Morgunblaðið - 28.07.1990, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1990
5
Viðræður EB og EFTA um Evrópskt efhahagssvæði;
Trúi því að viðunandi niður-
staða fáist um sjávarafúrðir
- segir Frans Andriessen varaforseti íramkvæmdastjórnar EB
FRANS Andriessen varaforseti framkvæmdastjórnar Evrópubanda-
lagsins, sagðist á morgunverðarfundi Verslunarráðsins í gær, trúa
því að viðunandi niðurstaða geti náðst um sjvarafurðir í viðræðum
EB og EFTA-ríkjanna um Evrópskt efnahagssvæði (EES), þar sem
tillit verði tekið til ólíkra hagsmuna og sjónarmiða þessara samtaka
og ríkja innan þeirra.
Andriessen sagðist vita, að við-
unandi samningar um sjvarafurðir
væru sérstaklega mikilvægir fyrir
Islendinga, í samningunum um
EES. Viðræður um það mál yrðu
ekki auðveldar, frekar en viðræð-
urnar í heild. En það sem í húfi
Skákmótið í Biel:
Héðinn tapaði í annari umferð
fyrir lítt þekktum Þjóðverja, en í
3. umferð fékk hann sérkennilegan
andstæðing, Mephisto Portorose
skáktölvu, sem er með 2.264 skák-
stig. Stráksa varð bylt við, að leggja
á sig ferðalag til Sviss og tefla svo
við vélmenni. Héðinn tefldi hvasst
í byijun og var kominn með betri
stöðu þegar skákin fór í bið, og
væri réttlætti hugmyndaríkar og
kröftugar tilraunir til að leysa mál-
ið.
Andriessen sagði að það hefði
lengi verið stefna EB að tengja
saman aðgang að markaði og að-
gang að auðlindum, þar á meðal
vann síðan glæsilega.
í 4. umferð tefldi Héðinn við
sovéska stórmeistarann, Smagin
Segoj. Skákin var mjög vel tefld á
báða bóga. Smagin kom með nýj-
ung en það dugði honum ekki.
Skákin endaði með steindauðu jafn-
tefli, sem Smagin var vonsvikinn
með og lét sig hverfa af skákstað.
fiskimiðum. Ekki hefði enn fundist
viðunandi lausn á þessu máli fyrir
báða aðila. Hins vegar hefðu íslend-
ingar og Evrópubandalagið það
sameiginlega áhugamál, að sjávar-
útvegur verði áfram uppspretta
hagnaðar og hagsældar. Það þýddi,
að ef lausn fyndist á þeim vanda-
málum, sem_ glímt væri við á því
sviði, gætu íslendingar treyst því,
að fylgt yrði eðlilegum reglum um
vemdun og viðhald fiskistofnanna,
jafnvel þótt sjónarmið Evrópu-
bandalagsins í sjávarútvegsmálum,
væru ekki alltaf nákvæmlega þau
sömu og annara.
Andriessen sagðist telja, að fyrst
ákveðið hefði verið, að fjalla um
sjávarútveg í fjölþjóðaviðræðum EB
og EFTA, væri besta leiðin nú að
halda málinu inni í þeim viðræðum,
þótt það útilokaði auðvitað ekki
skoðanaskipti einstakra þjóða og
EB.
„Ég er hér að hlusta og læra.
Og ég mun hlusta aðallega á hvað
yfirvöld og stjórnmálamenn á Is-
landi hafa að segja um þetta mikil-
væga mál, og ég mun koma þeifn
boðskap áleiðis til Briissel," sagði
Andriessen.
íslenskir ráðherrar hafa, í við-
ræðum við forsvarsmenn Evropu-
bandalagsins, orðað samstarf um
nýtingu orkulinda íslands. Ónýttar
orkulindir íslands nema um 1,5%
af orkuþörf Evrópubandalagsins. Á
blaðamannafundi á vegum utanrík-
isráðuneytisins síðdegis í gær var
Andriessen spurður hvort ísland
gæti í framtíðinni selt orku til EB,
og svaraði hann að það væri vel
hugsanlegt. Evrópulönd flyttu þeg-
ar inn orku frá Sovétríkjunum,
Noregi og Norður-Afríku, aðallega
Alsír. „Ég sé ekki, ef efnahagsleg
skilyrði eru uppfyllt, hvers vegna
ísland gæti ekki skipað sér í hóp
orkusala til EB. Það er auðvitað
vandamál með flutning, og við yrð-
um að finna leiðir til að leysa það,“
sagði Andriessen.
