Morgunblaðið - 01.06.1990, Síða 35

Morgunblaðið - 01.06.1990, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1990 35 Minniiiff: Hólmíríður Jóns- dóttirfrá Skagnesi Ég get verið þíðan þín þegar allt er frosið því sólin hún er systir mín sagði litla brosið. pf ókj Fríða mín dáin, getur það átt sér stað, hún sem var hress og kát degi áður og við töluðum um svo margt þegar hún hringdi til mín á mánu- dagskvöldið. Ekki datt mér í hug að þetta yrði okkar síðasta samtal. Fríða hét fullu nafni Jóhanna Hólmfríður og var fædd 27. janúar 1901. Hún var dóttir hjónanna Sigríðar og Jóns Jónssonar á Skagnesi, Mýrdal. Fríða var ein af 12 börnum þeirra sæmdar- hjóna. Fríða var ekki bara góð kona heldur líka mjög glæsileg. Fríða var vinnusöm og velvirk og ótalmörg eru heimilin sem skarta útsaumnum hennar, og sá listamaður sem væri með sýningu mundi ekki vorkenna sér sem ætti jafnmarga og fallega muni og hún Fríða mín hefur saum- að um dagana. Fríða var einfær um að sjá um sig til hinstu stundar, og hún hugsaði svo mikið um að borða hollan og góðan mat sem hún eldaði alltaf sjálf. Núna þegar Fríða mín er farin þá hætta laugardagsferðinar hjá okkur mömmu og Heiðu í Norður- brúnina, svo það verður ansi tómlegt hjá okkur á laugardögum því þeir Fædd 21. apríl 1927 Dáin 23. maí 1990 Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Sorgin er sár, en öll él birta upp um síðir og þá eigum við öll eftir minningar um góða móður, tengda- móður, ömmu og langömmu. Og þær minningar ætla ég að geyma í hjarta mínu og sækja þang- að styrk þegar mér og mínum líður illa. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Ég votta tengdapabba, Pétri, Lindu, Steinu og Jónu samúð mína. Einnig Elínborgu frænku, Helgu og Jónínu ömmu í Vestmannaeyjum, og kveð tengdamóður mína með hjart- ans þökk fyrir allt. Ég bið henni blessunar Guðs. Svana Sú var tíðin að ungir menn af Suðurlandi sóttu til sjóar þegar þeir höfðu þrek og aldur til, og einn- ig til að afla sér fjár og frama. Svo var einnig um unga menn af Stokkseyri, þó það 'væri útgerð- hafa alltaf verið bókaðir í Norður- brún. Ég hef mikið að þakka því Fríða var mér svo mikið meira en bara venjuleg frænka svo einstaklega umhyggjusöm og góð, og gaman- semina hafði hún í ríkum mæli. Mig langar að þakka öllu því góða fólki sem veittu henni félagsskap og vin- áttu, og bið góðan guð að varðveita og geyma mína góðu frænku, og gefa okkur öllum styrk til að horfast í augu við það eina sem allir eiga víst. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ijósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll bömin þín, svo blundi rótt. (Matth. Jochumsson) Þess biður Sigga Þegar mér barst sú sorgarfregn að hún Fríða systir mín væri dáin, að hún hefði hnigið niður þar sem hún stóð og látist nær samstundis, var dauðinn mér visulega fjarlægt umhugsunarefni. Ekki datt mér í hug síðast er ég hitti hana að ég ætti aldrei eftir að sjá hana á lífi. En hversu skammt sér maður ekki. Það að hitta hana Fríðu systur fannst arstaður, og kannski var ráðið í öll skipsrúm, og það voru margir sem sóttu til Vestmannaeyja, og þar á meðal var Guðbjartur bróðir minn. Og þó sjórinn væri sóttur af kappi gafst nokkur tími til að kynnast fólkinu í landi. Og ungu mennirnir sem kornu af sjónum og ungu stúlk- urnar í landi áttu með sér fundi sem urðu að samböndum sem entust misjafnlega lengi og sum þeirra entust ævilangt. Þar kynntist Guð- bjartur ungri stúlku, Elínu Olafs- dóttur, og þeirra kynni entust með- an bæði lifðu. Þau hófu búskap í Vestmannaeyjum en fluttu síðan til Reykjavíkur og byggðu ser ból við Akurgerði, og bjuggu þar æ síðan. Þeim varð fjögurra barna auðið sem öll hafa fest ráð sitt og afkomenda- hópurinn er orðinn allstór. En nú er Elín fallin í valinn og ekki var það Elli kerling sem var þar að verki heldur sá sjúkdómur sem svo margir hafa fallið fyrir jafnvel á besta aldri. Ég gat ekki látið hjá líða að minnast þessarar mágkonu minnar fyrir margra hluta sakir. Hún var verðugur fulltrúi þeirra sem lifðu mikla breytingatíma í íslensku