Morgunblaðið - 28.07.1990, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1990
23
Minning:
Krislján I. Karls-
son frá Þórshöíh
Fæddur 3. nóvember 1945
Dáinn 22. júlí 1990
í dag, laugardaginn 28. júlí, verð-
ur mágur minn, Kristján Ingi Karls-
son, jarðsunginn frá Sauðaneskirkju.
Hann var fæddur 3. nóvember 1945,
sonur hjónanna Vilborgar Kristjáns-
dóttur og Karls Hauks Kjartansson-
ar. Kristján var alinn upp í foreldra-
húsum á Þórshöfn ásamt systkinum
sínum, Ragnhildi og Amþóri. Ungur
fór hann til Akureyrar og lærði þar
bifvélavirkjun er varð grunnurinn
að starfí hans sem bifvélavirki, vél-
stjóri hjá eigin útgerð og síðar jarð-
vinnuverktaki ásamt mági sínum og
bróður.
Þann 7. júní 1974 kvæntist hann
eftirlifandi konu sinni, Kristínu Sig-
urbjörgu Jónsdóttur frá Stykkis-
hólmi. Þá hófust kynni okkar Krist-
jáns sem reyndist vera glaðlyndur,
ljúfur og fómfús maður. Ætíð var
gott að koma á heimili þeirra, þó
að ferðimar austur hafi verið alltof
fáar. Syni Kristínar, Jóni Elvari,
reyndist hann sem besti faðir.
Kristján bar hag Þórshafnar mjög
fyrir brjósti og var valinn í hrepps-
nefnd auk annarra trúnaðarstarfa
fyrir sveitarfélagið.
Kristján var maður sem ætíð leit
tilveruna björtum augum og sá oft
skoplegu hliðamar á hlutunum.
Hann var staðfastur og trúr hug-
sjónum sínum. Undanfarin ár átti
hann við mikla vanheilsu að stríða,
sem hann bar með miklu æðruleysi.
í vor kom sólargeisli inn í líf hans,
mitt í lokabaráttunni, þegar Jóni
Elvari og unnustu hans, Jóhönnu,
fæddist dóttirin Kristín Inga.
Kæra systir, fyrir hönd foreldra
minna, systkina og fjölskyldna,
sendum við þér, fjölskyldu þinni og
ættingjum Kristjáns Inga okkar inni-
legustu samúðarkveðjur. En eins og
segir í Spámanninum eftir Kahlil
Gibran: „Sorgin og gleðin ferðast
saman að húsi þínu, og þegar önnur
situr við borð þitt, sefur hin í rúmi
þínu.
Þegar sál þín vegur gull sitt og
silfur á metaskálum, hlýtur gleðin
og sorgin að koma og fara.“
Sigurður Jónsson
22. júlí síðastliðinn lést í Land-
spítalanum í Reykjavík Kristján Ingi
Karlsson frá Þórshöfn eftir langa
og harða baráttu við ólæknandi sjúk-
dóm. Hann var á fertugasta og
fímmta aldursári.
Kristján Ingi var fæddur á Þórs-
höfn á Langanesi 3. nóvember 1945,
sonur hjónanna Vilborgar Kristjáns-
dóttur frá Holti í Þistilfirði og Karls
Hauks Kjartanssonar frá Hvammi í
sömu sveit. Kristján var elstur sinna
systkina en þau eru Guðrún Ragn-
hildur f. 22. júlí 1947 og Arnþór f.
18. apríl 1954.
Að lokinni hefðbundinni skóla-
göngu í heimabyggð sinni hóf Kristj-
Minningar-
og aftnælis-
greinar
Það eru eindregin tilmæli
ritstjóra Morgunblaðsins til
þeirra, sem rita minningar- og
afmælisgreinar í blaðið, að
reynt verði að forðast endur-
tekningar eins og kostur er,
þegar tvær eða fleiri greinar
eru skrifaðar um sama ein-
stakling. Vilji höfundur vitna í
áður birt ijóð eða sálma verða
ekki tekin meira en tvö erindi.
Frumort ljóð eða kveðja í
bundnu máli eru ekki birtar.
Almennt verður ekki birtur
lengri-iexti en sem svarar einni
blaðsíðu eða fimm dálkum í
blaðinu ásamt mynd um hvern
einstakling.
