Morgunblaðið - 28.07.1990, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Mjög heppilegur dagur til að
kaupa inn fyrir heimilið en þú
gætir fallið fyrir lúxus-vöru. Þú
verður með ástæðulausar áhyggj-
ur fyrir hádegi. Ræddu málin við
náinn vandamann.
Naut
(20. apríl - 20. maf) Iffö
Það getur verið að leti og sljóleiki
einkenni fyrrihluta dagsins hjá
þér. Góður dagur til að ræða við
fjölskylduna. Nú er rétti tíminn
til að fara í skemmtilegt ferðalag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 4»
Það verður eitthvert reiðileysi á
þér í sambandi við peningaeyðslu
í dag. Þér gengur vel í öllu sem
varðar vinnuna og verkefni á sviði
sköpunargáfunnar. Rómantíkin
ræður ríkjum í kvöld.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) >“$8
Gættu þess að halda loforð. Þú
munt sýna ágæta dómgreind í inn-
kaupum. Hikaðu ekki við að taka
heimboðum. Einhleypir gætu
kynnst áhugaverðu fólki í kvöld.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) «
Þú gætir orðið nokkuð iengi að
skipuleggja daginn. Margt verður
ánægjulegt í vinnunni. Þérgengur
afbragðs vel að tjá þig sem stend-
ur. Láttu skoðanir þínar í ljós.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Góðar horfur í fjármálunum. Forð-
astu kjánaskap þegar þú kaupir
inn. Ferðalög og félagslíf geta
haft spennandi kynni við hitt kyn-
ið í för með sér fyrir einhleypa.
+ Vog
(23. sept. - 22. október)
Einhverjar fyrirætlanir þínar gætu
reynst kostnaðarsamar en þér
gengur vel að vinna með öðrum
núna. Þú munt eiga athyglisvert
samtal við vin í-dag. Heppilegur
tími til að stunda félagslíf.
Sþoródreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Vertu ekki of fljótfær þegar þú
kemst að niðurstöðu. Hugsaðu þig
vel um. Þér gengur allt í haginn
í vinnunni og ástamálunum.
Ferðalög ganga vel.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Samskipti við aðra ganga vel ef
^ þú forðast fjármálasamninga. Ein-
^ hver grundvallarsannindi, sem þú
trúir á, valda þér hugaræsingi
núna. Þú átt auðvelt með að sam-
eina starf og skemmtun • sem
stendur.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú leggur e.t.v. of mikið á þig
framan af deginum. Reyndu að
hressa þig við. Þú sýnir hyggindi
í vinnunni og ástamálin ættu að
ganga einstaklega vel í kvöld!
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Reyndu að fresta ekki hlutunum
of lengi. Heppilegur tími til að
eiga hreinskilnar og einlægar við-
ræður. Hjón koma sér saman um
mikilvæg mál. Ágætt að vera
heima við í kvöld.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) -rtm*
Það gæti farið svo að þú neitaðir
vini um peningalán en eyddir síðan
stórfé í ástvin. Starfið og skap-
andi verkefni eru ofarlega á baugi
núna. Hikaðu ekki við að fara út
að skemmta þér í kvöld.
AFMÆLISBARNIÐ er hvort-
tveggja í senn, sjálfstætt i hugsun
og samvinnuþýtt. Það á gott með
að starfa með öðrum en hefur
einnig forystuhæfileika. Því geng-
*S ur best þegar það uppgötvar eigin
áhugasvið og sinnir þeim síðan.
Metnaðargirnin er mikil og það
leggur mikið á sig til að ná mark-
miðum sínum. Það hefur hæfileika
til að hagnast fjárhagslega á list-
rænum hæfileikum sínum og hefur
stundum áhuga á félagslegum
velferðarmálum.
Stjörnuspána á ad lesa sem
dœgradvöl. Spúr af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra stadreynda. :
DÝRAGLENS
/ Kerr/R eru alljaf \ VálTTHV'/tt? AÐ 3RALL A.-j 5 NUPKA í K«INeU/V1 HÚSI£>, ELT/A GÚAÞHl'BOLTA... ^ LÆRA AP NJ UF /MITT NIOTA PtíSA ) f HEFUR ÖVLASV HNÍriNH-' J\ NVTAN . ) n \_TtL6AN6_ij 'bé ollfL
United Feature Syndicate, Inc. : '
g Vn- 'l
I7AVf6) 5-23 ©
LJÓSKA
FERDINAND
SMAFOLK
ALL IMP0INGI5 5ITTING
ON TOUR BLANKET.. IF YOU
TRY TO PULL IT AWAY, l'LL
5UE YOU F0R ANIMAL CRUELTY!
