Morgunblaðið - 02.08.1990, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1990
35
Ingibjörg Einarsdóttir leikkona, oft-
ast kölluð Inga Laxness. Þau hjón
voru einnig fastir frumsýningar-
gestir hjá leikhúsum borgarmnar.
Inga var stoð og stytta Óskars
í gegnum súrt og sætt. Andlegur
styrkur hennar meiri en gerist með
venjulegu fólki. Hennar saga önnur
en hans en stórmerk og bar með
sér blæ af sjálfum aldarhættinum.
Svo samrýnd voru þau hjón að þeg-
ar vinir þeirra nefndu nafn annars
þeirra kom nafn hins þegar upp í
hugann. Stuðningur þeirra hvort
við annað jókst eftir því sem aldur-
inn færðist yfir.
Ungur maður, sem eignaðist
ásamt konu sinni og börnum vin-
áttu Óskars og Ingu naut samvista
við þau hjón inrii á menningarlegu
heimili þeirra, varð ríkari af þeim
kynnum en nokkur orð fá lýst. Sam-
eiginlega höfðu þau öldnu heiðurs-
hjón svo mikið að gefa og þá ekki
síst þeim sem yngri voru.
Ég votta Ingu og ættingjum
Óskars Gíslasonar mína dýpstu
samúð. Blessuð veri minning heið-
ursmanns.
Erlendur Sveinsson
Kveðja frá Ljósmyndarafé-
lagi Islands
Óskar Gíslason, ljósmyndari og
kvikmyndatökumaður fæddist í
Reykjavík 15. apríl 1901 og var því
89 áraerhann lésthinn 24. júlí sl.
Eigi verður út í það farið að rekja
mikið ættir Óskars hér enda undir-
ritaður til þess of ókunnugur.
Það er jafnvel full erfitt að tíunda
hér mikið úr starfsferli Óskars, því
að það er jafnan svo, að þegar
menn deyja svo aldraðir sem Óskar,
þá eru samferðamennirnir allir
horfnir og í ljós kemur að sorglega
lítið er til af skráðum heimildum,
sem grípa má til fyrirvaralítið.
Óskar fékk fyrstu tilsögn í ljós-
myndun hjá Þorleifi Þorleifssyni
eldri en hóf síðan nám hjá Ólafi
Magnússyni. Að námi loknu fór
hann til Kaupmannahafnar til fram-
haldsnáms hjá mjög virtum og
þekktum ljósmyndara, Peter Elfelt.
Er heim kom setti hann á stofn
Ijósmyndastofu í Kirkjustræti 10
en var lengst af með ljósmynda-
stofu í Austurstræti 4.
Eins voru Óskar og Sigurhans
Vignir með ljósmyndastofu við
Lækjartorg undir nafninu „Óskar
og Vignir“ á árunum 1930-85.
Erfitt var með lífsafkomu á þess-
um árum eins og eldri menn muna
og munu þeir félagar hafa lagt nið-
ur stofuna vegna þess að hún gat
engan veginn framfleytt tveimur
fjölskyldum._
Þá mun Óskar aftur hafa farið
til starfa hjá Ólafi Magnússyni og
er þar fram til 1941 eða svo að
hann tekur við rekstri framköllun-
arstofu hjá Stefáni Thorarensen
apótekara og starfar þar að mestu
til 1956. Þarna sá ég undirritaður
Óskar fyrst er ég var sendisveinn
hjá Stefáni Thorarensen hf. en
kynntist honum ekki því ég átti
aldrei neitt erindi inn á framköllun-
arstofuna og fannst einhver dulúð
yfir öllu, sem var að gerast þarna
inni í myrkrinu, og Óskar ákaflega
virðulegur í sínum hvíta vinnu-
sloppi.