án nám í Gagnfræðaskóla Akureyrar
árið 1961 og síðan í Iðnskólanum á
Akureyri þaðan sem hann tók
sveinspróf í bifvélavirkjun árið 1965.
Eftir það vann hann um skeið á
BSA-verkstæðinu á Akureyri eða
allt fram til þess að hann hóf rekst-
ur eigin verkstæðis á Þórshöfn.
Veturinn 1969-70 starfaði Krist-
ján á bifreiðaverkstæði í Kópavogi
jafnframt því sem hann ásamt föður
sínum og frændum vann að því að
fá smíðaðan 36 tonna fískibát. Bát-
urinn var smíðaður í Stykkishólmi
árið 1970 og hlaut nafnið Skálanes
ÞH-190.
Meðan Kristján dvaldi í Stykkis-
hólmi kynntist hann ungri og glæsi-
legri stúlku, Kristínu Jónsdóttur,
dóttur hjónanna Jóns Dalbú Ágústs-
sonar og Laufeyjar Sigurðardóttur
í Stykkishólmi. Þau kynni leiddu
síðan til þess að þau Kristín og
Kristján gengu í heilagt hjónaband
7. janúar 1974. Þau reistu sér hús
á Lækjarvegi 6 á Þórshöfn og bjuggu
sér þar einstaklega notalegt heimili.
Kristján starfaði sem vélstjóri á
Skálanesinu fram í febrúar 1973 en
þá sleit bátinn upp í ofviðri á höfn-
inni á Þórshöfn og rak upp í stór-
grýtisfjöru þar sem hann eyðilagðist.
Kristján fékk meistarabréf í bif-
vélavirkjun árið 1974 og réðst sama
ár sem formaður að Bifreiðaverk-
stæði Kaupfélags Langnesinga á
Þórshöfn. Þar vann hann í u.þ.b. tvö
ár.
Árið 1977 stofnuðu HaukurKjart-
ansson og synir hans, Kristján og
Amþór, og tengdasonur, Guðmund-
ur Hólm Sigurðsson, sjálfseignarfé-
lagið Haka í þeim tilgangi að reka
steypustöð og vinnuvélar. Þar starf-
aði Kristján síðan meðan heilsan
entist. Það kom í hlut þeirra Kristj-
áns og Guðmundar að standa fyrir
rekstri fyrirtækisins. Það gerðu þeir
í samvinnu og bróðerni sem aldrei
bar skugga á.
Það gat ekki hjá því farið að
Kristján yrði kallaður til trúnaðar-
starfa í sínu byggðarlagi enda var
Þann 20. júlí síðastliðinn andaðist
hún amma okkar, Vigdís I. Árna-
dóttir. Hún amma sem var alltaf
ömggi staðurinn. Hún amma sem
passaði okkur öil árin. Alveg frá því
við fæddumst fylgdist hún með okk-
ur og tók okkur svo í gæslu. Hvað
getum við sagt?
Við þökkum ömmu fyrir allt.
Geymum það. Lærum af því. Verð-
um nýtir og góðir menn af því sem
hún kenndi okkur. Minningin um
elsku ömmu mun alltaf hlýja okkur
og gera okkur dugleg og þakklát
fyrir það að hafa þekkt hana.
Helga Ýr og Erlingur Þór.
í dag kveðjum við tengdamóður
mína, Vigdísi Ingibjörgu Amadótt-
ur, sem lést 20. júlí sl. Það var ekki
erfítt fyrir ungan mann að kynnast
Dísu, hún var opinská og átti auð-
velt með að ná til fólks.
Við öll sem byrjuðum búskap á
heimili hennar getum verið þakklát
fyrir þá leiðsögn sem hún lagði okk-
ur til út í llfsbaráttuna, hún var
óspör á góð ráð í flestum efnum,
enda var Dísa kunn af ráðdeild og
hagsýni.
