Morgunblaðið - 10.10.1990, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 10.10.1990, Blaðsíða 39
0(ÍG! H38ÖTH0 .0 HUOAQUHr/QIM GHIA.IHMU05I0I MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1990 Minning: Friðjón Sveinbjöms- sonf Borgamesi Enda þótt þetta verði nokkuð síðbúin minningarorð, sem stafar af því að ég var staddur erlendis undanfarnar vikur, langar mig til þess að minnast örfáum orðum míns ágæta vinar til margra'ára, Friðjóns Sveinbjörnssonar, spari- sjóðsstjóra í Borgarnesi, sem nú er nýlátinn langt um aldur fram. Mér fannst eins og syrti snögg- lega fyrir hugarsjónum mínum þgar mér barst sú frétt seint á laugar- dagskvöldi 1. september síðastlið- inn, að hann hefði orðið bráðkvadd- ur þá um daginn þar sem hann var staddur á bernskuheimili sínu Snorrastöðum í Kolbeinsstaða- hreppi. Mér virtist það einhvem veginn svo ótrúlegt, að hann Friðjón sem alltaf var svo kátur og hress og hafði jafnan eitthvað notalegt á takteinum þegar maður átti við hann orðræðu, skyldi svo snögglega vera horfinn sjónum okkar fyrir fullt og allt. En þannig er það jafn- an, að enda þótt dauðinn sé það sem óumflýjanlega bíður okkar allra, emm við aldrei viðbúin ef hann ber snögglega að. Friðjón fæddist að Snorrastöðum í Kolbeinsstaðahreppi 11. mars árið 1933 og var því rúmlega 57 ára gamall er hann lést. Hann mun hafa verið um tvítugt er hann réðst til starfa í Borgarnesi og þar varð seinna heimili hans og starfsvett- vangur allt til æviloka. En alla ævi unni hann heimasveit sinni og bernskuheimili fölskvalaust og fór gjarnan vestur að Snorrastöðum eins oft og hann gat því við komið og þar var hann staddur, þegar sláttumanninn slynga bar að, sem sló fyrirvaralaust. Árið 1957 réðst hann til starfa hjá Sparisjóði Mýrasýslu, en vegna langvarandi veikinda Halldórs Sig- urðssonar, þáverandi sparisjóðs- stjóra, lenti það nokkuð fljótt og í auknum mæli á herðum Friðjóns að koma fram sem staðgengill hans við rekstur sparisjóðsins. Það var um það leyti sem kunningsskapur okkar Friðjóns hófst, sem átti eftir að endast meðan við lifðum báðir. Við lát Halldórs Sigurðssonar, um mitt árið 1961, var svo Friðjón þá 28 ára gamall ráðinn eftirmaður hans sem sparisjóðsstjóri og gegndi hann því starfi meðan ævin entist. Einhvern tíma síðar sagði Friðjón mér að um það leyti er hann tók við hinu nýja starfi hafl sér oft fundist sem hann væri að færast of mikið í fang og myndi engan veginn valda þessu verkefni, en þáverandi formaður sparisjóðs- stjómarinnar hefði stutt sig með ráðum og dáð og stappað í hann stálinu. Kvaðst Friðjón æ síðan hafa talið sig standa í þakkarskuld við hann fyrir þennan stuðning á erfíðum tíma. Atvik höguðu því svo, að árið eftir að Friðjón tók við starfí þessu hófst samstarf okkar varðandi málefni Sparisjóðs Mýra- sýslu, er áttu eftir að standa næstu 18 árin, eða þar til ég fluttist burt frá Borgarnesi. Eftir að Friðjón hafði tekið við sparisjóðsstjórastarfínu mátti segja að hann væri vakandi og sofinn í því að leggja sig allan fram við að leysa það af hendi á sem farsælast- an hátt. Oft var vinnutími hans langur, stundum með ólíkindum. Skipti oft litlu máli hvort um virka daga eða helgar var að ræða ef Guðlaug Jóhannes- dóttir — Minning Fædd 4. maí 1902 Dáin 28. september 1990 í dag kveðjum við elsku ömmu okkar. Hún var dóttir hjónanna Jóhannesar Jónssonar og Helgu Þórðardóttur, þau bjuggu að Múla- koti í Lundarreykjadal. Amma gift- ist afa 1932, Helga J. Magnússyni