Morgunblaðið - 01.06.1990, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 01.06.1990, Blaðsíða 17
17 myndin byggist á því að brimaldan beri sand upp að garðinum að vetri til þannig að hafaldan brotni síður á tanganum. Þessir hugmyndir eru I allar á frumstigi enn sem komið er og koma ekki til framkvæmda fyrr en að undangengnum viðamiklum | straummælingum og rannsóknum á fleiri fyrirbrigðum í ósnum. Á næstu dögum skýrist hvort opinbert fjár- | magn fáist til að hrinda af stað rannsóknaráætlun í þessu skyni sem áætlað var að hæfist á næsta ári. Rannsóknaráætlunina annast Vita- og hafnamálastofnun og fleiri innlendir aðilar. Úrvinnslu gagna annast danska straumfræðistofn- unin DHI í stærðfræðilíkani. Danskur prófessor í hafnarmann- virkjagerð, Per Bruun, er kominn til landsins og heldur hann fyrirlest- ur á ráðstefnunni á Ilótel Höfn í næsta mánuði, en hann hefur kynnt sér Hornafjarðarós sérstaklega og lagt fram róttækar tillögur til úr- bóta. ^ Hugmyndir hafiisögumanns Ekki eru heimamenn allir á eitt sáttir um ágæti tillagna Hafna- I málastofnunar, en flestir eru þó þeirrar skoðunar að aðgerða sé þörf. Sigfús Harðarson, hafnsögu- ) maður, segist telja að í framtíðinni komi stærri skip alls ekki inn í minni hafnir hér á landi. „Suður- fjörutangi fór í sundur á svipuðum stað og núna árið 1948, en þá voru stærstu skip í flota Hornfirðinga eins og bátarnir eru núna. Þá voru skip heldur ekki tekin inn að nóttu eins og nú er gert,“ sagði Sigfús. „Við höfum farið þess á leit við hlutaðeigandi aðila að stærri skip sem eru að lesta saltfisk eða aðrar vörur í höfnum allt í kringum landið komi fyrst hingað, þegar þau eru ekki fullhlaðin. Annars hlýtur framtíðin að vera sú að stærri skip komi alls ekki inn á þessar litlu hafnir heldur fari minni skip, nokk- urs konar smalaskip, til móts við flutningaskipin og lesti vörur í þau. Eins og samkeppnin er hörð í þess- ) um flutningum þá fer of mikill tími í að sigla inn á alla fírði og víkur til að lesta einhverja smáslatta. Ég ' sé fyrir mér að við landið verði nokkrar aðalhafnir, til dæmis Reykjavík, ísafjörður, Akureyri, Reyðarfjörður og Vestmannaeyjar,“ sagði Sigfús. Hann sagði að sér litist vel á rannsóknaráætlun Hafnamála- stofnunar, þetta væri í fyrsta sinn sem einhver veruleg hreyfing kæm- ist á málið. Honum leist ekki jafn vel á hugmyndir um byggingu sjó- varnagarða við utanverða innsigl- inguna, þar sem hætta væri á því í brimi að gijót bærist inn í innsigl- ingarrennuna. Hafnarvogin í Hornaijarðarhöfn gegnir veigamiklu hlutverki í at- vinnulífi bæjarins. Sjófarendur leggja þangað leið sína ef tvísýnt er með veður því þar hafa þeir að- gang að upplýsingum um ölduhæð og dýpt í innsiglingunni af tölvu- skjá. Oldumæli hefur verið komið fyrir skammt fyrir utan innsigling- una svo að sjófarendur geti fylgst með ástandi sjávarins. Þá er þar aðsetur hafnsögumannsins og starfsmanna hafnarinnar. Sigfús sagði að ástand innsiglingarinnar hefði lagast mikið að undanförnu og ættu nú skip af flestum stærðum greiða og áhættulausu leið inn í Hornafjarðarhöfn. Texti og myndir: Guðjón Guðmundsson MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1990 Rækjuvinnsla haf- in að nýju í Keflavík Keílavik. BRÆÐURNIR og útgerðarmennirnir Þorsteinn og Orn Erlingssynir hafa nú hafið vinnslu á rækju í Keflavík. Rækjuvinnslan er í hús- næði Fiskverkunarstöðvar Axels Pálssonar þar sem rækja var unnin í 8 ár lrá árinu 1980, en 2 síðustu ár Þorsteinn Erlingsson sagði í sam- tali við Morgunblaðið að rækja yrði unnin af 4 bátum, Erni KE og Erl- ing KE, sem væru á veiðum fyrir norðan og lönduðu á Skagaströnd, en þaðan væri aflanum ekið til Keflavíkur, og tveir bátar, Búrfell KE og Geir Goði GK, yrðu við veið- ar fyrir sunnan. Þeir bræður Þorsteinn og Örn hefúr verið lítil starfsemi þar. verkuðu fisk í salt í vetur og varð einn bátur þeirra, Búrfell KE, með aflahæstum bátum á Suðurnesjum, fékk 1.010 tonn á vertíðinni. Bátar þeirra hafa veitt og landað rækju fyrir norðan á sumrin en nú ákváðu þeir að vinna aflan heima og hafa um 20-30 manns í vinnu við að verka rækjuna. BB Morgunblaðið/Björn Blöndal Þorsteinn Erlingsson, annar eigandi Saltvers, í húsakynnum Fisk- verkunarstöðvar Axels Pálssonar í Keflavík þar sem hann hefúr nú hafið vinnslu á rækju. MYSLUBRAUÐ Mysla: Blanda af korni, hnetum, hunangi og fræjum. Mysla: íslenska orðið fyrir „musli“. Ný tegund af Myllusamlokubrauði úr myslu MYLLAN færir þér máltíð af akrinum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.