Á morgunverðarfundi Verslunar-
ráðs sagði Andriessen Evrópu-
bandalagið leggja mikla áherslu á
að ná samningum við EFTA um
evrópskt efnahagssvæði. Það væri
metnaðarfullt verkefni, vegna þess
að þar væri farið inn á alveg nýjar
brautir, við að móta þá stjórnar-
hætti sem þessi samvinna krefðist.
Hann sagði að þróunin í Austur-
Evrópu og sameining Þýskalands,
sýndi, að litið væri á EB sem kjöl-
festu hins nýja evrópska skipulags.
EB vissi að það bæri mikla ábyrgð
á efnahagslegu og pólitísku jafn-
vægi í heiminum. Þessa ábyrgð
axlaði bandalagið með EFTA-ríkj-
unum, Norður-Ameríku, Kanada og
Japan. Þess vegna er eðlilegt að
þessir aðilar reyndu að styrkja
böndin milli sín, þótt með mismun-
andi hætti væri. En einnig væri
mjög mikilvægt, að aðstoða þjóðir,
sem komnar væru skemmra á þró-
unarbrautinni, á leið þeirra til efna-
hagslegra og þjóðfélagslegra um-
bóta.
Á fréttamannafundinum í gær,
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frans Andriessen varaforseti
framkvæmdastjórnar EB, á
morgunverðarfúndi Verslunar-
ráðs í gær.
- sagðist Andriessen vilja taka af all-
an vafa um, að samningaviðræð-
urnar við EFTA væru forgangsmál
innan Evrópubandalagsins, og að
þróunin í Austur-Evrópu og aukin
tengsl Bandalagsins við þær þjóðir,
hefði engin áhrif þar á. Spurningu
um hvort hann væri bjartsýnn á
raunhæfa niðurstöðu þessara samn-
ingaviðræðna svaraði hann þannig:
„Eg segist sjaldan vera bjartsýnn,
vegna þess að ég reyni að líta raun-
hæfum augum á málin. En í þessu
máli neyðir raunsæið mig til að við-
urkenna að ég er bjartsýnn.“
Frans Andriessen kom til lands-
ins á fimmtudag og hefur rætt við
Steingrím Hermannsson forsætis-
ráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra og embættis-
menn utanríkisráðuneytisins, Hall-
dór Ásgrímsson sjávarútvegsráð-
herra og Jón Sigurðsson viðskipta-
ráðherra. Hann hefur einnig hitt
að máli Þorstein Pálsson formann
Sjálfstæðisflokksins og fulltrúa
þingflokka og utanríkismálanefnd-
ar Alþingis. Andriessen fer aftur á
sunnudag.
Héðinn með 2 xh vinn-
ing eftir 4 umferðir
Biel. Frá Fríðu Ásbjörnsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
HÉÐINN Steingrímsson var með 2 'U vinning eltir 4 umferðir á opnu
skákmóti í Biel í Sviss. Fimmta umferð var tefld í gær, og þegar
skák Héðins og pólska stórmeistarans Wledzimmers var langt kom-
in, var jafnteíli liklegasta niðurstaðan.
VORLEIKUR ’90 auglýsir
Bílarnir eru komnir
CHEROKEE Limited 1990 nýir-og 1988. CHEROKEE Laredo 1990 nýir-og 1989
Opié laugardag kl. 10-17
og sunnudag kl. 13-17
Bílarnir eru til sýnis
og sölu aðeins hjá
Bflasölunni Smiðjuvegi 4,
KÓpaVOgÍ (í húsi Egils Vilhjálmssonar),
sími 77202