Morgunblaðið - 10.10.1990, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 10.10.1990, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTOBER 1990 37 gang í því að hún sé tekin í burtu frá litlu stúlkunni sinni sem þau Bjarni eignuðust fyrir 3 vikum. Hvernig er hægt að sætta sig við að heyra ekki framar smitandi hlát- urinn og sjá ekki fram brosið henn- ar? Við skynjum en skiljum vart, að hlátur og gleði liðins dags skuli svo skjótt verða að víkja fyrir sökn- uði og sorg. En við yljum okkur við minningamar um þann tíma sem við áttum með henni, bæði í sauma- klúbbum og utan þeirra. Þá var talað um heima og geima og mikið hlegið. Elsku Bjarni. Við vottum þér og litlu stúlkunni þinni okkar innilegustu samúð og biðjum guð að styrkja þig í þessari miklu sorg. Móður.hennar, systkinum og öðrum sem eiga um sárt að binda sendum við einnig samúðarkveðjur. Ég vildi ég gæti fléttað þér fagran rainniskrans. En fyrir augun skyggja heitu tárin. Svo vertu sæl, mín systir! í faðmi fannklædds lands Þú frið nú átt, við minninguna og sárin. (H. Hafstein) Þóra Geirsdóttir, Zanný Sigurbjörnsdóttir, Hafdis Hilmarsdóttir. Skjótt hefir sól brugðið sumri, því séð hef ég fljúga fannhvita svaninn úr sveitum til sóllanda fegri. (J. Hallgr.) Það var síðsumars fyrir tæpum áratug að bernskuvinkona hringdi frá Húsavík og spurði hvort ég hefði tök á að hýsa dóttur sína sem væri á leið til náms í Reykjavík. Samtali okkar lauk með jáyrði mínu. Eflaust fékk ég bakþanka næstu daga. Því fylgir ábyrgð að taka ungling í sína umsjá. Ofar í huga mér var þó sú staðreynd að traustir stofnar stóðu að þessari stúlku. Aldrei reyndi ég annað en gott eitt af hennar frændliði í Flat- ey á Skjálfanda. Og Sigurbjörg birtist, björt yfir- litum, stór og gerðarleg. Hún virt- ist ekki feimin, ekki frökk, heldur hispurslaus og hressileg. Hún kom sér fyrir í litla skotinu sem kröfu- harðir unglingar myndu varla kalla herbergi. Ekki hafði hún lengi setið við eldhúsborðið er mér fannst hún heimamanneskja enda fann ég ýmsa skemmtilega takta í fasi hennar, sem komu mér kunnuglega fyrir sjónir. Já, áhyggjur vegna óharnaðs unglings hurfu eins og dögg fyrir sólu. Hún var kölluð Sibba af vinum og skólasystinum og við heimafólk gerðum svo líka, en ijölskylda henn- ar kallaði hana Diddu. Fljót var hún að samlagast heimilislífinu en hélt þó sínum venjum eins og t.d. að ganga snemma til náða þrátt fyrir kvöldgöltur okkar hinna. Og ekki var matvendninni fyrir að fara þó ýmislegt væri ófullkomið sem boðið var upp á. Samskiptin voru eins ánægjuleg og best varð á kosið. Það var því ekki vegna ósamkomu- lags sem Sibba fann sér annan dvalarstað eftir eins og hálfs vetrar dvöl á mínu heimili. Ekki gat farið ■ fram hjá neinum að birtan og gleð- in sem geislaði frá Sibbu var orðin enn djúpstæðari en fyrr. Orsök hamingjunnar var ungur maður, sem hún hafði kynnst. Og nú bauðst henni að búa hjá afa hans og ömmu í mun betra herbergi. Sannarlega var eftirsjá í Sibbu. Henni fylgdi alltaf þessi hressilegi andblær, aldrei víl og vol heldur gengið til starfa með bjartsýni og festu. Bót var í máli að þau Bjarni og Sibba gáfu sér tíma til að líta inn öðru hverju. Alltaf varð bjartara í ranni við komu þeirra því að ást- fangið fólk, með gott hjartalag, sendir óafvitandi ylgeisla hlýja allt um kring. Ekki leið iangur tími uns ráðist var í íbúðarkaup. Þá var ekki verið að reisa sér hurðarás um öxl. Það var annars makalaust hve föstum fótum þetta ástfangna par stóð á jörðinni og hve skynsamlegar, og hnitmiðaðar ákvarðanir voru teknar í efnahagsmálum. Þau unnu bæði, meira en mörgum gæti reynst hollt á meðan verið var að klífa erfiðasta hjallann. .