Morgunblaðið - 01.06.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.06.1990, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/C 122. tbl. 78. árg._____________________________ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1990_______________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Sovétríkin: Noregur: Jeltsín kveðst geta samið við Gorbatsjov Moldavar viðurkenna sjálfstæði Litháens Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín, nýkjörinn forseti Sovétlýðveldisins Rússlands, kvaðst í gær vonast til þess að geta rætt við Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta og sagði að þeir gætu jafiiað ágreining sinn. Þing Sovétlýðveldisins Moldavíu, viðurkenndi í gær formlega rétt Litháa til að stofna sjálf- stætt ríki. Jeltsín sagði á rússneska þinginu að hann væri þeirrar skoðunar að forsetarnir tveir ættu að hafa mark- visst samstarf. „Ég tel að við efnum til viðræðna og jöfnum ágreining okkar án þess að það komi niður á sjálfræði Rússa eða markmiðum okkar,“ hafði sovéska fréttastofan TASS eftir rússneska forsetanum. Jeltsín hafði daginn áður kynnt kröf- ur sínar um að Rússland hlyti aukið Kanada: Neyðarfiind- ur um klofti- ingshættuna Ottawa. Reuter. BRIAN Mulroney, forsætis- ráðherra Kanada, boðaði í gær til neyðarfúndar í Ottawa á sunnudag, þar sem reynt verður að koma í veg fyrir að sambandsríkið klofiii vegna tungumáladeilna. Mulroney hefur að undan- förnu reynt að fá þijú af tíu ríkjum Kanada til að viðurkenna sérstöðu Quebec-ríkis, þar sem mikill meirihluti íbúa er frönsku- mælandi. Það hefur honum ekki tekist og hefur hann aðeins þrjár vikur til að- leysa deiluna. „Ágreiningurinn er enn mikill. Því varð ég að boða forsætisráð- hei'ra ríkjanna á minn fund,“ sagði Mulroney. Sjá frétt á bls. 22. sjálfræði og dregið yrði úr miðstýr- ingu frá Kreml. Vytautas Landsbergis, forseti Lit- háens, kvaðst í gær efins um að Míkhaíl Gorbatsjov og George Bush Bandaríkjaforseti næðu samkomu- lagi sem stuðlað gæti að lausn deil- unnar um sjálfstæði Litháens. Hins vegar gæti kjör Borís Jeltsíns í emb- ætti forseta Rússlands stuðlað að stefnubreytingu hjá Kremlveijum í Litháensmálinu, þar sem hann væri algjörlega andvígur efnahagsþving- unum sovéskra stjórnvalda gegn Lit- háum. Talsmaður Þjóðarfylkingar Moldava skýrði frá því í gær að þing Moldavíu hefði samþykkt með 194 atkvæðum gegn 29 að viðurkenna rétt Litháa til að stofna sjálfstætt ríki. Þingið lét einnig í ljós þá ósk að Moldavar gætu tekið upp stjórn- málasamband við Eystrasaltsríkið. Reuter Leiðtogar risaveldanna, þeir George Bush Bandaríkjaforseti og Míkhaíl S. Gorbatsjov, Jeiðtogi sovéska kommúnistaflokksins, við upphaf fundar þeirra í Washington í gær. Hleypt var af 21 fallbyssu- skoti Sovétleiðtoganum til heiðurs við komu hans til Bandarikjanna. Telja að ol- ían endist til ársins 2035 Osló. Reuter, dpa. STJÓRNENDUR norska olíufyr- irtækisins Statoil telja að nægi- leg olía sé við strendur Noregs til að Norðmenn geti haldið áfram oliuvinnslu sinni langt fram á miðja næstu öld. Statoil stóð fyrir rannsókn á olíu- svæðunum við strendur Noregs í fyrra. Niðurstöður hennar benda til þess að Norðmenn geti unnið olíu í Norðursjó í 45 ár til viðbótar, eða sex árum lengur en fyrri áætlanir fyrirtækisins gerðu ráð fyrir. „Við teljum að í Norðursjó sé 25% meiri olia en áætlað hefur verið,“ sagði Arild Steine, talsmaður Stat- oil. Fyrirtækið telur að hægt verði að vinna 28,43 milljarðj fata í Norðursjó, þar af komi helmingur- inn frá svæðum, þar sem engin olía hefur fundist til þessa. Norðmenn eru mestu olíufram- leiðendur Vestur-Evrópu á eftir- Bretum og vinna um 1,7 milljónir fata á dag. Fundur leiðtoga risaveldanna í Washington: Bush lofar þátt Sovétleiðtog- ans í umskiptunum í Evrópu Washington. