Morgunblaðið - 02.08.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1990
31
Athugasemd vegna skrifa Vík-
verja laugardaginn 28. júlí 1990
Skrif Víkverja síðastliðinn laugar-
dag voru um skilagjald á einnota
drykkjarvöruumbúðir og Endur-
vinnsluna hf., fyrirtæki sem var
stofnað til umsýslu og endurgreiðslu
skilagjaldsins.
Pistillinn ber vott um mikið þekk-
ingarleysi Víkveija á starfsemi og
árangri Endurvinnslunnar hf. á því
rúma ári sem liðið er frá stofnun
fyrirtækisins. Fýrir hönd Endur-
vinnslunnar hf. vil ég því leiðrétta
skrif Víkveija og skýra lesendum
Morgunblaðsins frá starfsemi og
árangri fyrirtækisins og helstu
markmiðum.
Endurvinnslan hf. er hlutafélag
með þátttöku 15 aðila. Aðalastjórn
fyrirtækisins er skipuð 5 mönnum,
einum frá hveijum eftirtaldra aðila:
íslenskum gosdrykkjaframleiðend-
um, íslenska álfélaginu hfy Kaup-
mannasamtökum íslands, Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins og Iðnað-
arráðuneytinu.
Frá stofnun Endurvinnslunnar hf.
í júní 1989 þar til móttaka og endur-
greiðsla skilagjalds á einnota drykkj-
arvöruumbúðir um allt land hófst,
liðu aðeins 2 mánuðir. Á þessum
stutta tíma var aðeins unnt að koma
á bráðabirgða söfnunarkerfi sem
m.a. byggist á 5 móttöku- og taln-
ingarstöðum í gámum og skemmum
á Stór-Reykjavíkursvæðinu og 6 á
landsbyggðinni. Öll talning fór fram
án véla og mjög fljótt kom í ljós að
sú aðferð myndi ekki duga til fram-
búðar. Handtalning var möguleg í
stuttan tíma, en bæði starfsfólk og
stjórnendur fyrirtækisins voni sam-
mála um að hún gengi ekki til lengd-
ar.
Fyrirmynd að Endurvinnslunni hf.
var m.a. sótt til Svíþjóðar þar sem
skilagjald á áldósir var lagt á 1984.
Mótttökukerfíð þar, sem og annars-
staðar í heiminum þar sem skila-
gjald er lagt á umbúðir, byggist að
langmestu leyti á móttökuvélum í
verslunum sem selja skilagjalds-
skyldar umbúðir, en einnig eru
smærri verslanir með handtalningu.
í Svíþjóð taka allir söluaðilar skila-
gjaldsskyldra áldósa við tómum
umbúðum og er það lögbundið. Með
slíku kerfi er reynt að nýta húsnæði
og mannafla sem þegar er til staðar
í verslunum þannig að kostnaður við
móttökuna verði sem minnstur.
Síðastliðið haust var ákveðið að leita
samstarfs við kaupmenn og fljótlega
hófu 13 stórmarkaðir og verslanir á
höfuðborgarsvæðinu móttöku skila-
gjaldskyldra umbúða í vélum. Kaup-
menn eiga vélarnar en fá greidda
þóknun fyrir hveija mótttekna um-
búð.
Endurvinnslan hf. stefnir að frek-
ari samstarfi við kaupmenn og telur
það mun vænlegri leið en að stað-
setja sérstakar móttökustöðvar í
hveiju hverfi á höfuðborgarsvæðinu
með talningarfólki. Rekstur slíkra
móttökustöðva yrði mjög dýr, og
miðað við þá reynslu sem endur-
vinnslan hf. fékk í byijun þá yrði
erfitt að manna þær. Hins vegar
fara flestir í verslun oft í viku og
ef söluaðilar á gosi og öli tækju al-
mennt á móti skilagjaldsskyldum
umbúðum þá væri mjög auðvelt fyr-
ir almenning að skila tómum umbúð-
um.
Rétt er að'landsmenn tóku álagn-
ingu skilagjalds mjög vel og skila-
prósentan árið 1989 var 68%, sem
var mun meira en búist háfði verið
við. Víkveiji heldur því fram að skil-
in hafi versnað, fólk nenni ekki leng-
ur að safna umbúum og áldósir og
plastflöskur liggi út um allt. Raun-
veruleikinn er allt annar, skilaprós-
entan fyrstu 6 mánuði þessa árs er
73% og er það mjög góður árangur
á fyrsta ári þegar tekið er tillit til
að áætlað hafði verið að á fyrstu
tveimur árum starfseminnar næðust
60% skil, eins og var í Svíþjóð.