Störf Óskars fólust ekki hvað
síst í svona störfum, það er að segja
framköilun og úrvinnslu mynda og
kom það fram í mörgu, bæði fyrr
og síðar, enda varð hann fyrstur
til að framkalla kvikmyndir hér á
landi. Fyrstu kynni hans af fram-
köllun kvikmynda urðu þegar Danir
voru hér að kvikmynda Sögu Borg-
arættarinnar eftir Gunnar Gunnars-
son, þá fékk hann það hlutverk að
framkalla prufufilmur fyrir þessa
kvikmyndun. Óskar var ákaflega
iðinn og ódrepandi við alla úr-
vinnslu og því vann hann mikið og
þarft verk er hann vann og setti
upp sýningu á Kjarvalsstöðum 1976
í tilefni af 50 ára afmæli Ljósmynd-
arafélags íslands, þá 75 ára. Þegar
sjónvarp hófst hér varð Óskar einn
af fyrstu starfsmönnum þess og er
óhætt að fullyrða að þar var réttur
maður á réttum stað og naut Ríkis-
sjónvarpið þess hve mikla reynslu
Öskar hafði við afar þröngan tækja-
kost, sem þar var í byijun.
Snemma varð Óskar hugfanginn
af kvikmyndagerðinni og fyrsta vél
hans var handsnúin Pathe 9,5 mm
en það óhapp henti Óskar að filmu-
safn hans frá þessum árum varð
eldi að bráð.
Ekki lét hann deigan síga og
hélt ótrauður áfram og er hann í
dag ekki síst þekktur fyrir kvik-
myndir sínar en fyrsta kvikmyndin
sýnd opinberlega var Lýðveldishá-
tíðin 1944, sem sýnd var þremur
dögum eftir hátíðina og á eftir
fylgdi langur kafli þrotlausrar bar-
áttu, þar skiptust á skin og skúrir
og ekki var allt daris á rósum allt
fram undir 1960 en á þessum árum
átti Óskar oft erfitt uppdráttar sök-
um peningaleysis og má nærri geta
að kostnaðarsamt var að standa
undir kvikmyndagerð án nokkurra
styrkja.
Óskar var einn af stofnendum
Ljósmyndafélags Islands og með
honum eru allir látnir og er það
nokkuð táknrænt fyrir hann að
hann gaf félaginu stækkun af mynd
þeirri, sem tekin var af stofnendum
þegar félagið var stofnað árið 1926.
Oskar starfaði mikið í þágu fé-
lagsins, var gjaldkeri um árabil og
sat lengi í prófnefnd auk ýmissa
annarra starfa.
Nokkrir af fyrstu forsvarsmönn-
um félagsins héldu með sér spila-
klúbbi, þeir Carl Óiafsson, Sigurður
Guðmundsson, Sigurhans Vignir og
Óskar og síðar einnig Guðmundur
Hannesson og má því segja að
þarna hafi kjarni félagsins haft með
sér kunningsskap, sem félagið naut
góðs af. Fyrstu kynni mín af Óskari
urðu þegar ég tók mitt sveinspróf
á ljósmyndastofu Sigurðar Guð-
mundssonar en þá kom Óskar oft
við enda voru þeir mestu mátar.
Smátt og smátt urðu kynni okkar
meiri, er ég kom til starfa fýrir
Ljósmyndafélag íslands, því ekki
var um annað að ræða, slíkan áhuga
og vinskap sem Óskar sýndi sínu
gamla félagi.
Það þarf því engan að undra að
Óskar skyldi gerður að heiðursfé-
laga í Ljósmyndafélagi íslands.
Þegar ég kom til formannsstarfa
að nýju eftir íjögurra ára hlé varð
það eitt mitt fyrst hlutverk að
kanna áhuga fyrir ferð til Danmerk-
ur á 100 ára afmæli danska félags-
ins.
Það var mér ekki lítill styrkur
að finna fyrstu alvöru viðbrögðin
frá Óskari og konu hans, Ingi-
björgu. Þetta var fyrir 11 árum og
Óskar því 78 ára og þó svo að eng-
ir aðrir hefðu tilkynnt þátttöku sína,
þá hefðum við hjónin farið með
Ingu og Óskari einum, þvílíkur sem
áhugi þeirra og kraftur var en ég
held að þau hafi meðal annars haft
þau áhrif að út fór allstór hópur
miðað við ekki stærra félag. Það
var afskaplega ánægjulegt að
Óskar skyldi við þetta tækifæri af-
henda danska ljósmyndarfélaginu
gjöf okkar félags, sem var gestabók
úr íslensku birki gerð af meistara-
höndum Halldórs Sigurðssonar í
Miðhúsum og Hlyni, syni hans.
