Morgunblaðið - 27.05.1990, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 27. MAÍ 1990
C 21
í BÍÓ
Velgengni Sigurjóns
Sighvatssonar og fé-
laga hans Steve Golins
hjá Propaganda Films
hefur verið með ólíkind-
um. Á aðeins nokkrum
ánam eru þeir orðnir
fremstir í framleiðslu á
tónlistarmyndböndum og
auglýsingum í Banda-
ríkjunum og þegar þeir
snúa sér að kvikmynda-
gerð í samstarfi við einn
fremsta leikstjóra Banda-
ríkjanna, David Lynch,
hreppa þeir Gullpálmann
á Cannes, önnur eftirsótt-
ustu kvikmyndaverðlaun-
in í heiminum á eftir
Óskarnum.
Það er ástæða til að
samgleðjast árangri Sig-
urjóns í Propaganda þar
sem fer saman skapandi
samstarf og gott við-
skiptavit. Propaganda
Films og Lynch eiga eftir
að gera a.m.k. tvær aðrar
myndir saman en með
slíkan mann innanborðs
getur allt gerst. Lynch
hefur sagt að hann vilji
heldur vinna með minni,
óháðu kvikmyndafyrir-
tækjunum vestra því að-
eins þannig getur hann
tryggt að myndir sínar
verði eins og hann vill
hafa þær.
KVIKMYNDIR"'™
/Hvemig mynd er„Wild at Heart“?
CANNESHÁTÍÐIN ’90
HIN LITRÍKA VERÖLD
DICK TRACYS
Leikstjórinn . John
Landis, sem átti upp-
haflega að leikstýra mynd
um teiknimyndahetjuna
Dick Tracy, kveikti fyrst
áhugann hjá leikaranum
Warren Beatty á að leika
hinn skarpleita lagavörð
fyrir fimm árum en það er
fyrst núna sem hann er að
'koma á hvíta tjaldið.
Reiknað er fastlega með
að Dick Tracy verði ein af
stóru myndunum í sumar.
„Ég hef verið hrifinn af
Dick Tracy síðan ég var
krakki,“ sagði Warren Be-
atty nýlega um teikni-
myndahetjuna og hann
fékk til liðs við sig valin-
kunna hæfileikamenn til
að koma æskuhetjunni á
tjaldið. Með önnur hlutverk
fara Madonna, sem leikur
hina ómissandi femme fat-
ale myndarinnar, söngkon-
una Breathless Mahoney,
Glenne Headly leikur kær-
ustu Tracy, Tess Truehe-
art, en aðrir leikarar eru
Mandy Patinkin, Charles
Durning og William For-
sythe auk A1 Pacinos,
Dustin Hoffmans og fleiri
stórstjarna í stærri og
minni hlutverkum. Beatty
er einnig leikstjóri og fram-
leiðandi, kvikmyndatöku-
maður er Vittorio Storaro
(Reds) og tónlistina gerir
Broadwaymaðurinn Step-
hen Sondheim.
Kvikmyndagerðarmenn-
irnir með Beatty og leik-
myndahönnuðinn Richard
Sylbert (The Cotton Club)
í fararbroddi byggðu útlit
myndarinnar á hinni uppr-
unalegu teiknimyndaseríu
Chester Goulds, höfundar
Dick Tracy, en serían birt-
ist fyrst I blaðinu Detroit
Mirror árið 1931. „Fyrsta
stóra ákvörðunin sem við
tókum var að nota aðeins
þá sjö liti sem Gould notaði
í teikningar sínar,“ segir
Sylbert. Guli liturinn er lit-
ur Tracys, tákn myndar-
innar fyrir birtu og rétt-
læti, rauði liturinn er litur
aðalkrimmans, „Big Boy“
(Pacino). Veröld Tracys er
algerlega samstæð. Allir
gulu litirnir eru eins gulir
og rauðu eins rauðir, á
bjórflöskunum stendur að-
eins BJÓR og yfir kaffi-
stofu stendur aðeins
KAFFISTOFA. Flestar
persónur myndarinnar eru
alltaf sýndar í sömu fötun-
um og eru í sínum ákveðnra
lit út alla myndina. Jafnvel
bílarnir í myndinni voru
allir gerðir eins og til að
auka enn hið sérstaka and-
rúmsloft kvikmyndaði Vitt-
orio myndina eins og þýsku
expressjónistarnir gerðu á
þriðja áratugnum.
