Morgunblaðið - 01.06.1990, Side 24

Morgunblaðið - 01.06.1990, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1990 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. BaldvinJónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Að læra á markaðinn Keppinautar okkar íslendinga á fískmörkuðum hafa jafnan verið þeirrar skoðunar, að við séum fljótir að laga okkur að breyttum aðstæðum á þessum mörkuðum. Þessi sveigjanleiki geri okkur kleift að nýta okkur breytilegar aðstæður til hins ýtr- asta. Nú er seljendamarkaður á físki. Afli er af skomum skammti hér á landi, í Noregi, Kanada og Evrópubandalagslöndunum. Af- leiðing þess er, að kaupendur bjóða seljendum gull og græna skóga. Við þessar aðstæður verð- ur samkeppni á milli seljenda, sem eru ekki aðeins að slást um fískinn heldur einnig að berjast fyrir því að gamalgróin viðskipta- sambönd slitni ekki eða markaðir gangi þeim úr greipum. Vegna þessa getum við ekki sýnt sama sveigjanleika og oftast áður og þá eiga þeir meiri hljómgrunn en ella sem vilja skömmtunarstjóm á útflutningi. Bitna þær ráðstaf- anir með mestum þunga á yngstu útflutningsgrein físksins, gáma- útflutningnum. í þessum slag verður harkan mikil eins og gleggst kemur í ljós í Vestmanna- eyjum um þessar mundir, þar sem sjómenn vilja ekki lengur beygja sig undir þær skömmtunarreglur, sem gilda um útflutning á ísuðum eða ferskum físki. Þessi útflutningur var fíjáls þar til fyrir fáeinum árum. Þá var talið nauðsynlegt að taka upp opinbera stjóm á honum í því skyni að viðhalda stöðugleika í verði. Þegar megn óánægja hafði skapast vegna þess hvemig hald- ið var á stjóm þessara mála í utanríkisráðuneytinu var hún flutt til aflamiðlunar á vegum hagsmunaaðila og stjómvalda. Yfírlýst markmið þess starfs sem unnið er með miðluninni er að tryggja hæst verð fyrir afurðim- ar. Er það markmið í góðu sam- ræmi við vilja fólksins í landinu. Leiðin að því er hins vegar síður en svo auðrötuð og nú standa menn frammi fyrir því, að sjó- menn í Vestmannaeyjum hafa brotið gegn lögum og reglum í þessu efni og spumingin er um það, hvort útflutningi á físki frá Eyjum verði stjómað með lög- regluvaldi. Allir eiga að fara að lögum. Hins vegar hafa vitrir menn sagt, að þau lög ein haldi til lengdar, sem fólkið telur sanngjöm og rétt. Auðvitað er stjóm á útflutn- ingi á físki komin út í öfgar, ef lögregla á að standa á bryggj- unni í Vestmannaeyjum og fylgj- ast með því magni sem fer úr landi. íslendingar hafa löngum litið þannig á, að það sem sé best fyrir sjómenn sé best fyrir alla þjóðina. Sjómennirnir átta sig á því hvernig best er að ráð- stafa aflanum til að fá fyrir hann hæst verð. Þeir þurfa tíma og svigrúm til að læra á markaðinn eins og aðrir. Hvarvetna er skömmtunarstjórn að víkja fyrir markaðsöflunum. Þau umskipti kosta víða tímabundna erfiðleika en þar sem menn hefja ferðina á annað borð vilja þeir ekki snúa til baka. Vegna skorts á físki ríkja nú sérstakar aðstæður. Seljendur ráða ferðinni. Þeir sem draga hinn takmarkaða físk úr sjónum vilja fá fyrir hann hæst verð. Við viljum öll að gæði og vinnsla á aflanum sitji í fyrirrúmi og sjáv- arfangið skapi sem mesta atvinnu í landi. Öllum er jafnljóst, að í mörgum tilvikum eru það sömu aðilarnir sem eiga skipin og físk- vinnslufyrirtækin, þannig að um það hefur verið að ræða að fá skömmtunarstjóm frá þriðja að- ila til að taka ákvarðanir sem ættu betur heima hjá þessum aðilum sjálfum. Aflamiðlunin nær til þess físks sem ekki er unninn hér á landi. Keppinautar vinnslugreinanna sækjast eftir fískinum og hann nýtur þess til dæmis á mörkuðum Evrópubandalagsins, að ekki er lagður á hann tollur. Hið sama verður ekki sagt um saltfískinn eða unnin fersk flök. Talsmenn saltfískframleiðenda hafa sagt, að þeir hætti að agnúast vegna útflutnings á vinnsluhæfum físki um leið og þeirra afurð standi jafnfætis fyrirtækjunum, sem keppt er við innan Evrópubanda- lagsins, sem fá hráefnið tollfijálst og njóta þar að auki ríkisstyrkja. Til þess að þær aðstæður skapist þarf að semja við bandalagið og skapa jafnræði milli