þjóð- félagi, kreppuárin, stríðsárin og árin eftir stríð sem komu svo miklu róti á þetta þjóðfélag. En Elín var föst fyrir og lét alla þessa strauma fram hjá sér fara án þess að hrífast ,með og byggði ásamt manni sínum traust heimili þar sem allir áttu athvarf og ekki síst litla fólkið. Annars kynntumst við nokkuð seint eða ekki að marki fyrr en ég var fluttur til Stokkseyrar og þau Elín og Guðbjartur dvöldu gjarnan mér svo nauðsynlegt atriði í lífi mínu, að ég gæti ekki án þess verið. Nú stendur þar eftir óuppfyllt tómarúm. Kannske finnur maður það aldrei betur en við ástvinamissi hve eigin- gjarn maður er. Maður hefur misst það sem gaf lífi manns fyllingu og gleði. Eftir langa ævi og samveru- stundir með þessari elskulegu systur er margs að minnast og margt að þakka sem ekki verður rakið hér. Mikilhæf og góð kona er horfin af þessu tilverustigi, starfandi fram á síðasta dag. Þess hafði hún líka óskað, að lifa það ekki að verða ósjálfbjarga. Hún Fríða mín óttaðist víst ekki dauðann, ég held að hún hafí litið á hann sem fæðingu inn í aðra veröld, æðri og betri þeim stríðshijáða heimi sem við lifum í hér. Góður guð launi minni elskulegu á sumrin meira og minna á Ölafs- völlum þar sem foreldrar okkar bjuggu áður, fyrr var vík á milli vina. Við nánari kynni varð mér ljóst að þar fór mannkosta manneskja sem lítið lét á sér bera en þeim mun traustari sem meira reyndi á. En nú er Elín horfin yfir móðuna miklu, hennar er sárt saknað af ættingjum og vinum, en enginn má sköpum reniia. Klukka tímans tifar og tíminn líður áfram en minningin lifir, minningin um traustan stofn í litlu samfélagi í Akurgerði 35. Blessuð sé minning hennar. Steindór Guðmundsson Kveðja til ömmu og langömmu Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesú þér ég sendi, bæn frá rnínu bijósti sjáðu, bliði Jesú að mér gáðu. (Asmundur Eiríksson) Þakklæti fyrir allt og allt. Barnabörn og barnabarnabörn Minning: Elín Ólafsdóttir systur öll árin sem við áttum saman. Guð blessi hana og varðveiti. Heiða Ver hjá mér Drottinn þegar dagur dvín er dirnnia ógnar hrópa ég til þín og þegar jarðnesk hjálp og huggun þver þú hjálpin allra vertu þá hjá mér. (Jónas Þorbergsson) Hún Hólmfríður vinkona mín er dáin. Já, það var snögglega klippt á þráðinn, tök örfáar mínútur að fara á milli heimanna. Hólmfríður fór á miskúffan var þegar við börnin komum í heimsókn og alltaf fengum við nokkra mola með í nesti, og sagan endurtók sig með okkar börn. Fríða frænka var einstaklega myndarleg kona, það var allt svo fallegt sem hún saumaði og var það allt úttalið. Öll eigum við fallega muni sem Fríða frænka saumaði og gaf okkur á liðnum árum. Fríðu frænku verður sárt saknað af ætt- ingjum og vinum. Guð blessi og varðveiti elsku Fríðu frænku. Eyjólfur, Ólöf, Aðalheiður, Jóhanna, Jón Hlynur og fjölskyldur. hárgreiðslustofu um mprguninn og um leið í verslunarferð. Ég hitti hana er hún kom þaðan, fór með henni inn til hennar og var þar um stund. Ég ætlaði í jarðarför og lofaði henni að koma til liennar er ég kæmi til baka. Þetta voru síðustu fundir okkar því þegar ég kom til baka var hún dáin. Þessi elskulega vinkona mín var oft búin að óska þess að hún fengi að deyja í vistarveru sinni í Norðurbrún 1, þar leið henni vel og þar sem aldur- inn var orðinn 89 ár, vissi hún að hver dagur gat orðið sá síðasti og töluðum við oft um umskiptin. Hólmfríður var stórbrotin per- sónuleiki, ekki allra en ákaflega tiygg og vinaföst, hún var sannur vinur vina sinna. Hólmfríður giftist aldrei, hún vann úti, ýmist við saumaskap eða á veitingastöðum og um 20 ára skeið hjá Síld og fiski, hjá Þorvaldi sem hún dáði alltaf sem góðan húsbónda, þar var hún smur- brauðsdama og fórst það vel úr hendi, eins og allt það sem hún snerti á var tii sóma. Hún var gest- risin með afbrigðum og hún var í essinu sínu er hún útbjó sínar fínu snittur handa vinum og vandamönn- um og kunni að taka á móti gestum. Hólmfríður ólst upp í stórum systkinahóp, þau voru 12 fædd en 10 komust upp og af þeim eru 4 eftir, 2 bræður og systur hennar Ólöf og Aðalheiður, sem ásamt Sigríði