Morgunblaðið - 01.06.1990, Side 46

Morgunblaðið - 01.06.1990, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1990 knattspymu hefur ekki tapað í síðustu sex leikjum. í fyrrakvöld vann liðið Hollendinga 3:2, eftir að hafa komjst í 3:0. Austurríki er í riðli með Italíu, Tékkóslóvakíu og Bandaríkjunum á HM. ■ JOAO Havelange, forseti al- þjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, sagði í gær að hann væri hættur við að leggja fram tillögu um að leiktíminn á HM 1994 yrðir 4x25 mínútur. Hann vill samt halda málinu gangandi með framtíðina í huga. ■ ÍTALIR hafa aðeins gert tvö mörk í síðustu sjö landsleikjum. Þeir gerðu markalaust jafntefli við Grikki í fyrrakvöld. - ■ DÓMARAR á HM, sem vísa leikmönnum ekki af velli fyrir gróf brot, verða umsvifalaust sendir heim. r ■ ASTON Villa hefur ákveðið að gefa enska knattspyrnusamband- inu grænt ljós á viðræður við Gra- ham Taylor vegna þjálfarastöðu landsliðsins. Taylor á eftir ár af samningi sínum við Villa. ÚRSLTT Nokkrir vináttu- og æfingalcikir hafa verið leiknir á miðvikudag og í gær: Perugia, Ítalíu. Ítalía — Grikkland..................0:0 Áhorfendur: 20.000. Gelsenkirchen, V-Þýskalandi. Vestur-Þýskaland — Danmörk..........1:0 Rudi Völler (37. mfn.). Áhorfendur: 42.000. Vín, Austurriki. Austurríki — Holland................3:2 Robert Pecl (6. mín.), Manfred Zsak (46.) og Anton Pfeffer (48.) - Ronald Koeman (60.) og Marco van Basten (82.). Áhorfendur:48.000. Eschen, Lichtenstein. Lichtenstein — Bandaríkin............1:4 Hans Marxer (11.) - Peter Vermes (10.), Marcelo Balboa (53.), Eric Wynalda (66.) og Chris Henderson (75.) Ahorfendur: 2.400. Coverciano, ttalíu. Ítalía - Empoli......................6:0 Aldo Serena (25. vftasp.), Nicola Berti (38.), Andrea Camevale 4 (51., 62., 68., 73.). Leikið var gegn unglingaliði Empoli. Sviss Grasshoppers — Lugano.............3:0 Lausanne — Luzern.................3:0 Neuchatel Xamax — Sion............1:0 Lokastaðan: ”!SBrasshoppers...... 14 9 0 5 28:15 31 Lausanne............14 7 6 1 23: 9 31 Neuchatel.......... 14 5 6 3 18:14 30 Luzern............. 14 6 4 4 20:22 28 StGallen........... 14 4 5 5 19:15 27 Lugano..............14 4 4 6 11:23 23 YoungBoys...........14 2 6 6 11:20 21 Sion............. 14 1 5 8 10:22 19 KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN DetroithéK Jordan niðri Meistararnir náðu afturforustu, 3:2 „ÉG er ánægður með leik minna manna, en við getum leikið betur,“ sagði Chuck Daly, þjálfari Detroit Pistons, eftir aðfélagið hafði unnið Chicago Bulls á heimavelli, 97:83, f fimmta leik liðanna í úrslita- keppninni á austurströndinni. Meistarar Detroit eru nú yfir, 3:2. Eeftir tvo slæma leiki í Chicago vöknuðu meistaramir til lífsins og fóru heldur betur í gang í fjórða leikhlutanum. Þeir náðu þá sex HBHI stiga forskoti og Frá _ síðan nýttu þeir sér Gunnari að Jordan var tekinn Valgeirssyni af leikvelli í þriár iBandaríkjunum mfn þ. gkoruJðu þeir ellefu stig gegn tveimur stigum gestanna og náðu fímmtán stiga forskoti. Eftir það var aldrei spurn- ing um hvar sigurinn lenti. Leikmenn Detroit höfðu góðar gætur á Jordan, sem skoraði aðeins sjö stig í fyrri hálfleik, en alls 22 stig í leiknum. Þess má geta að hann skoraði samtals 89 stig í tveimur leikjum í Chicago, en þar mætast liðin í sjötta leiknum í kvöld. Mark Aguirre átti frábæran leik með meisturunum og skoraði 19 stig. Þar af skoraði hann þrettán í fjórða leikhluta. Joe Dumars skor- aði 20 stig. Þess má geta að heimalið hafa unnið 80% af leikjum sínum á heimavelli í úrslitakeppninni í ár. Það er hæðsta vinningshlutfall á heimavellf í úrslitakeppninnio frá því 1964. í úrsliitaleikjunum