Morgunblaðið - 02.08.1990, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1990
V erslunarmannahelgin:
Skin og skúrir skipt-
ast á um helgina
VEÐURSTOFAN gerir ráð fyrir að létti til á Suður- og Suðaustur-
landi í dag og að lítilsháttar kólni í veðri, en annars lítur út fyrir
að skin og skúrir skiptist á um allt land um verslunarmannahelgina.
Vestan- og norðvestanátt mun
ríkja á morgun. Á Vestfjörðum og
við norðurströndina verður skýjað
Reykjavík:
Hlýjasti
júlí síð-
an 1968
NÝLIÐINN júlimánuður var
hinn hlýjasti í höfuðborginni
í 22 ár eða frá árinu 1968.
Meðaihitinn var 11,6 stig, en
1968 var hann 11,7 stig. Hit-
inn var 0,8 gráðum yfír með-
allagi.
Sól skein á höfuðborgarbúa
f samtals 171 klukkustund í
júlí, eða þremur stundum skem-
ur en í meðalári. Fyrstu daga
mánaðarins var óvenju mikil sól
að sögn Trausta Jónssonar veð-
urfræðings. Hins vegar var
óvenju skýjað síðar í mánuðin-
um.
Úrkoma var mjög nálægt
meðallagi, eða 49 millimetrar.
og lftilsháttar súld, en þurrt í öðr-
um landshlutum. Líklega verður
léttskýjað um sunnan- og austan-
vert landið.
Á laugardag verður vindur suð-
vestlægari og þá léttir heldur til
á Norðurlandi en á Suðvestur- og
Vesturlandi má búast við ein-
hverri rigningu og síðar þann dag
á Suðausturlandi. Hiti verður 9-14
stig um vestanvert landið og 12-19
stig á austanverðu landinu.
A sunnudag snýst vindur smám
saman til norðausturs og þá kóln-
ar lítið eitt í veðri. Aftur þykknar
upp á norðanverðu landinu og
búast má við vætu, einkum við
ströndina. Er líða tekur á daginn
léttir til á sunnanverðu landinu.
Vesturland:
Fimm milljarðar bornir út
Morgunblaðið/Sverrir
Bréfberar landsins eru um þessar mundir að bera út ávísanir vegna endurgreiðslna ríkissjóðs. Alls eru
um fimm milljarðar króna að koma inn um bréflúgur landsmanna þessa dagana og því nóg að gera hjá
póstþjónustunni. Mestu munar þar um endurgreiðslu vegna ofgreidds tekjuskatts og útsvars sem nemur
1.900 milljónum króna. Þá eru greiddar út 1.420 milljónir í vaxtabætur, 624 milljónir í húsnæðisbætur,
838 milljónir í barnabætur og 238 milljónir í barnabótaauka.
Útgerðarmenn kvarta undan
rýmun afla á fískmörkuðum
Sjávarútvegsráðuneytið kannar málið
Hvammstangi:
Vertshúsið selt
Hvammstanga.
Fulltrúi sýslumanns Húnavatns-
sýslu sló Sparisjóði V-Húnvetninga
eignir Vertshússins hf. á Hvamms-
tanga á uppboði fyrir krónur 7,5
milljónir. Var þar selt bæði fasteign
og lausafé. Núverandi leigjandi rek-
ur hótelið til ágústloka. - Karl
Sjávarútvegsráðuneytið vinn-
ur nú að athugun á allmörgum
kvörtunum, sem undanfarið
hafa borist frá ýmsum útgerð-
armönnum á Vesturlandi sem
selt hafa afla báta sinna á fisk-
mörkuðunum á höfuðborgar-
svæðinu vegna þess hve mikil
rýrnun verði á þyngd aflans á
þeim tíma sem líður frá því
hann er veginn í heimahöfn,
eins og skylt er, og þar til á
Samband íslenskra sveitarfélaga:
Fyrrum bæjarstjórar sækja
um stöðu framkvæmdastjóra
STJÓRN Sambands íslenskra sveitarfélaga tekur afstöðu til þess
á fundi sínum 10. ágúst hver verður ráðinn framkvæmdastjóri
sambandsins. Meðal umsækjenda eru Sigfús Jónsson, Kristján Guð-
mundsson, Jón Gauti Jónsson, Úlfar B. Thoroddsen, Lárus Jónsson
og Guðrún Ágústsdóttir.