dóttur Ólafar komu til hennar á hveijum laugardegi, og þá var hátíð hjá Hólmfríði, þetta var hennar fjölskylda og svo voru það börn Sigríðar sem henni þótti svo undur vænt um og fékk að fylgjast með þeim og þeirra börnum sem komið var með til hennar og þannig fylgd- ist hún með öllum í fjölskyldunni, það var henni svo gott og hugsunar- samt. Hólmfríði þótti svo vænt um þetta fólk. Og öllu þessu fólki sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðj- ur og bið Guð að vera því öllu hjálp og stoð. Mína góðu vinkonu kveð ég með þakklæti fyrir allt sem hún var mér og Guð blessi hana í nýjum heim- kynnum. Svo þegar loksins leggst ég hvíldar til og líf og starf og frændur við ég skil og þegar ljós ey lengur augað sér þú líknin allra vertu þá hjá mér. (J.Þ.) Elísabet Helgadóttir „Þegar þú ert sorgmædd, skoð- aðu þá aftur huga þinn og þú munt, sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (Úr Spámanninum.) Þessi orð koma í huga okkar núna þegar við kveðjum Fríðu frænku. Hún Fríða frænka var orð- in öldruð, en samt fannst okkur að við ættum eftir góðar stundir með henni þegar hún snögglega var kölluð yfír móðuna miklu. Fríða frænka átti ómælda ást og um- hyggju handa okkur systkinunum, börnum okkar og fjölskyldum, og hún gladdist í hvert sinn er bættist lítið barn í hópinn. Áhugi hennar til að gleðja litlar frænkur og frændur entist henni fram á síðasta dag. Alltaf vissum við hvar nam- Ég ætla með nokkrum orðum að kveðja eiskulega systur mína. Elsku Fríða mín var miklum kostuin búin, hún las mikið og hafði yndi af bók- um. Hún var eftirsótt til starfa og starfsorkan mikil. Lengst starfaði hún í Síld og físk, eða full 20 ár og þá um 80 ára gömul. Þaðan átti hún íjúfar minningar og skemmtilegar, bæði með starfsfólki og húsbændum. Hún dáði þau hjón og þótti vænt um þau. Þjóðmál voru ekki það skemmti- legasta sem hún gat talað um, en henni var ekki sama um þessi mál. Hún fann sárt til, það fór sífellt minna fyrir réttlætinu. En yfirgangs- semi og tillitsleysið breiddi úr sér. En hvað er þetta. Ég gæti næstum því trúað að þetta væri ósjálfráð skrift, því um Jietta ætlaði ég alls ekki að skrifa. Eg þakka elsku Fríðu minni fyrir alla samfylgd, allan þann kærleik og umhyggju sem hún hefur sýnt mér og mínum. Kærleika í sorg og gleði. Þessi mikilhæfa, glæsilega kona var mikil hetja í sínu lífi, með reisn og kærleika til atls sem lifir. Nú veit ég, að vinir hafa beðið í varpa, því von var á gesti. Almáttug- ur guð umvefji Fríðu mína ljósi og dýrð himinsins á hinum ýmsu braut- um. Guð blessi og styrki hana og alla elsku vinina sem á undan henni eru famir í guðs friði. Ola systir 22. maí sl. lést föðursystir okkar, Hólmfríður Jónsdóttir frá Skagnesi í Mýrdal, að heimili sínu, Norðurbrún 1 í Reykjavík. Þar með lauk nær- fellt níutíu ára starfsamri ævi. Hún frænka okkar var af þeirri kynslóð sem gjarna fann metnaði sínum farveg í vel unnu starfi og trúmennsku í hveiju því sem hún tók sér fyrir hendur. Blessun starfsgleð- innar fylgdi henni til hinstu stundar og allt sem hún vann bar fagurkeran- um vitni, hvort sem hún bauð fólki sínu til veisluborðs eða skapaði þá muni af næmleika og smekkvísi huga og handar sem síðan prýddu heimili ættingja hennar og vina. Háöldmð hélt hún áfram að taka á móti þeim, glöð og gestrisin. Henni lét það svo vel að veita öðmm. Hún var traustur vinur vina sinna. Það sannaðist best á þeirri hlýju ræktarsemi sem hún sýndi systur okkar sem áratugum saman hefur búið erlendis. Veraldarauð átti hún af skomum skammti en samt tókst henni furðu oft að reynast bróður- dwætrum sínum ómetanleg hjálpar- hella á tímum þegar ekki var sjálf- sagt að unglingar öðluðust allt það sem hugur þeirra stóð til. Nú hefur hún gengið leiðina á enda. Guð var henni náðugur, henni auðnaðist að halda reisn sinni allt til æviloka. Glaðvær og hjartahlý sæmdarkona er hér kvödd með ást og virðingu og hjartans þakklæti fyrir alla tryggðina. Sé hún Guði falin. Ásta, Hrefna, Guðný, Sísí og Haddý. REYNSLA - RAÐGJOF - ÞJONUSTA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.