Morgunblaðið - 27.05.1990, Page 32
32 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MAI 1990
BAKÞANKAR
Reimar
frændi frá
ísafirði
H
ér hefst Skugghverfinga
saga. Þegar Reimar frændi
minn kom frá ísafirði með rútu
vorið 1961 til að vera hjá okkur
sumarlangt var ég sendur að
sækja hann á
BSÍ. Það voru
sagðar af honum
slíkar sögur að ég
fæ ekki skilið enn
þann dag í dag
hvernig foreldrar
mínir fengust til
að vista hann.
Þetta var vorið
sem faðir minn
eftir Ólaf
Gunnarsson
keypti rauða Bjúkkann. Allt frá
þvi hann var ungur maður og átti
um nokkra mánaða skeið tveggja
sæta sextán sílindra Kadilakk,
slikir bílar voru til, trúðu mér les-
andi góður, hafði hann dreymt
um að eignast annan. Ég varð
fyrir gífurlegum vonbrigðum þeg-
ar ég frétti að Bjúkkinn væri
„bara" átta gata.
Ég var tólf ára, Reimar þrettán,
hann var óskírður enn og pabbi
hans var kommi, það olli ömmu
minni talsverðum áhyggjum að
óskírður drengur af slíkum uppr-
una kæmi á heimilið.
Ég stóð úti á stéttinni á
gúmmískóm og pokabuxum þegar
rútan rann að. Reimar steig út
síðastur. Hann var höfðinu hærri
en ég, freknóttur og rauðhærður
með gular skögultennur og skjálg-
ur á auga, þetta eru engar ýkjur,
hann leit svona út, ég ætti best
að vita það. Hann spýtti á götuna
eins og gamall rauðmagakall og
sagði; Og ertu svo með gleraugu
helvítið þitt? Ég hafði það sem
hobbý heima á Isafirði að brjóta
gleraugun hjá krökkunum, skal
ég segja þér. Ég mölvaði meira að
segja brillur fyrir skrílnum frá
Bolungarvík, það er þannig gæi
sem ég er. Skilurðu það?
Ég skildi það i einum grænum.
Við Reimar gengum heirri á leið
yfir Arnarhól, hann var mun
skreflengri en ég svo ég mátti til
með að hálfhlaupa við hlið hans.
Þegar við beygðum af Hverfisgöt-
unni og stefndum á Frakkastig
6a í Skuggahverfinu sáum við
pabba, hann var að útlista gæði
nýja bílsins fyrir einum nágranna
sinna, bakaranum. — Já, sælinú,
sagði pabbi við Reimar, eru kom-
inn frá ísafirði kallinn, ja, það er
nú þannig, sagði hann við bakar-
ann, að bíllinn er olíulaus eins
og á stendur, ég varð að taka ol-
íupönnuna undan. Ég fæ aðra á
morgun.
Eftir kvöldmat spurði Reimar,
við sátum út á tröppum; — Er
ekki hægt að búa til sprell í þessu
Skuggahverfi? Hann hugsaði sig
um. — Veistu hvað kemur bílum
til að ganga betur? Það er sandur,
svaraði hann sjálfum sér. Maður
setursand í bensinið. Hannglotti.
Ég varð ákaflega hissa að heyra
þetta. Og ég varð lika hjartanlega
glaður, svo oft hafði ég hevrt föður
minn kvarta yfir háu bensín-
verði. Reimar sendi mig inn eftir
bíllyklunum sem héngu á nagla í
eldhúsinu. hann sagði mér tilþeg-
ar ég mokaði sandi á tankinn.
Reimar var svo vænn að setja
sjálfur í gang. Bjúkkinn rauk í
gang. Hann gekk og hann gekk
og hann gekk. Vélin hitnaði og
hitnaði. Þannig láta bílar þegar
vantar á þá oliuna. Reimar lyfti
upp húddinu, vélin var byrjuð að
roðna.
— Dreptu á honum maður,
tisti ég. Reimar hoppaði upp i
framsættð og drap á bílnum en
vélin gekk af enn meira offorsi
en áður. Þannig láta bílar þegar
þeir bræða úr sér.