Það var líka auðvelt að hlusta á
Dísu því hún setti mál sitt fram af
raunsæi og skynsemi, hún sagði
ávallt sína meiningu án þess þó að
það særði nokkra sál. Lífsstarf Dísu
snérist að mestu um fjölskyldu henn-
ar, ekki bara börnin og þeirra fjöl-
skyldur, heldur og ekki síst var hún
hann reiðubúinn til þess að leggja
hönd á plóginn I öllu því sem til
bóta horfði fyrir Þórshöfn og sveit-
ina. Hann sat í hreppsnefnd Þórs-
hafnarhrepps 1974-1978 og 1982-
1986. Þar starfaði hann m.a. í bóka-
safnsnefnd, vatnsveitunefnd, bmna-
málanefnd og framkvæmdanefnd
vegna byggingar leiguíbúða. Hann
átti og sæti í stjóm Hraðfrystistöðv-
ar Þórshafnar hf. frá 1978-1988.
Öll þessi félagsstörf eins og önnur
rækti Kristján af þeirri einlægni og
vandvirkni sem honum var eiginleg.
Það er því mikið áfall fyrir hið litla
samfélag á Þórshöfn að missa liðs-
mann eins og Kristján Inga. Þar er
sannarlega skarð fyrir skildi.
Kristján Ingi var einstakur mann-
kostamaður að dómi allra þeirra sem
kynntust honum. Hann hafði til að
bera þá eiginleika sem gera hvern
mann öfundsverðan. Hann var svo
heilsteyptur og hreinskiptinn í dag-
fari að ég held að hann hafí aldrei
sagt vísvitandi ósatt. En ef til vill
bar eljusemina og vinnugleðina hæst
í fari hans. Hann var sívinnandi nær
alla daga meðan heilsan entist. Hon-
um var vinnan nautn og aldrei var
hann glaðari en þegar verk gekk vel.
Meðan hann gekk heill til skógar
var alltaf annríki og þungur véladyn-
ur í kringum Kristján. Frændur og
vinir á sumarferðalögum sáu bros-
andi andliti hans bregða fyrir innan
við rykugan gluggann á gröfunni
eða steypubílnum. Stundum gátu
menn gengið á logsuðuglampann á
Hakaverkstæðinu þar sem algallað-
ur, hjálmvæddur suðumaður var að
óþreytandi að snúast fyrir vina- og
frændfólk sitt þegar þess þurfti með.
Hún var enda ættrækin vel og
margar bestu stundir hennar tengd-
ust því að hafa fjölskyldu sína eða
ættingja í kringum sig.
Það var enda svo þegar Dísa var
lögð á Landspítalann, þar sem hún
háði stutt en erfitt stríð við óvæginn
sjúkdóm, þá var hugur hennar ein-
lægt við bamabömin, hver gætti
þeirra, hvað þau væru að gera og
hvernig þeim vegnaði. Þessi börn sjá
nú á bak góðri ömmu, sem ævinlega
gaf þeim þann tíma sem þau þurftu
og ól önn fyrir þeim á allan hátt,
hennar er nú sárt saknað í þeim
hópi. En Dísa ræktaði einnig fleira
vel, garðávaxta-, blóma- og tijárækt
,var henni mikið kappsmál, starf
hennar ber glöggt vitni um það svo
sem lóðin við Hátún sem og lóðin
umhverfis sumarhúsið að Hömrum
í Grímsnesi.
Dísa var ættuð frá Hömmm og
átti sá staður stóran sess í huga
hennar. Þar hófst hún handa við
mikla trjárækt sem nú er orðin vísir
að eilitlum skógi, sem telur fleiri
hundruð tijáplöntur. Dísa lagði
mikla álúð í þessi störf sem raunar
á við um allt sem hún tók sér fyrir
hendur, á Dísu var aldrei neitt hálfk-
ák.
Þegar við nú kveðjum Disu I
hinsta sinn er söknuðurinn mikill,
engu að síður getum við verið þakk-
lát fyrir að hafa fengið að verða
henni samferða í lífinu sem engan
óraði fyrir að endaði svo snöggt sem
raun varð á.
Vigdís I. Amadóttir,
Hátúni — Minning
Fædd 20. ágúst 1932
Dáin 20. júlí 1990
störfum. En svo var logsuðuhjálmin-
um lyft, vettlingurinn tekinn niður
— bros, hlýtt og þétt handtak. Gest-
komanda fagnað og tekið upp hjal,
létt eða alvarlegt eftir atvikum. En
hér dugði ekkert slór. Innan skamms
var hjálminum skellt fyrir andlitið
og maðurinn horfinn í ofbirtu, reyk
og gneistaflug logsuðunnar. Önnin
kallaði. Hann var verkmaður svo af
bar og snjall verkstjóri. Að vísu var
hann öðruvísi en margir verkstjórar
að því leyti að ef eitthvert verk var
sérstaklega erfitt eða óþrifalegt þá
gekk hann í það sjálfur. Hann vildi
alltaf vera í fremstu víglínu hverrar
framkvæmdar og var til þess sjálf-
kjörinn vegna dugnaðar síns og
hæfni. Þannig var Kristján.