Umsækjendur um stöðu fram-
kvæmdastjóra Sambands íslenskra
sveitarfélaga eru 20. Ekki hefur
verið kynnt opinberlega hverjir
þeir eru, en samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins eru í þeim hópi
Sigfús Jónsson, fyrrverandi bæjar-
stjóri á Akureyri, Kristján Guð-
mundsson, fyrrverandi bæjarstjóri
í Kópavogi, Jón Gauti Jónsson,
fyrrverandi bæjarstjóri í Garðabæ,
.Ulfar B. Thoroddsen, fyrrverandi
sveitarstjóri á Patreksfirði, Lárus
Jónsson, framkvæmdastjóri Félags
rækju- og hörpudiskframleiðenda
og fyrrverandi alþingismaður, og
Guðrún Ágústsdóttir, aðstoðar-
maður menntamálaráðherra og
fyrrverandi borgarfulltrúi í
Reykjavík.
markaðina er komið. Á mörkuð-
unum er beitt úrtaksvigtun sem
felur í sér að minnst 10% af
afla hvers seljanda er vigtaður
og heildarþungi aflans reiknað-
ur út frá því. Að sögn Rakelar
Olsen hjá Sigurði Ágústssyni í
Stykkishólmi, sem er eitt þeirra
fyrirtækja á Snæfellsnesi, sem
látið hefúr aka afla báta sinna
á markaðina í sumar, er rýrnun-
in á bilinu 4-20%.
Hún segist telja óréttlátt að
þeim sem aka þurfi aflanum á
markaðina sé gert að vigta í
heimahöfn og þurfi að taka þess-
ari rýrnun, umfram heimilaða 2%
frádrátt vegna íss, á kvóta sínum
meðan þeir bátar sem leggi upp
hjá mörkuðunum geti byggt í
kvótaskýrslum á því magni sem
selst af afla þeirra á markaðinum.
Þá segir Rakel að fiskmarkaðimir
hafi ekki staðið við það sem þeim
hafi verið gert að gera, að senda
til hafnarvigtanna til frádráttar
upplýsingar um ísmagnið. Engin
lausn á málinu geti talist sann-
gjörn nema sú að mörkuðunum
verði gert skylt að vigta inn allan
þann afla sem þeir taki til sölu.
Grétar Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðar
Hafnarfjarðar, sagði að 10% úrtak
væri lágmark hjá markaðinum,
oftast væri stærri hluti afla veginn
og iðulega 20-30%. Hann kvaðst
telja að sú rýrnun sem kvartað
hefði verð undan skýrðist að lang-
mestu leyti af því að í raun fari
mun meiri ís í körin en 2% og
mikið bráðni á leið á markaðina.
Hann sagðist ekki sjá nauðsyn
þess að fiskmarkaðimir verðu
auknum mannafla og vinnustund-
um í að vigta inn allan afla en
slíkt yrði að sjálfsögðu gert ef
opinberir aðilar mæltu svo fyrir.
Hann kvaðst telja skekkjur vegna
þess að úrtakið væri of lítið, óveru-
legar, en ekki mætti heldur gleyma
því að þær gætu allt eins haft þau
áhrif að ofmeta innveginn' afla,
þannig að það yrði ekki seljandinn
heldur kaupandinn sem bæri
skarðann hlut frá borði.
Að sögn Þórðar Árelíussonar
hjá Sjávarútvegsráðuneytinu er
nú unnið að því að finna lausn á
þessu máli sem allir aðilar, seljend-
ur, kaupendur og markaðirnir,
geti unað við. Meðal annars hafi
verið óskað eftir því við forsvars-
menn Faxamarkaðar að þeir geri
tillögur til úrbóta. Þórður sagði
að samkvæmt reglum væri' það
skylda að vigta allan afla á löndun-
arstað en vigta síðan ísinn frá af
löggiltum vigtunarmanni á við-
tökustað, vinnslustöð eða fisk-
markaði, og gefa þyngd hans upp
til viðkomandi hafnarvigtar innan
tveggja daga.
Þórður taldi ótimabært að tjá
sig um hvaða leiðir yrðu helst
skoðaðar til lausnar málinu og
hvort á dagskrá væri að skylda
markaðina til að vega inn allan
afla.