frá Hofí í Dýrafirði. Eignuðust þau fjögur börn: Jóhanna fædd 18. sept. 1930, gift Haraldi Helgasyni, Magnea fædd 29. maí 1933, gift Siguijóni Guðjónssyni, Magnús fæddur 13. apríl 1939, giftur Kol- brúnu Ástráðsdóttur, Dóra Stína fædd 4. okt. 1942. Gæfan er stundum fallvölt þó um úrvalsfólk sé að ræða og slitu þau amma og afi samvistum 1948. Amma var mikil saumakona og vann ætíð fyrir sér og sínum með saumaskap og annarri vinnu til sjö- tugs. Alltaf var gott að koma til ömmu er við komum til Reykjavíkur því hún var alltaf svo ljúf og góð við okkur systkinin, aldrei sagði hún styggðaryrði við okkur. Gott var að leita til ömmu því hún var alltaf svo jákvæð og róleg gagnvart öllu. Amma var alla tíð orðvör og aldrei heyrðum við hana hallmæla nokkr- um manni. Hún var mikið fyrir hannyrðir enda bar heimili hennar þess merki þar sem klukkustrengir, myndir og púðar voru mjög áber- andi, alltaf var gaman að sjá ný og ný verk eftir ömmu. Amma bjó síðustu þijú árin hjá Johönnu dóttur sinni, því hún átti við heilsuley_si að stríða og eiga þau hjónin Jo- hanna og Halli þakkir skilið fyrir þá umönnun sem hún fékk hjá þeim. Söknuðurinn er mikill en minning- arnar eru góðar, við getum sætt okkukr við dauðann er sjúkir fá hvíid. Guð veri með henni ömmu okkar. Ragna, Helgi, Ingibjörg í dag verður lögð til hinstu hvílu föðursystir mín eftir erfiða sjúk- dómslegu. Mig langar að minnast hennar nokkrum orðum. Hún var alltaf boðin og búin að lofa mér og mínu fólki að gista hjá sér, þegar ég var að ferðast milli staða. Og alltaf var stoppistöð hjá Laugu frænku, frá því ég var barn. Það var eftirsótt að halda til hjá þeim því dætur hennar og ég erum á svipuðum aldri og höfum alltaf haldið hópinn. Guðlaug var fædd 4. maí 1902 og var því 88 ára er hún lést. Hún giftist Helga Magnus- syni frá Hofi í Dýrafirði og eignuð- ust þau fjögur börn, þijár dætur og einn son. Snemma lærði hún fatasaum og tók saumaskap heim til sín. Einu sinni bað ég hana að sauma fyrir mig kjól, en ekki mátti nefna borgun. Það var alltaf sjálf- sagt að rétta öðrum hjálparhönd án jiess að taka neitt fyrir. Eg vil þakka henni alla tryggð við mig fyrr og síðar. Hvíli hún í friði. Frænka hann taldi brýna nauðsyn á að leysa úr einhveiju máli. Það var honum og sparisjóðnum því mikið happ þegar hann réði Sigfús Sumarliða- son sem aðalbókara sjóðsins, en Sigfús hefur frá fyrstu tíð reynst frábær starfmaður og um mörg undanfarin ár var hann staðgengill Friðjóns og aðstoðarmaður og létti af honum störfum í vaxandi mæli. Um störf Friðjóns með spari- sjóðsstjóra treysti ég mér vart til að ijölyrða frekar, þar sem Magnús Sigurðsson, núverandi formaður sparisjóðsstjórnar, gerði þeim að mínum dómi svo frábær skil í minn- ingargrein éftir hann í Morgunblað- inu hinn 8. september síðastliðinn að ég held að þar sé vart hægt að bæta án þess að úr yrði einskonar bergmál. Þrátt fyrir mjög annasamt starf auk þess sem hann starfaði mikið í þágu sambands sparisjóðanna hafði Friðjón þó tíma til að sinna ýmsum þeim efnum, sem honum voru hugleikin. Eins og annars stað- ar hefur verið getið, var hann söng- maður ágætur og söng lengi í kirkjukór Borgarneskirkju og einn- ig í Kveldúlfskórnurm Einnig var hann í forystu fyrir Tónlistarfélagi Borgarfjarðar um langt skeið. I Lionsklúbbi Borgamess var hann félagi í um 30 ára bil og var þar sem annars staðar hinn trausti liðs- maður. Á þeim vettvangi áttum við allmikið samstarf í ýmsum nefnd- um, og á