Ýmsum verður hált á of miklu vinnuálagi en hjá þeim virtist það auka gleði og bjartsýni. Atvik, sem getur virst ómerki- legt, er mér þó ógleymanlegt. Sibba kom og sagði frá því að þvotti var stolið af snúru hjá henni. „Einmitt sparipeysunni og skárri gallabux- unum,“ sagði hún og gat ekki var- ist hlátri þó að hún yrði að fá föt iánuð hjá vinkonu, því peningar lágu ekki á lausu í svipinn. Þessi hæfileiki, að sjá alltaf eitthvað spaugilegt — jafnvel í erfiðleikum, er ómetanlegur. Og svo var unnið og safnað og loks var hægt að fara í utanför til góðra vina, Þarna voru ekki slegnir víxlar fyrir skemmtiferðum eins og margar sögur fara af að fólk geri. Allt virtist leika í lyndi. Og nú kom hápunktur hamingjunnar. Von á barni. Dásamlegt var að fylgjast með framvindu mála næstu mán- úði. Þó að blóðþrýstingur yrði of hár og innlögn á sjúkrahús vikuleg- ur viðburður voru viðbrögð Siggu alltaf jafn æðrulaus ogjákvæð. Hún sagðist hafa nógan tíma til að liggja, úr því að hún mátti ekki vinna. Mánaðardagurinn 9.9. 1990 þótti sérlega fágætur sem afmælis- dagur. Ég hringdi til þess að for- vitnast að kvöldi þess dags og þá var svarið: „Nei, það er allt í lagi. Barnið kemur þegar það á að koma.“ Þetta svar, ásamt fleiru segir mér meira um traust þessarar . ungu konu á æðri máttarvöldum og tengsl hennar við guðdóminn en nokkurt guðsorðahjal. En svo kom reiðarslagið. At- burðarás síðustu vikna virðist okkur ófullkomnum mannverum óraun- veruleg, óbærileg, með öllu ótíma- bær. Lítilli stúlku bjargað í heiminn á síðustu stundu. Föðurarmar hafa nú þégar tekið hana í hlýjan faðm. Enginn sem til þekkir efast um nærfærni Bjarna til ástúðar og umönnunar. Aðstæður valda því að um sinn vega þær salt - sorgin og gleðin. En ef við beinum sjónum okkar að sterkasta aflinu í sálarlífi Sibbu, lífsgleðinni og æðruleysinu, þá sjáum við að minning hennar verður best heiðruð með því að efla ein- mitt þessa þætti í eigin barmi. Litli „sólargeislinn" á eftir að sindra og gneista góðvilja í allar áttir eins og móðirin gerði. Við hin getum stuðl- að að því að með brosum og heit- um, hljóðum fyrirbænum. Guð gefi ykkur, aðstandendum, styrk til þess að sigrast á sorginni og fylla hjörtun friði og kærleika. Jesús sagði: „Ég lifi og þér munuð lifa.“ Þeirri trú og vissu helga ég minningu Sigurbjargar Gunnars- dóttur. Þórný Þórarinsdóttir Fyrsta myndakvöld Ferðafélagsins FYRSTA myndakvöld Ferðafé- lagsins í vetur verður miðviku- dagskvöldið 10. október í Sóknar- salnum, Skipholti 50a. Það hefst stundvíslega kl. 20.30. A myndakvöldunum í vetur er ætlunin að sýna frá hinum fjölmörgu ferðum sem félagið hefur farið á árinu, ekki síst sumarleyfisferðun- um. Efni þessa myndakvölds er helgað tveimur mjög sérstökum ferðum frá í sumar. Fyrir hlé munu Jóhannes I. Jónsson og' félagar hans sýna myndir og segja frá gönguferð frá Vonarskarði um og meðfram vestuij- aðri Vatnajökuls í Jökulheima. Eftir hlé mun Kristján M. Baldursson sýna myndir frá Noregi, úr gönguferð Ferðafélagsins um Jötunheima, þekktasta ijallasvæði Norðmanna, siglingu um Sognfjörð o.fl. Kaffiveit- ingar verða í hléi í umsjá félaga FÍ. Allir velkomnir, jafnt félagar sem aðrir. Anna Hallgríms- dóttir - Kveðjuorð Nú þegar haustið er komið til að undirbúa tijágróður og blómin undir vetrarhvílu, sem þau eiga flest aftur- kvæmt úr er vorar á ný með hækk- andi sól, þá fellur ein blómarós æsku minnar, Dídí eins og hún var kölluð af flestum sem hana þekktu. Fullu nafni hiét hún Ósk Pálína Anna Hallgrímsdóttir. Þessi náfrænka mín ólst upp hjá ömmu minni og afa, Halldóru Sigurðardóttur og Þorsteini Péturssyni í Aðalgötu, 9 á Siglufirði og var sem yngsta föðursystir mín. Miklir kærleikar voru með Dídí, föð- ursystkinum og foreldrum alla tíð. Mér eru þær stundir í fersku minni, er hún kom í heimsókn til okkar til Reykjavíkur sem tánings- stelpa