Morgunblaðið - 01.06.1990, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 01.06.1990, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1990 9 Við bjóðum upp á: ★ Macrobiotiskt fæði (fullt fæði) ★ Líkamsæfingar, yoga og Do-ln (sjálfsnudd) ★ Hugkyrrð og slökun ★ Erlendan matreiðslu- meistara ★ Fræðslu og uppskriftir úr Macrobiotik ★ Vatnslita- málun ★ Sund ★ Kvöldvökur ★ Rúmgóð 2ja manna herbergi ★ Bátsferð um eyjarnar ★ Nudd ★ Reiki o.fl. Nánari upplýsingar í síma 32553 alla daga milli kl. 9.00 og 10.00 á morgnana og 6.00 og 7.00 á kvöldin. Ú:::^ Sigrún Ó. Olsen, ( Þórir Barðdal. Fundur um , mengunarvurmr Umhverfisráðuneytið boðar til fundar um verkefnaútflutning á sviði mengunarvarna í Austur- Evrópu í funda- og ráðstefnusöl- um, Borgartúni 6, (fyrrum rúg- brauðsgerð) í dag, föstudag 1. júnf, kl. 14.00. Þar verður einnig kynning á starf- semi nýstofnaðs norræns fjár- mögnunarfélags á sviði umhverfis- mála. Islenskum fyrirtækjum, stofnunum og sér- fræðingum, sem eru í framleiðslu og ráð- gjöf á sviði mengunarvarna, er hér með boðið á fundinn verður Þorsteinn Ólafsson, fram- kvæmdastjóri hjá Norræna verkefna- útflutningssjóðnum NOPEF. [ FJÁRMÁL á fimmtudeqi Hvað er almenningshlutaféla^l Mótun leikrrgina í viðskiptum með hlutabréf almenningshlutafélatfa er citt brýnasta verkefnið við f nn islpnsksJiliiL-ihréfamarkaðs á na-stu J Hlutabréf og traust Á nokkrum árum hefur hlutabréfamark- aður fengið að þróast hér á íslandi og almenningur virðist vera farinn að gera sér grein fyrir mikilvægi þess að til sé virkur hlutaþréfamarkaður. Enn er þó langt í land með að viðskipti með hluta- bréf verði eins og þau gerast í nágranna- löndum okkar. Viðhorfsbreytingar stjórn- valda, almennings og þó ekki síður stjórnenda fyrirtækja ráða þó mestu um hvernig til tekst. Fái almenningur traust á hlutabréfum og framgöngu stjórnenda fyrirtækja eigum við eftir að sjá blómleg viðskipti með hlutabréf, sem öðru fremur renna styrkari stoðum undir atvinnulíf landsmanna. Aukinvið- skipti Eiirn fremsti og virt- aati sérfræðingur okkar íslendinga um hlutabréf og verðbréfeviðskipti, Sigurður B. Stefánsson, framkvæmdastjóri Verð- bréfainarkaðar íslands- banka, ritar grein í við- skiptablað Morgunblaðs- ins í síðustu viku um al- menningshlutafélög. Þar bendir hann á, að eftir- spurn og framboð á lilutabréfum íslenskra al- menningshlutafélaga eigi að öllum líkindum eftir að aukast mikið fram að aldamótum. „Það er því mikilvægt að alinenn- ingshlutafélög starfi þannig að almenningur geti borið til þeirra fullt traust.“ Sigurður vitnar í Eyj- ólf Konráð Jónsson, sem 1968 sendi frá sér bókina „Alþýða og athafiialif,“ en þar segir meðal ann- ars um almenningshluta- félög: „Þótt orðið al- menningshlutafélag sé að festast í málinu, er það hvergi að finna í íslenskri löggjöf. Ekki verður heldur sagt, að það hafi skýrt afinarkaða merk- ingu. Engar alvarlegar tilraunir hafa verið gerð- ar til að skilgreina orðið, enda má segja, að svo mörg tilvik komi til álita, ef hrinda á í framkvæmd hugmyndum um almenn- ingshlutafélög, að erfitt sé að ákveða mörkin milli þessara félaga og ann- arra hlutafélaga." í gréin sinni segir Sig- urður, að mikilvægasti munurinn á almennings- hlutafélagi og öðru hluta- félagi felist í því, að hjá því fyrmefiida sé starf- ræktur skipulegur og vel mótaður markaður fyrir hlutabréf félagsins. „Markaöur þessi hlítir vandlega skilgreindum leikreglum um viðskipti með hlutabréf en gerir jafnframt skýrar kröfur til hlutafélaganna, m.a. um upplýsingagjöf, sem fyrirtækin gangast undir að fullnægja áður en bréfin eru tekin til skrán- ingar. Slíkar leikreglur eða skilyrði hafa enn ekki verið settar á íslandi, ef undanskildar eru reglur Verðbréfeþings íslands um skráningu hlutabréfe á þinginu - en raunar hefur ekkert félag enn sótt um skráningu þar.