ég margar ánægjulegar endurminningar frá því samstarfi, en þar sem annars staðar var ánægjulegt með honum að starfa. Um árabil á áttunda áratugnum var það föst venja hjá mér, vegna starfs þess er ég þá var í að ég færi síðari hluta gamlársdags í sparisjóðinn til fundar við Friðjón, og unnum víð þar saman ákveðið verk, er ljúka þurfti fyrir áramótin. Á þeim 11 árum, sem liðin eru frá því ég fluttist úr Borgarnesi brást það ekki ef ég var heima á gamlárs- dag, að Friðjón hringdi til mín síðari hluta dagsins og áttum við þá jafn- an ánægjulegt spjall saman er hann sagði mér það nýjasta af mönnum og málefnum úr héraði, á þann hátt er honum einum var lagið. Hann vildi þannig halda hefðinni — hafa samband. Slíkur var Friðjón — hann gleymdi ekki þótt vík væri milli vina. í einkalífi sínu var Friðjón gæfu- maður. Hann kvæntist árið 1961 hinni ágætustu konu, Björku Hall- dórsdóttur, sem er dóttir hjónanna Halldórs Sigurðssonar og Sigríðar Sigurðardóttur. Björk og Friðjón eignuðust 3 dætur, en allar lifa föður sinn. Þau ungu hjónin reistu sér íbúð- arhús á Gunnlaugsgötu 7 í Borgar- nesi og þar bjó Björk manni sínum og dætrum indælt heimili, en skilj- anlega hefur slíkt mætt mest á henni, þar sem húsbóndinn var jafn- an mjög svo önnum kafinn vegna starfs síns svo og annarra starfa útá við. Öllu því hefði hann eigi getað komið í verk, nema af því að hann átti konu sem stóð dyggi- lega við hlið manns síns. Þá áttu þau og sameiginlegt áhugamál þar sem tónlistin var, en Björk er mús- íkölsk í besta lagi svo sem hún á kyn til og mun t.d. hafa sungið í kirkjukór Borgarneskirkju. Við hjónin sendum Björku og dætrum, svo og öðru venslafólki dýpstu samúðarkveðjur og biðjum þess að þeim megi veitast styrkur í sorginni. Ég vil svo að lokum kveðja þenn- an ágæta vin minn um leið og þökk- uð er áratuga vinátta og drengskap- ur. Góði fomvin farðu vel, finnumst aftur bak við hel. Allt það gott vér gerum hér græðir hver þá héðan fer. (M. Joch.) Þorkell Magnússon STARFSLOK Fræðslumiðstöð Rauða kross fslands gengst fyrir fræðslufundi um „Starfslok" að Hótel Lind laugardaginn 13. október nk. frá kl. 10-16. Dagskrá: - Trygginga- og lífeyrismál aldraðra. Margrét H. Sigurðardóttir, deildarstjóri - íbúðamál aldraðra. Ásgeir Jóhannesson, framkvæmdastjóri. - Skipulag á þjónustu við aldraða í Reykjavík. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, félagsráðgjafi. - Námskeið fyrir eldri borgara í bandarískum háskólum og kvöldnámskeið í Háskóla íslands. Margrét S. Björnsdóttir, endurmenntunarstjóri HÍ. - Önnur námstækifæri. Guðrún Friðgeirsdóttir, skólastjóri. Hádegismatur í boði RKÍ - Fjármál við starfslok. Sigurður B. Stefánsson, hagfræðingur. - Undirbúningur starfsloka. Ásdís Skúladóttir, félagsfræðingur. - Ábyrgð á eigin heilsu. Grímur Sæmundsen, læknir. - Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra. Soffía Stefánsdóttir, íþróttakennari. - Félag eldri borgara. Bergsteinn Sigurðsson. - Sjálfboðaliðar Kvennadeildar Reykjavíkurdeildar RKÍ. Karítas Bjargmundsdóttir, formaður Kvennadeildar RRKÍ. Umræður - námskeiðsmat - námskeiðsslit. Námskeiðið er öllum opið en fólk sem komið er um og yfir sextugt er sérstciklega velkomið. Námskeiðsgjald er kr. 1200. Vinsamlega skráið ykkur í síma 91-26722 fyrir kl. 17 á föstudag. FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ RAUÐA KROSS ÍSLANDS Rauðarárstíg 18 - Reykjavík - sími: 91-26722

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.