Óskar lét sig sjaldan vanta á
fundi og skemmtanir Ljósmyndar-
félags íslands allt fram undir það
síðasta og mættu margir yngri taka
hann sér til fyrirmyndar í þeim efn-
um.
Óskar útskrifaði 4 nema, þá
bræður Odd og Þorleif Þorleifssyni,
syni Þorleifs eldri, sem eins og áður
er sagt veitti Óskari fyrstu tilsögn
í Ijósmyndun. Þá var hann meistari
Guðmundar Hannessonar og síðast
kenndi hann Helga Sveinbjörnssyni
hjá Sjónvarpinu.
Með Óskari og Þorleifi yngri var
mikið og gott samstarf við kvik-
myndagerð Óskars en Þorleifur,
sem var mikill hæfileikamaður, að-
stoðaði Óskar við handrit og grafík-
vinnu við kvikmyndirnar.
Óskar var sannkallað Reykjavík-
urbarn og því stóð hugur hans ætíð
mjög til höfuðborgarinnar sem m.a.
má sjá á því að hann tileinkaði
krafta sína Reykjavík með kvik-
myndinni „Reykjavík vorra daga“,
sem gerð var og sýnd í tveimur
hlutum, 1. og 2. hluti á árunum
1947 og 948 og þá nefndi hann ljós-
myndásýninguna á Kjarvaisstöðum
1976 „Reykjavík liðinna daga“ og
nú örfáum dögum fyrir andlát sitt
gaf hann Ljósmyndasafni
Reykjavíkurborgar filmusafn sitt.
Öskar Gíslason var tvíkvæntur,
fyrri kona hans var færeysk, Edith
Soffía Beck. Þau slitum samvistir.
Eignuðust þau 6 börn en þau eru:
Alvar f. 1933, Klara f. 1934, Sigríð-
ur f. 1940, Óskar f. 1943 d. 1953,
Randy, f. 1946 d. 1952 og Óskar
f. 1954.
Síðari kona Óskars er Ingibjörg
Einarsdóttir og lifir hún mann sinn.
Ég vil votta Ingibjörgu og öllum
öðrum nánustu ættingjum Óskars
innilegustu hluttekningu vegna frá-
falls hans.
Ljósmyndarafélag íslands þakk-
ar góðum vini og félaga liðna tíð.
Þórir H. Óskarsson, formaður.
«mm
JAPAN
VIDEOTÖKUVÉLAR
3 LUX MEÐ ÞRÁÐLAUSRI FJARSTÝRINGU SEM
GEFUR ÞÉR MÖGULEIKA Á AÐ AFSPILA BEINT
VIÐ SJÓNVARPSTÆKIÐ ÞITT, MEÐ ALLRA BESTU
MYNDGÆÐUM. — 3 LUX ÞÝÐA ALLRA BESTU
UÓSNÆMNI Á MYNDBANDSVÉLUM Á MARK-
AÐNUM í DAG. h\Ð ER EKKI BARA NÓG AÐ
TALA UM UNSUOPSTÆRÐ. HELDUR VERÐUR
UÓSKUBBURINN AÐ VERA ÞETTA NÆMUR. —
MACRO UNSA 8xZOOM - SJÁLFVIRKUR
FOCUS - MYNDLEITUN í BÁÐAR ÁTTIR -
SJÁLFVIRK UÓSSTÝRING - VINDHUÓÐNEMI
— FADER — RAFHLAÐA/HLEÐSLUTÆKl/MILLl-
STYKKI o.n. — VEGUR AÐEINS 1,1 KG.
SUMARTILBOÐ, KR. 79.844,- stgr.
Rétt verð, KR. 99.950,- stgr.
Œ Afborgunarskilmálar [£]
VÖNDUÐ VERSLUN
20% VERÐLÆKKUN
í N0KKRA DAGA!
Wm&sm
/ / /
TILBOÐ A KII.OPtKKMMilM:
kr.612,00
ÁÐIIRKR. 7(5.0»
ÚTSALA - UTSALA
Meiri háttar verðlækkun
H
//
K
SNORRABRAUT 56 SÍMI 13505 »14303