Morgunblaðið - 10.10.1990, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1990
Alyktun Alþýðubandalagsins
á Reykjanesi um álver:
Sprungin haglabyssa
Morgunblaoið/ Kagnar Axelsson.
ÞETTA er-ekki þarastöngull, og ekki heldur listaverk úr járni, heldur haglabyssa sem sprakk vegna þess
að lítill moldarköggull komst í hlaupið. Sá sem á byssunni hélt slapp ómeiddur, en hún er þó viðvörun til
veiðimanna að fara varlega, sérstaklega nú þegar ijúpnaveiðitímabilið er að hefjast. Sverrir Scheving
Thorsteinsson hjá Skotveiðifélagi íslands sagði við Morgunblaðið, að alltaf væri hætta á að mold eða snjór
kæmist í byssuhlaup með þessum eða verri afleiðíngum, þar sem skriðið væri í skurðum eða vaðið í snjó.
Mismunandi mat meðal
alþýðubandalags-
manna eins og annarra
- segir Steingrímur J. Sigfússon
STJÓRN kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Reykjanesi hefur
samþykkt ályktun þar sem lýst er yfir fullum stuðningi við þau
áform ríkisstjórnarinnar að reisa álver á Keilisnesi. Steingrímur
J. Sigfússon, landbúnaðarráðherra og varaformaður Alþýðubanda-
lagsins, segir að hann telji staðarvalið á Keilisnesi vera ástæðu
þess að alþýðubandalagsmenn á Reykjanesi álykti á þennan veg.
Það sé líka eðlilegt í máli eins og þessu að mat manna sé mismun-
andi og eigi það við um alþýðubandalagsmenn jafnt sem aðra.
Steingrímur J. Sigfússon segir
að ályktað hafi verið með ýmsum
hætti í flokknum um þetta mál
eins og menn hefðu orðið varir
við, þegar ályktun stjómar kjör-
dæmisráðsins á Reykjanesi var
borin undir hann. „Maður hefur
ástæðu til að ætla að áhugi þeirra
skýrist af staðsetningunni en að
öðru leyti er alveg ljóst að mat
manna á þessum samningsdrögum
er nokkuð mismunandi og það má
færa rök með og á móti. Þetta
gæti orðið okkur hagstætt ef allt
gengur upp en gæti líka orðið
miður hagstætt. Það þarf ekki
koma á óvart að mat manna getur
verið mismunandi og á það ekki
síður við alþýðubandalagsmenn en
aðra.“
Hann sagði málið enn tiltölulega
lítið rætt meðal almennra flokks-
manna og teldi hann mikilvægt
að upplýsingum um það yrði kom-
ið á framfæri. „Ég held menn verði
að bíða og sjá hvemig þetta þró-
ast þegar menn hafa haft tíma til
að ræða málið í ljósi þeirrar upp-
lýsinga sem fyrir liggja," sagði
Steingrímur.
Morgunblaðið leitaði einnig álits
Svavars Gestssonar, menntamála-
ráðherra, á ályktuninni. Hann
sagði: „Ég er nú ekki sammála
henni í öilum greinum en vísa til
álits þingflokks Alþýðubandalags-
ins frá í síðustu viku um mínar
áherslur á þessu stigi málsins. Ég
vil ekki segja meira í tilefni af
þessari ályktun."
Tveir af stærstu hluthöfum Flugleiða þreifa fyrir sér um söiu;
Gæti tekið við hlutabréf-
um fyrir milljarð út árið
- segir forstjóri Flugleiða um markaðinn fyrir Flugleiðabréf
TVEIR af stærstu hluthöfum Flugleiða, Sigurður Helgason, stjórn-
arformaður Flugleiða fyrir hönd Klaks sf„ og Jóhannes Markús-
son, flugstjóri, hafa að undanförnu þreifað fyrir sér um sölu á
hlutabréfum sínum í Flugleiðum. Þeir segjast þó engar ákvarðan-
ir hafa tekið um sölu. Markaðsverð hlutabréfa þessara tveggja
aðila gæti numið 276,5 milljónum króna ef miðað er við sölugeng-
ið 2,15. Stjórn Flugleiða ákvað í síðustu viku að Ieggja til við hlut-
hafafund útgáfu nýrra hlutabréfa í félaginu að nafnvirði 331 m.kr.
Sigurður Helgason, forsljóri Flugleiða, segist gera ráð fyrir að
söluverð nýju bréfanna verði á bilinu 700-750 miiyónir. Telur
hann markaðinn geta tekið við Flugleiðabréfum fyrir þúsund
milljónum króna fram að áramótum.
