Morgunblaðið - 02.08.1990, Síða 1
56 SIÐUR B
173. tbl. 78. árg.
FIMMTUDAGUR 2. AGUST 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Enginn hugar
aðlíkunum
Lík tuga manna liggja enn
eins og hráviði í bænum
Paynesville í úthverfi
Monróvíu, höfuðborgar
Líberíu, þar sem þessi mynd
var tekin í gær. Þar voru
um 600 manns myrt á
grimmdarlegan hátt inni í
kirkju síðastliðinn sunnu-
dag. Að sögn fréttamanns
Aeuíers-fréttastofunnar
sem gekk um götur Paynes-
ville í gær er aðkoman
hroðaleg. Þegar líkin eru
skoðuð er ljóst að aðfarirnar
voru hrottalegar, mörg bera
áverka og reipi er bundið
um hendur eins fórnarlamb-
anna. Sum líkanna hafa leg-
ið á götum Paynesviile svo
dögum eða vikum skiptir og
er fnykurinn af þeim ægi-
legur. Blaðamenn fundu
nýlátinn mann á þriðjudag
og virtist sem byssustingur
hefði verið rekinn í gegnum
höfuð hans. íbúar bæjarins
segjast vera of hræddir til
þess að huga að hinum
látnu. Þess vegna liggja
líkin og rotna í hitasvækj-
unni og mátti í gær sjá
hunda rífa þau í sig. „Eg
hef ekki farið út úr húsi í
mánuð,“ sagði einn íbúanna,
„ég hef bara heyrt hávaða.“
Reuter
Trinidad og Tobago:
Leiðtogi múslima-
hópsins gefst upp
Öllum gíslunum sleppt heilum á húfí
Port of Spain. Reuter.
LEIÐTOGI múslimskra skæruliða, sem haldið höfðu tugum manna,
þ. á. m. nokkrum ráðherrum, í gíslingu í höfuðborg Trinidads og
Tobago frá því á föstudag, gafst upp síðdegis í gær. Ennfremur
var 43 gíslum í þinghúsinu og sjónvarpsstöð landsins sleppt. Að
sögn karabísku fréttastofunnar CANA gáfust múslimarnir upp skil-
yrðislaust.
Leiðtogi þeirra, blökkumaðurinn
Abu Bakr, gekk út úr sjónvarpshús-
inu með hendur á lofti en hélt þó
enn á riffli, að sögn sjónarvotta.
Múslimarnir höfðu krafist þess að
forsætisráðherra landsins, er þeir
héldu um hríð í gíslingu en létu
lausan á þriðjudag, segði af sér,
boðaðar yrðu kosningar innan sex
mánaða og jafnframt að þeir yrðu
ekki sóttir til saka fyrir tiltæki sitt.
Stjórnleysi ríkti dögum saman í
höfuðborginni, Poit of Spain, kveikt
var í fjölmörgum byggingum og
rænt og ruplað í verslanahverfum.
Ekki er vitað til þess að neinn
gíslanna hafi týnt lífi en í átökum
lögreglu og óaldarlýðs á götum úti
er talið að um 30 manns hafi fallið.
CANA hafði eftir talsmanni stjórn-
valda að skæruliðar yrðu fangelsað-
ir. Verði þeir sóttir til saka eiga
þeir á hættu dauðadóm fyrir land-
ráð.
Viðræður Iraka og Kúvæta fara út um þúfur:
Olíuverð hækkar vegna
stríðshættu við Persaflóa
Jedda. Reuter.
VIÐRÆÐUR milli íraka og Kúvæta í Jedda í Saudí-Arabíu fóru út
um þúfur í gær. írakar sögðu að Kúvætum hefði ekki verið alvara
með viðræðunum og þeir ætluðu ekki að koma til móts við kröfur
stjórnvalda í Bagdad. Olíuverð hækkaði í gær vegna ótta við innrás
íraka í Kúvæt. írakar hafa sent 100.000 hermenn til landamæra Kúv-
æt en þeim var hins vegar haldið opnum í gær og engin merki voru
um hernaðarleg átök.
Viðræðurnar í Jedda sigldu í I um í Persaflóastríðinu, eru við öllu
strand innan_ sólarhrings eftir að I búin og Bandaríkjamenn halda nú
þær hófust. írakar gera tilkall til
landsvæða í Kúvæt og viija að
skuldir sem þeir söfnuðu í stríðinu
við íran verði felldar niður. Þeir
fara einnig fram á milljarða banda-
ríkjadala í skaðabætur fyrir olíu,
sem þeir segja Kúvæta hafa stolið
úr olíulindum á landamærum
ríkjanna.
Sérfræðingar fullyrða að
stríðshætta á svæðinu sé meiri en
hún hefur verið síðan í Persa-
flóastríðinu. Saudí-arabískir milli-
göngumenn sögðu að samningaað-
ilar hefðu aðeins hist einu sinni —
setið einn tveggja klukkustunda
fund á þriðjudag. Báðir samninga-
aðilar töluðu um frekari viðræður
en írakar, sem voru tregir til að
hitta Kúvæta í Saudí-Arabíu, krefj-
ast þess að þær fari fram í Bagdad.
