Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JULÍ 1990
47
Veitingahúsið Tunglið
svipt skemmtanaleyfi
Virti sviptingu vínveitingaleyfís að vettugi
SKEMMTANA— og vínveitingaleyfi veitingahússins Tunglsins var um
helgina afturkallað, og gestum staðarins vísað úr húsinu. Vínveitinga-
leyfið missti veitingahúsið á föstudag af þeirri ástæðu að Heilbrigðiseft-
irlit rikisins var ósátt við ástand hússins, og Matsnefnd vínveitinga-
húsa taldi staðinn ekki hafa uppfyllt þau skilyrði sem hún hafði áður
sett fyrir leyfisveitingunni. Skemmtanaleyfið missti Tunglið síðan á
laugardag, þegar áfengi hafði verið veitt í húsinu á fostudagskvöld,
þrátt fyrir að það hefði þá ekki vínveitingaleyfi.
Að sögn Signýar Sen deildarlög-
fræðings hjá Lögreglustjóraembætt-
inu í Reykjavík var húsinu í vor veitt
vínveitingaleyfi til bráðabirgða, gegn
því að framkvæmdar yrðu vissar
breytingar innan tiltekins frests. Á
fimmtudag barst lögregluembættinu
síðan skýrsla Heilbrigðiseftirlitsins,
sem heimsótt hafði húsið og lokað
því, vegna „sóðaskapar og almenns
ófremdarástands" í húsinu. Það
leyfði þó tónleikahald í húsinu á
fimmtudag, föstudag og laugardag,
enda yrði ekki veitt vín á staðnum.
Á föstudag barst embættinu umsögn
Matsnefndar vínveitingahúsa, sem
taldi fyrrnefnd skilyrði ekki hafa
verið uppfyllt, og að hún teldi húsið
ekki uppfylla þær kröfur sem nefnd-
in gerir til slíkra húsa. Þann dag var
Tunglið svipt vínveitingaleyfi, þar
sem lögregluyfirvöld töldu þá engan
Brynjan lífleg
Lífleg veiði hefur verið í Brynju-
dalsá í Hvalfirði síðustu daga, sér-
staklega var mikill hasar þar þann
18. júlí, en þá veiddust alls 22 lax-
ar á stangirnar tvær sem leyfðar
eru í ánni. Komu á aðra stöngina
13 laxar en 9 stykki á hina. Það
fylgir sögunni, að þrjár konur hafi
dregið sína Maríulaxa þennan dag
og ungur drengur sinn fyrsta
flugulax. Allur fékkst aflinn neðst
í ánni, helmingurinn undir Bárðar-
-fossi og hinn helmingurinn við
Klapparhornið svokallaða. Var stór
ganga á ferðinni, en undanfari
þessa afla var 4 til 8 laxa dagveiði
vikuna á undan sem þykir ágætt í
Brynju. Flestir laxanna veiddust á
maðk, sem einnig gengur undir
nöfnunum Lombricus, Brown
charm og Gardenfly. Nokkrir feng-
ust á flugu, rauða Frances.
Milli 700 og 800 laxar hafa kom-
ið úr Norðurá og þar hefur veiði
glæðst að undanförnu er vatn bætt-
ist í ána eftir þurrkana löngu. Mik-
ill lax er í ánni, t. d. hafa rúmlega
2000 fískar gengið fram fyrir telj-
arann í Glanna það sem af er
sumri, en hann er sem kunnugt er
nokkuð ofarlega í ánni. Óvenjulega
mikið hefur gengið og veiðst af
stórlaxi í ánni, sama daginn-fyrir
skömmu veiddust til dæmis bæði
16 og 18 punda fiskar, annar í
Stekknum, en hinn í Myrkhyl. Að
sögn Friðriks D. Stefánssonar hjá
SVFR er ekki alveg fullselt í ána,
en leyfin óseldu streyma nú út, þar
sem veiðin gengd öllur óvíða betur
á landinu.
LOHlff
Morgunkaffi - hódegisverður - síðdegiskaffi
♦♦♦♦♦♦♦♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
•♦♦♦♦
Holliista,
'hádegn
Bjóðum upp á tvo nýja heilsurétti
HEILSUDISKUR
Villihrísgrjón
Baunabuff
Tómatmauk
Ferskurananas
Tómatar og agúrkur
Baunaspírur
Jógúrt dressing
SALATDISKUR
lceberg salat
Tómatar og agúrkur
Melónur
Kiwi
Rækjur
Brauð
Dressing
Auk þess fjöldi frábærra rétta
í fögru umhverfi
Flugleiðir
Hótel Loftleiðir
Borðapantanir í síma 22321
lagalegan grundvöll vera til að halda
bráðabirgðaleyfinu til streitu.