þessara út- flutningsgreina. Þá er einnig nauðsynlegt við þær aðstæður sem nú ríkja, að leggja á borðið upplýsingar sem sýna svart á hvítu, hvaða áhrif það hefur á afkomu þjóðarbúsins annars vegar að flytja út óunninn fisk og hins vegar unninn. Stærstu útflytjendumir hafa lengi talið sér hagkvæmt að reka verksmiðjur í Bandaríkjunum, þar sem unnið er úr frystum físki og hann búinn í þann búning, sem best hæfír markaðinum. Er ekki verið að stunda svipaða starfsemi með því að flytja fiskinn út óunn- inn í gámum? Er hún þjóðhags- lega óhagkvæmari en hin? í þessu máli era engar einfald- ar' lausnir. Mestu skiptir að við læram á markaðinn og nýtum okkur til hins ýtrasta þá kosti sem hann býður. Doina Cornea andófskona í viðtali við Morgunblaðið: Iliescu hefiir tekist að sundra rumensku þjóðinni Texti og mynd: Anna Bjarnadóttir DOINA CORNEA, rúmenska andofskonan hafði verið í hungurverk- falli í viku, þegar blaðamaður hitti hana á heimili hennar í borg- inni Cluj í Rúmeníu laugardaginn 19. maí, daginn fyrir kosningarn- arnar. Hún var horuð og tekin til augnanna. Hún hafði aðeins nærst á vítamíntöflu á morgana, magnesíum í hádeginu og annarri vítamín- töflu á kvöldin. Með því að svelta sig vildi hún mótmæla steínu stjórnarinnar sem tók völdin eftir byltinguna í desember. Hún sagð- ist þó vera við góða heilsu og var fus til að segja sína skoðun á stjórnmálaástandinu í landinu. Hún sagði að Ion Iliescu, forseti, og hans menn hefðu beitt brögðum til að ná völdum. Þeir unnu kosn- ingarnar daginn eftir. Taldi Doina Cornea að prettir, lygar og svindl hefðu einkennt kosningabaráttuna. Hún sagði að sljórnin héldi verndarhendi yfir starfsmönnum öryggislögreglunnar ill- ræmdu, Securitate, og yfirstéttinni sem naut sérréttinda undir Nic- olai Ceausescu og gamla kerfið væri enn við lýði. Cornea, sem er rithöfundur, var í stofufangelsi og einangrun á heimili sínu í borginni Cluj fimmtán síðustu mánuði stjórnartíðar Ce- ausescus. Víða um heim börðust menn fyrir frelsi hennar og meðal þeirra sem þar stóðu fremstir var Francois Mitterrand Frakklands- forseti. Hún gagnrýndi einræðis- herrann fyrst opinberlega í bréfi til Radio Free Europe 1982 og stjórnvöld höfðu horn í síðu hennar upp frá því. Nafn hennar var ofar- lega á lista yfír andófs- og mennta- menn sem lýstu strax yfír stuðn- ingi við Endurreisnarhreyfinguna þegar hún tók völdin eftir að Ceau- sescu féll. Það tryggði stöðu henn- ar í landinu. En Comea sagði að hún hefði aldrei lýst yfir stuðningi við hreyfinguna. „Ég gekk aldrei í hana en sagði mig hins vegar úr henni,“ sagði hún. Hún heyrði sjálf í útvarpi, þegar hún var á ferð í langferðabíl að hún væri á lista yfir stuðningsmenn hennar. Hún sagði að leiðtogar Endurreisn- arhreyfíngarinnar hefðu haft í hyggju að bylta Ceausescu í janúar eða mars á þessu ári en notað tækifærið til að hrifsa völdin þegar uppreisnin hófst í Timisoara. „Þeir voru ekki vissir um hvemig fólk myndi bregðast við þeim og sömdu þess vegna þennan lista yfír stuðn- ingsmenn," sagði Cornea. „Þeir beittu kænskubrögðum frá upp- hafi“. Misnotkun valdhafa Hún sagði að fullyrðingar um að hryðjuverkasveitir Securitate og jafnvel frá Líbýu og Sýrlandi léku lausum hala hefðu verið liður í að hræða fólk. Sjálf var hún not- uð í lok desember til að dreifa mannfjölda sem hafði safnast sam- an til að mótmæla nýju stjóminni í Búkarest. Hún var þá stödd í sjón- varpsstöðinni og fréttamaður rétti henni gjallarhom og bað hana að hvetja fólkið til að hætta mótmæl- um af því að hryðjuverkamenn hefðu kallað til þeirra svo að þeir gætu skotið á hópinn. Hún féllst á að vara fólkið við og hópurinn dreifðist. Mánuði síðar spurði mað- ur sem heimsótti hana af hveiju hún hefði dreift hópnum, hann hefði verið saman kominn til að mótmæla stjóm Endurreisnar- hreyfingarinnar og kommúnisma. Hún trúði að fólkið væri í hættu og vildí forðast blóðsúthellingar en sér nú að hún var plötuð til að stöðva mótmæli sem hefðu geta veikt stöðu nýja leiðtogans og þyk- ir það sárt. „Það rann upp,fyrir mér að þetta tal um hryðjuverkamenn var upp- spuni eftir að ég hafði verið vöruð við þeim í nokkurn tíma og heyrt skot fyrir utan húsið mitt og það var skotið fram hjá bíl sem ég var í. Þá áttaði ég mig á að þetta gætu ekki verið hryðjuverkamenn af því að þeir myndu hitta það sem þeir ætluðu sér.