Morgunblaðið - 01.06.1990, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.06.1990, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1990 Minninff: Flosi Gunnarsson skipstjóri - Mmning Fæddur 24. ágúst 1933 Dáinn 26. maí 1990 Hinn 26. maí sl. lést í Borg- arspítalanum mágur minn og vinur, Flosi Gunnarsson, sjómaður og út- gerðarmaður. Hetjulegri baráttu við illkynja sjúkdóm er nú lokið. Flosi fæddist á Hólmavík, sonur athafnahjónanna Jakobínu Guð- «-Áundsdóttur og Gunnars Guð- mundssonar, útgerðarmanns og skipstjóra frá Bæ á Selströnd. A Hólmavík ólst Flosi upp í glaðvær- um og samheldnum systkinahópi við leik og störf. Systkini hans voru þau Vilmundur, Guðbjörg, Mund- heiður, Hrólfur og Guðmundur. Nú er höggvið stórt skarð í hópinn þar sem Vilmundur og Flosi eru báðir gengnir á vit feðranna. Hugur Flosa og bræðranna hneigðist snemma til sjómennsku. Hann var innan við fermingu þegar hann fékk að fara á síldveiðar með föður sínum. Flosi kynntist einnig sveitastörfum er hann var ásamt Hrólfi bróður sínum hjá föðurbróður **sinum á Bæ á Selströnd í tvö sum- ur. í æsku öðlaðist Flosi góðan grunn fyrir lífsstarf sitt, sjómennsk- una, en hann var alla tíð sjómaður af lífí og sál. Árið 1972 eignaðist Flosi sinn eigin bát og var sérlega farsæll skipstjóri og vel látinn af mönnum sínum. Aðdáunarvert var hversu snyrtilega Flosi hélt bát sínum við og var öryggið ætíð í fyrirrúmi. Til marks um þetta fékk hann á síðasta sjómannadegi viðurkenningu fyrir ^§óðan öryggisbúnað og gott viðhald á bát sínum. Nú þegar Flosi hefur kvatt þenn- an heim' langt fyrir aldur fram, rifj- ast upp minningar um samveru- stundir okkar og þær eru allar bjart- ar. Fyrst kynntist ég Flosa þegar ég kom á heimili foreldra hans en þá var ég og systir hans, Mundheið- ur, í tilhugalífinu. Á öðru hjúskap- arári okkar hér í Reykjavík bjó Flosi hjá okkur hjónum en hann var þá hér við nám. Þegar Flosi hóf sinn hjúskap með fyrri eiginkonu sinni bjuggum við aftur í sambýli í Garðs- enda 11. Flosi var einstakt prúð- menni og var sérlega ánægjulegt "ð hafa náin samskipti við hann. Fæddur 5. nóvember Dáinn 26. maí 1990 Það var á fallegum sólskinsdegi að okkur var færð sú harmafrétt að Björgvin (Bjöggi eins og hann var kallaður á okkar heimili) væri dáinn. Þegar slíkar fregnir berast manni til eyrna vaknar óneitanlega sú spurning innst í hugsun manns hver sé tilgangurinn að taka burt jafn dugmikinn og góðan dreng sem er í ■T^.óma lífsins. Og fyrir hugskotsjón- um rifjast upp margar og ljúfar minningar. Það var fyrir um það bil ijórum árum að leiðir okkar lágu saman. Fyrst var það í vinnu hjá ístess og síðan á Vistheimilnu Sólborg, en þar var hann starfsmaður þegar kallið kom. Einnig áttum við margar góðar stundir í hesthúsi okkar hjóna, því hestamennskan var áhugamál Bjögga. Ef okkur vantaði aðstoð við erfið verk kom nafn hans oftast fram á varir okkar, því alltaf hafði hann ' nægan tíma til að hjálpa, og lýsir það vel hvern mann hann hafði að geyma. Daginn áður en kallið kom fórum við í gönguferð með íbúum Lítlu- hlíðar. Þegar við fengum okkur sæti í klettunum ofan við Sólborg fór hann að tala um heimilið sitt í Kringlumýrinni, og ræddi um upp- *v.axtarár sín og heimili af mikilli hlýju. Með okkur tókst vinátta sem hélst alla tíð og aldrei bar skugga á. Við áttum í gegnum tíðina sam- eiginleg áhugamál í sportveiði. Flosi var einstaklega skemmtilegur veiði- félagi og átti ég því láni að fagna að fara oft með honum á veiðar, hvort heldur með byssu eða stöng. Hann var óeigingjarn gagnvart veiðifélögum sínum og víðsfjarri honum að ganga á rétt þeirra. Um allar þær stundir á ég góðar endur- minningar sem ég deili einnig með bræðrum Flosa og svila mínum, Haraldi