Morgunblaðið - 01.06.1990, Page 22

Morgunblaðið - 01.06.1990, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1990 Olga í Kanada: Segja íbúar Quebec skil- ið við sambandsríkið? Skoðanakannanir sýna 53% fylgi við aðskilnað Washington. Frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. The Economist. FYRIR skömmu héldu aðskilnaðarsinnar í kanadíska sambandsrík- inu Quebec fimd þar sem þeir minntust þess að tíu ár voru liðin frá miklum ósigri sem þeir biðu. 1980 mistókst Parti Quebecois, þáverandi stjórnarflokki í Quebec, að fá meirihluta í þjóðaratkvæða- greiðslu fyrir aðskilnaði frá Kanada. Fimm árum síðar missti flokk- urinn völdin og margir héldu að málstaður aðskilnaðarsinna ætti sér dapurlega framtíð. Annað hefur komið á daginn. sambandsríkjum hafa að þessu sinni neitað að staðfesta hann. Tilraunir á síðustu stundu til að finna málamiðlun hafa enn ekki borið árangur en samningurinn er gagnslaus án samþykkis allra ríkjanna. Reuter Fundurinn var haldinn í kjör- dæmi Luciens Bouchards, um- hverfismálaráðherra Kanada, í stjórn íhaldsmannsins Brians Mulroneys. Bouchard sendi fund- armönnum aðskilnaðarsinna skeyti þar sem hann hyllti þá fyrir heiðar- leika og dugnað í kosningabarát- tunni fyrir tíu árum. Á mánudegin- um eftir fundinn ræddi Mulroney málið við vin sinn og flokksbróður og varð niðurstaðan sú að Bouc- hard sagði af sér embætti og yfir- gaf íhaldsflokkinn. Síðan hefur mál Quebec-manna og mögulegur aðskilnaður ríkis með um 6,5 millj- ónir íbúa frá sambandsríkinu verið efst á baugi í Kanada þar sem alls búa um 26 milljónir. Skoðana- kannanir í Quebec sýna nú 53% fylgi við aðskilnað. Samlyndi og samvinna hinna fjölmörgu þjóðabrota sem byggja þetta víðáttumikla land hefur verið aðalsmerki Kanadamanna þótt undir niðri hafi ávallt verið grunnt á kryt milli enskumælandi og frön- skumælandi manna. Um 80% íbúa Quebec eru frönskumælandi en þorri annarra Kanadamanna notar ensku. Tungumar eru taldar jafn réttháar í Kanada að lögum og venju. Nöfn og aðrar upplýsingar á vöruumbúðum verða að vera á báðum málunum, sama er að segja um opinber skjöl og skilríki. Þrátt fyrir þetta virðist nú alvarleg hætta á að sambandsríkið klofni vegna tungumáladeilnanna sem lengi hafa geisað enda ólíkar menningarvenjur sem tengjast þjóðtungunum. Samningur, sem kenndur er við Meech Lake, frá 1982 og endumýjaður 1987, renn- ur út 23. júní en þar er sérstaða Quebec viðurkennd. Þijú af tíu Þessar mæðgur í bænum Rioja í Perú eru að virða fyrir sér hrunið húsið en mega þó kannski teljast heppnar. Sum þorpin tók alveg af í skriðufollum og er óttast, að tala látinna skipti mörgum hundruðum. Jarðhræringar skekja löndin: Hundruð farast í Perú og eftirskjálftar í A-Evrópu Búkarest, Mexíkóborg, Moskvu. Reuter. % NÝIR landskjálftar urðu í gær í Rúmeníu og Búlgaríu en þó ekki jafa öflugir og skjálftarnir á miðvikudag, sem vart varð við um alla austanverða Evrópu, frá Moskvu í norðri til Grikklands í suðri. í gær reið einnig snarpur skjálfti yfir Mexikóborg án þess þó að valda tjóni en afleiðingar jarðhræringanna í Perú aðfararnótt miðvikudags- ins eru aftur alvarlegri. Þar er vitað um hátt í 200 látna og á sú tala vafalaust eftir að hækka mikið. í Rúmeníu létust átta manns og nærri 300 slösuðust í skjálftanum á miðvikudag og því greip mikil ERHJARTAÐ A RÍTTUMjSTAO? MERKJASALA 31. MAÍ - 2. JÚNB 1» ’H mi Studlum að l»ættum tækjabúnaði sjúlcrastofnana og uppbyggingu liæfingarstöðva fyrir hiartasjúldinga. SÓKN TIL BETRI HEILSU LANDSSAMTÖK HJARTASJUKUNGA Hafnarhúsinu v. Tryggvagötu. Sími 25744. Pósthólf 830.