Enginn viðmælenda Morgun-
blaðsins treysti sér til að nefna
tölu um hve mörgum tonnum sú
rýrnun sem orðið hefði á afla bá'-
tanna með þessum hætti næmi eða
að hve miklu leyti væri hugsanlegt
að ís hefði verið talinn með afla á
skýrslum.
Rauðmunnaveiki greinist
í laxaseiðum hjá Strönd
Hundaræktarfélagið fær
Sólheimakot til afnota
Hundaræktarfélag íslands hefur ákveðið að þiggja afnot af Sól-
heimakoti skammt austan við Reykjavík, en borgaryfirvöld buðu
félaginu aðstöðu þar fyrir starfsemi sína. Þar hyggst félagið reka
Hundaskólann, en hingað til hefur hann verið starfræktur við erfíð-
ar aðstæður á þriðju hæð í skrifstofuhúsnæði félagsins við Súðar-
vog.
Guðrún Guðjohnsen formaður
Hundaræktarfélags íslands sagði
í samtali við Morgunblaðið að þetta
boð væri þegið með þökkum. Hún
sagði að í Sólheimakoti væri hús
og refaskemmur.
„Námskeiðin okkar byggjast
upp á æfingum og bóklegu námi.
Við höfum í hyggju að hafa bók-
lega hlutann í húsinu, en æfingarn-
ar inni í skemmu, sérstaklega í
vondu veðri,“ sagði Guðrún.
Hún sagði að Hundaskólinn
hefði tekið til starfa þegar hunda-
hald var leyft í borginni. Allir leið-
beinendur gefa vinnu sína til upp-
byggingar starfsemi skólans.
„Þetta er mikið áhuga- og hug-
sjónastarf sem allt miðar að bættu
hundahaldi. Með því að bjóða upp
á þessi námskeið er reynt að koma
til móts við hundaeigendur, yfir-
völd og einnig þá borgarbúa sem
ekki eiga hunda.“
Guðrún sagðist búast við að fé-
lagið fái aðstöðuna afhenta á
næstu dögum og að starfsemin
hefjist þar ’um leið og búið er að
taka skemmurnar í gagnið. Mikil
aðsókn-er í Hundaskólann og eru
nú 70 hundar á biðlista.
BAKTERÍA sú er veldur Rauð-
munnaveiki greindist í laxaseið-
um Fiskeldisstöðvarinnar
Strandar í Hvalfirði þann 26.
júlí sl. Er þetta í fyrsta skipti
sem þessi baktería greinist á
Islandi en hún hefur breiðst
mjög hratt út í Evrópu á und-
anförnum árum.
Það er bakterían Yersinia ruc-
kerii sem veldur Rauðmunnaveiki
og getur sjúkdómur þessi valdið
dauða eldisfiska bæði í fersku og
söltu vatni. Hann er þó skæðastur
í seiðum sem alinn hafa verið upp
við hitastig á bilinu 10-18 gráður.
Til eru bóluefni gegn Rauðmunna-
veiki sem gefið hafa nokkuð góða
raun.
í bréfi frá Árna M. Mathiesen,
settum yfirdýralækni, til fjölmiðla
segir að orsakir þess að sjúkdóm-
urinn greinist nú hjá Strönd séu
ekki ljósar en. að unnið. sé að rann-.
sókn málsins af Rannsóknadeild
fisksjúkdóma að Keldum og við-
komandi dýralæknum.
Bifhjólamað-
ur slasaðist
alvarlega
UNGUR maður slasaðist alvar-
lega og Var sóttur inn í Kerlingar-
Qöll af þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar í fyrrinótt. Maðurinn var á
torfærubifhjóli og gerði sér leik
að því að stökkva á hjólinu af
sandbing upp á veginn.
Óhappið varð þegar hann stökk
of langt og hafnaði ofan í bröttu
gili hinum megin vegarins. Fólk í
Kerlingarfjöllum hlúði að manninum
og kallaði eftir aðstoð Landhelgis-
gæslunnar, sem sendi þyrlu sína af
stað um miðnætti. Hún lenti með
manninn við Borgarspítalann laust
eftir klukkan tvö. Þar var maðurinn
.færður til .aðgerðar og lagður inn. á
gjörgæsludeild þungt haldinn.