full af fjöri og glaðværð og tók okkur krakkana í göngutúra og ærslaleiki. Einnig hafði .hún gaman af að spila á gítar og syngja fyrir okkur. Seinna þegar foreldrar mínir fluttu til Siglufjarðar árið 1950 þá bjuggum við fyrst hjá ömmu og afa, og þar var Dídí og setti hún mikinn svip á annars fastformað heimilislíf með glaðværð sinni og lífsgleði, sem hún hélt alla tíð. Hún þurfti að hafa töluverð afskipti af mér, enda var ég baldinn á þessum árum. Var að byija í barnaskóla á nýjum stað og mikið athafnalíf í bænum, sem var miklu meira spennandi heldur en að hanga inni í skólastofu allan daginn og reyndi ég að laumast út án skóla- tösku, en Dídí fékk það verkefni að sjá um að ég slyppi ekki og stund- aði skólann svikalaust. Hún hafði gaman af að segja mér söguna af því þegar hún var skírð, þá svolítið stálpuð, og stóð fyrir framan séra Bjarna Þorsteinsson og sagði honum sjálf hvað hún ætti að heita, Ósk Pálína Anna, áður en hún var vatni ausin. Afi hafði gaman af þessum nöfnum og kallaði hana ósk- ina sína enda hét hún í höfuðið á Önnu dóttur hans sem lést á unga aldri. Svo nú átti hánn á ný tvær dætur, sem hann var mjög stoltur af. Amma og afi áttu sjö börn, 6 drengi og eina dóttur, og eina fóstur- dóttur sem hér er minnst. Af þeim eru nú látin Vilhjálmur er lést korna- barn, Anna barnung, Vilhelm Friðrik 1952, Pétur 1983 og Ásmundur 1989, eftir lifa Þorvaldur Bjarni og Guðný, sem nú sjá á eftir fóstursyst- ur sinni og Ásmundi bróður sínum með rúmu árs millibili og er söknuð- ur þeirra mikill. Þó eru það nú ljúfu minningarnar um góð systkini, ætt- ingja og vini sem koma til manns á stund sorgar sem ljós sem á endan- um lýsir upp myrkrið svo það hverf- ur með tímanum svo eftir sitjum við í ylnum af björtum endurminning- um. Dídí kynntist í Siglufirði Hreini Sumarliðasyni, siglfirskum æsku- manni, og giftust þau ung en sett- ust að í Reykjavík þar sem þau stun- duðu verslun með nýlenduvörur á ýmsum stöðum í borginni, þó lengst af í Laugarásnúm. Þau stunduðu verslun með miklum dugnaði og samheldni enda nutu þau mikilla vinsælda í starfi. Þau eignuðust þijár dætur sem voru þeim afar kærar. Þær heita Sigurlína, Ágústa og Jona Margrét og eru þær allar búsettar' í Reykjavík og eiga samtals sex börn, sem nú sjá á eftir elskaðri ömmu svo allt of fljótt. Dídí og Hreinn áttu glæsilegt og fallegt heimili í Erluhólum 5 sem ber húsráðendum gott vitni um list- rænan smekk og hlýjan heimilisbrag, þar sem gott var að koma og vel á móti tekið, og öllum sem þar komu og kynntust þeim góðu hjónum leið vel í návist þeirra. Ég veit að Hreinn getur tekið undir með Hannesi Jonassyni bók- sala í Siglufirði er hann í minningar- ljóði um Þorstein Pétursson, afa minn, segir á einum stað um ömmu sem getur einnig átt við um Dídí fósturdóttur þeirra: Gekkst þú Guðs á braut með góðri konu. Styrk var hún sjálf. styrkti einnig þig. Ég bið góðan Guð að styrkja ykk- ur öll sem um sárt eigið að binda, sérstaklega eiginmann, dætur, tengdasyni, barnabörn og aldraðan föður. Ég kveð nú frænku mína með blíða brosið og björtu augun, sem sögðu svo mikið. Hún var glæsilegur fulltrúi sinnar kynslóðar og skilaði sínu vel til framtíðarinnar. Ásgeir Pétursson Glitnir hf. ,kt. 511185-0259 Ármúla 7, Reykjavík Skuldabréfaútboð 1. flokkur 1990 Heildarfjárhæð kr. 210.000.000.- Útgáfudagur 15. ágúst 1990 Flokkur Gjalddagi Upphæð 1.H.A1990 l.fl.B 1990 1.11.C1990 15.09.1993 15.09.1994 15.09.1995 70.000.000 70.000.000 70.000.000 Skuldabréfin eru verðtryggð skv. lánskjaravísitölu. Grunnvísitala er 2925 Ávöxtun yfir hækkun lánskjaravísitölu nú 6,8% Umsjón: Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf. VlB VERÐBRÉFAM ARKAÐUR ÍSLANDSB ANKA HF. Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.