Reimar stökk upp á frambret-
tið sín megin og byrjaði að spræna
á mótorinn til að reyna að kæla
hann, ég gerði slikt hið sama.
Vélin. glóði, við stóðum hvor á
móti öðrum og sprændum af Iífs
og sálar kröftum en bunur vorar
tóku skjótt að falla. Vélin sagði
hviss! hviss" og pabbi kom út á
tröppur og nú er ég kominn alla
leið niður á spaltann minn og því
verður meira af Reimari frænda
að bíða þar til ég verð næst með
bakþanka.
ff
HEFUR ÞÚ KYNNST „FL0SA"?
„Flosi“ er nýr ryksuguhaus, sem hreinsar ló, hár og annað kusk, sem aðrir burstar ná ekki.
„Flosi“ passar á altar ryksugur. j
crfþgi hí.
J Faxafeni 12, Reykjavík, s. 673830. s
Gólfbvottavélar
með vinnubreidd frá 43 til 130 cm.
Gólfþvottavélar drifnar með rafgeymum.
Hako
Gólfþvottavélar með sæti
vélará Islandi
IBESTAI
Nýbýlavegi 18,
sími 64-1988.
BREFA-
BINDIN
/rá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað.
Múlalundur
SfMI: 62 84 50
2
=>
□
l
=>
2
2
5
2
g
I
ENSKA - SUMARFRÍ - TÓMSTUNDIR
Lærið ensku á einum vinsælasta sumardvalarstað á
suðurströnd Englands, Eastbourne. Allt viðurkenndir
skólar. Hægt er að velja um:
- Ensku, 33-40 kennslustundir á viku
- Ensku, tómstundir og skoðunarferðir f. unglinga
- Ensku og golf
- Ensku og badminton
- Ensku og tennis
- Ensku og siglingu á ánni Thames
- Ensku fyrir kennara
- Ensku fyrir fólk á efri árum og einnig ýmiss konar námskeið.
Upplýsingar gefur Edda Hannesdóttir, fulltrúi I.S.A.S.
á íslandi, í síma 672701 milli kl. 13 og 15 virka daga.
Fulltrúi frá I.S.A.S. er á staðnum til aðstoðar
hvenær sem er. Útvegum einnig skóla á írlandi.
IHVAÐA
VEÐRISEMER
Með Meco þarftu ekki
að hafa áhyggjur
af veðrinu, það er alltaf
hægt að grilla.
< ..t
Hönnun MECO:
Loftflæðið gerir Meco
að frábæru útigrilli:
Það sparar kolin.
Brennur sjaldnar við.
Hægt er að hækka og
lækka grindina frá glóðinni.
Tekur styttri tíma að grilla
og maturinn verður
safaríkari og betri.
Auðveld þrif.
iþ
Heimjlistæki hf
SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNI SlMI 691520
\ C sajtooKgujtc
Tilog með 30. júní
7. júlí
14. júlí
20. júlí
21. júlí
28.JÚIÍ
4.ágúst
11. ágúst
18. ágúst
25. ágúst
1. september
8. september
15. September
Einsdæmi
Sjöund
Sjöund
Geirmundur Valtýsson
Geirmundur Valtýsson
(aðelns eina helgi í Reykjavik)
Ingimar Eydal
Ingimar Eydal
Ingimar Eydal
Hafrót
Hafrót
Sjöund
Stefán P.
Stefán P.
Auk þessa verða önnur skemmtiatriði auglýst síðar.
* M
IÓLGUSJÓÁSÖGU
Við þökkum frábærar móttökur í vetur - sjáumst aftur næsta haust.
Hótel Saga þakkarhinum frábæru skemmtikröftum sem stóðu
að sýningunni Ómladí - Ómlada fyrir ánægjuiegt samstarf í
vetur. Einnig þökkum við gestum okkar fyrir komuna, en
uppselt var á allar sýningar vetrarins.
Sýningar hefjast aftur 22. september