Morgunblaðið - 24.07.1990, Síða 40

Morgunblaðið - 24.07.1990, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JULI 1990 fclk í fréttum SALTFISKVIKA SÍF veitir viðurkenningii fyrir þátttöku SÍF, sem stóð fyrir saltfiskviku um viðurkenningu þeim aðilum fyrir nokkru, veitti á dögun- sem tóku þátt í átakinu. Kjörorð vikunnar var „Saltfiskur er sæl- gæti“ og svo virðist sem lands- menn hafí samsinnt því, þar sem mikil aukning varð á sölu saltfisks þessa daga. Á meðfylgjandi mynd eru f.v.: Dagbjartur Einarsspn, stjórnarformaður SÍF, Siguijón Ásgeirsson, Miklagarði, Páll Einarsson, Munanuni í Vestmannaeyjum, Úlfar Eysteinsson, Þremur frökkum, Rúnar Marvinsson, Við tjörnina, Sófus Sjgurðsson, Hagkaupi, Diðrik Ólafsson, Múiakaffi, Sveinbjörn Friðjónsson, Hótel Sögu, og Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri SÍF. Einnig fengu Naustið, Lauga-ás og veitingahús á Akureyri viðurkenningu. ABTOÐARFTOG Geirþrúður lýkur þjálf- un á Páli Sveinssyni A Iflugsveit sjálfboðaliða flugmanna, sem fljúga áburðarvél inni Páli Sveinssyni, er kominn fyrsti kvenmaðurinn, Geirþrúður Alfreðsdóttir. Hún hefur síðastliðið ár verið flugmaður á Fokker-vélum Flugleiða. Það þarf sérstaka þjálfun og kunnáttu til að fljúga áburðarvélinni. Það er ekki nóg að kunna að flugtæknina heldur þarf einnig að læra að dreifa áburðinum, þannig að hann falli á rétta staði og ekki utan girðingar, eins og þar stendur. Er Geirþrúður nú að ljúka þessari þjálfun. Hið árlega áburðarflug með Páli Sveinssyni stendur yfir og er nú flogið frá Húsavíkurflugvelli og mest dreift í girðingar landgræðslunnar, en einnig fyrir nokkur sveitarfélög í sýslunni. Stefán Sigfússon stjórnar áburðardreifingunni eins og áður og segir að dreift verði nú 230 tonnum eða 20 tonnum minna en síðastliðið ár. „Árangur af þessari dreifingu er góður, en við þyrftum að hafa meira magn til að dreifa.“ Hann lýsti ánægju sinni með nýja flugmanninn og Geirþrúður sagði: „Þetta er dálítið frábrugðið öðru flugi en mjög skemmtilegt." Morgunblaðið/Silli Flugstjórarnir Páll Stefánsson og Hafsteinn Heiðars^pn sem þjálfað hafa Geirþrúði í áburðardreifingu. BJARKARLUNDUR Hótelið stendur fyrir sínu Bjarkarlundur hefir um fjölda ára gegnt mikilvægu hlutverki í ferðaþjón- ustu landsmanna. Fyrir utan hversu fagurt umhverfið, er þá er líka svo margt annað sem laðar ferðamanninn að. Aðalsteinn Friðfinnsson, stjórnar rekstrinum og vinnur við hann ásamt konu sinni, Elsu Fanney Pétursdóttur, og dótturinni Önnu Jóný, sem er lærð matreiðslukona. I Bjarkarlundi er hægt að veita húsaskjól mörgu fólki og rúmgóður er matsalurinn. Gestur hf. er eigandi þessa fyrirtækis. Aðalsteinn segir að það sem af er sumri hafi allt gengið að óskum og jafnvel vonum framar. Ferðahópar. komi, bæði innlendir og erlendir, og þyki sér vænt um hversu vel sé metin sú þjónusta sem látin er í té og þess vegna horfir hann bjartsýnn fram á veginn. Þetta er virkilega góður staður og það er alltaf gaman og gagn að fást við ný verkefni, sagði Aðalsteinn að lokum. - Árni COSPER Morgunblaðið/- pþ Hópurinn í leiktækjasamstæðunni ásamt starfsfólki, Guðrúnu, Mundu, Sóleyju, Dæju, Svenna, Birnu, Geira og Brynju. HEIÐARSKOLI Sumarhópar af ýmsu tagi Sumarbúðir Reykjavíkurprófastsdæmis eru í Heiðarskóla í Leirársveit og þar geta 40 börn dvalið í 12 daga í senn á aldrinum 6-9 ára og 9-12 ára. Margs konar hópa geta börnin valið sér, svo sem myndbandahóp, leikritahóp, blaðahóp, útvarpsþáttahóp, og garpahóp, sem fer í fjallgöngur, og veður í drullu í skurðum og lækjum. Eins og í flestum sumarbúðum skipa íþróttir veglegan sess og íþróttahátíð er í hveijum flokki. Þá má ekki gleyma hæfileikakeppninni. Sá sem síðast vann hæfileikakeppnina var með gítar og söng Eitt lag enn. Þegar gott er veður, er farið í fjallgöngur upp í Skarðsheiði, og haft með sér nesti. Stundum er kveiktur varðeldur og glóðarsteikt yfir honum. Svo eru það kvöldvökumar, þar sem afrakstur leikritahópsins kemur fram, auk þess sem mikið er sungið. Fræðslustundir eru á hveijum degi í grundvallaratriðum kristindómsins. Heiðarskóli býr svo vel að hafa sundlaug, og er hún notuð á hverjum degi. Að lokinni dvöl fá börnin viðurkenn- ingarskjal fyrir þátttöku í íþróttum, fyrir snyrtilegasta herbergið og annað álíka. - pþ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.