Morgunblaðið - 28.07.1990, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.07.1990, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JUU 1990 Englandsferð III Rósagöng í Kew-garðinum. Blóm vikunnar Umsjón: Ágústa Bjömsdóttir 175. þáttur Enn erum við með hugann við Englandsferð Garðyrkjufélagsins, sem þegar hefur verið fjallað um í tveimur greinum, en nú kemur sú síðasta. Sunnudeginum 24. júní vörðum við í héraðinu Kent, sem oft er kallað Aldingarður Englands. Fyrst skoðum við einkagarð sem við fyrsta yfirlit virtist vera algjör flækja, en þegar grannt var skoð- að reyndist hann hrein perla og hverri plöntu valinn staður af ástúð og skilningi. Ýmist var leik- ið sér að litbrigðum eða spilað á andstæður, eins og þégar mjallhvít rós hjúfraði sig upp að purpurarauðri bergsóley. I þess- um garði voru hátt í 100 tegund- ir rósa, margar mjög sjaldgæfar eins og Himalayarósin. Héraðið Kent er frægt fyrir humalræktun, en blóm humalsins þykja mjög góð við bjórgerð og víða voru við bóndabæi sérkenni- legir tumar, sem okkur var sagt að væru „súrheystumar" frá Elísabetartímanum, til að geyma í humalblómin. En Englendingar em líka mjög stoltir af vínfram- ieiðslu sinni. I Kent eru framleidd bæði hvítvín og rósavín og til að auka á fjölbreytni ferðarinnar heimsóttum við vínframleiðanda í bænum Tenterden í Kent. Þegar til kastanna kom höfðum við minnstan áhuga á vínverksmiðj- unni, þótt enska hvítvínið bragð- aðist vel, því tvennt annað vakti athygli okkar. Þarna var stórkost- legur garður, sem í voru eingöngu krydd- og lækningajurtir. Þar kenndi margra grasa, bæði þekktra og óþekktra og gamlir kunningjar, eins og blóðberg, maríustakkur, kúmen, hvönn og morgunfrú kinkuðu til okkar kolli. Ekki má gleyma skrautlega fing- urbjargarblóminu, en það var ein- mitt ensk grasakerling sem vissi um lækningamátt þess og enn eru notuð hjartalyf unnin úr því. En það sem kom verulega á óvart var lítið safn landbúnaðartækja frá því í upphafi vélvæðingarinnar. í ljós kom að 70% karlanna okkar voru „vélvirkjar", hinir með dulda tækjadeilu og öll höfðum við verið í sveit á okkar sokkabandsárum svo það var dæst og stunið ekki síður en yfir fallegum blómagarði. Síðdegis heimsóttum við Chart- well, sveitasetur Sir Winstons Churchills í Kent. Churchill keypti setrið 1922 og það var aðsetur hans til hinsta dags. Húsið er gamalt og fallegt en það var land- areignin sjálf sem vakti áhuga Churchills. Hann var mikill áhugamaður um ræktun og sá þarna tækifærið til að móta sitt eigið umvherfi sem hann gerði á svo sérstæðan hátt að meðan lo- fárásir Þjóðveija á England stóðu sem hæst varð að „fela“ tjarnim- ar á Chartwell, svo auðþekktar voru þær út lofti. Á tímabili varð Churcill einfari í breskum stjóm- málum og honum fannst glíman við steina og hellur í Chartwell mun léttari en stjómmálaglíman, en hann lagði stéttar og hlóð veggi af svo mikilli list að hann fékk sveinsbréf fyrir „stéttvísina". Húsið er að langmestu leyti eins og meðan Churchill bjó í því og ósjálfrátt fannst mér að hann sæti í næsta herbergi og þungur vindlailmurinn fyllti nasirnar, andi hans sem sveif þama yfir vötnun- um fyllti hugann lotningu fyrir manninum, orðum hans og gjörð- um. Og við litlu fiskatjömina stóð enn ljósgræni stóllinn hans með kistlinum við hliðina þar sem hann sat löngum stundum á efri ámm. í London gistum við tvær næt- ur. Þar gáfum við okkur lausan tauminn og hver gerði það sem hugurinn girntist. En þótt ótrú- legt megi virðast höfðum við ekki fengið nóg af görðum því síðasta daginn fórum við í Kew-garðinn, hinn konunglega, breska grasa- garð, sem er frægur um víða ver- öld. Garðurinn, semer 120 hekt- arar, liggur á bökkum Thames- árinnar. Ágústa prinsessa af Wa- les, móðir Georgs III. stofnaði þarna lítinn grasagarð 1759 en garðurinn var gefinn bresku