Með auga fyrir hinu úrkynjaða; David Lynch
grúfir sig yfir myndavélina.
Comes Up“. Lynch stakk
uppá því að Propaganda-
menn hjálpuðu honum með
sjónvarpsþáttaröðina
„Twin Peaks", sem hann
var þá byrjaður á auk þess
sem hann hóf að skrifa
„You Play ..Þegar hon-
um fór að ganga erfiðlega
með það handrit kom hann
til Propaganda og spurði
hvort þeir hefðu ekki eitt-
hvað handa sér í millit-
íðinni og Siguijón lét hann
hafa „Wild at Heart“, sem
hann fór með heim og las.
Níu vikum seinna var byij-
að að kvikmynda hana.
Samstarf Lynch og
Propaganda Films heldur
áfram en leikstjórinn mun
gera næstu tvær myndir
sínar hjá fyrirtækinu.
Propaganda stendur sann-
arlega með Gullpálma í
| höndunum.
Islenska kvikmyndaeftir-
litið krafðist þess á
sínum tíma að ákveðin at-
riði væru klippt úr framt-
íðarhasarnum RoboCop
eftir Hollendinginn Paul
Verhoeven áður en hún var
sýnd í Háskólabíói. í fram-
haldsmyndinni, RoboCop
2, verður„ekki jafnmikið
af blóðugu ofbeldi," segir
nýi leikstjórinn, Irvin Kers-
hner.
En hæðnisleg þjóðfé-
lagsádeilan verður á sínum
stað. „Við tökum fyrir lög-
fræðinga, sálfræðinga og
stjórnvöld," segir Kers-
hner, en sagan gerist eins
og áður í stórborginni
Detroit. Borgin flýtur í
nýju eiturlyfi — nuke — þar
til RoboCop kemur til
bjargar. Nú er það ekki
RoboCop 2; minna of-
beldi en fleiri lögguvél-
menni.
aðeins þessi venjulegi
óþjóðalýður sem hann
verður að fást við heldur
einnig RoboCop 2, ný og
fullkomnari tegund löggu-
vélmennis.
Peter Weller fer með tit-
ilhlutverkið sem fyrr en
handritshöfundur er hasar-
blaðahöfundurinn Frank
Miller (Batman). Kershner
hefur ekki leikstýrt síðan
hann gerði Never Say Ne-
ver Again, sérkennilegt
hliðarspor í Bond-sögunni.
Hann var kallaður til á
síðustu stundu og hafði
engan tíma til undirbún-
ings. Hann vonast til að
honum hafi tekist að gera
harmleik úr sögunni. „Svo
margt fólk er eins og vél-
menni nú til dags. Líkingin
getur náð svo víða.“
paradísina eftir Alan Park-
er og nýja Eastwoodmynd-
in, „White Hunter, Black
Heart“ um leikstjórann
John Huston og ævintýri
hans í Afríku. Samkeppnin
var því hörð eins og oft
áður.
I dómnefndinni, sem á
endanum valdi „Wild at
Heart“ bestu myndina,
voru ítalski leikstjórinn
Bernardo BertoIucci.Jeik-
konan Anjelica Huston,
dóttir Johns, indverski leik-
stjórinn Mira Nair, franski
leikstjórinn Bertrand Blier,
Sven Nykvist og breska
leikritaskáldið Christopher
Hampton ásamt öðrum.