„Lögregla fór svo í húsið á föstu-
dagskvöld, og kom þá í Ijós að vínsala
var í gangi í trássi við bannið. Fimm
til sex lögreglumenn rýmdu þá hús-
ið, og fór það friðsamlega fram. Stað-
urinn var í framhaldi af þessu broti
sviptur skemmtanaleyfi," sagði
Signý.
Um helgina var ætlunin að Lista-
hátíð næturlífsins færi fram í hús-
inu, og sagði Þorsteinn Högni Gunn-
arsson einn aðstandenda hennar, að
hátíðin hafi farið að miklu leyti út
um þúfur vegna lokunaraðgerðanna.
„Við stöndum frammi fyrir 500-600
þúsund króna tapi vegna þessa, og
ætlum okkur að krefja eigendur
Tunglsins skaðabóta. Hitt er annað
mál að mér fannst yfirvöld ganga
full harkalega fram í deilu sinni við
eigendur hússins, og við reyndum
að gera fulltrúum Heilbrigðiseftirlits-
ins ljósan þann hnekk sem við yrðum
fyrir yrði húsinu lokað. Þar var hins
vegar enga áheyrn að fá,“ sagði
Þorsteinn Högni.
Ekki náðist í eiganda Tunglsins
vegna þessa máls.
Morgunbladið/Halldór Gunnarsson
Tólf manna vinnuflokkur frá Gröfunni hf. vinnur nú að lagningu ljós-
leiðara frá Hvolsvelli austur á bóginn.
Eyjafjöll:
Vinnu við lagningu
ljósleiðara miðar vel
Höfundar-
nafii féll níður
í þætti á fjölmiðlaopnu í sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins undir
fyrirsögninni Fölnandi flóra urðu
þau mistök að nafn höfundar féll
niður. Höfundurinn er Magnús
Bjarnfreðsson. Er beðist velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Holti.
TOLF manna vinnuflokkur frá
Gröfúnni hf., seni Sveinn Árna-
son og Vilhjálmur Þorkelsson
veita forstöðu, vinnur nú að
Iagningu ljósleiðara fi-á Hvol-
svelli austur á bóginn.
Áætlað er að leggja ljósleiðar-
ann í það minnsta til Víkur nú í
sumar. Vinnuflokkurinn leggur
um 4 km að meðaltali á dag, en
þó er það mismunandi, í góðum
jarðvegi og við góðar aðstæður
allt að helmingi lengri leið. Vinnu-
flokkurinn hefur unnið fimm und-
anfarin sumur við lagningu jarð-
strengja á vegum Pósts og síma,
fyrst við lagningu símans og
síðustu þijú ár við lagningu ljós-
leiðarans.
- Fréttaritari
Leiðrétting
í FRÉTT Morgunblaðsins á laug-
ardag, þar sem skýrt var frá því
að Matthías Halldórsson tæki við
starfi aðstoðarlandlæknis var
rangt farið með nám Matthíasar.
Matthías varð sérfræðingur í
heimilislækningum í Svíþjóð og hef-
ur nýlega lokið mastersnámi í
skipulagningu og fjármálum heil-
brigðisþjónustunnar við London
School of Economics.
f*
8
Paraiihurt gptur komið 1 ve^ fvair
meltmgartruilanir 1 tninu.
Einn munnbiti getur hæglega eyðilagt gott sumar-
frí. Oft þarf ekki meira til að koma af stað
meltingartruflunum og niðurgangi.
Paraghurt hjálpar meltingarfærunum að
venjast framandi gerlum og getur
þannig komið í veg fyrir niðurgang.
2 töflur þrisvar á dag er nóg til að
halda maganum I jafnvægi.
Paraghurt fæst í lausasölu
í apótekum.
Taktu Paraghurt með í fríið.
Góða meltingu - Góða ferö!
iimmiwiiiiiii—Billi i| i iiii iiiiii|||| ii
Einkaumboð á íslandi:
Pharmaco
HÖRGATÚNI 2,
GARÐABÆ
SÍMI 44811
i w-