- 121 Reykjavik. Tékkareikningur 5800 íslandsbanka, Austurstræti 19. skelfíng um sig þegar jarðhræring- arnar hófust aftur í fyrrinótt. Þusti fólk út á götur, margt fáklætt, en vogaði sér þó aftur inn eftir nokk- urn tíma. Skjálftinn í fyrradag mældist allt að sjö að styrkleika á Richter-kvarða og á milli fimm og sex í fyrrinótt en jarðfræðingar segja, að upptökin séu í fornu mis- gengi 160 km undir yfirborði jarðar í Karpatafjöllum. Berglögin hafi þess vegna getað tekið vi_ð og dreg- ið úr mesta kraftinum. í Búlgaríu lést einn maður í miðvikudags- skjálftanum en í fyrrinótt voru af- leiðingarnar helst þær, að rafmagn fór víða af í landinu. Skjálftinn, sem varð í Mexikó- borg í gær, mældist 6,1 stig á Ric- hter en ekki var vitað til, að hann hefði valdið teljandi tjóni. Hann olli hins vegar mikilli skelfingu, einkum meðal íbúa gamla borgarhlutans, en hann varð illa úti í jarðskjálftun- um í september 1985. Landskjálftinn í Amazonhéruð- um Perú var 5,8 á Richter og olli gífurlegum skriðuföllum í fjallahér- uðunum. Er talið að 200 manns að minnsta kosti hafí farist og líklega miklu fleiri því að björgunarlið hef- ur enn ekki komist til sumra fjalla- þorpanna. Ashkenazy með tón- leika á Svalbarða VLADIMIR Ashkenazy verður með tónleika í Longyearbyen á Spitzbergen 29. júní nk. og mun þá meðal annars flytja verk eft- ir Beethoven og Brahms. Segir frá þessu í fréttatilkynningu frá yfirstjórn mennta- og menning- armála á Svalbarða og enn- fremur, að Sovétmönnum í Bar- entsburg og Pyramiden hafi verið boðið að hlýða á píanó- snillinginn, landa sinn. Svalbarði heyrir Norðmönnum til en með alþjóðlegum samning- um hefur öðrum þjóðum verið leyft að stunda þar ýmsa starf- semi. Eru Sovétmenn með nokkra námavinnslu á Spitzbergen en allt fram á síðustu ár var sam- gangur þeirra og norsku inn- byggjaranna lítill sem enginn. Á því hefur orðið mikil breyting og Spitzbergen nú stundum kölluð „Friðareyjan" meðal eyjar- skeggja. Þau Ashkenazy-hjónin, Vladi- mir og Þórunn Jóhannsdóttir, búa Ashkenazy nú í Lucerne í Sviss og ætlar hún að slást í för með manni sínum til Svalbarða. Ashkenazy heldur tónleikana í Longyearbyen endur- gjaldslaust en það eru ýmis kunn, norsk stórfyrirtækin, sem standa straum af kostnaðinum við þá. Barnaþrælkun útbreidd- ari en fyrir 100 árum London. Reuter. BARNAVINNA sem I flestum til- fellum jafngildir barnaþrælkun er mun útbreiddara vandamál nú á dögum en íyrir 100 árum, að því er félagsskapur sem beitir sér gegn þrælkun sagði nú í vikunni. Talið er að um 200 milljónir barna búi og vinni við „yfirþyrmandi aðstæður vegna fátæktar" og eigi engrar undankomu auðið. Bamaþrælkunin þrífst einkum á þremur sviðum. Flest eru bömin í störfum sem tengjast landbúnaði, t.d. við sykurframleiðslu í Brazilíu og á gúmmíekrum Malaysíu. Böm í Austurlöndum fjær stunda vændi eða tengdar atvinnugreinar fyrir opnum tjöldum. Fátt er vitað með vissu um ástandið á þessu sviði í hinum vest- ræna heimi, en flestir þeirra ferða- langa sem nota sér kynlífsþjónustu bama í þróunarlöndunum eru frá Vesturlöndum. Þriðja helsti „vinnuveitandi" barna sem lent hafa í þrælkun er iðnaður, til dæmis vefjariðnaður og skógerð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.