Kristján Ingi var gæddur prýði-
legum skipulagshæfileikum, var
stefnufastur og hafði ákveðnar
lífsskoðanir. Hann hneigðist að sam-
vinnu, samhjálp og félagshyggju.
Það gerði hann þótt hann væri sjálf-
ur þeim kostum búinn að geta rutt
sér braut. Hann þurfti ekki á hjálp
annarra að halda — aðrir þurftu
frekar á styrk hans og stoð að halda
og þar var hann sannarlega fús veit-
andi.
Hann var einlægur friðarsinni og
þar af leiðandi á móti erlendum her-
stöðvum á Islandi. Hann kaus að
standa utan við allar framkvæmdir
á vegum hersins í héraðinu þótt þar
hefði líklega verið möguleiki á að
mala gull fyrir mann með hans at-
gervi. En Kristján var sjálfum sér
samkvæmur — hjá honum fóru sam-
an orð og athafnir. Hann var klettur.
Enginn vafí er á því að Kristján
unni átthögum sínum og vildi veg
þeirra sem mestan. Þar haslaði hann
sér starfsvöll og þar var hann á rétt-
um stað. Frá barnsaldri og fram á
fullorðinsár dvaldi hann jafnan á
sumrin í Holti í Þistilfírði hjá móður-
systkinum okkar beggja eins og svo
mörg böm systkinanna þaðan. Þá
var oft glatt á hjalla og Kristján
hrókur alls fagnaðar. Þar lágu leiðir
okkar einkum samari og þar tengd-
umst við sterkum bræðraböndum
þótt aldursmunur væri nokkur. Það
er mikið sólskin og angan af ný-
slægju í minningunni og ósjálfrátt
kemur kvöldsólin. í varpanum og í
glugganum á vesturstofunni fram í
hugann. Þetta vom hamingjudagar.
Tengsl Kristjáns við sveitina rofnuðu
ekki þótt starfsvettvangurinn yrði á
Þórshöfn. Hann var jafnan boðinn
og búinn til þess að rétta frændum
sínum í Holti hjálparhönd ef með
þurfti og þar sem Kristján átti hlut
að máli var aldrei um neina hálf-
velgju að ræða.
Það var gott að koma á heimili
þeirra Kristínar og Kristjáns á Þórs-
höfn. Kristján var einlægur fjöl-
skyldumaður í eðli sínu og naut sín .*.
vel sem slíkur enda kominn af fjöl-
skyldu sem tengd er óvanalega
sterkum böndum. Þau hjón voru
samhent og Kristján unni Jóni Elv-
ari, stjúpsyni sínum, eins og sínum
eigin syni. Það leyndi sér heldur
ekki stolt Kristjáns og einlæg gleði
þegar þau Jón Elvar og Jóhanna
Eiríksdóttir, unnusta hans, létu skíra
dóttur sína, Kristínu Ingu, við sjú-
krabeð hans. Það segir líka sína
sögu um samband þeirra stjúpfeðg-
anna. Heimilið á Lækjarvegi .6 var
sérstakt og bar húsráðendum vitni.
Húsið traust og vandað yst sem ^
innst, allur frágangur og búnaður
eins og best varð á kosið og reglu-
semin og snyrtimennskan auðsæ
hvarvetna. Þó var það ekki þessi
ytri rammi sem gerði komuna nota-
lega heldur hjartalag húsráðenda og
viðmót. Hér bjó fólk sem mátti
treysta.
Fyrir nokkrum árum dró bliku á
loft í lífi fjölskyldnanna í Borgar-
felli, Borgarholti og Lækjarvegi.
Veikindi Kristjáns voru orðin óum-
flýjanleg staðreynd. Hörð' barátta
var hafín, barátta sem allir tóku
þátt í. Harðast barðist Kristján sjálf-
ur, drengilega studdur af konu sinni
og fjölskyldunni. En hér var við ofur-
efli að etja. Að kveldi 22. júlí, þegar' '
sumarið stóð í mestum blóma í átt-
högum hans við Þistiifjörð, lauk
hetjulegri baráttu. Kristján Ingi var
allur.