Ágústssyni. Flosi var einstaklega greiðvikinn og hugulssamur. Osjaldan kom hann færandi hendi með glænýjan gæðafisk og nutu dætur mínar oft einnig góðs af. Flosi bjó eiginkonu sinni, Öldu Kjartansdóttur, og börnum, fallegt heimili í Vesturbergi 53 í Reykjavík. Hann var einstaklega natinn og ástríkur heimilisfaðir og vakti óskipta aðdáun allra er til þekktu. Á síðastliðnu hausti kom í ljós að Flosi gekk ekki heill til skógar. Hann barðist hetjulegri baráttu við sjúkdóm sinn og sýndi óbilandi kjark og dugnað í veikindum sínum þar til yfir lauk. En lífið heldur áfram þó vinur sé horfinn á braut en minningarnar sem aldrei gleym- ast eru þó huggun í erli dagsins og þannig er við fráfall Flosa. Eg, eiginkona mín og fjölskylda berum fram þakkir fyrir samveru- stundir, vináttuna og drengskapinn. Við sendum Öldu, börnum, barna- börnum og ættingjum öllum okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðj- um þeim Guðs blessunar. Far þú i friði friður Guðs þig blessi, hafðu þðkk fyrir allt og allt. (V. Briem) Lýður Jónsson í nokkrum línum langar mig að minnast móðurbróður míns Flosa Gunnarssonar skipstjóra og útgerð- armanns, sem eftir nokkurra mán- aða hetjulega baráttu féll í valinn Einnig þá horfði hann fram á við og sagði frá áformum sínum, - hvað hann ætti af hestum og hvað hann ætlaði að gera við þá þegar hann færi erlendis á komandi hausti. En nú eru öll áform breytt, og það er erfitt að hugsa sér að Björgvin sé horfinn. En við erum þakklát fyrir þau kynni sem við áttum við Bjögga. Minningin um þennan góða dreng mun lifa um ókomin ár. Við sendum foreldrum og systkin- um hans okkar dýpstu samúðar- kveðjur og óskum þeim blessunar Guðs, Áslaug, Gunnar og fjölskylda Arnarsíðu 12 a. Það var hannafregn er við fréttum að Björgvin eða Bjöggi eins og við kölluðum hann væri fallinn í valinn, jafn skyndilega og á jafn sviplegan hátt, Þá vöknuðu 'spurningar, hver er tilgangurinn með því að taka frá okkur ungan og efnilegan dreng í blóma lífsins, fullan af orku og krafti. Björgvin höf störf á Sólborg í mars síðastliðnum og þó að kynni okkar af Bjögga hafi ekki verið löng þá komumst við fljótt að því hvern mann hann hafði að geyma. Bjöggi náði fljótt miklum tengslum við íbúa Litluhlíðar og tóku krakkarnir hon- um vel strax frá byrjun. Og eins var það með starfsfólkið. Með prúðmann- legri framkomu og léttu skapi heill- aði hann alla sem unnu með honum. fyrir illkynjaðasta vágesti okkar tíma, krabbameini. Flosi var einstaklega traustur sínum vinum og ættingjum. Alla tíð síðan ég var unglingur minnist ég þeirra orða er hann sagði eitt sinn við mig: „Ef þú einhvern tíma átt eftir að lenda í vandræðum, komdu þá og talaðu við frænda þinn.“ Að rekja æviferil Flosa eru aðrir fær- ari um að gera, en ekki er hægt annað en að minnast á þann mynd- arskap sem hann rak sína útgerð með. Án þess að halla á nokkurn útgerðamann held ég að þær séu teljandi á fingrum annarrar handar þær útgerðir sem jafn vel og mynd- arlega hafa verið reknar. Bátur Flosa, Guðbjörg RE-21, var smíðað- ur árið 1972 og alla tíð mikil afla- og happafleyta. Það fór ekki fram- hjá neinum sem á annað borð fylg- ist með íslenskum sjávarútvegi hversu glæsilega þessum báti var haldið við. Guðbjörg RE var t.d. fyrst reykvískra báta til að fá sér- staka viðurkenningu Siglingamála- stofnunar fyrir viðhald og öryggis- búnað. Það var á sjómannadaginn fyrir ári. Flosi var mikil aflamaður og alltaf í hópi þeirra sem sköruðu framúr í afla hér á Faxaflóasvæð- inu. En það var ekki eingöngu við fiskveiðar í sjó sem hann skaraði framúr. Ófáar eru ferðir hans í lax- veiðar og eins á skytterí á haustin. í nokkur skipti á síðustu árum varð ég þeirrar reynslu og ánægju að- njótandi