Morgunblaðið - 28.07.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.07.1990, Blaðsíða 2
2 'MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1990 Formaður FII: Ekki ástæða til að fella jöfiiunargjald á iðnað- arvörum niður núna Skemmdarverk í kirkju- gariðinum við Suðurgötu í vikunni hafa ljót skemmdar- verk verið unnin á þremur leiðum í gamla kirkjugarðinum við Suð- urgötu. Einum leiðiskrossi var velt og hann brotinn, annar kross var brotinn af legsteini og mol- vaður í fimm hluta. Lcks tóku skemmdarvargarnir engilsmynd úr marmara og brutu í þúsund mola. Lögreglunni hefur ekki tekizt að ná til spellvirkjanna. Telur Stöð 2 því ekki eiga meirihluta JÓNAS Kristjánsson, ritstjóri DV, sem er minnihlutaeigandi í Sýn, telur hiuthafafund sem haldinn var í fyrirtækinu í fyrrakvöld ólögleg- an. Því sé sú ákvörðun sem þar var tekin, að minnka hlutafé í fyrir- tækinu í 108 milljónir að nýju, ómerk. „Hlutafé Stöðvar 2 er því ekki yfir 50%, eins og haldið hefiir verið fram, heldur um 30%,“ segir Jónas. Á hluthafafundi Sýnar í vetur var tekin sú ákvörðun að auka hlutafé úr 108 milljónum í 184 milljónir. Nýlega var svo annar hluthafafundur haldinn og var for- kaupsréttur fyrri hluthafa gagnvart hinu nýja hlutafé þar afnuminn. Þennan fund telur Jónas einnig ólöglegan. Að síðustu var svo hald- inn hluthafafundur í fyrrakvöld, svo sem fyrr er frá greint. „Samkvæmt hlutafélagalögum skulu allir hluthafar boðaðir á hlut- hafafund, og boðun á fundinn skal vera með vissum hætti. Þetta var alls ekki raunin hvað þessa tvo fundi varðar. Á þennan síðasta fund voru hluthafar ekki einu sinni boðaðir," sagði Jónas. Hann vildi ekki segja til um hvort hlutaðeigandi aðilar myndu sækja fyrrurji meirihiutaeig- endur Sýnar til saka vegna þessa. „Fyrst verður að koma í ljós hver framtíð fyrirtækisins verður. Stefna þess hefur um langa tíð verið allt of reikul. Það er meðal annars ástæðan fyrir því að við höfum ekki komið nálægt stjórnun fyrir- tækisins undanfáma 3 mánuði. Okkar sjónarmið hafa ætíð verið ljós; við teljum að hægt sé að reka þessa sjónvarpsstöð, sé stakkur sniðinn eftir vexti.“ Áðspurður um hvernig Fijáls fjölmiðlun myndi taka í hugsanlegt tilboð Stöðvar 2 í hlutféð í Sýn sagði hann of fljótt að segja til um slíkt. „Umfram allt þarf að koma stöðu fyrirtækisins á hreint. Þá fyrst er hægt að spá í framtíðina." Halldór Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Hvíta hússins, sem ásamt 12 öðrum einstaklingum á tíu prósent í Sýn, sagðist lítið vita meira en að þessir þrír aðilar hefðu selt Stöð 2 sinn hluta. Stöð 2 hefði ekki enn falast -eftir kaupum á þeirra hlut, en honum skildist að samþykkt hefði verið yfirlýsing af hálfu Stöðvar 2 þess efnis að þeir myndu gera öðram hluthöfum Sýn- ar sambærilegt tilboð. Aðspurður um hvort slíku tilboði yrði tekið sagði hann að of snemmt væri að segja til um það. „Hins vegar leyfir maður sér að draga í efa að þessi kaup gangi eftir fremur en annað sem þessir menn hafa gert.