Morgunblaðið - 28.07.1990, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1990
Á þröskuldí nýrrar aldar
Hópur fólks sem kennir sig við Nýöld
kemur saman við rætur Snæfells-
jökuls um verslunarmannahelgina.
Samkvæmt kenningunni er talið að í Snæfellsjökli sé ein af sjö orku-
stöðvum jarðarinnar. Þannig sér Erla Stefánsdóttir fyrir sér Jökul-
inn og í skýringu með myndinni segir hún: Blik ljóssins er tindr-
andi bjart litaflóð. Ahrifn eru upphafinn ÍÖgnuður, djúp lotning og
sterkt samband við landið.
David Carson og Nina Sammons munu halda eins dags námskeið í
„shamanisma" á mótinu undir Jökli.
Samkvæmt stjörnuspekinni
stendur mannfólkið nú á þröskuldi
nýrrar aldar, aldar Vatnsberans,
og í því sambandi riQast upp ágæt-
ur texti úr söngleiknum Hárið,
sem einmitt fjallaði um þessi tíma-
mót. Hópur fólks, sem kennir sig
við Nýöld, telur að á þessum tíma-
mótum heijist nýtt tímabil í sögu
mannfólksins hér á jörðinni, tími
umburðarlyndis, kærleika og
víðsýni. Okkur lék forvitni á að
kynnast nánar viðhorfum þessa
fólks, án þess að hér verði nokkur
afstaða tekin til þeirra kenninga,
sem þetta fólk byggir lífsskoðun
sína á. I þeirri samantekt sem hér
fer á eftir er byggt á upplýsingum
frá Guðrúnu G. Bergmann, sem
er í hópi Nýaldarfólksins, og ritun-
um Collapse and Comeback, eftir
George W. Meek og Retum of the
Thunderbeings eftir Iron Thund-
erhorse og Donn Le Vie.
Það eru ýmsir sem hafíPreynt að
skýra hvað felst á bak við hugtakið
Nýöld. Útskýringamar em ef til vill
ekki allar eins orðaðar, en megininn-
tak þeirra er hið sama. Nýöldin er
samheiti yfir það tímabil sem við
stefnum inn í. þ.e.a.s. Öld Vatnsber-
ans samkvæmt stjömuspekinni.
Nafnið Nýöld er sennilega til komið
af því að reiknað hefur verið með að
á þessum tímamótum hefjist nýtt
tímabil í sögu mannfólksins hér á
Jörðinni, tími umburðarlyndis, kær-
leika og víðsýni.
í raun er Nýöldin ekki hreyfmg,
heldur nýr farvegur hugsana sem
breiðir úr sér. Nýaldarhyggjan er
hvergi skipulögð hreyfing, líkt og
ýmsar aðrar hreyfingar vom fyrr á
þessari öld né heldur getur hún tal-
ist trúarbrögð, því fólk af öllum trú-
arbrögðum um allan heim tileinkar
sér efni tengt henni. Það er eins og
hún sé fremur nýr lífsstfll, sem svo
og svo margir bytjuðu á og þegar
sá hópur var búinn að ná ákveðinni
tölu, þá fengu nánast „allir“ áhuga.
Margar bækur og kenningar hafa
komið fram tengdar Nýöld og þó þær
séu mismunandi að gerð og uppsetn-,
ingu, er rauði þráðurinn í gegnum
þær sá sami. Alls staðar er rætt um
að vinna í sjálfum sér, rækta eigin
garð, því þá fyrst sé hægt að fara
að leiðbeina öðrum. Rætt er um að
víkka svið vitundarinnar til að við
skiljum hvflíkt frelsi við höfum ef við
látum ekki hugsunina sífellt fjötra
okkur. Möguleikar hugans em enda-
lausir og með andanum er hægt að
ferðast hvert sem er. Okkur em eng-
in takmörk sett, nema þau sem við
setjum okkur sjálf.
Stórfelldar breytingar
Um leið og við siglum inn í þessa
Nýöld er Jörðin að ljúka 25.920 ára
ferli gegnum Dýrahringinn, yfirgefa
Fiskamerkið og fara inn í Vatnsbera-
merkið, en það tekur hana 2.160 ár
að fara í gegnum hvert stjömum-
erki. Því eiga sér í raun stað tvenns
konar mikilvæg umskipti á sama
tíma. Við þessi umskipti er reiknað
með miklum breytingum í heiminum.
í mannlífinu er búist við að breyting-
amar birtist í því að ný hugmynda-
kerfi fæðist og taki við af þeim gömlu
(i raun þegar bytjað), en það er líka
reiknað með hræringum á jarðsvið-
inu og leiða margir líkur að því, að
þær hræringar komi fram í auknum
jarðskjálftum (íran og Filippseyjar
nú nýverið), eldgosum og hugsanleg-
um breytingum á segulsviði Jarðar,
sem gætu haft í för með sér víðtæk-
ar breytingar á veðurfari Jarðar.
