgdust með skotinu af myndbands- spólu og drógu í efa að tilraunin hefði heppnazt, en þóttust vissir um að eldflaugin hefði ekki verið af gerðinni Condor-2, sem írakar höfðu unnið að smíði á ásamt Egypt- um og Argentínumönnum. Argentínumenn og Egyptar munu nú hafa dregið sig út úr áætl- Farmurinn sem Bretar lögðu hald á: hlutar í byssuhlaup í átta kössum. uninni, en írakar virðast hafa hald- ið henni áfram, enda lögðu þeir til megnið af fjármagninu. Sama dag og eldflauginni var skotið skýrði Kamel frá smíði tveggja landflauga, sem eiga að draga 1.200 km — lengra en til Teheran og Tel Aviv. Á mörkunum er að Condor-2 dragi svo langt. Þess vegna virðist hafa verið þörf fyrir „Gerry Bull-byssu“, sem er til- tölulega ódýr í framleiðslu, þótt stór sé. Rörin frá Bretlandi voru einn metri í þvermál, en tilraunaaðstaða virðist góð í írak. Samkvæmt frétt- um þaðan hafa írakar komið sér upp sérhönnuðum skotpalli og ein tilraun virðist þegar hafa farið fram, en byssuhlaupið mun hafa sprungið. Á útmánuðum reyndi dr. Bull að útvega írökum stálrör svipuð þeim og voru notuð í Harp-áætluninni forðum. Morðið á hótelinu Þannig stóðu málin þegar dr. Bull var myrtur í Brússel 22. marz. Þegar hann steig út úr lyftunni á hóteli sinu og gekk að íbúð sinni skaut maður vopnaður skambyssu með hljóðdeyfi hann tvívegis í Rzr SOVET- R í K I N Miöjarbar- xfjr / sýrland haf LtBANt^P BAG KaírÓQ ^^tl/jÓRDANÍA^^- IÍGYPTALAND mBm •; Æ- '-S wmBmmamammBmm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.