Morgunblaðið - 28.07.1990, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.07.1990, Blaðsíða 36
íHinmmi FLUGLEIDIRU gefur lífinu iit! LAUGARDAGUR 28. JULI 1990 VERÐ I LAUSASOLU 90 KR. Reykjavík: Hlýjasti dag- urinn í áratug DAGURINN í gær var sá hlýj- asti í Reykjavík í 10 ár. Hitinn komst í rétt rúmar 20 gráður í gær, en hlýtt og mehgað loft frá meginlandi Evrópu liggur nú yfir landinu. Það var þann 30. júlí 1980 að hitinn varð síðast hærri en þetta, 23,7 gráður, við mjög svipaðar aðstæður og nú ríkja. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu íslands hefur hitinn í Reykjavík mestur þann 9. júlí 1977, frá því mælingar hófust, 24,3 gráður. Þessi tvö skipti, 1977 og 1980, eru einu skiptin í 30 ár sem hitinn hefur orðið meiri en hann var í gær. Veðurstofan gerir ráð fyrir svip- uðu veðri í dag, og nái sólin að skína sé ekki útilokað að hitinn verði jafn mikill eða jafnvel meiri en í gær. Aukist hins vegar meng- unin í loftinu, sem einnig getur gerst, verði ekki eins hlýtt og í gær. , , , t Hraðbanka- kerfin tvö verða sam- einuð í haust HRAÐBANKAKERFIN sem bankarnir og sparisjóðirnir reka verða sameinuð í septem- ber. Hingað til hafa tvö kerfi verið í gangi, annað rekið af íslandsbanka og þar áður Iðnað- arbankanum en hitt af öðrum bönkum og sparisjóðum. Ekki hefur verið hægt að nota sömu bankakortin í þessum tveim- ur hraðbankakerfum, en frá og með haustinu verður það hægt. Að sögn Þórðar Sigurðssonar, forstöðumanns Reiknistofu bank- anna, var fyrst rætt um að sam- eina kerfin upp úr síðustu áramót- um en undirbúningur sameining- arinnar hefur nú tekið rúma þrjá mánuði. Viðskiptavinir Alþýðubanka, Verslunarbanka og Útvegsbanka fengu aðgang að kerfi Iðnaðar- banka við sameiningu þessara fjögurra banka í íslandsbanka en höfðu áður aðgang að hinu kerf- inu. Engin breyting verður gagnvart notendum að öðru leyti en því að þeir hafa um fleiri hraðbanka að velja. Nú eru 24 hraðbankar á landinu, tólf tilheyra hvoru kerfi. Morgunblaðið/Einar Falur Svanirnir þrír spókuðu sig í Húsdýragarðinum í Laugardal í gær, en nú eru þeir á leið til Færeyja. íslenskir svanir fluttir út: Vantar steggi til Færeyja ÞRÍR svanir eru í dag á leið til Færeyja fljúgandi, en ekki þó á eigin vængjum heldur með flugvél. Svanirnir, sém allir eru karl- kyns, eiga að gleðja þrjár íslenzkar svanadömur, sem urðu strandaglópar í fyrra á tjörninni í skemmtigarði Þórshafharbúa í Færeyjum. íslenzki svanastofninn er að mestu leyti farfuglar. Svanirnir fljúga meðal annars yfir Færeyjar á leið sinni til og frá íslandi, en hafa 'aldrei ílenzt þar á eyjunum. Færeyingum hefur þótt þetta slæmt og þeir hafa viljað hafa sína svani eins og aðrir. Það vakti því mikla lukku þegar þrír svanir millilentu í Færeyjum á leið til íslands, og ákváðu að setjast að á pollinum í Þórshöfn, sennilega vegna þess að þeir voru orðnir leiðir á langfluginu. Hafa þeir notið mikilla vinsælda Þórshafn- arbúa. Fljótlega kom hins vegar í ljós að allir svanirnir voru kvenkyns, og þess vegna ekki við því að búast að svanastofninn á pollinum yrði langlífur. Brugðið var á það ráð að leita til íslendinga, nánar tiltekið til garðyrkjustjórans í Reykjavík, um að taka að sér nokkurs konar hjónabandsmiðlun fyrir svanastúlkurnar í Þórshöfn. Jóhann Pálsson garðyrkjustjóri sagði í samtali við Morgunblaðið að leitað hefði verið til fuglafrið- unarnefndar, sem gefið hefði sam- þykki sitt fyrir því að þrír ungir svanaherrar yrðu fundnir handa dömunum og sendir til Færeyja. Svanirnir voru handsamaðir í gær og eru nú á leið úr landi með Flugleiðavél. Ekki á að væsa um þá á leiðinni, þar sem sérstakur kassi var smíðaður handa þeim. Þórshafnarbúar munu væntan- lega taka þeim opnum örmum, en eftir er að sjá hvort svanastúlk- unum lízt á félagsskapinn og hvort fjölgar í svanastofninum færeyska. Álafoss: Sovétmenn vilja greiða ull með gnlli SÚ HUGMYND hefúr verið rædd við forráðamenn Álafoss að fyrirtækið selji lopapeysur til Síberíu í skiptum fyrir gull. Þessi fatnaður er mjög eftirsótt- ur á þessum slóðum, að sögn Kolbeins Sigurbjörnssonar markaðsfúlltrúa. Fyrir lopa- peysu fást á svörtum markaði 500 rúblur, sem eru tvöföld mánaðarlaun verkamanns. Nú eru tveir þriðju hlutar af við- skiptum Álafoss við Sovétmenn í líki vöruskipta. Álafoss hefur þegar samið við Sovétmenn um að taka við olíuvör- um, eplaþykkni, hunangi, stígvél- um, haglabyssum, slaghörpum, naglaefni og trébrúðum gegn greiðslu í lopapeysum. Stærsti samningurinn er um viðskipti með nefras, sem er hrá- efni úr olíu. Hljóðar hann upp á 10.000 lestir, að verðmæti 