Talað hefur verið um að Móðir
Jörð þurfti á stuðningi okkar mann-
fólksins að halda til að komast í
gegnum þessar hremmingar og að
sá stuðningur komi m.a. í gegnum
umhverfisvernd, umhyggju okkar
fyrir Móður Jörð, minnkandi ágangi
á gæði Jarðarinnar og yfir höfuð í
nýrri stefnu varðandi Jörðina, sem
margir líta á sem lifandi veru með
árublik.
Eru spádómarnir að rætast?
Margir merkir menn hafa komið
fram með spádóma, sem vara okkur
við þessum breytingum í umhverfinu.
Einhverra hluta vegna virðumst við
ekki hafa tekið mikið mark á þeim,
bví ef við hefðum gert það væri
ástand Jarðarinnar ekki eins slæmt
og það er í dag.
Þeir þjóðflokkar, sem við Vestur-
landabúar köllum frumstæða, hafa í
gegnum tíðina iðkað trúarbrögð sín
í sterkum tengslum við náttúruna
og því borið meiri virðingu fyrir henni
en við sem höfum búið í borgunum.
Indíánar eru áberandi í þessum
flokki, og hafa síðan á síðustu öld
bent á nauðsyn þess að sterk tengsl
séu á milli mannsins og náttúrunnar
og að því jafnvægi megi ekki raska,
því þá stefnum við okkur sjálfum í
voða. Benda má á ræðu óþekkts
indíánahöfðingja frá síðustu öld, sem
gefin hefur verið út í lítilli bók undir
nafninu „How can One Sell the Air?“,
eða Hvemig getum við selt andrúms-
loftið?
Sá ættflokkur indíána sem fastast
hefur haldið í trúarbrögð sín, hefðir
og siði, þrátt fyrir ágang hvíta
mannsins, er hopi-ættflokkurinn.
Þessi ættflokkur skipaði sér tals-
mann í kringum 1950, sem hafði það
verkefni að kynna hopi-spádómana
fyrir umheiminum. í spádómunum
er meðaf annars rætt um nauðsyn
þess að vemda andrúmsloftið, því
ef við höfum ekki súrefni deyjum við
öll. í spádómunum er líka bent á
nauðsyn þess að vemda Jörðina og
talsmaður þeirra hefur margsinnis
rætt við þingmenn Bandaríkjaþings
til að vara þá við þeim breytingum
sem Jörðin eigi eftir að fara í gegn-
um sé ekkert gert í umhverfisvemd-
armálum.
í Hopi-spádómunum er líka bent
á hættuna sem yrði samfara breyt-
ingum á segulsviði Jarðar. í þeirra
spá er talað um hina „heilögu
tvíbura", sem vemdi norður- og suð-
urpólinn og að þeir muni brátt senda
frá sér bylgjur sem muni „hrista og
skekja“ Jörðina.
Tökum eflár skilaboðunum
Hopi-indíánamir líta á þá orku
sem Móðir Jörð leysir úr læðingi sem
dulin skilaboð hennar um að nú sé
nóg komið. Með orkunni er meðal
annars átt við sjúkdómsfaraldra, sem
hægt er að rekja til mengaðs vatns,
eiturgufuuppstreymi eins og varð
bæði mönnum og dýmm að bana í
Kamerún í Afríku, jarðskjálfta, eld-
gos, hækkandi ölduhæð sjávar, súrt
regn og breytingar á veðurfarinu.
Hopi-indíánamir líta á þá tíma
JÖRÐIN OKKAR ER f HÆTTU
Örlítið sýnishorn af hættuástandinu í heiminum, samkvæmt
kenningum nýaldarfólkins. Ýmislegt af eftirfarandi á einungis
við um ástandið í Bandaríkjunum, annað um heiminn allan.
★ Eitt tonn af endurunnum pappír
bjargar lífí 17 tijáa, sparar notkun
á 7.000 gallonum af vatni og orku
til að hita meðalheimili í sex mán-
uði.
★Bandaríkjamenn nota 3 milljón
gallon af máiningu á hveijum
degi.
★Það eru meiri efnafræðileg efni
á bandarískum heimilum í dag en
voru í meðal efnaverksmiðju fyrir
200 árum.
★ 12 milljón tonnum af eiturefn-
um er úðað árlega á matvæli,
aðra uppskeru, skóga og garðl-
önd.
★ Að minnsta kosti þrjár dýrateg-
undir útrýmast á jörðinni á degi
hveijum. Með þessum útrýming-
arhraða er reiknað með að þessi
tala verði orðin að nokkur hundr-
uðum á dag árið 2000.
★ Ef engar breytingar verða á
ffladrápi í Afríku, verður þeim
endanlega útrýmt innan 20 ára.
★Reiknað er með að um ein millj-
ón sjófugla og 100.000 sjávardýra
týni lífí sínu árlega, eftir að hafa
etið eða fest í plastúrgangi.
★Reiknað er með að meðalhita-
stig heimsins hækki um 4 gráður
á næstu áratugum.
★ Bandaríska andastofninum
fækkaði um 8 milljónir á árunum
1987 til 1988.
★Eitt gallon af bensíni getur
mengað 750.000 gallon af drykkj-
arvatni.