“ Iliescu og spillt völd Córnea sagði að Iliescu hefði þjónað kommúnistaflokknum vel og aldrei risið upp opinberlega gegn Ceausescu. Hún benti á að hann hefði farið með málefni ung- menna þegar mótmælaalda gekk yfir háskóla landsins í framhaldi af uppreisninni í Ungveijalandi 1956 og 10% nemenda voru rekin úr háskóla. Og hann hefði verið í hópi þeirra sem komu í veg fyrir að fijáls verkalýðsfélög yrðu leyfð í landinu á sínum tíma. „Iliescu hefði verið hlynntur þeim eins og ég og fleiri ef hann væri maður verkalýðsins," sagði hún. Hann gagnrýndi aldrei eyðileggingu þorpa og yfir 7.000 kirkna eins og hún gerði. Og nú heldur hann verndarhendi yfir starfsmönnum Securitate, stofnar nýjar sveitir fyrir þá og lætur spillta embættis- menn halda störfum sínum. Cornea sagði að náinn sam- starfsmaður Uiescus hefði bent á að starfsmenn öryggislögreglunn- ar væru sérfræðingar á sínu sviði og hefðu unnið gott starf við njósn- ir og eftirlit með símtölum og bréfaskriftum almennings. Hann hefði lagt til að þessir menn yrðu áfram í þjónustu ríkisins. Sjálf kom hún í veg fyrir að fyrrverandi starfsmaður Securitate yrði kosinn í borgarráð Cluj með því að greina frá fyrra starfi hans á fundi. En henni brá þegar sjónvarpsfréttir sögðu frá því rétt fyrir kosningar að ný „víkingasveit“ sérþjálfaðra manna í júdó og karate hefði verið stofnuð. „Hvaðan koma þessir menn?“ spurði hún. „Það eru engar júdósveitir í hernum svo þeir hljóta að vera úr öryggislögreglunni." Hún sagði að því væri einnig hald- ið fram að þjóðin þyrfti á sérþekk- ingu emættismanna ríkisins að halda til að ríkisbúskapurinn gæti gengið áfram. „Þessir menn hafa ekki upp á neina sérþekkingu að bjóða,“ sagði hún. „Efnahagslíf þjóðarinnar er í rúst og þeir geta ekki bætt úr því. En Iliescu hefur haldið verndarhendi yfir þeim frá upphafi svo þeir halda sínum störf- um og sérréttindum.“ Rógburður og öfúnd Hún sagði að stuðningsmenn Iliescus beittu rógburði gegn and- stæðingum hans til að sverta mannorð þeirra. Því hefur til dæm- is verið haldið frarn að hún hafí dreift gallabuxum og doilurum í þorpi skammt frá Cluj og að dótt- ir hennar hafi sagt í útvarpsviðtali að hún væri með skerta siðferðis- kennd og ekki með öllum mjalla. „Iliescu hefur tekist eitt sem Ceau- sescu tókst ekki,“ sagði Cornea, „honum hefur tekist að espa verka- lýðinn upp á móti menntamönnum og á móti útlögum og stofnað til illinda milli Ungveija og Rúmena. Iliescu hefur tekist að sundra þjóð- inni en hún var áður sameinuð." Hún sagði að hans menn hefðu staðið að baki óeirðanna í Tirgu Mures í mars þegar 8 manns lét- ust og 300 meiddust. Þær brutust út í framhaldi af þjóðhátíðardegi Ungveija en mikill meirihluti ibúa Tirgu Mures er af ungversku bergi brotinn. Að sögn sjónarvotta óku félagsmenn úr Rúmenía Vatra- hreyfingunni, sem fyrrverandi stuðningsmenn Ceausescus stofn- uðu í janúar, um 1.000 smábænd- um til og frá borginni og gáfu þeim brennivín á leiðinni inn í bæ. Þegar þangað kom gengu þeir berserksgang með axir og barefli og hrópuðu slagorð gegn ung- verska minnihlutahópnum í Rúm- eníu. Stjórnvöld hafa enn ekki for- dæmt athæfi þeirra. Lítið einbýlishús Doinu Corneu er einfalt en heimilislegt. Hún talar frönsku og fer ekki í launkofa með skoðanir sínar nú frekar en í tíð Ceaucescus. Hún lætur lítið yfir sér, er rökföst og talar af skynsemi en ekki tilfinningahita. Og hún gefst ekki upp í baráttu sinni fyrir sönnu frelsi og lýðræði í landinu þótt hún eigi á brattann að sækja gegn klókum körlum sem hika ekki við að beita öllum ráðum til að halda völdum. Doina Cornea andófskona á heimili sínu í Cluj í Rúmeníu. Hún hik- aði ekki við að segja blaðamanni Morgunblaðsins afdráttarlausa skoð- un sina á spillingunni í Rúmeniu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.