Morgunblaðið - 28.07.1990, Side 3
3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1990
Háskólinn:
Mikill meiri-
hluti nem-
endanna vill
nafnleynd
við próftöku
FJÓRIR af hverjum fimm stúd-
entum við Háskóla íslands vilja
að tekið verði upp prófnúmera-
kerfi við skólann. Prófnúmera-
kerfi felur í raun í sér nafnleynd
við próftöku. Nemendur merkja
próf sín þá ekki með nafni og
kennitölu eins og nú tíðkast,
heldur með sérstöku númeri, sem
þeim er úthlutað og kennararar
þeirra og samstúdentar þekkja
ekki.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
skoðanakönnunar, sem stjórn Stúd-
entaráðs Háskóla íslands gekkst
fyrir meðal stúdenta um leið og
endurskráning í skólann fór fram í
vor. Af þeim 1.523, sem þátt tóku
í könnuninni, tóku rúm 83% afstöðu
til þeirrar spurningar hvort menn
teldu að taka bæri upp prófnúmera-
kerfi. Af þeim, sem höfðu skoðun
á málinu, vildu tæp 84% að próf
yrðu merkt með númerum, en rúm
16% voru á móti.
Nokkuð hefur verið um að stúd-
entar hafi kvartað undan því að
taka próf undir nafni og þau rök
hafa komið fram að þá sé ekki
fyllsta hlutleysis gætt við yfirferð
prófa og birtingu einkunna, en þær
eru nú birtar opinberlega með
kennitölu viðkomandi. Ef prófnúm-
erakerfi yrði tekið upp, myndi sá
sem færi yfir prófið ekki þekkja
númer stúdentsins og einnig þykir
slíkt draga úr líkum á að hægt
verði að sjá af birtum einkunnum
hvað hver og einn fékk í einkunn.
7bifhjóltek-
in úr umferð
vegna hávaða
LÖGREGLAN í Reykjavík stöðv-
aði í fyrrinótt sjö bifhjólamenn
og tók hjól þeirra í sína vörzlu,
vegna þess hve miklum hávaða
mennirnir ollu með akstri
sínum. Lögreglan hefúr nýlega
aðvarað bifhjólamenn og áminnt
þá um að hafa löglegan hljóð-
deyfibúnað á hjólum sínum og
að valda ekki hávaða á nóttunni.
Að sögn Ómars Smára Ár-
mannssonar, aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns, lagði lögreglan hald á hjólin
þar sem búnaður þeirra var að-
finnsluverður. Tæknimaður lög-
reglunnar mun athuga hreyfilbún-
að bifhjólanna og hljóðkerfi. Ómar
Smári sagði að grunur léki á að
sumir eigendur bifhjóla settu á þau
svokallaða opna pústkúta, sem yllu
miklum hávaða og ónæði.
í ábendingum lögreglunnar til
bifhjólaeigenda, sem birtust í
Morgunblaðinu síðastliðinn
fimmtudag, segir að í lögreglusam-
þykkt Reykjavíkur sé bannað að
aðhafast nokkuð, sem valdi ónæði
eða raski næturró manna. Þá komi
skýrt fram í reglugerð um gerð
og búnað ökutækja að ekki skuli
stafa ónauðsynlegum eða óþægi-
legum hávaða frá vélknúnum öku-
tækjum. Ómar Smári sagðist vita
dæmi þess, að fólk yrði andvaka
vegna tillitsleysis bifhjólamanna.
Hann vonaði að bifhjólamenn
tækju ábendingarnar til sín, en
sagði jafnframt að lögreglan hygð-
ist á næstunni halda áfram aðgerð-
um gegn hávaðasömum bifhjólum.
691100
Samband frá skiptiborði við ritstjóm og framleiðsludeild í Aðalstræti 6 og prentsmiðju
í Kringlunni 1 virka daga frá kl. 9-23.15 og laugardaga frá kl. 9-13.30.
Samband við skrifstofu í Aðalstræti 6 kl. 9-17 virka daga.
Símsvari eftir lokun skiptiborðs.
Ný simanúmer hata veríó tekin
i netkun fyrír beint innvat #
á augiýsingadeiid, AUCL YSINCADEILD
Kringlunni 1. Áskrift, dreifing og kvartanir fyrir
höfuðborgarsvæðið. Opið frá kl. 6-20 virka daga, frá kl. 7-14
(Myndamót)
Aðalstræti 6. Opið frá kl. 8-17 virka daga og
BEINNÚMER: SÍMBRÉF:
Auglýsingahönnun.......691283 Framleiðsludeild/Háborð.691275 Ljósmyndadeild ....691278 Ritstjórn/fréttadeildir.691181
Dagbókogminningargreinar ...691270 Fréttastjórar.....691273 Prentsmiðja.........691279 Sérblöð.............691222
Erlendar áskriftir ....691271 Gjaldkeri..............691274 Velvakandi.........691282 Auglýsingar/íþróttadeild ....691110
Erlendarfréttir........691272 Innlendar fréttir......691276 Viðskiptafréttir ...691284 Aöalskrifstofa......681811
F'ramleiðsludeild .....691281 íþróttafréttir....691277
pí«)r!0iimWabiib
sími 691100