Víkveiji þarf ekki annað en fara
á íþróttakappleik eða einhveija úti-
samkomu til að sjá m.a. ástæðu
þessara miklu skila. Þar sést ekki
skilagjaldsskyld umbúð þegar kapp-
leiknum er lokið því um leið og skil-
in er eftir umbúð þá hefur einhver
ákafur safnari tekið umbúðina í po-
kann sinn. Þetta sama á við um
umbúðir sem skildar eru eftir úti á
víðavangi.
Hvað það er síðan sem Víkveiji
sér liggja út um allt og enginn nenn-
ir að hirða er ekki ljóst, en víst er
að það eru ekki skilagjaldsskyldar
umbúðir.
Víkveiji telur greinilega að ekkert
söfnunarkerfi sé við lýði fyrir utan
höfuðborgarsvæðið. Þegar í upphafi
var Endurvinnslan hf. með móttöku
og endurgreiðslu skilagjalds í 7
kaupstöðum og bæjum á lands-
byggðinni og 4 kauptúnum. Auk
þess var samið við 37 fyrirtæki eða
flutningaaðila um allt land um mót-
töku poka með tómum umbúðum frá
almenningi. Það hefur því verið
kappkostað að sem flestir landsmenn
hafi greiðan aðgang að endur-
greiðslukerfi Endurvinnslunnar hf.
Þetta kerfi hefur gengið mjög
vel, en stöðugt hefur verið unnið að
því að fjölga þeim stöðum þar sem
greitt er út skilagjald og er það nú
gert í 21 kaupstað eða kauptúni.
Afram verður haldið á sömu braut.
Á grein Víkveija má skilja að
neytendur greiði 10 kr. skilagjald
við kaup á bjórflösku. Hið rétta er
að álagt skilagjald á allar einnota
umbúðir er 5 kr. og neytendur frá
greiddar 5 kr. þegar þeir skila um-
búðunum. Ölflöskur frá Ölgerðinni ^
Agli Skallagrímssyni eru margnota
og er greitt fyrir þær kr 10.
Skilagjald er ekki skattur heldur
tryggingarfé, sem neytendur fá að
fullu greitt til baka við skil.
Með von um að Víkveiji og aðrir
íslendingar haldi áfram á þeirri
braut að skila til Endui-vinnslunnar
hf. þeim skilagjaldsskyldu umbúðum
sem þeir kom höndum yfir.
Gunnar Bragason,
framkv.stjóri
Endurvinnslunnar
Wélagsúf
Sl ÚTIVIST
GRÓFIHNI1 • REYKJAVÍK • SÍMIAÍMSVARI14604
Fjölbreytni f dagsferðum um
verslunarmannahelgina -
ferðir við allra hæfi.
Sunnudagur 5. ágúst
kl. 10.30: Prestastígur
Gengin vörðuð leið frá Staöar-
hverfi í Grindavík þvert yfir
Reykjaneseldstöðvakerfið að
Kalmanstjörnum í Höfnum. Verð
kr. 1.000.
Kl. 13.00: Tóastígur-
Rauðasel
Gengið eftir gönguslóða á milli
sjö gróðurvinja í Afstapahrauni
og síðan yfir að Rauöaseli. Stutt
gönguferð um lyng- og kjarrivax-
ið gróðurlendi með tilheyrandi
blómskrúði. Brottför frá BSl -
bensínsölu, og Sjóminjasafni Is-
lands, Hafnarfirði.
Verð kr. 1.000.
Mánudagur 6. ágúst
kl. 08.00: Básar í Goðalandi.
Dagsferð á þennan rómaða stað
á sérstöku tilboðsveröi. Aðeins
kr. 1.500.
Kaupstaðarferð
kl. 08.00: Fljótshólar -
Eyrarbakki
Gengið verður frá Fljótshólum
gengt Háfi við árósa Þjórsár og
áfram með ströndinni um
Baugastaði, Stokkseyri og út á
„Bakka". Fylgt verður sem næst
gömlu þjóðleiðinni og rifjað upp
ýmislegt um kaupstaðarferðir á
fyrri tíð. Fylgdarmenn sögu- og
örnefnafróðir Árnesingar. Litið
inn í Rjómabú Baugstaöa, Þurið-
arbúð og Sjóminjasafniö á Eyrar-
bakka. Göngunni lýkur þar sem
gömlu verslunarhúsin stóðu á
Eyrarbakka.