Bandarísk herskip á Persaflóa,
sem gegndu mikilvægu hlutverki í
að halda olíuflutningaleiðum opn-
heræfingar með Sameinuðu
arabísku furstadæmunum, öðru
Persaflóaríki sem vakið hefur reiði
Iraka.
Olíuverð snarhækkaði í gær þeg-
ar fréttir um að viðræðurnar hefðu
farið út um þúfur bárust til oliu-
markaða og vegna orðróms, sem
hvergi fékkst staðfestur, um að
íraskar hersveitir hefðu ráðist inn
í Kúvæt. Norðursjávarolía seldist í
London í gær á 20,40 dali fatið og
hefur ekki verið hærri í verði síðan
um miðjan febrúar.
Sjá „Að bjóða Saddam ..“ á
bls. 22-23.
Stjórnvöld í eyríkinu, sem er við
strönd Venezuela, hvöttu aðrar
þjóðir til að senda hjálpargögn,
einkum matvæli og lyf, til landsins.
Sendifulltrúi þeirra í New York
sagði að nær öllum birgðum af
slíkum vörum hefði verið stolið
meðan ringulreiðin ríkti í höfuð-
borginni. Verðfall á olíu, helstu út-
flutningsvöru Trinidad og Tobago,
hefur valdið miklum efnahagsörð-
ugleikum þar síðustu árin.
Þýskaland:
Samkomulag
um kosninga-
fyrirkomulag
Bonn. dpa.
SAMKOMULAG hefur nú náðst
um fyrirkomulag sameiginlegra
þingkosninga í Þýskalandi 2. des-
ember næstkomandi.
Samkvæmt því verður 5%-reglan
svokallaða í gildi um landið allt. í
því felst að hver flokkur sem býður
fram þarf að minnsta kosti 5%
heildaratkvæða til þess að fá þing-
sæti. Að óbreyttu myndi það aug-
ljóslega útiloka möguleika nær allra
austur-þýsku flokkanna. Því verður
þeim gert kleift að bindast kosn-
ingabandalagi við samsvarandi
flokka í Vestur-Þýskalandi og
reiknast atkvæði þeirra saman þeg-
ar 5%-reglunni verður beitt. Gamli
kommúnistaflokkurinn sem nú
nefnist Flokkur hins lýðræðislega
sósíalisma er því svo að segja
dauðadæmdur í kosningunum í des-
ember vegna þess að útilokað er
að hann finni samstarfsaðila í
vestri.
Dodda-bækumar umskrifaðar
London. The Daily Telegraph.
BÆKURNAR um Dodda, Eyrnastóran, Lása löggu og félaga
í Leikfangalandi þykja nú ekki lengur hæfa sem lesefni fyrir
börn, að minnsta kosti ekki óbreyttar.
Fyrsta Doddabókin kom út
fyrir fjörutíu árum og alls urðu
þær 24 talsins. Eins og aðrar
bækur ensku skáldkonunnar
Enid Blyton urðu þær fljótt
geysivinsælar. Undanfarin ár
hefur hins vegar borið á þeirri
gagnrýni að bækurnar ýti undir
kynþáttafordóma og ali á rang-
hugmyndum um hlutverk kynj-
anna. í sumum bæjum á Eng-
landi þar sem Verkamannaflokk-
urinn fer með völd hafa bækurn-
ar verið bannaðar á bókasöfnum.
„Breytingar verða gerðar á
bókunum að hluta til vegna
gagnrýni á kynþáttafordóma og
kvenhatur sem sagt er að birtist
í þeim og einnig vegna þess að
okkur fannst sem Doddi byggðist
á gildum sem ekki væru lengur
mikils metin,“ segir Caroline
Bishop, forstjóri MacDonalds-
bókaútgáfunnar. Svartálfarnir
svokölluðu sem eru „vondu kall-
arnir“ og minna á skopmyndir
DÍISD!
i fojájubeit
Bækurnar um Dodda verða nú
færðar til nútímalegra horfs.
af svertingjum hverfa nú úr
Dodda-bókunum og í staðinn
koma apar og ljósálfar. Einnig
fá kvenkynsverur bókanna nýrra
og nútímalegra yfirþragð. Stúlka
sem áður sagði: „Ég er hrædd,
viltu gæta mín?“ segir í nýju út-
gáfunni: „Ég er ekkert hrædd
en ég veit að þú munt hvort sem
er gæta mín.“ Brúðurnar í Leik-
fangalandi verða ekki lengur all-
ar hvítar heldur bætast kínverjar
og eskimóar í hópinn.
„Ég er viss um að Enid Blyton
hefði umskrifað bækurnar sjálf
væri hún á lífi,“ segir dóttir henn-
ar sem er fullkomlega sátt við
breytingarnar. „Hún var raunsæ
og hún hefði gert sér grein fyrir
því að talsmáti fólks breytist ein-
faldlega á fjörutíu árum.“