Madonna leikur Breat-
hless Mahoney.
MEÐ GULLPÁLMANN
í HÖNDUNUM
Að slepptum þeim sögu-
lega atburði að mynd
frá íslenskum framleiðanda
hreppti Gullpálmann á
Cannes í ár var þessi 43.
hátíð kvikmyndanna í
frönsku sólskinsborginni
lítið frábrugðin því sem
hún hefur verið undanfarin
ár.
Þama var allt frægðar-
fólkið beggja vegna Atlant-
sála; Clint Eastwood, sem
Frakkar dá öðrum fremur,
Roman Polanski og Steph-
en Frears ásamt öðrum
leikstjórum eins og Alan
J. Pakula og Sidney Lu-
met. Arnold Schwarzen-
egger átti að lenda eftir
korter og Nastassja Kinski
var löngu mætt. Scorsese
og Kurosawa stóðu saman
úti á svölum og spjölluðu
saman. Glamúr og glæstar
stjörnur.
Alls voru 16 myndir í
aðalkeppninni. Á meðal
þeirra verk frá Giuseppe
Tornatore (Paradísarbíóið)
og Jean-Luc Godard. Líka
mynd Taviani-bræðranna
ítölsku, Sólin skín líka á
nóttunni, Komdu og sjáðu
Warren Beatty sem Dick Tracy.
ÞEIR, sem þekkja til
síðustu myndar David
Lynch, Blátt flauel, ættu
að kannast vel við sig í
heimi nýju myndarinnar,
„Wild at Heart", sem Sig-
urjón Sighvatsson fram-
leiðir og hreppti Gull-
pálmann á Cannes eins
og frægt er orðið.
Blátt flauel gerði Lynch
að ipeistara hins úr-
kynjaða og nýja myndin á
að vera jafn ógnvænleg —
ekki eins myrk — en fyndn-
ari. Með
aðalhlut-
verkin fer
góður
hópur
þekktra
leikara
með Isa-
bella
Rossellini
(Blátt flauel) og Nicholas
Cage (Moonstruck) í farar-
broddi en aðrir eru Diane
Ladd, Laura Dern, Harry
Dean Stanton og Willem
Dafoe. „Þetta er vega-
mynd,“ sagði Lynch nýlega
eftir Arnald
Indriðason
í erlendu blaði, „svolítið
furðuleg sakamálasaga,
ástarsaga og ívið óþægi-
legt sálfræðidrama líka“.
Mest er hún um náunga
að nafni Sailor Ripley
(Cage) sem er nýkominn
úr f angelsi þegar hann hitt-
ir þessa ungu konu, Lulu
Fortune (Dern). Mamma
Lulu vill ekki að hún sé
utan í Sailor en „þar liggur
meginvandinn," sagði
Lynch. Heldur meira en
það. Mamman tLadd) verð-
ur kolvitlaus og sendir tvo
elskhuga sína á eftir þeim
Lulu og Sailor til að enda
þeirra rómantík.
Isabella Rossellini er ill-
þekkjanleg sem hin ófrýni-
lega Perdita Durango og
myndin er full af kyndug-
um persónum, undarlegum
táknum og ofbeldi, sem er
mikið til kynferðislegt. Hún
er byggð á samnefndri bók
Barry Gifford, sem reyndar
var ekki komin út þegar
myndin var gerð. Propag-
anda Films Siguijóns og
Steve Colins átti kvik-
myndaréttinn að sögunni
Sigurjón Sighvatsson; lét
hann fá „Wild at Heart“.
en myndina gerði Lynch í
hléi frá annarri, sem hann
líka vinnur að fyrir Propag-
anda.
Þannig var að fyrirtækið
var á höttunum eftir hon-
um til að leikstýra mynd
uppúr sögu sem það hafði
keypt og heitir „You Play
the Black and the Red
RIDDARIGÖTUNNAR 2