að fara með í slíkar ferðir. Yfirleitt þegar ég var með vorum við fjórir, þ.e. Guðmundur bróðir Greinilegt var að hestamennskan skipaði stóran sess í lífi hans og þegar kallið kom var hann að und- irbúa ferð á Iandsmót í sumar og einnig talaði hann mikið um áform sín um að fara utan og vinna við tamningar síðar í sumar. Ófáar ferð- irnar var hann búinn að fara með krakkana á Litluhlíð í hesthúsin og leyfa þeim að skreppa á hestbak og vasast við hirðingu. Oft undruðumst við starfsfélagarnir hans hvernig hann hafði tíma til að sinna sínum hugðarefnum því ekki leið sá dagur að Bjöggi væri ekki einhversstaðar að rétta einhveijum hjálparhönd og lýsir það vel viðhorfum Bjögga til náungans. Það er erfitt að hugsa til þess að Bjöggi sé allur en eitt er víst að ef æðra og fegurra tilveru- stig er til þá fer hann Björgvin þang- að og við erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast honum. Við send- um aðstandendum dýpstu samúðar- kveðjur og óskum þeim guðsblessun- Starfsfélagar og íbúar Litluhlíðar í Sólborg. Flosa og faðir minn Haraldur Ágústsson. Það má með sanni segja að nú höfum við misst foringjann. FIosi var alltaf tilbúin til að hjálpa mér byijandanum og miðla til mín allri þeirri kunnáttu sem hann bjó yfir og það á eftir að fylgja mér alla ævi. Ef einhver þeirra veiði- ferða sem ég hef farið stendur upp- úr, þá var það fyrir þremur árum er við fórum austur fyrir Kirkjubæj- arklaustur á gæsaskytterí. Einn morguninn fórum við Flosi í sama skurðinn og þó ég væri algjör byij- andi og hafi hitt í mesta lagi 1-2 gæsir löbbuðum við til baka með sautján stykki og alla tíð síðan tal- aði Flosi um að ég hefði átt hérum- bil helminginn. Oft ræddum við um þennan morgun og alltaf minntist hann á hvað mér hefði tekist vel upp. Minhingarnar um hann í þess- um ferðum eru og verða mér ógleymanlegar. Einn fastur punkt- ur var í þessum ferðum, og það var ávallt fyrsta kvöldið þegar Flosi tók upp nestið sitt og sýndi okkur og leyfði okkur að smakka kökurnar sem dætur hans tvær sem búa heima höfðu bakað fyrir veiðiferð- ina. Það var stoltur faðir sem ljóm- aði allur þegar hann minntist á þær Rósu Dögg og Önnu Lilju og hvað þær voru alltaf að gera fyrir pabba sinn. Flosi átti tvö börn frá fyrra hjónabandi, þau Guðmund og Jak- obínu, og alla tíð var samband hans við þau eins og best varð á kosið. Elsku Alda, Rósa Dögg, Anna Lilja, Guðmundur og Jakobína, frá okkur hjónunum færi ég ykkur okk- ar innilegustu samúðarkveðjur, því vissulega er missir ykkar mikill og við biðjum guð að styrkja ykkur og ég veit það að amma og afi og Villi frændi taka vel á móti Flosa. Rabbi í dag fer fram frá Fella- og Hólakirkju útför Flosa Gunnarsson- ar, er lést í Borgarspítalanum 26. maí sl. eftir erfiða baráttu við krabbamein. Dauðinn er líkn eftir miklar þján- ingar en erfitt reynist oft eftirlif- endum að skilja að einmitt sá sem þeim þykir vænst um skuli frá þeim tekinn á svo óvæginn hátt. En ör- magna líkami þráir hvíld og verður það lífsviljanum sterkara og því gengið á vit feðra sinna sáttari við örlögin. Flosi var fæddur og uppalinn á Hólmavík, sonur hjónanna Jakobínu Guðmundsdóttur og Gunnars Guð- mundssonar útgerðarmanns frá Bæ Fæddur 18. janúar 1989 Dáinn 26. maí 1990 Þegar sólin kemur upp að morgni björt og fögur, vitum að hún á eftir að ganga til viðar að kvöldi. Allt frá því að Hákon litli leit hér dagsins ljós, var hann sannkallaður gleðigjafi og sólar- geisli öllum þeim sem fengu að umgangast hann. Minningarnar um hann eru sérstaklega bjartar, og það er mikið þakkarefni að eiga þær. Hitt er ekki síður dýrmætt að eiga litla drenginn áfram og vita hann í öruggum höndum. Ávallt er hægt að hugsa til hans, biðja honum blessunar