á aust- ur- og vesturströndinni hafa heimaliðin alltaf unnið. Boston Celtic er nú að leika af nýjum þjálfara. Þrír hafa verið nefndir. Christ Ford og háskóla- þjálfaramir John Thompson og Mike Krzyzewski, sem er þjálfar í Duke, en hann er þjálfari banda- ríska landsliðsins sem keppir á Frið- arleikunum í Seattle. Mark Aguirre átti góðan leik með meisturunum KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN Brown ekki með Argentínumönnum Meistararnir mæta með öflugan hóp til Ítalíu Maradona ætlar að sýna hver er bestur. CARLOS Bilardo, landsliðs- þjálfari heimsmeistarana fá Argentínu, valdi varnarleik- manninn Jose Luis Brown ekki í landsliðshóp sinn, sem á að vera heimsmeistaratitlinn á ít- alíu. Brown, sem skoraði fyrsta markið, 3:2, í úrslitaleiknum gegn V-Þýskalandi í Mexikó 1986. Hann hefur átt við meiðsli að stríða á fæti og er ekki orðinn góður. Aannar kappi, sem var í meist- araliðinu 1986, hinn 34 ára Jorge Valdano, féll einnig á læknis- prófí og mun ekki leika á Ítalíu. Aftur á móti verður Ricardo Giusti, miðvallarspilari með, en hann hefur átt við meiðsli að stríða. Nokkrir nýir leikmenn eru ? landsliðshópi Argentínu. Þar má nefna vamarleikmennina Jose Serrizuela, River Plate og Juan Simon frá Boca Juniors. Jorge Burmchaga frá Nantes, sem skoraði sigurmarkið gegn V- Þýskalandi í Mexikó, er með þrátt fyrir að hafa verið meira og minna meiddur sl. þrjú keppnistímabil. Landsliðshópur Argentínu er skipaður mörgum sterkum leik- mönnum. Margir þeirra leika með félagsliðum í Evrópu: Mtirkverðir: Nery Pumpido (Betis, Spáni), Sergio Goycochea (Millonarios, Kól- umbíu), Fabian Cancelarich (Ferro Carril Oeste). Varnarleikmenn: Nestor Fabbri (Racing Club), Oscar Ruggeri (Real Madrid), Ro- berto Sensini (Udinese, Italíu), Pedro Monz- on (Independiente), Juan Simon (Boca Juni- ors), Julio Olarticoechea (Racing Club), Jose Serrizuela (River Plate), Nestor Lorenzo (Bari, Italiu), Edgardo Bauza (Vera Cruz, Mexikó). Miðvallarspilarar: Jose Basualdo (Stuttgart), Sergio Batista (River Plate), Jorge Burruchaga (Nantes), Ricardo Giusti (Independiente), Diego Maradona (Napolí), Pedro Troglio (Lazio, Italy). Sóknarleikmenn: Abel Balbo (Udinese, Italíu), Claudio Caniggia (Atalanta, Italíu), Gustavo Dezotti (Cremonese, Italfu), Gabri- el Calderon (París St. Germain).* HM ’90 - VERD Mark 20“ sjónvarp FUNGI myndbandstæki 9 Fjarstýring 9 Gæðastimpilinn „HQ“ • Sjálfleitari • 34.500,- stgr. 69.425,- stgr. Fjarstýring Sjálfleitari Hátalari að framan 44.500,- stgr. eða saman í pakka á Vörumarkaðurinn Sími 685440 HLJSA SMIOJAIM Sími 687700 Leiðrétting Brynjar Valdimarsson varð Is- landsmeistari í knattborðsleik, eins og greint var frá á þriðjudaginn. Hann sigraði Jónas P. Erlingsson í úrslitaleik, en sú villa slæddist inn í frásögnina að Jónas hefði sigrað í tvíliðaleik ásamt Tryggva Erlings- syni. Það er ekki rétt. Það var Brynjar sem sigraði einnig í tvíliða- leik, ásamt Tryggva, og varð stiga- hæsti knattborðsleikari vetrarins. Beðist er velvirðingar á þessum mistökunum. Hörkuleikur í 3. deild Haukat — Þróttur N. í kvöld kl. 20.00 á Hvaleyrarholtsvelli. 50 fyrstu gestirnir fá stjörnupopp. Hvalur hf. Afram Haukar áfram Haukar í kvöld Fimm leikir verða leiknir í 2. deildarkeppninni í knattspyrnu í kvöld kl. 20. Víðir - KS, UBK - Grindavík, Tindastóll - ÍR, Fylk- ir - Leiftur og Selfoss - Keflavík. Á sama tíma verða leiknir fjórir leikir í 3. deild: Þróttur R. - Einheiji, Haukar - Þróttur Nes., BÍ - Dalvík og Völsungur - TBA. í fjórðu deild leika: Augnablik - Hafnir og Árvakur - HK. FH leikur gegn Þór í 1. deild kvenna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.