“ Samgönguráðuneytið úthlutaði Sýn á sínum tíma leyfi til að nota rás á hinu svonefnda UHF-kerfi fyrir útsendingar stöðvarinnar. Að sögn Áma Þórs Sigurðssonar, deild- arstjóra í samgönguráðuneytinu, eru leyfi af þessu tagi almennt ekki framseljanleg heldur bundin við þann lögaðila sem fékk rásinni út- hlutað. Það færi því eftir því hvaða form yrði á sameiningu Stöðvar 2 og Sýnar hvort Sýn héldi rásinni. Almennt mætti segja að ef Stöð 2 innlimaði Sýn og eftir yrði bara Stöð 2 hefði Stöð 2 ekki leyfi til að nota hina úthlutuðu rás. Ef Sýn yrði aftur á móti rekin áfram sem sjálfstætt fyrirtæki horfði málið öðra vísi við. Ámi Þór lagði hins vegar áherslu á að þetta mál hefði enn ekki verið rætt innan ráðuneyt- isins og því hefði ekki verið kynnt áform þessara aðila. VÍGLUNDUR Þorsteinsson, formaður Félags íslenskra iðnrekenda, segir iðnrekendur ekki sjá ástæðu til þess að fella niður jöfiiunar— gjald á iðnaðarvöru nú þegar. Enn eigi eftir að eyða uppsöfiiuðum söluskatti í fjárfestingu iðnfyrirtækja og áður en það hafi verið gert beri að halda jöfiiunargjaldinu þó að vel megi lækka það. Eldsins varð vart er reykjar- bólstrar fóra að koma út um úttak loftræstikerfis hússins. Loftræsti- kerfið var í gangi, og dældi reykn- um út, þannig að litlar reyk- skemmdir urðu á efri hæðum húss- ins. Talsverðar skemmdir urðu hins vegar í kjallaranum, en þar er rek- inn pizzastaður. Ákvörðun um að minnka hlutafé í Sýn hf. ólögleg „Við eram í fyrsta lagi enn að bíða eftir því að ríkisstjórnin standi við skuldbindingar sínar við íslenskan útflutningsiðnað hvað jöfnunargjaldið varðar," sagði Víglundur Þorsteinsson. „Þetta gjald var sett á til að endurgreiða útflutningsiðnaðinum uppsafnaðan söluskatt í söluskattskerfinu en við bíðum enn eftir greiðslu vegna síðari helmings ársins 1989. Alls er þarna um 2-300 milljónir króna að ræða.“ Hann sagði það hins vegar vera pólitíska ákvörðun hvenær jöfnun- argjaldið yrði afnumið. Jöfnunar- skattstilefnið hefði ekki horfið þeg- ar virðisaukaskatturinn var tekinn upp þar sem framleiðslufyrirtækin á Islandi myndu sitja áfram næstu árin með söluskattsuppsöfnun í sinni fjárfestingu sem enn hefði ekki verið eytt. Mest væri uppsöfn- unin í fasteignum fyrirtækjanna og mætti reikna með að hún næmi 10% af fasteignaverði. „En þó að við teljum ekki tímabært að fella niður jöfnunargjaldið nú í einni svipan eram við þeirrar skoðunar að það megi lækka það, til dæmis niður í 2,5-3%, en síðan þrepa það út á nokkram misseram þangað til söluskattsuppsöfnuninni hefur að fullu verið eytt.“ Lögreglan hvetur til aðgæslu Morgunblaðið/BAR Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í gær þá ökumenn sem leið áttu um Suðurlandsveg, við Lögberg. Ekki var það til að finna að aksturslaginu, heldur til að dreifa bæklingi, sem í er að finna ýmis heilræði til ferðalanga. Lögreglan notaði einnig tækifærið og kannaði bílbeltanotkun og ef marka má ánægjusvip lögreglumannanna á myndinni var ekkert athuga- vert hjá ferðalöngunum sem þeir höfðu stöðvað. íslandsbanki krefst 210 króna þj ónustugj alds af millifærslum IPgWáW @ Si H m luj ® ig; iLj I*] @ Hj [1] 0 ® Vegna sumarleyfa fylgir Lesbók ekki blaðinu í dag. Les- bók kemur næst út laugardag- inn 18. ágúst. Skref í þá átt að selja þjónustuliði, segir Ragnar Önundarson krafist þjónustugjalds fyrir gagnaleit og telefaxþjónustu. Að síðustu hefur bankinn lækkað innheimtukostnað á skuldabréf. ISLANDSBANKI mun framvegis kreQast 210 kr. þjónustugjalds af millifærslum viðskiptavina sinna yfir á reikninga í öðrum bönkum. Ekki verður þessa gjalds þó krafist af þeim sem eru í föstum viðskiptum við bankann og millifæra aðeins endrum og eins. Þá mun framvegis verða Vatnsleiðsla sprakk og hélt eldi í skeflum SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík slökkti eld í kjallara Laugavegar 28 um hálfiiíuleytið í gærmorgun, en þar hafði kviknað í út frá pizza- ofiii. Svo heppilega hafði viljað til að er eldurinn læsti sig í ofiiinn og umgjörð hans, sprakk vatnsleiðsla, sem síðan dældi vatni á eld- inn og hélt honum þannig í skefjum þar til slökkviliðið kom. Ragnar Önundarson fram- kvæmdastjóri fjármála- og verð- bréfaviðskiptadeildar íslandsbanka sagði í samtali við Morgunblaðið að þessi gjöld væra skref í þá átt að selja einstaka þjónustuliði í stað þess að velta kostnaði út í vaxta- muninn. „Vissir þjónustuliðir hafa hingað til verið seldir gegn litlu eða engu gjaldi, og sá kostnaður sem við þá skapast verið látinn bitna á sparifj- áreigendum og lántakendum. Það er einnig svo að ætíð er sótt í þjón- ustu sem kostar lítið eða er ókeyp- is og á þennan hátt teljum við okk- ur geta haft áhrif á dreifingu kostn- aðar við rekstur bankans," sagði Ragnar. „í kjölfar kjarasamning- anna í vetur minnkaði vaxtamunur bankans, og í framhaldi af því var tekin ákvörðun um þessi gjöld, þar sem við töldum almenna gjaldskrár- hækkun ekki veijandi á tímum sparnaðar og þjóðarsáttar.“ Þjónustugjald vegna gagnaleitar er nýlunda hérlendis. Gjaldið verður til dæmis innheimt þurfi viðskipta- vinir bankans að fá ljósrit af yfir- Iiti yfir reikninga sína. Ekki er þó tekið gjald fyrir aukayfirlit. Einnig verður þjónustugjald innheimt þurfi viðskiptavinir að láta leita uppi fyr- ir sig tékka sem þeir hafa gefið út á reikninga sína. í slíku tilfelli er gjaldið 200 kr. á hvem tékka. Friðrik Halldórsson forstöðumað- ur áætlunardeildar Islandsbanka sagði í samtali við Morgunblaðið að gagnaleit gæti verið afar tíma- frek og umfangsmikil og því hafi verið ákveðið að grípa til þess að leggja á hana þetta gjald. Áð sögn Friðriks er ekki mjög mikið um að fólk millifæri af reikningum sínum í íslandsbanka yfir á reikninga í öðram bönkum. „Þó kemur fyrir að sama fólkið lætur millifæra fyrir sig æ ofan í æ,“ sagði Friðrik. Hann sagði að yfírmenn útibúa myndu hveiju sinni ákveða hvort þjónustugjald skuli innheimt af millifærslum eður ei. Innheimtukostnaður á skulda- bréf sem innheimt eru með árangri hefur bankinn lækkað úr 750 krón- um í 710 krónur. Verði hins vegar ekki árangur af innheimtunni verð- ur gjaldið 510 krónur, en var 750 áður. Jónas Kristjánsson:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.