Reyðarfjörður:
Yfir 100 millj-
óna gjaldþrot
hjá Bergsplani
Söltunarstöðin Bergsplan hf. á
Reyðarfirði var úrskurðuð gjald-
þrota 17. september síðastliðinn,
að sögn Sigurðar Eiríkssonar
sýslumanns _ í Suður-Múlasýslu.
„Þetta er yfir 100 milljóna króna
gjaldþrot," segir Sigurður.
Fasteign Bergsplans hf., Stuðla-
berg, var seld hæstbjóðanda, Iðnþró-
unarsjóði, fyrir 10 milljónir króna
18. september síðastliðinn en sjóður-
inn átti 1. veðrétt í fasteigninni.
Lausafé fyrirtækisins var hins vegar
selt mörgum aðilum á uppboði síðast-
liðinn laugardag en hátt í eitt hundr-
að manns mættu á uppboðið, að sögn
Sigurðar Eiríkssonar. Hann segir að
ekki liggi fyrir hver fái síldarsöltun-
arkvóta Bergsplans hf. Skiptafundur
verður haldinn 17. desember næst-
komandi.
VERÐ á saltfiskafurðum okkar
á mörkuðum í Evrópu hefur
hækkað í raun um nálægt 60%
talið í Bandarikjadölum frá því
í septembermánuði 1989, þar af
um 14% þann fyrsta þessa mán-
aðar. Skilaverð til framleiðenda
hefur hins vegar ekki hækkað
nema um 53% í íslenzkum krón-
um sökum veikari stöðu dollar-
ans, sem því nemur. Hækkun
afurðaverðs hefur að mestu far-
ið til að mæta hækkun á fis-
kverði í kjölfar aukinnar sam-
keppni um hráefnið.
Magnús Gunnarsson, fram-
Klak sf. er næststærsti hluthafi
Flugleiða. Nafnverð hlutabréfa
Klaks er 89,6 milljónir, sem er
•6,55% af heildarhlutafé. Jóhannes
Markússon er sá einstaklingur sem
stærstan hlut á í Flugleiðum og
er hann fimmti stærsti hluthafi
félagsins. Hlutafé Jóhannesar er
2,84% af heildarhlutafé og er nafn-
verð bréfa hans 38,9 milljónir
króna. Miðað við sölugengið 2,15
gæti markaðsverðmæti bréfa þess-
ara tveggja aðila numið 276,5
milljónum króna.
„Við Sigurður ákváðum að at-
kvæmdastjóri SÍF, segir að þessar
hækkanir hafí verið að koma fram
á árinu og sé skýringin fyrst og
fremst skortur á saltfíski í helztu
markaðslöndum okkar. Þarna sé
um viðkæmt vægi milli framboðs
og eftirspumar að ræða. Hækkandi
verð hljóti að hafa einhver áhrif á
neyzlu og því verði að gæta þess
að í samkeppninni um hráefnið
verði afurðimar ekki of dýrar í
verði fyrir neytendur. Þá gerist það
sama og árið 1987, þegar eftir-
spurn eftir fiskafurðum féll tölu-
vert í kjölfar örra verðhækkana.
„Ég tel saltfiskvinnsluna nú fylli-
huga markaðinn hjá verðbréfafyr-
irtækjunum og sjá hvað hægt er
að fá fyrir bréf okkar,“ segir Jó-
hannes Markússon. „Við eram með
þessu.ekki búnir að taka endanlega
ákvörðun um hvort við seljum eða
ekki. Það fer eftir því hvaða verð
býðst fyrir bréfín, en þess má geta
að nýlega vora auglýst Flugleiða-
bréf til sölu í sunnudagsblaði
Morgunblaðsins á lágmarksgeng-
inu 2,5.“
Aðspurður um ástæðu þessara
þreifínga sagði Jóhannes að engin
sérstök ástæða væri fyrir þeim.
lega samkeppnisfæra við aðrar
verkunar- og útflutningsaðferðir.
Það er fyrirsjáanlegur skortur á
saltfiski í Evrópu að minnsta kosti
fram á næsta vor. Við megum hins
vegar ekki gleyma því, að hátt
verð á fiskafurðum freistar útflytj-
enda á vesturströnd Banda-
ríkjanna, en þaðan gæti komið
mikið af físki inn á þessa markaði.
Við verðum því að gæta okkar og
það er ekki gáfulegt að verðleggja
sig út af markaðnum," segír Magn-
ús Gunnarsson.