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter. GEORGE Bush, forseti Banda- ríkjanna, bauð sovésku forseta- hjónin, Raísu M. og Míkhaíl S. Gorbatsjov, velkomin til Banda- ríkjanna í glampandi sól á syðri grasílötinni við Hvíta húsið í Washington í gærmorgun. í stuttum ræðum sem leiðtogarnir Tölvu- stýrður vín- blandari Vestur-þýski menntaskólanem- inn Markus Krastel sýnir hér tölvustýrðan vínblandara, sem hann vonast til að hljóti fyrstu verðlaun í samkeppninni „Æska og tækni“, sem haldin er ' árlega í Frankfurt. Ungi maðurinn hefur samið forrit, sem getur séð um blöndun 39 mismunandi hanastéla. Búnaðurinn er afrakstur þrotlausrar vinnu í hálft ár. Reuter fluttu, lögðu báðir áherslu á mik- ilvægi samvinnu ríkjanna til að draga úr spennu í heiminum. Bush sagði þá greina á um ýmis málefiii og nefndi sem dæmi sjálfstæðiskröfúr Litháa. Öll heimsins vandamál yrðu ekki leyst á fjórum dögum en Bush kvaðst búast við að eiga gagn- lega vinnufúndi með forseta Sov- étríkjanna. Bush forseti sagði m.a. í ávarpi sínu að hann vonaðist til að leið- togafundurinn í Washington reynd- ist sögulegt skref í átt til sameining- ar Evrópu þar sem sérhvert land nyti öryggis og friðar. Viðstaddir fögnuðu er Bandaríkjaforseti ávarpaði Gorbatsjov og sagði: „Þér, herra forseti, eigið mikið hrós skilið fyrir þátt yðar í þessum sögulegu umbreytingum. Þær breytingar sem þér hafið komið á í heimaiandi yðar eru einnig- lofsverðar." Gorbatsjov ræddi í ræðu sinni um þær miklu breytingar sem átt hefðu sér stað í heiminum á undanförnum árum og bætt samskipti risaveldanna. „Múrarnir sem áður skildu þjóðirnar eru að hrynja til grunna. Skotgraf- ir kalda stríðsins eru óðum að liverfa sem og hin blinda þoka for- dóma, vantrausts og fjandskapar." Athygli vakti að Gorbatsjov vék sérstaklega að því að hann og sov- éska sendinefndin væntu þess að á fundinum yrðu stigin þýðingarmikil skref í átt til svonefnds START- samkomulags um fækkun lang- drægra kjarnorkuvopna en talið er að leiðtogarnir undirriti sérstaka yfirlýsingu um stöðu þessara við- ræðna í dag, föstudag' Leiðtogarnir munu eiga fjóra formlega fundi í Hvíta húsinu áður en þeir halda til Camp David, sveitaseturs Bandaríkjaforseta i Maryland, ásamt eiginkonum sínum á laugardag: Þar er ætlunin að þeir hvílist og eigi einkasamræður. Fyrirhugað er að þeir undirriti samning um stöðvun framleiðslu efnavopna í dag, föstudag. Hins vegar hafa samningaviðræður um fækkun hefðbundinna vopna ekki gengið eins vel og vonast var til eftir fund leiðtoganna á Möltu í byrjun desember auk þess sem þeir eru á öndverðum meiði hvað varðar sameiningu Þýskalands og aðild þess að Atlantshafsbandalaginu (NATO). Gorbatsjov gaf þó í Skyn í gærkvöldi að leiðtogarnir gætu jafnað þann ágreining á fundinum í Washington. Framtíð fiskeldis talin björt í Noregi LÍKLEGT er, að eftir 20 ár verði aftaksturinn af þorskeldinu í Noregi orðinn jafii mikill og af þorskveiðunum nú. Kemur þetta fram i nýrri spá um þróun hafbeitnrmála þar í landi og er framtíð þorsk- og lúðueldis talin sérstaklega björt. Norska blaðið Aften- posten greindi frá þessu nú í vikunni. Snorre Tilseth, yfirmaður haf- beitardeildar Hafrannsóknastofn- unarinnar í Björgvin, segir, að það sé aðeins spurning um tíma hve- nær þorskeldið verði jafn mikil- vægt veiðunum sjálfum og hann bindur jafnvel enn meiri vonir við lúðueldið. Hann spáir því, ■ að þorskeldisstöðvarnar verði orðnar 150 eftir tíu ár og lúðueldisstöðv- arnar 100. Telur hann, að eftir önnur tíu ár verði þorskeldisstöðv- arnar orðnar 700 talsins og fram- leiði þá samtals 170.000 tonn eða jafn mikið og nemur þorskveiðum Norðmanna á þessu ári. Tilseth segir, að eldisþorskur- inn verði samkeppnisfær við villta fiskinn jafnt í verði sem gæðum og þá ekki síður eldislúðan þegar leyst hafi verið ýmis vandamál varðandi klakið. „Það er enginn vafi á, að hafbeitarstöðvarnar munu valda byltingu innan sjávar- útvegsins og hafa mikil og góð áhrif á afkomu fólks i strand- byggðunum," segir Tilseth.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.