“ Nauðsyn Morgunbfeðið hefur undanfama mánuði bent á nauðsyn þess, að settar verði skýrar leikreglur um skyldur stjórnenda almenningshlutafélaga, og þá sérstaklega um upplýsingaskyldu þeirra gagnvart almenningi. Sumir, sem te(ja sig sér- staka talsmenn atvinnu- lifsins, hafe gagnrýnt þessi skrif Morgunblaðs- ins og haldið því fram, að blaðið væri 20-30 árum á eftir samtíman- um. Þannig sagði Vil- hjálinur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Verzlunar- ráðs íslands, í samtali við tímaritið Heimsmynd, sem út kom í aprílmán- uði: „Þetta er rugl. Morg- unblaðið er 20-30 árum á eftir timanum. Það er hægt að tala um einokun, þegar henni er komið á í skjóli pólitísks valds. En ef mönnum almennt fyndist að um einokun- artilhneigingu væri að ræða og óæskilega sam- þjöppun valds, þá mundi það einfaldlega koma fram í fallandi gengi hlutabréfe á markaðn- um. Markaðurinn hlýtur að endurspegla traust manna á stjómendum og fyrirtælgum." Grein Sigurðar B. Stef- ánssonar er lioll lesiling fyrir þá, sem þannig tala. Frelsi i viðskiptum er eitt, en annað mál er hvort lögmál frumskóg- arins á að ráða. Við Is- lendingar hljótum að til- einka okkur reynslu ann- arra þjóða í mótun hluta- bréfamarkaðar í stað þess að byija á svipuðu stigi og Bandaríkjamenn kunna t.d. að hafe verið snemma á þessari öld! Sigurður B. Stefánsson segir, að íslendingar eigi fyrir höndum að móta reglur eins og um er rætt. „Þetta er eitt brýn- asta verkefhið við þróun hlutabréfemarkaðs hér á síðustu mánuðum vegna þeirrar miklu aukningar á viðskiptum með hluta- bréf, sem orðið hefiir á síðustu misserum - og verður á næstu árum, ef að likum lætur. I þessu sambandi bendir Sigurð- ur á nokkur atriði sem huga ber að og segir meðal annars: „Viðskipti stjórnenda við fyrirtæki sitt. Hugleiða þarf hvaða upplýsingar stjórnendum og hluthöfum í almenn- ingshlutafélagi er skylt að láta í té um viðskipti þeirra við félagið. Sem dæmi má nefiia lántöku hjá félaginu, samninga við eða fyrir hönd fyrir- tækisins þar sem stjóm- andi eða hluthafi hefur hagsmuna að gæta og loks að stjómandi eða hluthafi beiti fyrirtækinu sjálfum sér til persónu- legs ávmnings. Hér er komið enn eitt dæmi um reglur, sem íslcndingar eiga ekki að venjast og þvi kaim að reynast við- kvæmt og vandasamt að koma þeim í fram- kvæmd.“ Sigurður lýkur grein sinni með þessum orðum: „Til greina kæmi, að þau félög ein fengju rétt til að kalla sig almennings- hlutafélög - eða nota eitthvert annað auðkenni - sem lýst hafa sig reiðu- búhi til að starfe eftír þeim reglum sem sam- komulag næst um. Að- eins með því að vanda vel til leikreglnanna og með góðu skipulagi og samstarfi viðkomandi fé- laga, verðbréfemiðlara og stjómvcdda tel ég að traustur grundvöllur myndist fyrir allri þeirri aukningu í hlutabréfevið- skiptum sem virðist vera í vændum á næstu árum.“ MMC Lancer GLX, órg. 1987, vélarst. 1500, sjólfsk., 4ra dyra, hvítur, ekinn 40 000 Verð kr. 610.000,- Subaru Station GL, órg. 1987, vélarst. 1800, 5 gíra, 5 dyra, hvítur, ekinn 50.000 Verð kr. 850.000,- MMC Galant GLSi, órg. 1989, vélarst. 2000, 5 gíro, 4ra dyra, grænn, ekinn 11.000. Verð kr. 1.150.000,- Audi 80E, érg. 1989, vélarst. 1800, 5 gíra, 4ra dyra, svartur, ekinn 6.000. Verð kr. 1.820.000,- MMC Pajero ST, órg. 1988, vélarst. 2600, 5 gíra, 3ja dyra, silfur, ekinn 31.000. Verð kr. 1.470.000,- MMC Pajero SW, órg. 1984, vélarst. 2600, 5 gíra, 5 dyra, gullsans., ekinn 93.000. Verð kr. 1.000.000,- Danica innréttingum er komið fyrir á ýmsa vegu í sýningarsal Gása að Armúla 7. Þar er einnig hægt að skoða útihurðir og tréstiga og fá góð ráð um allt sem viðkemur innréttingum. Þegar úrvalið í Gásum er skoðað og verðið athugað, komast menn fljótt að því að þar snýst alit um gæði og gott verð ... og svo auðvitað lamirnar. Verið velkomin. G ásar Á r m ú 1 a 7 , s í m i 3 0 5 0 0 INNRÉTTINGAR • S T I G A R • Ú T I H U R Ð I R GÆÐIN SNÚAST LIKA UM LAMIRNAR HJÁ DANIGA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.