guðs og óska honum alls hins besta. Það er skammt á milli heimanna og ómetanlegt að vita litla ljúflinginn nærri sér. Elsku Dísa, Leifur, Hildur, Ól- öf, Sæmundur litli og ástvinir. Guð gefi ykkur styrk til að bera þessa þungu sorg og Guð blessi líka litla drenginn ykkar og láti engla sína leiða hann og leika við hann. Samúðarkveðjur, Hera K. Óðinsdóttir, Guðrún M. Sigurðardótt- ir. á Selströnd. Eru þau bæði látin. Systkini Flosa, Guðbjörg, Mundeið- ur, Hrólfur og Guðmundur sjá nú á eftir öðrum bróður sínum, en Vil- mundur Ingimarsson hálfbróðir þeirra lést árið 1985. Flosi lauk landsprófi frá Reykja- skóla árið 1949. Ungur fór hann til Reykjavíkur og vann þar við ýmis störf. Hann var m.a. lærður síldarmatsmaður. Tilviljun hefur ef til vill ráðið ævistarfi Flosa, en hann hafði mikinn áhuga á flugi og fór til Kanada í flugnám. Það varð þó ekki hans hlutskipti að sigla um loftin blá heldur verða einn af okk- ar ágætustu fiskimönnum. Eigin útgerð hóf Flosi árið 1972 þegar hann keypti Guðbjörgu Re 21. Áður hafði hann verið nokkur ár til sjós, enda sjómennskan honum í blóð borin og farsæld og fengisælni fylgt bræðrunum. Varla hefur það komið nokkrum manni á óvart, sem til þekktu, að Flosi skyldi fá viðurkenningu Sigl- ingamálastofnunar fyrir snyrti- mennsku og öryggisbúnað um borð. Auðvelt var að koma auga á Guð- björgina í bátakösinni úti á Granda, því svo vel var að viðhaldi staðið. Áreiðanleiki einkenndi öll hans við- skipti og uppskeran eftir því, enda kappsmál hans að búa sem best í haginn fyrir fjölskylduna. Flosi var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Margrét Helga Jóhanns- dóttir og eignuðust þau tvö börn, Guðmund Örn f. 1961, sem lengi hefur stundað sjóinn með föður sínum, og Jakobínu f. 1962, gift Mikael Nordal, búsett og við nám í Danmörku. Barnabörnin eru fjög- ur. Síðari kona Flosa var Alda Kjart- ansdóttir. Tvær dætur þeirra, Ánna Lilja og Rósa Dögg, eru enn á ungl- ingsaldri. Sonur Öldu, Benedikt Franklínsson, ólst einnig upp á heimili þeirra hjóna. Á síðasta ári ákvað Flosi að fara í land og fá þannig meiri tíma fyr- ir sig og sína, enda áhugamálin mörg og margt ógert. Góðir tímar virtust framundan. En enn einu sinni erum við minnt á að ekki er allt sjálfgefið í heimi.hér. Flosi var yfirlætislaus og flíkaði ekki tilfinningum sínum, en skelin var ekki hörð þegar á reyndi og áttum við oft góðar stundir saman. Umhyggja hans fyrir afkomendum var mikil og verður það þeirra hlut- verk að Iáta framtíðarvonir hans þeim til handa rætast. Efniviðurinn er góður, enda af traustum og góð- um stofni. Aðstandendum Flosa sendir fjöl- skyldan hlýjar samúðarkveðjur. Theodóra Þ. Kristinsdóttir Þegar sorgin kemur svo skyndi- lega og fyrirvaralaust, verður allt dimmara og kaldara. Hugurinn fyllist spurningum, sem við kunn- um engin svör við. Öll kveðjum við að leiðarlokum, sumir hafa stutta dvöl hér á jörð, aðrir langa, en allir skilja eftir sig minningar. Þegar lítil börn kveðja okkur eru minningarnar um þau ljósgeislar sem ylja þegar við rifjum þær upp. Hákon litli Marteinn skildi eftir sig marga slíka geisla þótt dvöl hans væri stutt meðal okkar. Hann lauk lífsgöngu sinni án þess að heimurinn setti neiná bletti á barnssálina hans. Elsku Dísa, Leifur, Hildur, Ól- öf, Sæmundur og aðrir aðstand- endur. Eg vona að Guð gefi ykkur styrk í sorg ykkar. Hví var þessi beður búinn, barnið kæra, þér svo skjótt? Svar af himni heyrir trúin hljóma gegnum dauðans nótt. Það er kveðjan: Kom til mín. Kristur tók þig heim til sín. Þú ert blessuð hans í höndum. Hólpin sál með Jjóssins öndum. (Björn Halldórsson) Minning: Björgvin V. Finnsson Hákon M. Leifs- son - Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.