þjóð- inni 1840, en þess atburðar hefur verið minnst í ár með útgáfu frímerkis til hfeiðurs Kew-garðin- um. Eins og geta má nærri er útilokað að skoða allt þetta svæði á einum degi og lét ég mér nægja ða skoða rósagarðinn, steinhæða- garðinn, safn fjölæringa og eitt gróðurhúsanna, tempraða húsið, sem var byggt á ámnum eftir 1860 og var á sínum tíma stærsta gróðurhús í heimi og alveg ein- staklega falleg bygging. Það hýs- ir líklega stærstu gróðurskálap- löntu heims, sem er jubaea chi- lensis, vínpálmi frá Chile, sem var alinn upp af fræi sem sáð var 1846. I rósagarðinum var lita- dýrðin slík að við lá að mig sundl- aði og ilmurinn ólýsanlegur, en mest hreifst ég þó af einföldu, gömlu mnnarósunum, en þær ilm- uðu líklega allra best. Steinhæða- garðurinn er fallegastur að vor- lagi, en auðvitað kunna meistarar garðsins þá list að hafa eitthvað sem gleður augað allt sumarið. í íjölæringasafninu er plöntunum raðað upp eftir skyldleika, sem er mjög hagstætt, sé verið að leita að ákveðinni plöntu eða bera sam- an skyldar tegundir. Þetta safn er ómetanlegt frá grasafræðilegu sjónarmiði og margt sem gleður augað þarna auk stóm „laufskála- ganganna“ sem vom þakin klifur- rósum. Ég ráðlegg hveijum þeim sem hefur yndi af gróðri og á dagstund aflögu í London að veija þeim degi í Kew, hvort heldur á sumri eða vetri. Ganga um garð- inn í þeirri kyrrð og fegurð sem þar ríkir hvílir hugann og færir manni orku til að takast á við skarkala stórborgarinnar að nýju. Ath. Skrifstofa Garðyrkjufálgs- ins er lokuð vegna sumarleyfa í ágúst en félagsheimilið opið á fimmtudagskvöldum frá 20-22. . f-. . iRfóöur PP • HJíl f a tttflt*lYtttY ybÉplg uiuiyuii Guðspjall dagsins: Jesús mettar 4 þús. manna. (Mark. 8.) ÁRBÆJARPRESTAKALL: Guðsþjónusta kl. 11 árdeg- is. Organleikari Jón Mýrdal. Sr. Guðmundur Þorsteins- son. ÁSPRESTAKALL: Lagt upp frá Áskirkju kl. 8.30 sunnu- dag í árlega safnaðarferð. Messa í Skarðskirkju, Land- sveit kl. 11. Sjá nánar í dag- bók. Árni Bergur Sigur- björnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 11. Fermdur verður Egill Karlsson, Urð- arstekk 4. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Guðrún Jónsdóttir syngur einsöng. Sr. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Messa með altarisgöngu kl. 11. Organ- leikari Marteinn Hunger Friðriksson. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson. VIÐEYJARKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 14. Organleikari Marteinn Hunger Friðriks- son. Sr. Jakob Agúst Hjálm- arsson. Bátsferð verður úr Sundahöfn kl. 13.30. ELLIHEIMILIÐ Grund: Messa kl. 10. Sr. Guðmund- ur Óskar Ólafsson. FELLA- og Hólakirkja: Guðsþjónusta með léttum söng kl. 20.30. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústs- son. Þorvaldur Halldórsson og félagar sjá um tónlist og söng. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Jón Hrönn Bolladóttir, guðfræðinemi, prédikar. Hershey-kórinn frá Pennsylvaníu syngur í messunni. Stjórnandi James Hoffmann. Þriðjudag: Fyrir- bænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Miðvikudag: Samvera Ind- landsvina í safnaðarsal kl. 20.30. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Bragi Skúlason. HÁTEIGSKIRKJA: Há- messa kl. 11. Sr. Arngrímur Jónsson. Kvöldbænir og fyr- irbænir eru í kirkjunni á mið- vikudögum kl. 18. Prestarn- ir. KÓPAVOGSKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 11. Organisti Guðmundur Gilsson. Ægir Fr. Sigurgeirsson. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Guðsþjónusta kl. 11. Prest- ur sr. Sigurður Haukur Guð- jónsson. Organisti Jón Stef- ánsson. Kór Langholtskirkju syngur. Molakaffi eftir stundina. Sóknarnefnd. LAUGARNESKIRKJA: Laugardag 28. júlí: Messa í Hátúni 10B, 9. hæð, kl. 11. Sóknarprestur. NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Organisti Reynir Jónasson. Miðviku- dag: Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. SEUAKIRKJA: Kvöldguðs- þjónusta er í kirkjunni kl. 20. Síðasta guðsþjónusta fyrir sumarleyfi starfsfólks. Marta Halldórsdóttir syngur einsöng. Altarisganga. Kaffisopi eftir guðsþjón- ustuna. Sóknarprestur. SELTJARNARNESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11 í umsjá Þorvaldar Halldórssonar. Sóknarnefndin. SAFNKIRKJAN, Árbæ: Guðsþjónusta kl. 14. Prest- ur sr. Kristinn Agúst Frið- finnsson. KRISTSKIRKJA, Landakoti: Lágmessa kl. 8.30, stund- um lesin á ensku. Hámessa kl. 10.30. Lágmessa kl. 14. Rúmhelga daga er lág- messa kl. 18 nema á laugar- dögum, þá kl. 14. Á laugar- dögum er ensk messa kl. 20. MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Hámessa kl. 11. Rúmhelga daga er lágmessa kl. 18 nema á fimmtudögum, þá kl. 19.30. KFUM & KFUK: Almenn samkoma í Kristniboðssaln- um, Háaleitisbr. 58, kl. 20.30. Ræðumaðursr. Guð- mundur Guðmundsson. HJÁLPRÆÐISHERINN: Úti- samkoma á Lækjartorgi kl. 16. Fagnaðarsamkoma kl. 20.30 fyrir Sigmund Dale- haug. GARÐAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Svala Nielsen syngur. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Sr. Bragi Friðriksson. KAPELLA St. Jósefssystra, Garðabæ: Hámessa kl. 10. VÍÐISTAÐASÓKN: Sjá Garðakirkja. KAPELLA St. Jósefsspít- ala: Hámessa kl. 10.30. Rúmhelga daga lágmessa kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Há- messa kl. 8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8. HVALSNESKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 14. Börn verða borin til skírnar. í prédikun verður fjallað um safnaðar- heimilisbyggingu í Sand- gerði. Allir þeir sem láta það brýna verkefni sig varða eru hvattir til að mæta. Að lok- inni guðsþjónustu verður aðalsafnaðarfundur haldinn í kirkjunni. Á Garðvangi, dvalarheimili aldraðra í .Garði, verður guðsþjónusta haldin kl. 11. Kirkjukór Hvalsneskirkju syngur. Org- anisti Ester Ólafsdóttir. Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson. KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 9.30. Ræðuefni: Andlegir straum- ar í samtímanum. Kór Keflavíkurkirkju syngur. Organisti Örn Falkner. At- hugið breyttan messutíma. Sóknarprestur. INNRI-NJRÐVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Ræðu- efni: Andlegir straumar í samtímanum. Kór Keflavík- urkirkju syngur. Organisti Örn Falkner. Ólafur Oddur Jónsson. GRINDAVÍKURKIRKJA: Messa kl. 14. Sr. Örn Bárð- ur Jónsson kveður söfnuð- inn. Kirkjukaffi að • messu lokinni í safnaðarheimilinu. Sóknarnefnd. KAÞÓLSKA kapellan i Keflavík, Hafnarg. 71: Messað á sunnudögum kl. 16. ~ ÞORLÁKSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Jónas Gíslason vígslubiskup prédikar og prófastur þjónar fyrir altari. Organleikarar _ Karl Sig- hvatsson og Hilmar Örn Agnarsson. Sóknarnefnd. ÞINGVALLAKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 14. Sr. Ingólfur Guðmundsson prédikar og þjónar fyrir altari. Ræðuefni: Réttlæti manna og réttlæti Guðs. Organleikari Einar Sigurðsson. Sóknarprestur. LEIRÁRKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Sr. Jón Einars- son. INNRA-Hólmskirkja: Kvöld- messa kl. 21. Sr. Jón Einars- son. Frítt inntil kl. 24 Konungleg skemmtun á konunglegum staá Konungar kokteiltónlistarinnar Ulfar Sigmar, André Bachmann, Gunnar Bernburg Hljómsveit André Baehmann á 2. hæð um helgina. Þar hitta þeir prinsessuna frá Súðavík, Aslaugu Fjólu, sem sló svo rækilega igegn í þáttunum hjá Hemma Gunn ífyrra. Halli Gísla hinn Ijúfi Bylgjumaður kemur í heimsókn Lif og f jör i diskótekinu. Húsió opnad kl. 23.00 Verd kr. 750,- eftir kl. 24 Fritt inntilkl. 24 RESTAURANTy/^\ DISKOTEK PÓRS||CAFÉ BRAUTARHOLTI 20. Símar23333 - 23334

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.