Jónas Hallgrímsson kvað svo eftir
vin sinn Tómas Sæmundsson:
Flýt þér, vinur, í fegra heim;
kijúptu að fótum friðarboðans
og fljúgðu á vængjum morgunroðans
meira að starfa guðs um geim.
Með þessum fátæklegu orðum
vildi ég minnast gamals leikbróður, s
vinar og frænda og senda jafnframt
fyrir hönd fjölskyldu minnar og allra
systkinabamanna frá Holti innilegar
samúðarkveðjur til Kristínar og Jóns
Elvars, Hauks, Vilborgar og Arn-
þórs, Hillu, Guðmundar og dætranna
og annarra sem um sárt eiga að
binda.
Guð blessi ykkur og styrki í sorg-
inni. Minningin um góðan dreng er
huggun harmi gegn.
Óttar Einarsson
Á slíkum stundum sem þessari
er ástvinum Dísu huggun að ótal
góðum minningum tengdum henni
og lífsgöngu hennar.
Dísa var trúuð kona og ræktaði
Guð í hjarta sínu, því getum við nú
verið viss um að Hann hefur tekið
hana undir sinn vemdarvæng um
alla eilífð.
Hafi hún þökk fyrir allt,
Siggi
Enn einu sinni er mér bent á hver
lífið hverfult er. Dauði vina á góðum
aldri er manni síst i huga. í dag
horfumst við ættingjar og vinir
Vigdísar Árnadóttur í augu við þá
staðreynd að kveðja hana hinstu
kveðju.
Fyrir réttum fjörutíu árum voru
saman komnar í Lind á Laugarvatni
þijátíu ungar stúlkur, til að læra og
undirbúa sig fyrir það starf, sem
merkilegt þótti þá, húsmóðurstarfið.
Því starfi gegndi Dísa með sóma
alla tíð. Dísa er sú fímmta sem kvödd
er úr þessum hópi.
Rúmur mánuður er síðan við fögn-
uðum fjörutíu ára afmæli okkar á^
Laugarvatni. Við vissum að hún
hafíð verið lasin eins og hún sagði
sjálf. En að hún væri fársjúk, gmn-
aði enga okkar.
Dísa var vönduð manneskja, vel
gefin, jafnlynd og einstaklega þolin-
móð. Hún hafði góða kímnigáfu og
gat gert góðlátlegt grín að hlutum
á sinn hógværa hátt. Oft kom setn-
ing eða bara orð, sem hitti í mark
en særði ekki. Það þarf töluvert
umburðarlyndi og þolinmæði fyrir
ungar stúlkur, alls ókunnar, að um-
gangast daglega í níu mánuði í
heimavist.
Tími þessi er okkur öllum ógleym-
anlegur. Við höfðum frábæra kenn-
ara og öll þessi ár höfum við haft^-
samband og hist að minnsta kosti á
fímm ára fresti. Aldrei hefur borið
skugga á þennan kunningsskap, sem
orðinn er að innilegri vináttu, þótt
hópurinn dreifðist víða um landið
og út fyrir landið. Alltaf var Dísa
jákvæð og vildi allt gera til að ná
hópnum saman.
Dísa giftist ung eftirlifandi eigin-
manni sínum, Eiríki Guðmundssyni,
frá Eyrarbakka. Sjálf var Dísa fædd
og uppalin á Stokkseyri. Þau bjuggu
allan sinn búskap í Hátúni á Eyrar-
bakka, bernskuslóðum Eiríks. Eirik-
ur og Dísa eignuðust fímm böm, en ,
misstu eitt af slysförum. Bömin'
þekki ég ekki, en efast ekki um að
þau em vel gerð eins og móðir þeirra.
Barnabömin voru henni mjög
hugfólgin, sem og fjölskyldan öll.
Með þessum fáu línum kveðjum
við kennarar og skólasystur Dísu og
þökkum yndisleg kynni. Vottum
Eiríki, bömunum og barnabömunum
dýpstu samúð. Guð blessi ykkur öll.
Vilhelmína Böðvarsdóttir