60 milljónir íslenskra króna. Þá mun Álafoss veita viðtöku um 500 lest- um af hunangi, 17 lestum af epla- þykkni og 5.000 stígvélum, svo fátt eitt sé nefnt. Álafoss hefur nú hafið sölu á handmáluðum rússneskum tré- brúðum með víkingamyndum, sem smíðaðar eru í líki „matijoshka“. Brúðurnar eru ætlaðar útlending- um til minja um dvöl á íslandi. Fékk Kaupfélag verkamanna, sem annast viðskiptin af hálfu Sovét- manna, lopapeysur að launum. Sjá frétt á Akureyrarsíðu, bls. 2. Ríkissljónim gerir BHMR til- boð um að breyta samningnum Leggjum ekki í vana okkar að semja um kauplækkun segir formaður BHMR RÍKISSTJÓRNIN gerði BHMR í gærkvöldi tilboð um nýjan kjara- samning, þar sem 4,5% launahækkun verði frestað frá og með 1. september, launaleiðréttingum verði frestað þar til eftir 15. septem- ber 1991 þegar almennir kjarasamningar renna út, og 15. grein samninga BHMR og ríkisins verði felld niður. Sú grein kveður á um að BHMR geti krafist þeirra launahækkana sem aðrir launþegar fá. Gefinn er frestur til 31. júlí til að fullreyna hvort samkomulag næst um breytingar á kjarasamn- ingnum. Páll Halldórsson formaður BHMR sagði að ríkinu yrði gert gagntilboð, en sagði einnig, að BHMR hefði ekki lagt það í vana sinn að semja um kauplækkun, eins Þjóðarþotan fer utan „Þjóðarþotan" svonefnda fer í dag til viðgerðar. Arngrímur Atlanta, sem á flugvélina, segir hana á næstu dögum. Flugvélin hefur staðið á Keflavíkurflugvelli, frá því Atlanta keypti hana af ríkissjóði í janúar, vegna þess að bandarískt fjár- mögnunarfyrirtæki, sem ætlaði að lána Atlanta fé til kaupanna, krafðist þess að fá öll skoðunar og viðhaldsgögn um vélina, en hluti þeirra fannst ekki. frá Keflavíkurflugvelli til London Jóhannsson forstjóri flugfélagsins að gengið verði frá greiðslu fyrir Arngrímur sagði að þessi plögg hefðu enn ekki furtdist, en tekist hefði að afla upplýsinga um feril vélarinnar, sem fjármögnunarfyr- irtækið sætti sig við. Flugvélin fer til viðgerðar í Bret- landi og tekur viðgerðin mánuð. Arngrímur sagði, að drátturinn á afhendingu vélarinnar hefði haft mikla erfiðleika og kostnað í för með sér. Atlanta keypti flugvélina á 7,1 mílljón bandaríkjadala, eða rúmlega 420 milljónir íslenskra króna. 9 milljónir króna voru greiddar við undirskrift samnings- ins í janúar, en gefinn var tveggja mánaða frestur til að ganga frá endanlegri greiðslu. Vegna taf- anna var fresturinn framlengdur en Atlanta greiddi ríkissjóði rúmar 7 milljónir króna á mánuði í leigu. o g fælist í tilboði ríkisstjórnarinnar. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra sagði, að ef ekki næðist samkomulag óttaðist hann að bráðabirgðalög væru eina lausn- in. Miðað við viðbrögð formanns BHMR benda því enn allar líkur til þess að bráðabirgðalög verði sett, sem nemi úr gildi kjarasamning BHMR, eftir að uppsögn ríkisstjórn- arinnar á honum tekur gildi 1. nóv- ember. Er það vegna þess að sam- kvæmt lögum um samninga opin- berra starfsmanna gildir samningur eftir uppsögn þar til annar hefur verið gerður. BHMR muni þó fá 4,5% launahækkunina fram að þeim tíma. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins var það mat lögfræði- legra ráðunauta ríkisstjórnarinnar, að tilboð ríkisstjórnarinnar í gær væri nauðsynlegt til að styrkja grundvöll lagasetningar. Lögfræð- inga hefur greint á um, hvort lög á samninginn haldi yfirleitt, m.a. vegna þess að í þeim fælist kaup- lækkun hjá afmörkuðum hópi, sem geti brotið í bága við eignarréttar- ákvæði stjórnarskárinnar. Skiptar skoðanir eru einnig innan ríkisstjórnarinnar um hvort rétt sé að afnema kauphækkun og samn- ing BHMR með öllu. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra sagði við Morg- unblaðið, að hann teldi að enn hefði ekki fundist rétta leiðin til að tryggja þann árangur sem að væri stefnt, að sneiða hjá víxlhækkun og verðbólgu í kjölfar félagsdóms- ins og um leið að láta standast þann grundvöll sem lagður var með þjóðarsáttarsamningunum. „Það er enginn ágreiningur um markmiðið en menn eru enn að leita að leið- inni, og verða að skiptast á skoðun- um til að finna farsæla málamiðl- un,“ sagði Jón. Hann vildi ekki segja hvaða leið hann teldi að ætti að fara. Alþýðusamband Islands og vinnuveitendur hafa ákveðið fund 31. júlí þar sem afstaða verður tek- in til kröfu ASÍ um sömu launaþró- un og hjá BHMR. Ásmundur Stef- ánsson forseti ASÍ segir að eina skynsamlega lausnin sé, að BHMR taki samning sinn til endurskoðunar og gangi inn á þá línu sem ASI hafi markað í kjarasamningum. Sjá liréttir bls. 14.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.