KEEP THE BLANKET..
I'M 60IN6 INTO THE
KITCHEN,ANPMAKE MY5ELF
A CH0C0LATE 5UNPAE...
Það eina sem ég geri er að sitja á
teppinu þínu... Ef þú reynir að
toga það í burtu liöfða ég mál á
hendur þér fyrir illa meðferð á
skepnum!
Halt þú teppinu ... Eg ætla inn í
eldhús og búa mér til súkkulaðiís ...
Þetta er ill meðferð á skepnum!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
MULTI-opnunin á 2 tíglum
(veikir tveir í hálit eða sterk
spil), hefur náð geysilegri út-
breiðslu í bridsheiminum. Skýr-
ingarnar eru margar: Opnunin
fellur vel að flestum sagnkerf-
um, og losar auk þess um 2
hjörtu og 2 spaða, sem þá má
nota til annarra hluta. Loks má
nefna að erfitt er að veijast
opnun þegar ekki er vitað um
litinn sem hún byggist á. En
MULTI er heldur ekki gallalaus:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ Á
V ÁK976432
♦ 75
Vestur ♦ ÁD Austur
♦ 7
♦ D
♦ ÁK10964:
♦ KG62
Suður
♦ 98643
V 85
♦ G
♦ 109754
♦ KDG1052
V G10
♦ D83
♦ 83
í fyrri leik Islands og Dan-
merkur í opna flokknum á NM,
opnaði Karl Sigurhjartarson í
suður á 2 tíglum, MULTI. Auken
í vestur stökk í 4 tígla og Sævar
Þorbjörnsson sagði 4 hjörtu.
ALERT! Karl varaði réttilega við
sögninni, því samkvæmt kerfinu
er ætlast til að opnari breyti í
sinn hálit. Sem Karl gerði og
Sævar varð því að segja 5 hjörtu.
Sem, satt að segja, er ekki sér-
lega árennilegur samningur, en
vinnst þó alltaf þar eð vestur á
drottninguna staka í trompi.
Annars var algengt að AV
fómuðu í 5 lauf yfir 4 hjörtum.
Það gerðist meðal annars á hinu
borðinu:
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 spaði
3 tíglar 4 hjörtu Pass Pass
4 grönd Dobl 5 lauf Pass
Pass Dobl pass Pass
Pass
Danska parið Adamsen og
Nicolaisen spila Carrotti-sagn-
kerfið, þar sem opnað er á allar
hendur með 8-12 punkta. Þor-
lákur Jónsson varð sagnhafi í 5
laufum og fékk út spaðakóng.
Adamsen drap á spaðaás, tók
hjartaás og spilaði hjartakóng
til að stytta blindan. Þorlákur
trompaði, tók tígulás, stakk tígul
og spilaði svo trompi á gosa og
drottningu. Aftur kom hjarta og
Þorlákur vildi ekki leggja allt á
2-2-legu í trompi og henti spaða.
En þegar í ljós kom að suður
átti ekki fleiri hjörtu sá Þorlákur
að laufið var sennilega 2-2, svo
hann henti tígli. Þrír niður og 3
IMPar til Dana.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
í landskeppni Dana og Svía í
Helsingjaborg í vor, kom þessi
staða upp í skák stórmeistaranna
Curts Hansen, Danmörku, sem
hafði hvítt og átti leik, og Ulfs
Anderson, Svíþjóð.
28. Rxf6! - KxRi 29. Hxd4 -
Kg6 30. Df4 - Dc5 31. Hd6! -
He7 32. Hld5 og Anderson gafst
upp.
Danir sigruðu í keppninni með
níu vinningum gegn sjö. Mestu
munaði þeim um Curt Hansen sem
vann alþjóðlega meistarann Wess-
mann í seinni umferðinni. Af
Svíunum stóð Pia Cramling sig
langbezt. Hún vann Jacob Ost
Ilansen, þaulreyndan landsliðs-
mann Dana, í báðum skákunum.
Eins og venjulega voru töluverð
forföll í báðum sveitunum.