★ Flest þeirra 50.000 eiturefna
sem notuð eru við úðun matjurta
og tijágróðurs hafa ekki verið
rannsökuð með tilliti til langtíma-
áhrifa á heilsu fólks.
Hvað er til úrbóta:
★ Endurvinnsla! Aðgreinið dag-
blöð, plast, gler og málm í sorpinu.
★ Hugsið áður en þið kaupið!
Reynið að komast hjá plast- og
polýstýrenfroðuumbúðum. Kaup-
ið endurunna vöru eða vöru í end-
urvinnanlegum umbúðum hvenær
sem það er hægt.
★ Farið með ykkar eigin innkau-
papoka eða net í matvörubúðina.
★ Notið glerbolla undir kaffið í
vinnunni. Notið aðeins pappamál
eða -diska í ferðalögum.
★ Neitið að nota pólýstýrenfroðu-
diska. Biðjum um pappadiska á
skyndibitastöðum.
★ Skiptið yfir í taubleiur. Það
vemdar umhverfíð — og sparar
mikla peninga!
★ Hvetjið skólana til að tengja
náttúruvemd inn í námsefnið.
★ Gróðursetjið tré (eitt eða fleiri),
heima hjá ykkur eða í samráði
við bæjarfélagið sem þið búið í.
★ Styðjið umhverfisvemdarsam-
tök um allan heim.
★Ef þú býrð nálægt ströndinni,
skaltu safna öllu því msli sem
gæti valdið dýrum hættu.
★ Þegar þið kaupið bfl, veljið þá
spameytinn bfl.
★ Reynið að draga úr bifreiða-
notkun og sleppa henni alveg þeg-
ar hægt er að koma því við.
Sýnishorn af táknum á sérstök-
um spilum sem David Carson
notar.
sem við lifum á núna sem nokkurs
konar hreinsunartíma. Þetta sé tími
til að uppræta hvers kyns spillingu,
græðgi verði eytt, fáfræði og sjúk-
dómar munu hverfa við eflingu heil-
unareiginleika mannfólksins. Nokk-
urs konar endurfæðing mun eiga sér
stað í huga, líkama og anda fólks
um allan heim. Þjóðir, ættbálkar og
kynþættir munu leggja misklíð að
baki og sameinast til góða fyrir alla.
Það má segja að í þessum spádómum
liggi hugsjón Nýaldarinnar.
I upphafi voru ef til vill ekki marg-
ir, sem lögðu við hlustimar þegar
þessir spádómar voru ræddir, en í
dag eru fjölmargir orðnir sér þess
meðvitaðir að gera þurfi stórátak í
umhverfisvemd. Á Vesturlöndum
voru það ef til vill fyrst og fremst
áhugamannahópar eins og Green-
peaee og aðrir sem vöktu virkilega
máls á umhverfísvernd, en í dag eru
vísindamenn og stjómmálamenn alls
staðar í heiminum orðnir meðvitaðir
um nauðsyn þess að snúa vörn í sókn
og breyta ástandi umhverfismála.
Að þroska sjálfíð
Um leið og við náum meiri andleg-
um þroska hækkar tíðnisvið okkar
og við náum andlegu sambandi við
aðra sem em með lík áhugamál. Við
fömm að leita eftir jafnvægi í sam-
skiptum við náungann. Til að ná því
þurfum við að taka ábyrgð á eigin
gerðum og einnig sýna meiri kærleik
og umburðarlyndi gagnvart náung-
anum. Við það myndast andleg
endurómun, mikil samstilling og til
verður hæfara fólk til að takast á
við vandamálin í umhverfinu. Vanda-
málin hætta þá kannski að verða
vandamál og verða einungis að
óleystum verkefnum.
Bandarískur rithöfundur, Jack
Clarke, hefur skilgreint Nýaldarfólk
á mjög skemmtilegan máta og em
hér nokkur dæmi úr skýringum hans:
* Fólk sem hefur hugrekki til að
stjóma lífi sínu sjálft.
* Fólk sem veit að það verður að
vera sátt við sjálft sig, áður en
það er sátt við aðra.
* Fólk sem hugsar um líkamann,
þroskar hugann og nærir andann
til að vera heilt og í jafnvægi.
* Fólk sem skilur að hið óþekkta
er hluti af Guði sem enn hefur
ekki verið uppgötvaður.
Nýaldarmót á íslandi
Undanfarin ár hefur hópur fólks
gengist fyrir árlegu móti í Nýald-
arstíl við rætur Snæfellsjökuls,
stærstu orkustöðvar landsins, undir
nafninu Snæfellsás — Mannrækt
undir Jökli. Snæfellsás ’90 er fjórða
mót sinnar tegundar og verður hald-
ið nú um verslunarmannahelgina á
Brekkubæ, Hellnum, Snæfellsnesi. í
ár hefur verið lögð rík áhersla á að
leita til sem flestra hópa fólks sem
vinna í sjálfsrækt, þannig að mótið
megi verða endurómun af skoðunum
þeirra og tilgangi í lífinu. Svona
Nýaldarmót eru haldin víða um heim,
þar sem fólk með lík áhugamál kem-