Kl. 13.00: Þuríðarbúð -
Eyrarbakki.
Rjómabú Baugstaða skoðað.
Sameinast síðan morgun-
göngunni við Þuríöarbúð. Hægt
að stytta gönguna og fara í
stutta fjöruferð. Tilvalin ferð fyrir
fjölskyldufólk.
Kl. 13.00: Flóinn.
Skoðunarferð i rútu um Flóann.
Komið við á nokkrum sögustöð-
um og söfnum á suðurströnd-
inni. Fróðleg ferð fyrir þá, sem
treysta sér ekki í gönguferöina.
Brottför i kaupstaðarferðirnar
6/8 frá BSI’ - bensinsölu, Ár-
bæjarsafni og Fossnesti á Sel-
fossi, klukkust. síðár en frá
BSÍ. Verð kr. 1.200, kr. 600 frá
Fossnesti.
Sjáumst!
Útivist.
fpt't
QÚTIVIST
GRÓFINNI l • REYKJAVÍK • SÍMIAÍMSVARI1460«
Um verslunarmanna-
helgina 3.-6. ágúst
Básar í Goðalandi
Þaö eru rólegheit í Básum um
verslunarmannahelgina jafnt
sem aðrar helgar. Náttúrufegurð
og fjallakyrrð, tilvalinn staður til
þess að slappa af og safna orku
til nýrra átaka. Fararstjóri Ingi-
björg Ásgeirsdóttir. Verð kr.
5.500./6.000.-
Fimmvörðuháls-Básar
Fögur gönguleið upp með
Skógaá, yfir Fimmvörðuháls,
milli Mýrdalsjökuls og Eyjafjalla-
jökuls, og niöur á Goðaland. Gist
i Útvistarskálanum í Básum.
Núpsstaðarskógar
Gróðurvin i skjóli jökla i hliöum
Eystrafjalls. Skemmtilegar
gönguleiðir m.a. að Tvílitahyl.
Fararstjóri Sigurður Sigurðar-
son.
Langisjór-Sveinstindur-
Lakagígar
Svefnpokagisting. Gengið um
Lakagígasvæðið, farið í Eldgjá,
og gengin fögur leið niður með
Hellisá sem skartar ótal blæju-
fossum. Fararstjóri Þorleifur
Guðmundsson.
Spennandi
gönguskíðaferð
Sólheimajökull - Mýrdaisjökull
Farið upp Sólheimajökul með
skiðalyftu, gengið vestur Mýr-
dalsjökul og gist á Fimmvörðu-
hálsi. Ferðinni lýkur að sjálf-
sögðu í Básum.
Dagskrá Samhjálpar um
verslunarmannahelgina
verður sem hér segir:
Fimmtudagur 2. ágúst: Almenn
samkoma í Þribúðum kl. 20.30.
Mikill almennur söngur. Vitnis-
burðir. Samhjálparkórinn tekur
lagið. Ræðumaöur verður Gunn-
björg Óladóttir.
Laugardagur 4. ágúst: Opið hús
i Þríbúðum kl. 14-17. Lítið inn
og rabbiö um daginn og veginn.
Heitt kaffi á könnunni. Einsöng
syngur Gunnbjörg Óladóttir. Kl.
15.30 tökum við lagið saman og
syngjum kóra. Takið með ykkur
gesti.
Sunnudagur 5. ágúst: Sam-
hjálparsamkoma i Þríbúðum kl.
16. Fjölbreytt dagskrá með mikl-
um söng og vitnisburðum Sam-
hjálparvina. Barnagæsla. Ræðu-
maður verður Óli Agústsson.
Allir velkomnir í Þríbúðir, félag-
smiðstöð Samhjálpar, Hverfis-
götu 42, um verslunarmanna-
helgina.
Samhjálp.
Skipholti 50b, 2. hæð
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Ásmundur Magnússon prédikar.
Hópur frá Livets Ord í Uppsölum
í heimsókn. Allir innilega vel-
komnir.
UTSALA - UTSALA
\
Alltaé rO% afsláttur
Opið föstudag til kl. 21.00
Lokad laugadaginn 4. ágúst
og mánudaginn 6. ágúst
HAGKAUP
/íi£t í