„Það er hreyfing núna á hlutabréf-
um hjá fyrirtækinu sjálfu og þess
vegna vildum við athuga hvað við
gætum fengið fyrir okkar bréf.
Við höfum haft samráð um þetta
enda búnir að hafa það lengi og
standa saman í þessu frá því hjá
Loftleiðum í gamla daga. Margir
af okkar félögum sem vora hjá
Loftleiðum eru búnir að selja og
við fóram að velta því fyrir okkur
hvort við ættum að fara út í það
líka ef við fengjum rétt verð fyrir.
Við höfum ekkert verið að halda
þessum áformum okkar leyndum
fyrir þeim sem era æðstir í félag-
inu. Við eram ekki að vinna gegn
hagsmunum Flugleiða."
Sigurður Helgason, stjómar-
formaður Flugleiða, sem á Klak
sf. að langstærstum hluta, segir
staðreyndina vera að stórt hluta-
fjárútboð sé framundan hjá félag-
inu og hann hafí að sjálfsögðu
gert sér far um að kanna markaðs-
aðstæður fyrir það útboð. „Hvorki
ég né aðrir sem standa að þessum
bréfum höfum tekið ákvarðanir um
sölu. Ég hef verið í sambandi við
verðbréfafyrirtæki almennt til að
gera grein fyrir stöðu mála á hluta-
bréfamarkaðinum á mjög almenn-
an hátt. Það er vaxandi áhugi á
hlutabréfum. Ég hef mikla trú á
þessu félagi, það á framtíð fyrir
sér og er góð fjárfesting."
Aðspurður um hvort hann hygð-
ist s'elja ef rétt verð fengist fyrir
bréfín sagði Sigurður: „Ég hef
ekki tekið neinar ákvarðanir."
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, segir að mikil eftirspum
hafi verið eftir hlutabréfum í Flug-
leiðum á markaðinum undanfarið.
„Okkur sýnist eftir könnun á
markaðinum að það sé hægt að
selja hlutabréf í Flugleiðum fyrir
um þúsund milljónir fram að ára-
mótum. Það samsvarar fyrirhug-
uðu hlutafjárútboði Flugleiða og
hlutum Jóhannesar og Klaks. Ef
verður úr að þeir ákveða að selja
þá tel ég að sé markaður fyrir
það,“ sagði Sigurður. Hann sagði
að enn hefði ekki verið tekin
ákvörðun um á hvaða gengi ný
hlutabréf yrðu seld ef hluthafa-
fundur samþykkti útgáfu þeirra.
. Yrði það ákveðið nokkram dögum
fyrir hluthafafundinn en hann
byggist við að söluverð bréfanna
yrði á bilinu 700-750 milljónir
króna.
Alþingi
sett í dag
ALÞINGI íslendinga kemur
saman I dag. Þing þessa vetrar
er 113. löggjafarþing og verður
það sett með hefðbundnum
hætti.
Þingmenn ganga frá þinghúsinu
til Dómkirkju laust fyrir klukkan
13.30. Þá hefst guðþjónusta þar
sem herra vígslubiskup Sigurður
Guðmundsson predikar. Meðal
kirkjugesta verða frú Vigdís Finn-
bogadóttir forseti íslands, ýmir
embættismenn þjóðarinnar og
sendimenn erlendra ríkja. Enfrem-
ur verður forseti Litháens Vytaut-
as Landsbergis viðstaddur.
Að messu aflokinni ganga for-
seti Islands, alþingismenn og gest-
ir til Alþingishússins. Þar les for-
seti íslands í sameinuðu Alþingi
forsetabréf um að Alþingi skuli
koma saman. Fyrsta fundi þings-
ins stjómar aldursforseti þing-
manna, Stefán Valgeirsson.
Minnst verður látinna þing-
manna, Ásbergs Sigurðssonar,
Páls Þorsteinssonar, Geirs Hall-
grímssonar og Stefáns Jónssonar.
Alþingi kemur aftur saman til
funda á morgun verða þá kosnir
embættismenn, forsetar og vara-
forsetar og kjörið í nefndir. Frum-
varp til fjárlaga verður lagt fram.
Einn nýr þingmaður tekur nú
sæti á Alþingi, Guðrún Halldórs-
dóttir tekur sæti Guðrúnar Agn-
arsdóttur sjötta þingmanns Reyk-
víkinga sem sagt hefur af sér þing-
mennsku.
Verðhækkun á saltfiski
er um 60% á einu ári
Saltfiskskortur fyrirsjáanlegur á mörkuðunum fram á næsta vor